Morgunblaðið - 16.08.1978, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
17
Þegar taka átti til við mál-
efnin sleit Alþýðuflokkurinn
Geir Ilallnrímsson forsætisráðherra gekk í gærkvöldi á fund
forseta íslands og tjáði honum að hann teldi frekari viðræður
undir forystu hans ekki mundu bera árangur að sinni. en í
gærmorgun tilkynntu forsvarsmenn Alþýðuflokksins að þcir
sæju sér ekki fært að halda áfram viðræðum um myndun
meirihlutastjórnar Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks en viðræðufundur þessara aðila var áformaður kl.
3 í gærdag. Boðuðu sjálfstæðismenn í kjölfar þessara tíðinda til
þingflokksfundar siðdegis í gær.
tJtanþi11®8
SSfegSS
' ^ ^ jnokkurii'i'
,^afur yar spuröur ^0,.^ hans
um hlutleysistuðning stæði
ennþá, ef þannig færi aö yfir-
standandi umræðum lyki án
stjómarmyndunar. l>ví svaraöi
hann: ,,Við þessa tvflembinga,
nei ég vil nú ekki segja þaö. Sú
ssÆSéJÉ, 3$S£!?átti nU ekki aB gada Ö1J
’*!tabe' hvort honum1
„Á þingflokksfundinum gerðum
við Gunnar Thoroddsen grein fyrir
gangi viðræðnanna," sagöi Geir
Hallgrímsson í samtali við Mbl. í
gærkvöldi, „og ég lýsti þeirri
skoðun minni, að mér bæri aö tjá
forseta fslands að frekari viðræður
af minni hálfu myndu ekki aö svo
stöddu bera árangur. Menn ræddu
viðhorfin varöandi stjórnarmyndun
á þessum þingflokksfundi og
féllust almennt á sjónarmiö mitt í
þessu efni. Hefi ég þegar tjáö
forseta þessa niöurstöðu."
Geir Hallgrímsson kvaöst ekki
neita því, að honum hefði komiö
tilkynning Alþýöuflokksins í gær-
morgun á óvart að því leyti að eftir
hádeaiö hefði verið ákveöinn
fundur flokkanna þriggja og þar
gert ráð fyrir umræöum um
efnahagsmál. „Hins vegar vissi ég,
aö skiptar skoðanir voru meöal
alþýöuflokksmanna um þessar
umræöur og mögulega stjórnar-
myndun þessara þriggja flokka,
þannig aö brugöið gat til beggja
vona með árangur af viöræöunum
og hvort af stjórnarmyndun yrði."
AlÞýðuflokkurinn
sleit án Þess
aö leggja fram
_________tillögur__________
Geir var spurður nánar um
viðræðurnar fram til þess tíma að
alþýöuflokksmenn slitu þeim. „Við
fulltrúar Sjálfstæöisflokksins lögö-
um fram vinnuplagg um markmiö
og stefnu í efnahagsmálum, all
ítarlegt, og geröum grein fyrir því
í hverju einstök atriöi væru fólgin.
Við tókum skýrt fram, að hér væri
um sjónarmiö okkar sjálfstæöis-
manna að ræða og óskuðum eftir
því aö viðmælendur okkar legöu
fram sjónarmiö sín en síðan yrði
kannað hvort unnt væri að sam-
ræma þessi sjónarmið, þannig að
sameiginleg niðurstaða fengist —
annars vegar sameiginleg niður-
staöa um brýnustu aögeröir í
efnahagsmálum sem þyrftu að
koma til þegar í stað og síðan
stefnumótun til lengri tíma. Al-
þýöuflokksmenn slitu viöræðunum
áður en til þess kom, aö þeir geröu
grein fyrir sínum sjónarmiðum að
þessu leyti, en framsóknarmenn
lögðu fram nokkra punkta, sem
þeir vildu leggja sérstaka áherzlu
á í tengslum viö lausn efnahags-
vandans á óformlegum fundi í
dag."
Geir Hallgrímsson sagði enn-
fremur varðandi vinnuplagg þaö er
sjálfstæöismenn heföu lagt fram á
þessum fundum, aö þaö væri í
samræmi við stefnuskrá flokksins
í efnahagsmálum fyrir kosningar
og heföi ekki átt aö koma
alþýðuflokksmönnum á óvart, þar
sem þeir hafi sjálfir ekki verið með
ósvipaöa stefnu í efnahagsmálum
fyrir kosningar og sjálfstæðis-
menn, þegar til lengri tíma væri
litiö.
