Morgunblaðið - 04.07.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978
31
Minning — Helgi
Geirsson skólastjóri
Fæddur 3. ágúst 1911.
Dáinn 27. júní 1978.
Helgi Geirsson, skólastjóri, sem
andaðist 27. júní, verður kvaddur
hinstu kveðju frá Fossvogskirkju í
Reykjavík í dag. Með Helga er
genginn sérlega traustur og gagn-
merkur skólamaður, sem gott er
að minnast.
Helgi Geirsson var fæddur 3.
ágúst 1911 að Útverkum á Skeið-
um, var Árnesingur að ætt og
uppruna og taldi til mikils dugnað-
ar- og myndarfólks í báðar ættir.
Framtak hans og menningaráhugi
komu líka snemma í ljós, þótt
tækifæri lægju þá ekki svo mjög
á lausu sem á okkar dögum. Er
hann var kominn að tvítugu, lá
leiðin í hinn nýstofnaða Héraðs-
skóla á Laugarvatni og síðan í
Kennaraskóla íslands, þar sem
hann lauk prófi 1934.
Næstu ár ferðaðist hann tals-
vert erlendis og lærði margt,
fÍnSm. á„No-rð«^rastörf hóf
mSín við íþróttaskóla Sigurðar
Greipssonar í Haukadal og kenndi
einnig um árs skeið í Borgarfirði.
En 1937 gerðist hann skólastjóri
við Barnaskólann í Hveragerði og
var þar samfellt að kalla til 1956.
Jafnframt stjórnaði hann Miðskól-
anum í Hveragerði eftir að hann
var stofnaður 1947.
Kennari réðst hann síðan við
Héraðsskólann á Laugarvatni og
gegndi því starfi um árabil. Þá var
hann skólastjóri Gagnfræðaskól-
ans í Hveragerði um eins árs skeið
og vann næstu ár ýmis skrifstofu-
störf í Reykjavík og austan Fjalls,
þar á meðal á Fræðsluskrifstofu
Suðurlands, og loks gerðist hann
skólastjóri Héraðsskólans í Skóg-
um s.l. haust og hafði gegnt því
starfi um árs skeið, er hann féll
frá.
Helgi Geirsson kvæntist 1938
Sigríði Áskelsdóttur, ágætri konu,
ættaðri úr Eyjafirði, sem nú er
látin fyrir nokkru. Þau eignuðust
sex börn, sem öll eru á lífi og hið
mesta dugnaðar- og manndóms-
fólk.
Helgi Geirsson var slíkur mað-
ur, að alltaf var gott að vera
nálægt honum. Hann hafði miklar
gáfur og fjölþætta hæfileika og
var einstakur skapfestumaður.
Hann var sérlega ljúfur í um-
gengni og átti kímni til að bera í
ríkum mæli. Samviskusamur var
hann í öllum verkum sínum og
sérstaklega glöggur á tölur og allt
sem snerti þókhaldsstörf. Get ég
þar vel um borið, því að við unnum
saman um skeið og naut ég mjög
góðs af ágætum verkum hans.
Ég fylgdist og nokkuð með
störfum hans við Skógaskóla og
veit að hann lagði sig mjög fram
um að leysa þau vel af hendi. Ef
til vill vann hann þar of mikið, því
það var í útmánuðum s.l. vetur,
sem hann kenndi þess meins, sem
nú hefur orðið honum að aldurtila.
En þannig var Helgi. Hann hlífði
sér hvergi og leitaðist sífellt við að
leysa verk sín svo af hendi, að \a.rt
yrði það J.etiVínn^lt ^ins"
stundar.
Ég vil því að leiðarlokum færa
honum einlægar þakkir fyrir ágæt
störf og veit að margir munu taka
undir mér í því efni. En hvað sem
miklum og góðum verkum líður, þá
met ég þó enn meira að hafa
kynnst manninum sjálfum, sem
ætíð leitaðist við að láta gott af sér
leiða, hvar sem hann gekk á meðal
okkar.
