Morgunblaðið - 04.07.1978, Side 36
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLI 1978
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
21
i||JjijJ|l 1 - ■ '.
• Darraðardans í leik Fram ok IBV. Kristinn Atlason og Örn Óskarsson berjast um boltann og hefur
Örn greinileRa betur í þeirri viðureisn.
Slakur leíkur
Fram og ÍBV
ÞAÐ ER máske of djúpt í árinni tekið að segja að Framarar hafi aðeins
átt tvær sóknir í fyrri hálfleiknum á móti ÍBV, en pær voru varla miklu
fleiri sem einhver hætta stafaði af. Það er pví ekki slæm útkoma aö hafa
skoraö tvð mðrk, og hafa yfir í hálfleik 2—0. Allt að pví 100 prósent nýting.
Það hefði verið huggulegt fyrir Eyjamenn ef upphlaupin hefðu verið fleíri.
Frekar slakur leikur
Það vantaöi ekki aö veörið væri
gott í Laugardalnum á laugardag er
IBV og Fram léku þar í 1. deildinni.
Áttu því menn von á aö liðin næöu
að sýna góöa knattspyrnu og hart
yrði barist. Raunin varð önnur,
leikurinn í heild var slakur og fátt um
fína drætti. Þaö litla sem sást af
knattspyrnu kom frá Fram-liðinu en
Eyjamenn voru daufir og léku frekar
stórkarlalega. Er meö ólíkindum hve
illa þeim gengur ávallt í Laugardaln-
um.
Framan af fyrri hálfleiknum réöu
Eyjamenn miöju vallarins og sóttu
allstíft án þess þó aö skapa sér
tækifæri sem reyndust vera hættu-
leg. Framvörnin sem var betri hluti
liösins allan leikinn varöist vel. Annaö
slagið náðu Framarar að sækja, og
úr einni slíkri skyndisókn kom fyrsta
mark leiksins. Á 29. mínútu kom góö
fyrirgjöf fyrir markið og virtist enginn
hætta vera á ferðum þar sem Páll
Pálmason markvöröur kom á móti
knettinum og hugðist grípa hann en
ekki tókst betur til en svo aö hann
missti knöttinn milli fóta sér og fyrir
markið þar sem þvaga myndaöist, og
þar tókst Sigurbergi Sigsteinssyni að
pota knettinum í netiö aðþrengdur
varnarmönnum. Mark þetta má
algerlega skrifa á reikning Páls
markvaröar. Var þetta ekki í eina
skiptið í leiknum sem Páll virkaði
óöruggur. Þá eru sum úthlaup hans
úr markinu mjög ævintýraleg.
Síðara mark leiksins kom á 35.
mínútu hálfleiksins. Trausti Haralds-
son bakvöröur brunaði upp vinstri
kantinn og gaf síðan vel inn í
vítateiginn á Pétur Ormslev sem var
þar óvaldaður, hafði Pétur nægan
tíma til að athafna sig með knöttinn
og leggja hann vel fyrir sig. Pétur
sneri baki aö markinu er hann fékk
sendingu Trausta en eins og áöur
segir var hann ekki í vandræöum
með að snúa sér og skjóta og skora
framhjá Páli sem var frekar seinn til
að gera tilraun til að verja. Stóð
Pétur vel að þessu marki. í síðari
hálfleiknum börðust Vestmanna-
eyingar vel, og reyndu allt hvað af tók
að jafna metin en það tókst ekki.
Það var strax á fyrstu mínútu síðari
hálfleiksins sem Tómas komst einn í
gegn, Guðmundur markvörður kom á
limiMIIIBlllHM
Fram-ÍBV 2:1
(I
Texti:
Þórarinn Ragnarsson
Mynd:
Kristinn Ólafsson
móti og varöi skot hans en hélt ekki
knettinum, knötturinn hrökk út þar
sem Karl kom á fullri ferð en skaut
framhjá úr góðu færi. Rétt fimm
rnínútum síðar er Tómas í góðu
marktækifæri er hann fær góða
fyrirgjöf, en hörkuskalli hans fer
framhjá. Mark Vestmannaeyinga
kemur á 61. mínútu leiksins. Örn
Óskarsson fær sendingu inn í vítateig
eftir skyndisókn Vestmanneyinga, og
aöþrengdur varnarmönnum nær Örn
að skjóta laglegu skoti og skora úti
við stöng, var þetta mjög laglega
gert. Framliðið var frekar dauft fyrri
hluta síöari hálfleiksins en hresstist
er líöa tók á hálfleikinn og náöu þá
oft vel útfærðum sóknum. Tvívegis í
síðari hálfleiknum voru þeir nálægt
því að skora. í fyrra skiptið varði Páll
vel skot frá Gunnari Guðmundssyni
en í síöara skiptið átti Kristinn
Atlason skalla sem Vestmannaeying-
ar björguðu á marklínu. Ekki
sköpuöu liðin sér fleiri umtalsverð
marktækifæri í leiknum.
