Morgunblaðið - 04.07.1978, Page 3

Morgunblaðið - 04.07.1978, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978 3 » ■■ ■■ *s/ it* » ■f . „., 1 V»~ '•> '■•■ .■- ;*■*«*■■*■ * , » _ .. _ J*t *T ' "* *“ «■••'-.<***•4 ♦ -W »$" >«* , - * *; ■- • * * *■?*&** ■ ><s^ . ^gSKf* * «* P':i., . . ■*» :.',:< ■; ■ -i* - - W .^X ’. *(% Yfirlitsmynd af Grund á Kjalarnesi. Þar hefur 500 manna íbúðahverfi Þegar skotid rótum. REYKVÍKINGAR munu að öllum likindum flytjast í mikl- um mæli upp á Kjalarnes á næstu árum. Þar hefur nú verið úthlutað lóðum undir 34 einbýl- ishús, og er ætlunin að lóðirnar verði 100 alls, svo að þar mun rísa um 500 manna hverfi. í skipulajíi fyrir þetta hverfi er meðal annars gert ráð fyrir verzlun, íþróttavelli og aðstöðu fyrir einhvern léttan iðnað við Vesturlandsveg. Morgunblaðið lagði í gær leið sína upp á Kjalarnes. Þar eru fáein hús risin af grunni, og frá tveimur þeirra bárust hamars- högg. Annað þeirra er greinilega komið lengst húsanna í þessu nýja hverfi. Það er í eigu Oskars Jónssonar hjúkrunarfræðings. „Mér finnst ég alltaf vera í bænum, og þó ekki, — þetta er svolítið skrýtin tilfinning," sagði Óskar, er við stóðum við „stofugluggann" og horfðum á höfuðborgina hinum megin við sundið. „Maður nýtur hér alls sem Reykjavík hefur upp á að bjóða, til dæmis ef maður ætlar í bíó kl. fimm þarf maður ekki að leggja af stað fyrr en hálftíma fyrr. Hins vegar er maður laus við marga ókosti." „Þetta eru bara ósköp venju- legir borgarar sem eru að byggja hér, verzlunarmenn, iðn- aðarmenn og aðrir, sem annað hvort hafa ekki fengið lóðir í bænum eða vilja ekki vera þar. Ég held að þeir sem hér byggja geri ekki ráð fyrir að starfa hér í grenndinni, en ég starfa til dæmis sjálfur á Borgarspítalan- um hér uppfrá. Þessi 34 hús, sem hefur verið úthlutað, risa sennilega á næstu þremur til fjórum árurn." „Hér er fallegt útsýni," sagði Óskar, og benti út yfir víkina. „Það hefur meira að segja verið rætt um að byggja hér smábáta- höfn, enda er mikið af fiski hér úti fyrir." Næst við hús Óskars stóðu útveggir húss, og þaðan bárust hamarshögg í rokinu. Þar voru að störfum bræður, Jónas og Guðni Sigfússynir. Þeir sögðu þetta vera fyrsta hlutann af raðhúsi, og hygðust þeir byggja þar hlið við hlið. Jónas er kennari á Seltjarnarnesinu og flyzt á Kjalarnesið úr Mosfells- sveitinni. „Reykjavík fer að verða búin með allt sitt lands- svæði," sagði hann. „Hún hefur líka öll einkenni erlendrar stórborgar, þar sem atvinnuveg- ur flyzt burt þaðan og í ná- grannabyggðirnar." Fyrstu íbúarnir hafa þegar flutt inn í hið nýja íbúðahverfi á Kjalarnesi. Það eru hjónin Sigurgeir Bjarnason og Margrét Jónsdóttir. Þau fluttu inn í hluta hússins í september í fyrra, en það er enn ófullgert. „Ég hef orðið vör við að mikið af ungu fólki í bænum hefur áhuga á að flytjast hingað,“ sagði Margrét. „Ég held að það viðhorf sé í sókn, að vilja komast út fyrir ys og þys borgarlífsins, og við vorum fyrst og fremst með það í huga á sínum tíma, þó að við sæktum svo um af rælni.“ „Ég á nú erfitt með að gera mér grein fyrir því hvernig þetta hverfi á eftir að verða. Húsin eiga sennilega eftir að verða af öllum gerðum, en það er lítið að marka reynslu okkar hingað til, því að við höfum verið hér ein í heilu hverfi í allan vetur og það eru auðvitað töluverð viðbrigði frá borginni. En við erum mjög ánægð hér, og við höfum haft nokkur kynni af fólki á bæjunum í kring. Hér er mikið félagslíf á veturna, þrátt fyrir nálægð borgarinnar. Fólki hér finnst það vera í sveit þó að okkur finnist það ekki. Ég fer Líkan af skipulagi hins nýja hverfis á Kjalarnesi. Þar er bæði gert ráð fyrir útisundlaug og íÞróttavelli. Fremst fyrir miðju á myndinni eru húsin, sem nú er verið að reisa. 500 manna hverfi að rísa á Kjalarnesi umsóknir sínar til baka. Af áðurnefndum 34 lóðum sem úthlutað hefur verið, eru nú um 10 eignir Kjalnesinga, en aðrir kaupendur eru mest úr Reykja- vík. „Mér virðist vera mikil sókn í einbýlishús burt frá Reykjavík." sagði Bjarni. „Astæðan er senni- lega sú, hvað Reykjavíkurborg hefur getað boðið upp á fáar einbýlishúsalóðir. Byggð hér á Kjalarnesi er í töluverðri sókn, fyrir 12 árum voru íbúar hér færri en 108, en nú eru þeir yfir 260. Þar á steypti vegurinn örugglega stóran hlut að máli.“ „Hugmyndin er sú að fara ekki hratt í uppbyggingu þessa nýja hverfis, heldur láta það þróast smátt og smátt. Vanda- málin varðandi stjórnun sveit- arfélaga eru slík, að þessi eining má ekki verða of stór strax.“ Húa Óskars Jónssonar er lengst komið í byggingu á Kjalarnesinu. Bræðurnir Jónas og Guðni Sigfússynir vinna við hús pess fyrrnefnda. Margrét Jónsdóttir ásamt syni sínum, Jóni Viöari. Þau eru fyrstu íbúar hins nýja hverfis. sjálf einu sinni til tvisvar í viku í bæinn, en þeim ferðum á eftir að fækka þegar búðirnar koma.“ Það er Kjalarneshreppur sem úthlutar lóðum í hinni nýju byggð. Oddviti hreppsins, Bjarni Þorvarðsson sagði að tildrög þessa skipulags hefðu verið þau, að á sínum tíma hefðu margar umsóknir Kjalnesinga komið um lóðir undir íbúðahús. Lyktir urðu þær, að ákveðið var að reisa sérstakt íbúðahverfi. Þá lágu fyrir umsóknir 30 Kjalnes- inga. En síðar komst hreyfing á upphaflegar umsóknir, fólk víðs vegar að utan af landi sótti um byggingarlóðir þar en á sama tima drógu margir heimamenn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.