Ég vil að síðustu færa börnum
hans, tengdabörnum, systkinum
og öðrum ástvinum innilegar
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Jón R. Hjálmarsson.
í dag er kvaddur hinstu kveðju
Helgi Geirsson kennari og fyrrum
skólastjóri, f. 3. ágúst 1911 —
dáinn 27. júní 1978. Lát hans bar
skjótt að höndum og svo óvænt, að
menn fengu naumast trúað frétt-
inni. Helgi hafði að vísu kennt
vanheilsu á síðastliðnum vetri, en
virtist eftir það vera á góðum
batavegi. Þess vegna kom dánar-
fréttin flestum í opna skjöldu.
Fundum okkar Helga Geirsson-
ar bar fyrst saman haustið 1956.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Við erum sköpuð til samfélags við Guð. Engin önnur
skepna var sköpuð í mynd Guðs. Maðurinn einn var
svo gerður, að hann skyldi eiga samfélag við Guð.
En þegar maðurinn syndgaði, rofnaði samfélag hans
við Guð. Hann var rekinn úr því ríki, sem hann var
skapaður til. Firringin tók við, einmanaleikinn »g-
öttinn. Hann varð kunntigirr þjáiliugum Og sársauka,
áhyggjum og vonbrigðum.
En þó að maðurinn yfirgæfi Guð, yfirgaf Guð hann
aldrei. Hann fór á eftir honum um villustigu hans.
Hann reyndi að tjá honum elsku sína og umhyggju.
Með margvíslegum hætti reyndi hann að hafa
samband við hann.
Loks íkhæddist Guð mannlegu holdi. Hann varð
maður í Kristi. Hann sannaði kærleika sinn á
krossinum, þegar hann friðþægði fyrir syndir okkar.
Guð var í Kristi, og hann sætti heiminn við sig, segir
Biblían.
En nú hefur Guð gefið okkur vald til að velja og
hafna, og þess vegna er það undir hverjum og einum
komið, hvort hann kýs að taka á móti þeirri náð og
miskunn Guðs, sem hann hefur auðsýnt. I raun réttri
tilheyrum við Guði. Samt leggur hann það á okkar
vald að ganga sér á hönd af frjálsum vilja — eða ekki.
Hann hefur rutt veginn fyrir okkur, svo að við
getum öðlazt samfélag við hann, en við'verðum að
koma í fúsleika hjartans, ella væri um að ræða
þvingaðan kærleika og Guð kærir sig ekki um þess
konar kærleika. Ef við viljum öðlast allt það sem Guð
býður okkur, verðum við að „gefa okkur Guði á vald“.
Við verðum að lifa honum, sem dó fyrir okkur, ef við
eigum að hljóta hjálpræðið.
Þá réðst Helgi kennari að Héraðs-
skólanum á Laugarvatni og flutt-
ist þangað með konu sinni og sex
börnum. Helgi starfaði samtals í
13 ár við Héraðsskólann á Laugar-
vatni og kenndi þar aðal,~’"'
íslensku. Jafn.í- var Tiann
<n heimavistarstjori í
stærstu heimavist skólans í aðal-
skólahúsi. Um leið og Helgi kom
að skólanum, var samstarfsmönn-
um hans þar ljóst, að ekki var
neinn viðvaningur á ferðinni, enda
átti hann meira en 20 ára kennslu-
og skólastjórnaFferil að baki, er
hann hóf að kenna á Laugarvatni,
þar sem hann hafði sjálfur verið
nemandi aldarfjórðungi áður.
Helgi Geirsson var framúrskar-
andi vandvirkur og giftudrjúgur
kennari. Hann kom að Laugar-
vatni eftir ársorlof og námsdvöl
við ágæta skóla á Norðurlöndum
og Þýskalandi og var óspar á að
ræða við samkennara sína fjöl-
margar nýstárlegar og áhugaverð-
ar hugmyndir, sem hann brann af
óþreyju eftir að hrinda í fram-
kvæmd. Kennsla Helga einkennd-
ist af virðingu hans fyrir starfinu.