LIÐIN:
Lið Fram er ótrúlega drjúgt og á
áreiðanlega eftir að hala inn mörg
stig til viðbótar. Leikur liðsins hefur
stórbatnað frá fyrstu leikjum þess í
mótinu. Bestu menn liösins í þessum
leik voru þeir Kristinn Atlason og
Sigurbergur í vörninni, báðir mjög
seigir við að stoppa sóknir and-
stæðinganna. Sigurbergur er sterkur
í loftinu og á allflesta skallabolta,
Kristinn sækir sig stöðugt og er mjög
sparkviss en mætti gera meira af því
aö reyna að byggja upp sóknir í staö
þess að hreisa frá markinu. Þá voru
þeir Pétur Ormslev og Rúnar Gísla-
son sprækir í framlínunni. Rúnar er
liðinu mikill styrkur en hann hefur
ekki leikið með því að undanförnu.
Pétur hefur góða knattmeðferð og
platar oft stórskemmtilega, þá eru
margar sendingar hans vel hugsaöar
og útfærðar. Liö ÍBV veldur von-
brigðum. Það nær ekki því út úr leik
sínum sem ætla mætti. Þó vel sé
barist á köflum vantar meiri samleik
sem skapar marktækifæri og til-
finnanlega vantar þá markskorara.
Að vísu vantaði Sigurlás í þennan leik
en hann var í leikbanni. Þá láta
leikmenn um of ýmis smámistök fara
í taugarnar á Sér. Það kann ekki
góðri lukku að stýra er menn rífast
innbyröis á leikvelli. Ætli Eyjamenn
séu ekki að missa alveg af lestinni
veröa þeir að taka sig verulega á í
næstu leikjum.
f STUTTU MÁLI,
1. deild. Lauxardalsvollur 1. júlí ÍBV —
Fram, (0—2) 1-2.
Mörk Fram, Sixurberxur Siifsteinsson á
29. mín. ok Pétur Ormslev á 35. mín.
Mörk ÍBV, Örn óskarsson á fil. mín.
Áminninx, Enxin.
Áhorfendur. 227.
HAMINGJUDÍSIRNAR
GENGU í LIÐ MEÐ VAL
IIEILLADISIRNAR gengu í lið með Valsmönnum á laugardaginn þegar Akranes og Valur mættust í
hinum mikilvæga leik toppliðanna á Akranesi. Valsmenn sigruðu LO með marki Inga Bjarnar
Albertssonar úr vítaspyrnu mínútu fyrir leikslok. Aður en markið kom höfðu Akurnesingar sótt nær
látlaust um langa hríð og skall oft hurð nærri hælum við Valsmarkið. En þegar markalaust jafntefli
blasti við fengu Valsmenn skyndisókn, Guðmundur Þorbjörnsson slapp úr gæzlu sterkrar Akranesvarnar
í eina skiptið í leiknum og Jón Þorbjörnsson markvörður Akurnesinga sá ekki annað ráð en fella
Guðmund. Ingi Björn skoraði örugglega úr vítaspyrnunni og tryggði Valsmönnum tvö óverðskulduð stig.
Akurnesingarnir áttu í það minnsta skilið annað stigið í þessum leik og miðað við gang hans og
marktækifæri voru þeir nær sigri. En knattspyrnan er óútreiknanleg eins og allir vita og úrslitin eru
oí óréttlát. í leikslok brutust út mikil fagnaðarlæti á áhorfendapöllunum en stuðningsmenn Vals höfðu
fjölmennt upp á Skaga og létu mikið á sér bera. Stuðningsmenn Akurnesinga voru hljóðir og vonbrigðin
leyndu sér ekki. Ilamingjudísirnar hafa verið hliðhollar í fleiri leikjum og sá grunur læðist að manni
að þarna sé um að ra-ða hina einu sönnu meistaraheppni.
