Morgunblaðið - 16.08.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
31
• Er Mac Wilkins var staddur hér á landi íyrir nokkrum dögum, leit
hann við í sportfatagerðinni HENSON og við brottför þaðan leysti
Ilalldór Einarsson hann út með gjöfum. (Ljósm. Guðm.)
M£§r
MAC Wilkins, fyrrum heimsmethafi í kringlukasti er
væntanlegur aftur hingað til lands á morgun til þess að
taka þátt í alþjóðlegu frjálsíþróttamóti sem fram fer í
Laugardalnum annað kvöld.
Eins og kunnugt er náði Wilkins kasti í upphituninni
á Reykjavíkurleikunum sem hafnaði 72,32 m frá honum.
Er það mun betri árangur heldur en nýsett heimsmet og
er Wilkins ákveðinn í að endurheimta titil sinn í
Laugardalnum að þessu sinni. Wilkins er eini erlendi
keppandinn á mótinu, sem hefst klukkan 18.30.
f---------------------------------->
Markahátíð og
veizlustjórinn
ÞAÐ IIEFUR verið sannkölluð markahátíð í knattspyrnunni
undanfarna daga og í síðustu umferðinni í 1. deild voru skoruð
24 mörk í lcikjunum fimm eða tæplega 5 mörk í leik. Minna hefur
verið skorað í 2. deildinni, en í úrslitaleikjum yngri flokkanna
hrönnuðust mörkin upp.
Ekki er of mikið að scgja að Arnar Einarsson, dómari frá
Akureyri, hafi verið veizlustjóri á þessari hátíð. Ilann dæmdi 7i5
leik Þórs og KA í Akureyrarmótinu í síðustu viku. Sömuleiðis
dæmdi hann 5.0 leik ÍBK og KA á föstudaginn. Loks var hann
línuvörður í 4.4 leik Fram og FH á sunnudaginn. 25 mörk hjá
Arnari í þremur leikjum — nánast eins og í handboltanum.
- áij
ESKFIRDINGAR héldu sitt meistaramót í golfi fyrir nokkru
síðan og var kcppt um verðlaun, sem Hlíðarskáli á EskifiFði gaf
til keppninnar. Sigurvegari varð Ævar Auðbjörnsson og hafði
hann nokkra yfirburði í mótinu. í næstu sætum urðu þeir
Bernharð Bogason og Bogi Nilsson. Sérstök verðlaun voru veitt
þeim kylfingi, sem næstur varð holu á 5. braut vallarins og hlaut
þau Guðmundur Gíslason. Lánið lék ekki við Guðmund í mótinu
og varð hann síðastur í mótinu, en sýndi þó meiri nákvæmni en
aðrir á þessari braut. Sá hlær bezt, sem síðast hlær, höfðu menn
á orði er Guðmundur tók við verðlaunum sínum.
- áij
UTANHUSSMOTIÐIHAND-
KNATTLEIK AÐ HEFJAST
ÍSLANDSMÓT í handknattleik utanhúss 1978 verður haldið við Melaskólann í Reykjavík og hefst á
morgun. fimmtudaginn 17. ágúst. og lýkur mótinu sunnudaginn 27. ágúst. Mótið verður í umsjá
handknattleiksdeildar KR. Keppt verður að venju í mfl. karla. mfl. kvenna og 2. fl. kvenna.
I mfl. karla hafa 11 lið tilkynnt
þátttöku og verður keppt í tveim
riðlum. I A-riðli keppa: Valur, KR,
Fram, HK, ÍR og Ármann. í B-riðli
keppa: Víkingur, Haukar, Fylkir,
FH og Stjarnan.
I mfl. kvenna tilkynntu 6 lið
þátttöku og er skipt í 2 riðla. í
A-riðli leika: Fram, KR og Völs-
ungur. í B-riðli leika: FH, Haukar
og Víkingur. I 2. fl. kvenna
tilkynntu einnig 6 lið þátttöku. I
A-riðli leika: ÍR, Haukar og
Víkingur. I B-riðli leika: Valur,
Fram og FH.
Leikdagar Islandsmótsins í
handknattleik utanhúss.