Hann vann traust og trúnað
nemenda sinna með óvenjulega
hlýlegu og notalegu viðmóti.
Ávallt var hann reiðubúinn með
græskulaus spaugsyrði, sem komu
öllum í gott skap, og hann veitti
nemendum sínum þá góðu og
manneskjulegu handleiðslu, sem
varð til þess, að þeir löðuðust að
honum án ótta og þvingunar. Þrátt
fyrir þetta duldist engum, að Helgi
var sérlega stefnufastur og ein-
beittur, og hið mjúkláta viðmót
hans við nemendur hindraði ekki,
að hann gerði til þeirra fyllstu
kröfur um góða framkomu og
vinnubrögð, enda lét árangurinn
ekki á sér standa.'
í kennarahópi var Helgi Geirs-
son hinn skemmtilegasti og ágæt-
asti félagi. Það er eftirminnilecri.
hversu vel og eðl>lr«" fúr
saman w**oiium annars vegar að
iaka starf sitt og markmið hátíð-
lega og hins vegar að taka lítið
hátíðlega sjálfan sig og aðra —
sem og ýmsa atburði daglega
lífsins. Ekki er síður eftirminni-
legt, hve úrræða- og tillögugóður
Helgi reyndist jafnan, er leysa
þurfti einhvern vanda, svo sem
ósjaldan ber við í heimavistar-
skóia.
Rúmlega tveimur árum eftir að
Helgi Geirsson fiuttist að Laugar-
vatni, dvaldist hann vetrarlangt í
Reykjavík vegna veikinda konu
sinnar, sem lést síðla árs 1958.
Árið eftir hélt Helgi til Laugar-
vatns og tók þar á ný við kennslu
sinni. Árin sem í hönd fóru reyndu
til þrautar á mannkosti Helga.
Hann náði að halda barnahópi
sínum saman, meðan þau uxu úr
grasi hvert af öðru. í sorg þeirra
var hamingjan þeim að því leyti
hliðholl, að þau báru gæfu til að
standa saman sem órofa heild á
úrslitastund. Fyrir það hlaut
fjölskyldan aðdáun allra, sem til
þekktu, og Helgi mátti vel una
sínum hlut: Öllum börnum hans
hefur farnast vel í námi og starfi.
Þótt Helgi Geirsson léti endan-
lega af kennslustörfum við
Héraðsskólann á Laugarvatni vor-
ið 1972, var ekki þar með lokiðaf-
skiptum hans af kennslu- og
skólamálum. Hann átti eftir að
vera skólastjóri við tvo skóla:
Gagnfræðaskólann í Hveragerði
1972—1973 og Skógaskóla
1977—1978 auk starfa á Fræðslu-
skrifstofu Suðurlandsumdæmis
síðastliðin tvö ár.
Með Helga Geirssyni er horfinn
gagnmerkur skólamaður. Starfs-
tími hano spannar umtalsverðan
niuta þessarar aldar eða frá
krepputímabilinu um miðjan 4ða
áratug og fram á grunnskólaöld.
I Héraðsskólanum á Laugar-
vatni hefur Helgi Geirsson komið
við sögu — með hléum — frá því
hann kom þangað sem nemandi á
þriðja starfsári skólans haustið
1930 og fram á þetta vor. Síðustu
afskipti hans af sínum „gamla"
skóla voru að íhuga vandlega og
setja fram ýmsar athyglisverðar
hugmyndir, er að haldi kunna að
koma við nýskipan mála á Laugar-
vatni.
Um leið og ég lýsi fyrir skólans
hönd þakklæti fyrir margra ára
starf Helga Geirssonar í hans
þágu og persónulegu þakklæti
fyrir góð kynni og farsælt sam-
starf, tjái ég börnum hans og
öðrum skyldmennum og vensla-
fólki einlæga samúð mína.
Benedikt Sigvaldason
■
LAUGAVEGI47, BANKASTRÆTI 7