Morgunblaðið - 15.10.1978, Page 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
Spjallað við Ólaf Björnsson prófessor
„Frá því að ég fór í mennta-
skóla um ferminíjaraldur kom
ók þó ei};inleKa ekki í sveitina
nema sem fjestur, þannig að því
leyti er ég borgarbarn, en
bernskuárin dvaldist ég í sveit,"
sagði Ólafur.
„Ég las hagfræði við Háskól-
ann í Kaupmannahöfn, því ekki
var hægt að fá þessa menntun
hér heima á þessum tíma.
Fyrsta tilsögnin í hagfræði hér
á íslandi var veitt í lagadeild
Háskólans árið 1936, en ekki var
þó hægt að læra hagfræði sem
sérstakt fag fyrr en viðskipta-
deildin var stofnuð árið 1941.
Aður en viðskiptadeildin var
stofnuð var þó starfandi hér
Viðskiptaháskóli er stofnaður
var 1938 og starfaði ég sem
stundakennari við þann skóla.
Viðskiptaháskólinn var síðan
Ljósm. Kristján.
Ólafur Björnsson prófessor.
sátu aðeins 3 eða 4 nemendur
eftir i stofunni, sem ekki höfðu
þorað að fara. Svipaðist karl um
í stofunni, en fór síðan út aftur
án þess að segja neitt, kom hann
síðan aftur í gættina og sagði
við þá sem eftir sátu: „Haldið
þið að ég kenni verkfallsbrjót-
um.“ Eitthvað skánaði hann þó í
mætingum eftir þetta.
Um þennan sama kennara var
líka sögð sú saga að hann var
kosinn rektor Kaupmanna-
hafnarháskóla. Sú venja var að
nýkosnir rektorar færu á
konungsfund, en þá var Kristján
konungur tíundi við völd. Er
karl kemur fyrir konung spyr
konungur hann hvernig honum
líki nýja starfið. Karl svarar þá
að fyrir mann, sem gaman hafi
af strákapörum, sé nú ekki
alltaf gott að vera í svona
„A Idrei gat ég hugsað mér að
verða atvinnustjórnmálamaður ”
Ólafur Björnsson er^ prófessor í hagfræði og kennir hann við
viðskiptadeild Háskóla íslands. Blaðamenn Morgunblaðsins sóttu Ólaf
heim um daginn og spjölluðu við hann, en hann hefur kennt hagfræði
við Háskólann frá því að viðskiptadeildin var stofnuð. ólafur kvaðst
vera fæddur í Hjarðarholti í Dölum, þeim sögufræga stað, en flust þaðan
rúmlega ársgamall með foreldrum sinum að Görðum á Álftanesi, þar
sem faðir hans gerðist aðstoðarprestur um tíma. Síðar fluttist
fjölskyldan að Auðkúlu í Húnavatnssýlu og þar sagðist ólafur í raun og
veru vera alinn upp.
sameinaður lagadeild Háskól-
ans, sama ár og viöskiptadeildin
var stofnuð, en þá hóf ég
kennslu við viðskiptadeildina."
— Voru margir sem lærðu
hagfræði á þeim tíma er þú
hófst nám?
„Nei, ekki voru þeir nú marg-
ir, alla vega ekki miðað við
fjöldann, sem í þessu námi er í
dag. Tveimur árum áður en ég
byrjaði í Hafnarháskóla voru á
stúdentalista 11 Islendingar
innritaðir í hagfræði, en í mesta
lagi einn lauk þó því námi, en
margir þeirra eru nú mætir
menn og þjóðkunnir, þótt þeir
l.vkju aldrei prófi í hagfræði."
— Ilvernig iíkaði þér svo við
hagfra'ðinámið?
„Ég komst nú að því síðar að
hugmyndir þær, sem ég gerði
mér um þetta fag þegar ég valdi
að læra það, voru að verulegu
leyti rangar, en ég sé þó ekki
eftir að hafa farið út í þetta nám
og finnst ég vera á réttri hillu.
Hagfræðin hefur breyst mjög
verulega á þeim tíma sem nú er
liðinn frá því ég hóf nám, en það
var árið 1932 og er því næstum
liðin hálf öld síðan. Sjálfur
grunnurinn, sem byggt er á,
hefur þó ekki breyst mikið.
í fyrsta skipti er ég varð var
við það að kynslóðirnar voru
orðnar tvær, sem ég hafði kennt
í Háskólanum, sagði ég að nú
væri maður fyrst farinn að
finna fyrir því að vera orðinn
gamall, en þá var sonur gamals
nemanda míns kominn í Háskól-
ann. Ég hef þó enn ekki orðið
var við þriðju kynslóðina, en það
gæti nú farið að líða að því.
Efast ég um að nokkur hafi
kennt jafnlengi samfellt við
Háskólann og ég, þó einhverjir
kennarar séu e.t.v. eldri að
árum.“
— Hefur orðið mikil fjölgun
í viðskiptadeildinni á þeim
tíma. sem þú hefur kennt þar?