„Að öðru leyti var á þessum
fundum gerð grein fyrir öðrum
málum en efnahagsmálum af hálfu
okkar sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna en á þaö skorti
nokkuð af hálfu alþýöuflokks-
manna, þannig aö þaö kom aldrei
til þess að það reyndi á málefna-
legan ágreining."
Geir var þá spurður að því hvað
hann áliti um framvinduna í
stjórnarmyndunartilraununum sem
nú tækju við. „Forseti íslands
ákveður eöli málsins samkvæmt
hvaöa skref veröur stigiö næst til
að mynda meirihlutastjórn eða
stjórn, sem nýtur stuönings meiri-
hluta Alþingis en i bili skilst mér aö
Alþýðuflokkurinn og Alþýðu-
bandalag vilji helzt ræðast við tveir
saman, en í því sambandi vil ég
vekja athygli á, aö þessir flokkar
höföu nær tvær vikur til þess strax
eftir kosningaúrslitin, og þegar
vinstristjórnar viðræðurnar hófust
héldu menn, að þessir tveir flokkar
heföu náö árangri sín á milli um
stefnuna í efnahagsmálum, en
vinstri stjórnar viðræðunum lauk
um 5 vikum eftir kosningar með
algjöru ósamkomulagi þessara
tveggja flokka og illvígum opinber-
um deilum. Nú reynir á hvort þeir
ná saman, en ég taldi mér
allsendis ófært aö bera ábyrgö á
þeim tíma sem yrði varið til
þessara viöræöna meö tilvísun til
þess hversu skammur tími er til
stefnu til úrlausnar hinum brýnasta
vanda."
Geir Hallgrímsson kvaöst þó
vera eindregiö þeirrar skoöunar,
aö þaö væri skylda alþingismanna
að mynda meirihlutastjórn. „Sjálf-
stæðismenn munu þar ekki sker-
ast úr leik og axla þá ábyrgö, sem
þeim ber sem stærsti flokkur
þjóðarinnar og í samræmi við
þingfylgi sitt, en auövitaö hljóta
málefnin aö ráöa."
Vildu ekki
endurreisa frá-
farandi stjórn
Alþýðuflokkurinn gaf út frétta-
tilkynningu árdegis f gær um
viöræöuslitin og er hún svohljóð-
andi:
Fulltrúar Alþýöuflokksins í við-
ræðum við Sjálfstæðisflokkinn og
Framsóknarflokkinn um hugsan-
lega stjórn þessara þriggja flokka
hafa tilkynnt Geir Hallgrímssyni
formanni Sjálfstæöisflokksins aö
þeir telji ekki grundvöll fyrir slíku
samstarfi og sé því ekki rétt að
halda viöræðunum áfram.
Aö mati Alþýðuflokksins geta
þær hugmyndir um lausn efna-
hagsvandans, sem fram hafa veriö
lagöar í viðræöunum, ekki leitt til
nauösynlegs samstarfs við laun-
þegahreyfinguna eða tryggt kjara-
sáttmála og vinnufrið. Hér mundi
aðeins veröa um endurreisn fráfar-
andi ríkisstjórnar aö ræða, aö
viöbættum Alþýöuflokknum.
Flokkurinn er ekki reiöubúinn til
að standa að slíkri stjórnarmynd-
un, enda væri þaö í ósamræmi viö
stefnu hans og baráttu fyrir
kosningarnar.
Alþýöuflokkurinn er enn fús til
að stuðla að myndun starfhæfrar
ríkisstjórnar í sem mestu samræmi
við úrslit alþingiskosninganna og
minnir á þá tvo stjórnarkosti, sem
formaður flokksins reyndi, svo-
nefnda nýsköpunarstjórn eða
vinstri stjórn. Ef þeir hefðu fengiö
hljómgrunn, hefði landiö þegar
haft meirihlutastjórn í nálega
mánuð.