Aðstæðurnar voru ekki eins og hafi Akurnesingar sótt mun
bezt varð á kosið á Akranesi a
laugardaginn, rigning og norðan-
rok, sem stóð þvert á völlinn.
Völlurinn var í slæmu ásigkomu-
lagi og þessar aðstæður settu svip
sinn á leikinn. Hann var ekki eins
vel leikinn og vænta hefði mátt en
baráttan var ósvikin og ekkert
gefið eftir. '
Sterkar varnir
Til að byrja með sóttu Valsmenn
meira og má segja að þeir hafi
ráðið gangi leiksins fyrstu 15
mínúturnar. Munaði minnstu að
Valsmenn tækju forystuna á 7.
mínútu þegar Ingi Björn komst í
gegn en vörn Akurnesinga gat með
naumindum bægt hættunni frá.
Akurnesingar fóru nú smátt og
smátt að sækja í sig veðrið og þeir
fengu fyrsta tækifærið á 16.
mínútu þegar Karl Þórðarson átti
þrumuskot naumlega yfir markið
eftir hornspyrnu. Á 22. mínútu
komst Matthías Hallgrímsson í
gegnum vörn Vals og átti greiða
leið að markinu en hann missti
boltann of langt frá sér á klaufa-
legan hátt og Sigurður markvörð-
ur náði að handsama hann. Það er
ólíkt Matthíasi að misnota tæki-
færi á borð við þetta. Fleiri
umtalsverð tækifæri voru ekki í
fyrri hálfleiknum enda fór barátt-
an mest fram á miðjunni og
sterkar varnirnar áttu löngum í
fullu tré við sóknarmennina.
, í seinni hálfleiknum, hélst
svipuð staða, bæði liðin reyndu að
skapa sér marktækifæri en varn-
irnar voru traustar og sjaldan að
framlínumönnunum tækist að
brjóta niður varnarmúrana. Á 7.
mínútu seinni hálfleiks komst
Skotinn James Bett í gott færi en
skot hans fór framhjá Akranes-
markinu. Upp úr miðjum hálf-
leiknum fóru Akurnesingar að
þyngja sóknina og má segja að
síðustu 20—25 mínútur leiksins
Bikarinn
íkvöld
FYRSTU leikirnir í 16
liða úrslitum Bikar-
keppni KSÍ fara fram í
kvöld og leika þá eftir-
farandi lið«
Þór, Akureyri — ÍBV
ÍA - KA
Víkingur, RVK — KR
UBK - Fylkir
Leikirnir hef jast allir
klukkan 20.00.
meira. Á 23. mínútu átti Pétur
Pétursson mjög góðan skalla að
marki Vals eftir hornspyrnu en
Guðmundur Kjartansson bjargaði
laglega á línu. Skömmu síðar átti
Bett þrumuskot að Akranesmark-
inu af löngu færi en naumlega
framhjá. Á 39. mínútu kom bezta
tækifæri leiksins. Akranes fékk
aukaspyrnu rétt utan vítateigs
mauaiiaji
raunar ekki máli því Jón mark-
vörður greip nú til þess ráðs að
grípa í fætur Guðmundar svo að
hann féll kylliflatur á völlinn og
góður dómari leiksins, Ragnar
Magnússon, var ekkert að hika
heldur benti umsvifalaust á víta-
punktinn. Ingi Björn Albertsson
tók spyrnuna og negldi knöttinn
hægra megin við Jón markvörð,
óverjandi. Ýmsir vildu meina að
Guðmundur hefði þarna verið
rangstæður en Hinrik Lárusson
línuvörður sagði eftir leikinn að
svo hefði alls ekki verið, tveir
Akurnesingar hefðu verið fyrir
innan Guðmund þegar boltanum
var spyrnt. í sama streng tók
Ragnar dómari, rangstaða hefði
ekki komið til greina í þessu
tilfelli.
Liðin
Eins og íslandsmótið hefur
þróast eru þeir tveir leikir, sem
ÍA-Valur 0:1
Texti og mynd:
Sigtryggur Sigtryggsson.
