Morgunblaðið - 04.07.1978, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
17
JÓHANNINGI
TEKURVIÐ
LANDSLIÐINU
UM HELGINA fóru fram viðræður milli stjórnar Handknattleikssambands íslands og Jóhanns In«a
Gunnarssonar handknattleiksþjálfara um að hann taki við þjálfun og stjórn íslcnzka landsliðsins
næsta keppnistímabil. Eru samningar á lokastigi og talið fullvíst að Jóhann Ingi verði næsti
landsliðsþjálfari íslands.
Jóhann hefur í sumar verið fararstjóri á Spáni og kom hann hingað um helgina til viðræðna við
stjórn HSÍ. Jóhann hafði hug á því að dvelja á Spáni í vetur og hafði hann m.a. fengið tilboð um
að gerast þjálfari hjá spænsku félagi og þá hafði Athletico Madrid boðið honum að koma til sín
í haust til reynslu sem ieikmaður. Hefur Jóhann nú hætt við öli áform um Spánardvöl í vetur.
Ýmis verkefni bíða íslcnzka liðsins í vetur og er stærst undankeppni Olympíuleikanna. sem fer
fram á Spáni í lok marz. Þar keppa 12 þjóðir og munu væntanlega tvö efstu sætin gefa þátttökurétt
á Ólympíuleikunum í Moskvu og 6 efstu sætin munu gefa þátttökurétt í næstu B heimsmeistarakeppni.
Jóhann Ingi er hálfþrítugur að aldri. Hann hefur getið sér gott orð sem þjálfari
unglingaiandsliðsins og meistaraflokks Fram. — SS.
2 nýir milli-
ríkjadómarar
t
TVÖ ný nöfn eru a milliríkja-
dómaralistanum íslenzka, sem
stjórn KSÍ hefur nýlega samþykkt
og sent Alþjóða knattspyrnusam-
bandinu, FIFA.
Listinn lítur þannig út:
Magnús V. Pétursson
Guðmundur Haraldsson
Eysteinn Guðmundsson
Þorvarður Björnsson
Rafn Hjaltalín
Hreiðar Jónsson
Arnþór Óskarsson.
Þeir Hreiðar og Arnþór eru nýir
milliríkjadómarar. Koma þeir á
listann í stað Guðjóns Finnboga-
sonar, sem kominn er yfir aldurs-
mörk dómara, og Grétars Norð-
fjörðs, sem hefur sama og ekkert
dæmt í sumar vegna anna.
- SS
Míluhlaup FH
í KVÖLD kl. 6 fer fram á
Kaplakrikavelli míluhlaup FH og
1500 m hiaup kvenna á vegum
frjálsíþróttadeildar FH.
2Horj3imliIní»ií»
í IDróHir I
Drengjalandsleik-
ur við Færeyinga
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ, 5.
júlí kl. 20.00 fer fram í Kópavogi
knattspyrnulandsleikur milli Is-
lands og Færeyja í flokki drengja
á aldrinum 14 — 16 ára. betta er
þriðji leikur milli þjóðanna í
þessum aldursflokki. í fyrsta
leiknum sigruðu Færeyingar
1—0, en í þeim næsta íslendingar
5-2.
' Lárus Loftsson unglingalands-
liðsþjálfari hefur valið 16 manna
hóp fyrir leikinn við Færeyinga.
Eftirtaldir leikmenn hafa verið
valdir: Markverðir, Stefán H.
Jóhannsson KR og Elvar Gott-
skálksson ÍBK. Aðrir leikmenn,
Benedikt Guðmundsson UBK, Lár-
us Guðmundsson Víkingi, Jón
Bjarnason KR, Sigurður Grétars-
son IBK, Sigurjón Kristjánsson
UBK, Helgi Bentsson UBK, Jón
Þór Brandsson FH, Guðmundur
Torfason Fram, Ástvaldur
Jóhannesson IA, Ragnar
Margeirsson IBK, Páll Þorkelsson
ÍBK, Gísli Bjarnason KR, Hafþór
Sveinjónsson Fram og Jóhannes
Sævarsson Víking.
Dómari er Arnþór Örvarsson.
MARKIÐ SEM FÆRÐI VAL SIGUR — Ingi Björn Albertsson sést hér skora sigurmark Vals gegn
Akurnesingum úr vítaspyrnu einni mínútu fyrir leikslok. Þegar íslandsmótið er hálfnað er staða Vals
langbezt f 1. deild og aðeins Valur og Akranes koma til greina sem íslandsmeistarar úr þessu. Hins
vegar er staða Breiðabliks á botninum mjög erfið, aðeins eitt stig úr 9 fyrstu leikjunum. Hér á síðunni
er viðtal við þjálfara og fyrirliða Breiðabliks, á bls. 18, 19, 20 og 21 er fjallað um 1. deildina, á bls.
24 er fjallað um 2. deildina og á bls. 18 er fjallað um leiki 3. deildar um helgina. Sem sagt allt sem
máli skiptir í knattspyrnunni í einu blaði. Ljósm. Mbl. Sigtr.
Udo Bayer varpaði 21,98
Yfirburðasigur Geirs
UDO BAYER náði frábærum árangri
í kúluvarpi á Alþjóöiega Frjálsíþrótta-
mótinu sem fram fór í Leipzig um
helgina. Kappinn varpaöi kúlunni
21,98 metra og er það aöeins 11
sentimetrum styttra heldur en heims-
met Alexanders Baryshnikov.