Stuðingur Ólafs
ekki nauðsynlegur
Benedikt Gröndal formaður
Alþýöuflokksins sagöi í viötali viö
Mbl. í gær, aö enda þótt þaö hafi
sem næst legiö fyrir síödegis í gær
aö flokkurinn myndi draga sig út
úr þriggja flokka viðræöunum, hafi
ekki veriö unnt að skýra frá því fyrr
en í gærmorgun, þar sem innan
flokksins hafi veriö unniö í nefnd
að athugun á ýmsum þáttum
málsins og þaö dregizt fram á
kvöld. Hann sagöi, aö yfirstand-
andi stjórnarmyndunartilraun heföi
verið rædd innan þingflokksins á
fimmtudag, föstudag og á mánu-
dag og andstaðan gegn því aö fara
þessa leið hefði stööugt fariö
vaxandi, og kvaö Benedikt að
frumkvæöi Verkamannasam-
bandsins heföi þar ekki ráðið
úrslitum, enda þótt þaö heföi
vissulega haft sín áhrif.
Benedikt var spuröur álits á
horfunum og kvaöst hann helzt
ekkert vilja um þær segja meöan
málið væri í höndum forseta. Hann
sagöi þó aö enn væru nokkrir
möguleikar eftir sem eftir væri að
reyna eða reyna mætti frekar áður
en upp kæmi þaö ástand aö reyna
bæri utanþingsstjórn. Hann var
spuröur álits á möguleikanum á
minnihlutastjórn Alþýöuflokks og
Alþýöubandalags í Ijósi þeirra
ummæla Ólafs Jóhannessonar, aö
tilboö hans um hlutleysi Fram-
sóknar viö slíka stjórn væri úr
sögunni, og sagöi Benedikt aö
hann teldi hlutleysi aðeins einn
þátt af fleirum, sem taka þyrfti til
greina þegar rætt væri um minni-
hlutastjórn og þaö væri þá fyrst og
fremst fólgið í því aö verja
viðkomandi stjórn vantrausti en í
reynd þyrfti minnihlutastjórn að
vinna hverri tillögu eða frumvarpi
sem hún kæmi fram með þing-
meirihluta, svo aö hlutleysi af því
tagi sem Ólafur ræddi um væri
ekki úrslitaatriöi.
Benedikt kvað engar formlegar
viöræöur milli Alþýöuflokks og
Alþýöubandalags vera ákveönar,
en kvaöst ekki geta neitaö því aö
forsvarsmenn þessara flokka
hefðu verið í sambandi undanfariö.
Þingflokksfundur
hjá AlÞýðubandalagi
Morgunblaöinu tókst ekki í gær
aö ná tali af Lúövík Jósefssyni
formanni Alþýöubandalagsins en
Ragnar Arnalds, formaöur þings-
flokks bandalagsins, skýröi Mbl.
svo frá aö engar fréttir væri aö
hafa úr rööum alþýðubandalags-
manna aðrar en þær aö boðaöur
væri þingflokksfundur í dag, miö-
vikudag. Hann sagöi eins og
Benedikt, aö enginn formlegur
fundur væri ákveðinn milli Alþýöu-
flokks og Alþýöubandalags, enda
ráöist þaö nokkuö af því hvaða
ákvöröun forsetinn tæki um fram-
vindu stjórnarmyndunartilraun-
anna, en eins og greinir frá í
baksíðufrétt telur Ragnar eölileg-
ast aö forsetinn snúi sér næst til
formanns Alþýðubandalagsins.
Getur endað með
utanÞingsstjérn
Þegar Ólafur Jóhannesson for-
maöur Framsóknarflokksins var
spuröur álits á horfunum kvaöst
hann ekki vilja taka fram fyrir
hendur forsetans, sem væri aö
meta þetta, en sagöi þó aö
persónulega virtist honum þróunin
benda til þess aö þetta gæti endaö
meö utanþingsstjórn. Enn væru aö
vísu eftir nokkrir fræöilegir mögu-
leikar, nú staaöi til aö Alþýöuflokk-
ur og Alþýöubandalag færu aö
ræöa saman og ef þeir fengju
umboðið væri erfitt aö meta hvaö
út úr því kæmi. Ólafur var þá
spurður hvort hann teldi líklegt aö
Lúövík yröi fengiö umboöiö, eins
og væri álit margra, og svaraði
hann því játandi, því aö varla væri
líklegt aö Benedikt fengi þaö á
nýjan leik.
