Morgunblaðið - 16.08.1978, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
25
fólk í
fréttum
+ Ein af mörgum myndum sem birzt hafa úr lífi Páls páfa VI. Hér situr hann í
páfastól sínum og blessar lítið barn, sem faðir þess lyftir upp til hans.
+ Þessi vörpulegi náunni með
sólgleraugun á stuttbuxum er
fyrrum eiginmaður Kristínar
Onassis-Kauzov —. Blaðaljós-
myndari tók myndina af
manninum, sem heitir Pétur
Andreadis. Hann stundar sigl-
ingar og er þarna að fara úr
höfn nálægt Aþenu. til að taka
þátt í kappsiglingamóti.
+ Góðvinur ísl. sjónvarpsnotenda, Telly Savalas — Kojak — gifti
dóttur sína Kristínu, 27 ára gamla, um daginn í grísku kirkjunni
í Los Angeles. Það er brúðurin sem gengur á undan gamla
manninum. föður sum. er þau komu til kirkjunnar.
+ Fólk á miðjum aldri
man þá tíð á bíótjaldinu,
er þessi leikkona
skemmti með dansi, söng
og léttum skemmtileg-
heitum. Hún þótti sæt og
var það. — Til dæmis
muna hana margir er
hún dansaði fimm sinn-
um á við tvo á móti þeim
snjalla hörkudansara
Fred Astaire í dans- og
söngmyndinni „Shall We
Dance“. Myndin er af
leikkonunni Ginger
Rogers. Þannig lítur hún
út í dag.
Veiðarfæri norska hrefnuveiðarans Andfjord. sem tekinn var að
ólöglegum hrefnuveiðum norður af landinu á föstudagskvöld. voru
gerð upptæk þegar da'mt var í málinu. Aðalveiðarfa-ri hrefnuhátsins
var þessi hvalabyssa. sem nú kemst í eigu íslendinga.
Ljósm. Ingólfur Kristmundsson.
Stonehouse veikt-
ist í fangelsinu
London. 1 I. átíú.-'t. AI*.
JOHN Stonehouse fyrrverandi
þingmaður 1 brezka þinginu
sem var fangclsaður fyrir
tveimur árum ákærður íyrir
þjófnað, skjalafölsun og önnur
svik var fluttur á spítala í dag
eftir að hafa fallið um koll í
fangelsinu. að þvf er ástkona
hans sagði fréttamönnum.
Ástmær hans, þrjátíu og eins
árs gömul, heitir Sheila Buckley
og hlaut hún skilorðsbundinn
dóm við sömu réttarhöld og
ráðherrann fyrrverandi sem nú
er 53 ára. Tjáði Buckley frétta-
mönnum að Stonehouse hefði
ekki enn náð sér eftir hjartaáfall
sem hann varð fyrir s.l. ár og
taldi hún að hann hefði næstum
fengið annað við fallið í fangels-
inu.
Starfsmenn sjúkrahússins í
Suffolk á austanverðu Englandi,
en þangað var Stonehouse flutt-
ur á sunnudag, vildu ekkert gefa
upp um líðan hans.
Sheila Buckley er fyrrverandi
einkaritari Stonehouse. Sagðist
hún síðast hafa heimsótt hann í
Blundeston fangelsið fyrir tíu
dögum og hefði hann verið
niðurdreginn og máttfarinn.
Stonehouse hvarf umheimin-
um í nóvember 1974, þá staddur í
sólarferð á Miami Beach. Fannst
hann síðar í Ástralíu þar sem
hann gekk undir fölsku nafni.
Var hann ákærður um að reyna
að svíkja tryggingarfélög meí
því að þykjast vera dauður
Eiginkona hans skildi við- hann
nýlega.
Stonehouse var dæmdur til
fangavistar til ársins 1981 en
búizt er við að hann verði ef til
vill látinn laus síðar á þessu ári.
Hnútukast um
kynþáttamál
<M-nr. 1 I. úuitsl. Al'.
FVRSTA ráðstefna Sameinuði
þjóðanna um kvnþátta- og að
skilnaðarstefnu hófst í Genf í gæi
og setti Kurt Waidheim fram
kvæmdastjóri S.Þ. ráðstefnuna.
Helztu ásteytingarsteinar þess-
arar ráðstefnu, sem standa mur
næstu 10 daga, komu fljótt í ljós
þar sem fulltrúar Sómalíu lögði
fram við setningu hennar yfirlýs
ingu þar sem harðlega er mótmæll
íhlutunarstefnu Kúbu í Afríku or
Kúbustjórn lýst sem handbend
sem Sovétstjórnin noti til að vinn;
að markmiðum sínum í Afríku.
Það þykir setja nokkurn blett í
ráðstefnuna, að hvorki Bandaríkir
eða Israel eiga fulltrúa þar, er
stjórnir landanna höfnuðu þátt-
töku á þeim forsendum, að ráð
stefnan legði að jöfnu zíonisma of.
kynþáttastefnu.
Búizt er við að efstu mál á baug
verði aðskilnaðarstefna S-Afríki
og kynþáttamisrétti í Rhódesíu oj.
Namibíu.
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélagið
Ásarnir í
Kópavogi
Sl. mánudag var spilað í
tveimur riðlum. 11 og 12 para.
Úrslit urðu þessi>
A-riðill:
Þorlákur Jónsson —
Hjörleifur Jakobss. 197
Ester Jakobsd. —
Guðmundur Péturss. 196
Einar Þorfinnss. —
Sigtryggur Sigurðss. 184
Skafti Jónss. —
Helgi Sigurðss. 176
Oli Már Guðmundss. —
Þórarinn Sigþórss. 174
B-riðiIh
Gísli Hafliðas. —
Þorsteinn Erlingss. 188
Ármann J. Láruss. —
Guðlaugur Nielsen 187
Jón Páll Sigurjónss. —
Oddur Hjaltas. 168
Jörundur Þórðars. —
Björn Halldórss. 167
Ómar Jónss. —
Jón Þorvarðars. 166
Meðalárangur í A-riðli var 165
en 156 í B-riðli..
Staða efstu manna
í stigakeppninnii
Sævar Þorbjörnsson 8
Þorlákur Jónsson 7 V>
Óli Már Guðmundsson 5
Þórarinn Sigþórsson 5
Ester Jakobsdóttir 5
Guðmundur Pétursson 5
Næst verður spilað á mánu-
daginn kemur. Spilað er í
Félagsheimili Kópavogs og hefst
keppnin klukkan 20. Keppnis-
stjóri er Sverrir Ármannsson.