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST
Mfl. karla,
Kl. 18.15 A IIK - KR
Kl. 19.30 A. FRAM - ÁRMANN
Kl. 20.45 B. VÍKINGUR - IIAUKAR
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST
Mfl. karlai
KI. 16.00 A. ÍR - ÁRMANN
Kl. 17.15 B. FYI.KIR - FII
Kl. 18.30 B. VÍKINGUR - STJARNAN
MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST
Mfl. karla,
Kl. 18.15 A. HK - ÁRMANN
Kl. 19.30 A. KR - ÍR
Kl. 20.45 A. VALUR - FRAM
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST
Mfl. karta,
KI. 18.15 B. IIAUKAR - FYLKIR
Kl. 19.30 A. VALUR - ÍR
Kl. 20.45 B. FII - STJARNAN
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST
Mfl. karla,
Kl. 18.15 B. VÍKINGUR - FYLKIR
Kl. 19.30 A. FRAM - IIK
Kl. 20.45 A. KR - VALUR
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST
Mfl. karla,
Kl. 18.15 B. IIAIJKAR - FII
KI. 19.30 A. VALUR - HK
Kl. 20.45 A. KR - ÁRMANN
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST
Mfl. karla,
Kl. 18.15 A.FRAM - ÍR
Kl. 19.30 B. FYLKIR - STJARNAN
Kl. 20.45 A. VALUR - ÁRMANN
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST
Mfl. karla,
Kl. 13.30 A. KR - FRAM
Kl. 14.45 A. IIK - ÍR
Kl. 16.00 B. IIAUKAR - STJARNAN
KI. 17.15 B. VfKINGUR - FII
SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST
Mfl. karla,
Kl. 14.00 3.-4. sæti
Kl. 15.20 1.-2. sa'ti - Úrslit
Kæruleysi grípur
um sig í 3. deildinni
ÚRSLIT eru ráðin í ílestum riðlum í 3. deildinni. Það sést best á því að í þremur
tilvikum gáfu mótherjar leiki sína. Það sést einnig á því, að yfirburðalið í deildinni
eins og Víkingur Ól. og KS unnu nauma sigra, sem bendir til þess, að þau taki
hlutunum rólega þar til að úrslitakeppninni kemur í haust.
Þrír leikir fóru fram í A-riðlin-
um, Víðir vann öruggan sigur yfir
Þór á Þorlákshöfn. Sigurinn var
stór, 4-0 og þeir Tómas Þorsteins-
son (2), Gísli Eyjólfsson og Guð-
mundur Knútsson skoruðu fyrir
Víði. Hekla og Grindavík skildu
jöfn, 2-2, í leik sem Hellubúar áttu
frekar meira í. Hekla náði tvívegis
forystu í fyrri hálfleik, með
mörkum Olafs Sigurðssonar og
Árna Lárussonar, en Símoni
Alfreðssyni og Ragnari Ævarssyni
tókst að jafna fyrir Grindavík. Þá
vann Selfoss öruggan sigur eins og
vænta mátti yfir USVS. Sumarliði
Guðbjartsson skoraði tvívegis,
Stefán Larsen og Tryggvi
Gunnarsson skoruðu mörk Sel-
fyssinga, eftir að Þorkell Ingi-
marsson hafði náð forystunni
snemma leiks fyrir USVS.
I B-riðli fóru fram tveir leikir og
átti Stjarnan hlut að þeim báðum.
Á laugardaginn léku þeir gegn
Bolungarvík í Garðabæ og sigruðu
2-1. Hermann Þórisson náði for-
ystu fyrir Bolana, en Óskar
Ársælsson og Ingólfur Ingólfsson
tryggðu Stjörnunni verðskuldaðan
sigur. Síðan lék Stjarnan gegn
Stefni frá Súgandafirði og tapaði
1-3. Arabinn Mohammed, sem
áður hefur verið getið um, skoraði
eitt mark og Kjartan Ólafsson tvö,
en fyrir Stjörnuna svaraði
Kristján Sigurgeirsson.
í C-riðli vann Víkingur nauman
sigur gegn Óðni og kom frammi-
staða gestanna verulega á óvart.
Jónas Kristófersson skoraði eina
mark leiksins og tryggði Víkingi
sigur. Leik Leiknis og Afturelding-
ar í sama riðli var frestað, vegna
þess að dómara vantaði.