Vals. Boltinn var gefinn fyrir
markið að stönginni fjær, þar sem
Jón Gunnlaugsson stóð metra frá
opnu markinu, en hann hikaði og
boltinn fór aftur fyrir endamörk
Sigurmarkið
Menn biðu nú bara eftir flautu
dómarans og bæði liðin virtust
hafa sætt sig við jafnteflið. En
skyndilega, einni mínútu fyrir
leikslok, eygði Hörður Hilmarsson
möguleika, þar sem hann var með
boltann á miðjunni og sendi góða
sendingu inn fyrir vörn Akurnes-
inga. Guðmundur Þorbjörnsson
náði boltanum og lék upp að
markinu. Jón Þorbjörnsson hljóp
út úr markinu en hikaði í úthlaup-
inu og Guðmundur náði að leika
framhjá honum. Svo virtist sem
Guðmundur ætti í erfiðleikum með
að halda jafnvægi en það skipti
hugsast gat"
„Ég er yfir mig ánægður með úrslitin. Að fá tvö stig á Skaganum
var það bezta sem hugsast gat,“ sagði Ingi Björn Albertsson
fyrirliði Vals eftir leikinn.
„Jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit en ef annaðhvort liðið átti
að sigra vorum við nær sigrinum. Þrátt fyrir að við höfum unnið
í dag er mótið alls ekki búið, við höfum eitt stig umfram
Skagamennina og eigum einn leik inni, erfiðan útileik gegn
Vestmannaeyingum."
— Varstu taugaóstyrkur í vítinu?
„Nei, alls ekki, ég var alveg rólegur. Aðalatriðið var að hitta
boltann vel og skjóta fast og það tókst með ágætum."
Við eigum eftir
að ná þeim aftur"
„Ég er auðvitað ofsalega óánægður með þessi úrslit. Þetta var
hundaheppni hjá Valsmönnum í dag,“ sagði Jón Áskelsson fyrirliði
Akurnesinga.
„Þetta er ekki búið ennþá, sjáðu bara til. í fyrra höfðu þeir
Valsmenn 3—4 stiga forskot þegar fjórar umferðir voru eftir en
samt unnum við. Við eigum eftir að ná þeim aftur síðar í motinu
og ég hef þá von að Islandsbikarinn verði áfram á Skaganum þótt
útlitið sé kannski ekki of bjart þessa stundina," sagði Jón Áskelsson.
Ff
Akurnesingar og Valsmenn leika
saman hápuntkar mótsins. Því var
leitt að veðrið og vallaraðstæður
skyldu ekki vera betri á laugar-
daginn. Þá hefði knattspyrnan
eflaust verið betri, tækifæri verið
fleiri og opnari og leikurinn fyrir
bragðið orðið skemmtilegri fyrir
áhorfenaur. Þessi leikur var svip-
aður landsleiknum við Dani á
dögunum, barátta mikil og góð
knattspyrna á stundum en leikur-
inn ekki skemmtilegur á að horfa.
Varnirnar voru góðar hjá báðum
liðum, þó með undantekningum,
framlínumennirnir með daufara
móti, einnig með undantekningum
en miðjumennirnir yfirleitt góðir.
Hjá Akurnesingum átti Árni
Sveinsson stórleik, var mjög góður
sem varnarbakvörður að þessu
sinni og drjúgur í sókninni. Kollegi
hans Guðjón Þórðarson var hins
vegar veikleikinn í vörninni í
þessum leik og réð hann ekkert við
hinn leikna Skota í Valsliðinu,
James Bett. Á miðjunni voru Karl
Þórðarson og Jón Alfreðsson
sterkir og í framlínunni voru
Pétur Pétursson og Kristinn
Björnsson frískastir. Valsvörnin
átti góðan leik að þessu sinni nema
hvað Dýri Guðmundsson lék undir
getu aldrei þessu vant. Hörður
Hilmarsson og Atli Eðvaldsson
voru góðir á miðjunni og í
framlínunni var James Bett mjög
sprækur.
í STUTTU MÁLI,
Akranesvöllur 1. júlí. íslandsmótiö 1. deild,
Akranes — Valur 0.1 (0,0).
Mark Vals. Ingi Bjorn Albersson úr
vítaspyrnu i 89. minútu.
Áminninx, Enxin.
Áhorfendur.1882.
’ ; * '
r lH) ' 1 i
m
'■■■■■ ■ -'■■
9
*
.