í Tímanum í gær er haft eftir
Ólafi aö tilboö hans um hlutleysi
við minnihlustastjórn „tvílembing-
anna", eins og Ólafur nefnir þaö,
standi ekki lengur og innti Mbl.
hann nánar eftir þessu. „Þessu
tilboöi var nú ekki vel tekiö á
sínum tírna," svaraöi Ólafur „og
síöan hefur þaö gerzt aö þeir hafa
ræözt viö en þá kom á daginn aö
allmikiö viröist bera á milli og þaö
er nú hugsanlegt aö þaö hafi áhrif
á það hvort rétt er að veita
hlutleysi, því aö þaö var alltaf
bundiö því skilyröi aö hægt væri
aö fallast á þann málefnasamning,
er þeir kæmu sér saman um.“
Þess má geta aö í forystugrein
í Tímanum í gær reifar annar
ritstjóri blaðsins, Þórarinn
Þórarinsson, hugmyndina um ný-
sköpunarstjórn og segir hann þar,
aö þessi hugmynd sé ekki ný undir
svipuöum kringumstæöum og nú
er heldur hafi hún veriö mjög rædd
á árunum milli 1946—50 þegar
hugur var í mönnum að taka
stjórnarskrána til heildarendur-
skoðunar en binda sig ekki viö
kjördæmamáliö eitt eins og nú
væri. Rifjaöar eru upp samþykktir
flokksþinga í þessa veru, en síöan
segir: „Síðan þetta var hefur
stjórnarskrármáliö legiö í salti,
þegar kjördæmaskipunin ein er
undanskilin. Nú viröist risinn áhugi
á aö taka þaö til heildarathugunar
og þá hljóta þessar fyrri ályktanir
flokksþingmanna aö koma til
athugunar."
Ilópurinn sænski er um þessar mundir sýnir í Norræna húsinu.
Myndllst
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
vinna, eru fíngerðar, litirnir
mettaðir, yfirvegaðir og sam-
ræmdir. Minnisstæðar verða
myndir svo sem nr. 16 „Vind-
orka“ og 20 „Frumkraftur", en í
þeim þykir mér samræmast
bestu eðliskostir hans. Lars
Lindbcrg vinnur í dúkristu.
Enginn skyldi vanmeta dúkrist-
una, því að hún býr yfir miklum
möguleikum sem tjáningarmið-
ill og er mjög kröfuhörð gagn-
vart iðkendum sínum í öllum
sínum einfaldleika. Dúkristan
og tréristan hafa í raun verið
sagðar erfiðastar hinna grafísku
greina, en málmgrafíkin auð-
veldust tækni til árangurs hve
undarlega sem það hljómar. Af
myndum Lindbergs fannst mér
Piéta II (23) og „Uppvakning
Lasarusar“ (27) sterkastar. Nils
Stenqist vinnur í stórar trérist-
ur, e.t.v. of stórar, hér þótti mér
mynd nr. 57 „Lífvera í hug-
leiðslu" virka sterkast og skila
sér best til áhorfandans. Göran
Nilsson virðist vera mikill
náttúrustemningamaður, það
sýna steinþrykkmyndir hans,
sem eru flestar hugleiðingár um
skóglendi. Ljóðræn, stemninga-
rík „erótík" birtist okkur í
m.vndum Alí Olsson, og eru
myndir hans mikið augnayndi.
Að öðrum ólöstuðum þótti und-
irrituöum þeir Philip von
Schantz og Per Gunnar Thel-
ander bera af á þessari hópsýn-
ingu. Báðir hafa þeir mjög ríka
tilfinningu fyrir því efni, er þeir
vinna í og eru þó gjörólíkir
listamenn. Litógrafíur Schantz
eru unnar af frábærri tækni-
snilld en án þes&þó að listamað-
urinn missi mið af aðalinntaki
myndheildarinnar hverju sinni.
Hér er um afar efniskennd
vinnubrögð að ræða. Thelander,
sem vinnur í málmgrafík, virð-
ist vera húmoristinn á sýning-
unni jafnframt hefur hann mjög
næmt auga fyrir hinu saklausa
og undirfurðulega í „erótíkinni".
Naumast verður sagt, að hér
sé um mjög samstæðan hóp
listamanna að ræða enda er
slíkt ekki markmiðið. Þeir eiga
fátt sameiginlegt annað en að
vinna í grafík og vera um leið
starfandi málarar, teiknarar og
(eða) myndhöggvarar. Þá eru
þeir hver á sinn hátt góðir
fuljtrúar þjóðar sinnar og tjá
sig í heildina skoðað á breiðu
sviði grafískrar listar.
Hér er um mjög góða gesti áð
ræða og væri vel ef Norræna
húsið stofnaði til fleiri svo
gildra sýninga og efndi um leið
til persónulegra kynna milli
íslenzkra og norrænna starfs-
bræðra þeirra. Framtak í þessa
átt verður seint fullþakkað.