Þetta
er vafalaust besti árangurinn í
heiminum á þessu ári.
S.R.-KEPPNI Golfklúbbsins Leyn-
is á Akranesi fór fram um helgina.
46 kylfingar tóku þátt í meistara-
flokkskeppninni sem gaf 145 stig
til landsliðs. Sigurvegari varð Geir
Svansson og lét hann rokið sem
var meðan keppnin stóð yfir engin
Bjartsýnn þrátt
fyrir mótlætið"
BlaðamaÖur Morg-
unblaðsins spjallaði
lítillega við fyrirliða
UBK og þjálfara og
bað þá um skýringu á
erfiðleikum UBK í 1.
deild um þessar
mundir.
Jan Fabera þjálfaris
— Það sem varð okkur fyrst
og fremst að falli í leiknum í
kvöld var að við vorum með
ungan og óreyndan markvörð,
aðeins 17 ára gamlan. Hann er
mjög efnilegur en skortir
reynslu í svona leiki og fékk því
á sig ódýr mörk. Nú við höfum
misst fimm af eldri og reyndari
leikmönnum liðsins á keppnis-
tímabilinu og yngri menn hafa
þurft að taka stöður þeirra og
ekki geta skilað þeim sem
skyldi. Þá vantar líkamsburði í
hinni hörðu baráttu og gefast
fyrr upp við mótlæti. Ég er samt
ekki svartsýnn og hef fulla trú
á að lið okkar rétti úr kútnum
og falli ekki.
Þór Hreiðarsson
fyrirliði UBK
— Við höfum leitað skýringa
á því hversu illa okkur hefur
gengið í mótinu, en ekki fundið
þær. Það er baráttuleysi í
liðsmönnum og mikið reiðileysi
í varnarleiknum. Þá er einhver
ótrú á að við getum sigrað í
leikjum. Þetta _ hefur verið
þyngst að metunum varðandi
hve liðinu hefur gengið ilia í
fyrri umferð mótsins. Við gef-
umst samt ekki upp þó á móti
blási og ég hef enga trú á að við
föllum niður í 2. deild þrátt fyrir
að útlitið sé dökkt sem stendur.
• Jan Fabera
áhrif á sig hafa og sigraði
örugglega.
1. sæti
Geir Svanss. GR 38 42 34 35 149
Siiíurður Péturss. GR 38 41 39 39 157
Magnús Halldórss. GK 41 38 39 40 158
Þorbjörn Kjærbo GS 40 43 37 38 158
Ragnar Ólafsson GR 36 38 40 44 158
Páll Ketilss. GS 40 41 38 40 159
Sigurjón F. Gfslason GK 37 40 41 42 160
Björgvin Þorsteinss. GA 43 42 37 39 161
Magnús Birgiss. GK 39 39 41 43 162
Hannes Eyvindss. GR 47 37 40 41 165
Fyrri átján holurnar voru með
forgjöf og þar sigraði Magnús
Birgisson GK, lék á 72 höggum
nettó og í öðru sæti varð Ragnar
Ólafsson á 72 höggum nettó. Mótið
gaf 145 stig til landsliðs. Fyrsta
sætið í mótinu gaf 27.55 punkta. Á
laugardaginn léku annar og þriðji
forgjafarflokkur. Sigurvegari án
forgjafar varð Alfreð Viktorsson
GL, 87 högg. í öðru til þriðja sæti
Jens Karlsson GK, 90 högg, og
Jóhann Einarsson GN á 90 högg-
um.
Með forgjöf sigraði Steingrímur
Guðjónsson GK, lék á 67 höggum
nettó. — þr
Hreinn varpaði 19,80 m
HREINN Halldórsson
varð þriðji í kúluvarpi
á alþjóðlegu frjáls-
íþróttamóti, sem fram
fór á ólympíuleikvang-
inum í Stokkhólmi í
gærkvöldi. Hreini tókst
ekki vel upp í gær-
kvöldi, hann varpaði
19,80 metra, sem er
langt frá hans bezta.
Sigurvegari varð Bandaríkja-
maðurinn A1 Feuerbach, sem
varpaði kúlunni 20,47 metra og
annar varð Ungverjinn Komar
með 20 metra kast.
Mót þetta heldur sænska blaðið
Dagens Nyheter og heitir það DN
Gala. Mesta athygli í gærkvöldi
vakti míluhlaupið en þar setti
Vestur-Þjóðverjinn Thomas Wess-
inghage nýtt Evrópumet, hljóp
vegalengdina á 3,25,50 mínútum.
Mótinu verður fram haldið í
kvöld og þá keppa Óskar Jakobs-
son og Erlendur Valdimarsson í
kringlukasti.
Armfield hættir hjá Leeds
JIMMY Armfield, framkvæmdastjóri enska knattspyrnufélagsins Leeds
United, hefur látið af störfum hjá félaginu að ósk stjórnar þess.
Síðan Armfield tók viö Leeds áriö 1975 hefur þaö náö mun lélegri árangri
en hér fyrr á árum, þegar félagiö var hiö sigursælasta í Englandi. Taliö er
líklegt aö Jackie Charlton, fyrrum leikmaöur Leeds og enska landsliðsins, taki
viö framkvæmdastjórastöðunni.