KS vann nauman sigur yfir
Tindastóli í D-riðli. Það voru mörk
þeirra ÓJafs Kárasonar og Bjarna
Sveinssonar sem tryggðu þeim
sigurinn, en Karl Ólafsson svaraði
fyrir Tindastól. Höfðstrendingar
gáfu leik sinn við Leiftur og voru
það því með léttari stigum sem
Leiftur hefur krækt í í sumar.
Tveir leikir áttu að fara fram í
E-riðli, en aðeins einn þeirra var
leikinn, þar sem Reynir mætti eigi
til leiks gegn Magna. En viðureign
Dagsbrúnar og HSÞ fór fram og
lauk með sigri HSÞ, Björgvin
Steindórsson og Ægir Þorláksson
skoruðu fyrir heimaliðið, en Jónas
Hallgrímsson, Gunnar Bóasson og
Kristján Ingvason tryggðu HSÞ
sigur.
Þá er aðeins eftir að geta um
úrslit í F-riðli. Hrafnkell gaf leik
sinn gegn Einherja, en á Seyðis-
firði vann Huginn Leikni frekar
óvænt í slagsmálaleik. Huginn
komst í 3-0 með mörkum Magnús-
ar Guðmundssonar, Olafs Más
Sigurðssonar og Péturs Böðvars-
sonar, en Leikni tókst að minnka
muninn með tveimur mörkum
Svans Kárasonar. — gg.
Glæsilegt met
hjá Vilmundi
AFMÆLISMÓT Ármanns í frjálsum íþróttum fór fram á
Laugardalsvellinum í fyrrakvöld. Ágætis árangur náðist í mörgum
greinum. Eitt íslandsmet var sett. Viímundur Viihjálmsson bætti sitt
fyrra met í 200 metra hlaupi. hljóp á 21.1 sek. en gamla metið var
21.2. Þá setti Sigurður Sigurðsson nýtt unglingamet í 200 metra
hlaupinu. hljóp á 21.5 sek.. gamla metið átti Haukur Clausen og var
það sett 1948.
ÞORUNN
KEPPIR
Á HM
í SUNDI
STJÓRN SSÍ hefur ákveðiö að
senda Þórunni Alfreðsdóttur til
keppni á Heimsmeistaramótið í
sundi.
Mótiö er að Þessu sinni haldið í
V-Berlín, dagana 18.—28. ág. Þór-
unn mun keppa í 100 og 200 m
flugsundi á mótinu. Með Þórunni fer
Guðmundur Harðarson, Þjálfari
hennar.
Nú hafa tilkynnt pátttöku 56
Þjóöir. Reiknað er með að um 1500
ípróttamenn og konur taki Þátt í
Þessu móti.
Hreinn Halidórsson sigraði í
kúluvarpi, kastaði 20.06 metra.
Óskar Jakobsson varð annar með
18,37 og Guðni Halldórsson þriðji
með 17.90 m. Ágúst Ásgeirsson
sigraði í 800 m hlaupi á 1.53.2 mín
og Gunnar Páll Jóakimsson varð
annar á 1.53.6 mín. Jón Diðriksson
hætti í hlaupinu. í 4x100 metra
boðhlaupi karla náði sveit Ár-
manns besta tíma sem náðst hefur
hér á landi, hljóp á 43.3 sek.,
íslandsmetið er 42.8 sek., sett
erlendis.
I hástökki sigraði Stefán Frið-
leifsson, stökk 1.94 m, annar varð
Stefán Þ. Stefánsson ÍR, stökk 1.91
metra sem er góður árangur hjá
aðeins 15 ára gömlum pilti. Ágætis
árangur var í 100 metra hlaupi
kvenna, þar sigraði Lára Sveins-
dóttir á 12.1 sek. 12 ára gömul
stúlka, Jóna B. Grétarsdóttir Á,
hijóp á 13.6 sek, sem er frábær
árangur hjá svo ungri stúlku.
- þr.
• EINN leikur fer fram í 2.
deiidar keppninni í knattspyrnu
í kvöld og hefst hann klukkan
19.00. Þá mætast á Laugardals-
velli lið KR og ÍBÍ. Leik þessum
var frestað á sínum tíma vegna
Grikklandsferðar ísfirðinga.
• Minningarleikur um Jakob
Jakobsson knattspyrnumann fer
fram á Akureyri í kvöld og hefst
hann klukkan 20.00. Þetta er
árlegur viðburður og að þessu
sinni verða það leikmenn ÍÁ sem
leika gegn KA.