X l *C$
-
1 ;
• -
• Eitt bezta færi Akurnesinga fer forgörðum. Snúningsbolti kom fyrir markið til Jóns Gunnlaugssonar. Jón hikaði og missti því af boltanum.
sem rúllaði framhjá markstönginni. Jón hefði aðeins þurft að reka tána í boltann því markið blasti opið við honum. Sigurður markvörður og
Ingi Bjiirn eru til varnar.
• Ólafur Júlíusson og Adolf Guðmundsson í baráttu um knöttinn í
leik Víkings og ÍBK.
Tvö dýrmæt stig
til Keflvíkinga
KEFLVÍKINGAR unnu Víking L0 í sérdeilis leiðinlegum leik í
Laugardalnum á sunnudagskvöldið. Varla gat heitið að knettinum
væri spyrnt samherja á milli og þá sjaldan að gott samspil sást voru
Keflvíkingar þar undantekningalaust að verki. Þeir sýndu þá
knattspyrnu sem sýnd var í leiknum en Víkingarnir áttu jafnopin
tækifæri og jafnvel betri tækifæri, sem þeim tókst ekki að nýta.
Það viðraði ekki vel til knatt-
spyrnuiðkunar þetta kvöld, háv-
aðarok af norðri lengst af. Reynd-
ar lygndi um tima en í seinni
hálfleik var komið rok á nýjan
leik. Vindurinn var þvert á völlinn
og var boltinn því að mestu leyti
á öðrum vallarhelmingnum og þau
vor ófá innköstin, sem tekin voru
í leiknum.
í fyrri hálfleiknum var ÍBK-lið-
ið mun betra, Keflvíkingarnir voru
miklu grimmari í boltann og þeir
reyndu annað slagið að spila
saman, þveröfugt við Víkingana,
sem voru með „gömlu góðu“
langspyrnurnar fram völlinn, sem
þeim Arnóri Guðjohnsen og Lárusi
Guðmundssyni var ætlað að vinna
úr. Reyndar léku þeir tveir vel
saman á 6. mínútu leiksins og
Arnór komst í dauðafæri en
Þorsteinn varði vel. Skömmu síðar
komst Ólafur Júlíusson inn fyrir
vörn ÍBK en Diðrik varði mátt-
laust skot Jians auðveldlega. Á 39.
mínútu átti Arnór mjög góða
sendingu á Gunnar Órn, sem
skallaði að markinu en Þorsteinn
varði auðveldlega.
I seinni hálfleiknum gerðist fátt
markvert lengi vel. Langspyrnur
voru mest áberandi sem fyrr og
varnirnar voru traustar og mark-
verðirnir báðir. En á 39. mínútu
skoraði Keflavík mark, sem reynd-
ist vera sigurmark leiksins. Ólafur
Júlíusson lék þá upp að endamörk-
um vinstra megin og gaf góða
sendingu fyrir markið, þar sem
varamaðurinn Friðrik Ragnarsson
var fyrir. Friðrik henti sér fram og
skallaði boltann laglega í markið,
framhjá Diðriki.
Mínútu síðar braust Arnór af
harðfylgi í gegnum vörn ÍBK og
gaf góða sendingu fyrir markið.
Litlu munaði að Gunnari Erni
tækist að skora en Gísla Torfasyni
tókst að bægja hættunni frá á
síðustu stundu.
Þessi tvö stig eru ákaflega
mikilvæg fyrir Keflvíkinga, sem
byrjað hafa heldur illa í 1.
deildinni. Þeir börðust vel að þessu
sinni og uppskáru laun erfiðisins.
Þorsteinn var öruggur í markinu
og í vörninni voru þeir mjög
traustir Óskar Færseth, Gísli
Grétarsson og Sigurður Björgvins-
son.
Þá átti Olafur Júlíusson
einnig góðan leik. Hjá Víkingi
voru aðeins tveir leikmenn, sem
sýndu eitthvað í leiknum, Diðrik
markvörður og Arnór Guðjohnsen.
I heild lék liðið undir getu og
knattspyrnan, sem leikmenn þess
buðu lengst af upp á var ekkert
augnayndi.
I STUTTU MÁLI,
Laufiardalsvöllur 2. júlí. íslandsmótiö 1.
deild VíkinKur — ÍBK 0,1 (0,0)
Mark, ÍBK, Friórik Raxnarssun á 81.
mínútu.
Áminninx, Enxin.
Áhnrfendur, 397.
■slandsmötlð 1. delld