„Já, aðsóknin að viðskipta-
deildinni hefur verið mjög mikil
undanfarin ár og eru nú vissu-
lega mun fleiri nemendur þar,
en fyrstu árin sem ég kenndi.
Erfitt er að segja til um ástæður
fyrir hinni auknu aðsókn, því þá
þyrfti að kanna hvað vakir fyrir
þeim stúdentum, sem innrita sig
í þetta. En þó held ég að eftir því
sem viðskiptalífið verður flókn-
ara, aukist eftirspurn eftir þeim
sem þessa menntun hafa og
þegar stúdentar velja sér fag í
Háskóla hljóta þeir að þurfa að
hafa í huga hverjir atvinnu-
möguleikar þeirra verða að
loknu námi.
Eftir að landsprófið gamla er
úr sögunni, en það var veruleg
sía, eru stúdentar mun fleiri en
áður og margir hefðu sennilega
ekki komist í gegnum stúdents-
prófið, þegar kröfurnar voru
meiri. Fólk ætti þó að geta
hagnýtt sér stúdentsprófs-
menntun án þess að fara í
Háskólann og tel ég að starfs-
kynningu þyrfti að efla mikið
miðað við það sem nú er, því
margir sem láta innrita sig í
Háskólann gera sér engan veg-
inn grein fyrir því hvers konar
nám þeir eru að fara út í, né
hverjar kröfurnar eru, sem
gerðar eru í náminu. Það er því
mun meira um það nú en áður,
að fólk byrji í námi og detti
síðan úr, án þess að ljúka prófi.“
— Hver eru þín aðaláhuga-
mál fyrir utan starfið við
Háskóiann?
„Aðalhobbýið verður að telj-
ast stjórnmálin um langt skeið,
þótt síðustu árin hafi ég kannski
ekki verið mjög virkur í þeim.
Frítíminn fer að mestu í ýmiss
konar grúsk í sambandi við
fagið, en síðustu árin hefur mér
fundist gott að hafa það rólegt
heima og horfa á sjónvarp og
annað slíkt. Dálítið hlusta ég nú
líka á tónlist, en hæfileika tel ég
mig þó enga hafa á því sviði.
Um alllangt skeið tók ég
töluverðan þátt í stjórnmálum
og átti til dæmis sæti á Alþingi í
um 15 ár samfellt, og hafði
komið þar inn sem varamaður
tvisvar eða þrisvar sinnum áður.
Ég hef þó alltaf litið á starfið
við Háskólann sem mitt aðal-
starf, en stjórnmálastarfið sem
aukastarf og aldrei gat ég
hugsað mér að verða atvinnu-
stjórnmálamaður."
— Ilefurðu ekki frá ein-
hverju skemmtilegu að segja
frá námsárum þi'num í' Kaup-
mannahöfn?
„Jú, margt skemmtilegt gerð-
ist nú þar og man ég til dæmis
eftir einum af kennurum mín-
um, sem lést nú skömmu eftir að
ég hóf nám í Kaupmannahöfn.
Hann hafði þann ósið að koma
alltaf of seint í tíma og hélt þá
nemendum sínum oft lengur
þannig að þeir misstu af
frímínútum. Eitt sinn tóku
stúdentarnir sig til og ákváðu að
vera farnir, er karl birtist.
Þegar hann mætti svo í tímann,
hátíðlegri stöðu. En þá svaraði
konungur um hæl: „Én hvað þá
um mig?“
— Það hefur oft verið sagt að
prófessorar séu meira utan við
sig en aðrir menn. Er eitthvað
til íjþví?
„Ég veit nú ekki hvort
prófessorar eru neitt meira utan
við sig en aðrir menn, en þó má
það vera. Ég hef he.vrt nokkrar
sögur þar að lútandi af sjálfum
mér. Einu sinni átti ég til dæmis
að hafa sést á gangi með tóman
barnavagn, og það besta við það
allt saman var að ég trúði þeirri
sögu sjálfur. Þannig var að á
þeim tíma bjuggum við hjónin
nálægt barnaleikvelli, og dvaldi
elsti sonur okkar oft þar. Hélt
ég að sagan hefði þá orðið til, er
einhver sá mig vera á gangi með
tóman barnavagn, en ég hef þá
verið á leiðinni til að sækja son
okkar á leikvöllinn. Sá er sá til
mín hefur þá sagt við sjálfan
sig: „sá er nú sannur prófessor",
og fannst mér þetta allt saman
mjög trúlegt. Én það besta við
þetta allt er að löngu seinna
viðurkenndi vinur minn einn að
hafa búið söguna til.
Annars held ég nú að í
rauninni sé þetta sama
spurningin og hvort Skotar séu
nískari en annað fólk. Veit ég þó
af minni eigin reynslu að Skotar
séu sérstaklega greiðviknir, og
hef ég heyrt því fleygt að það
séu Skotarnir sjálfir, sem búi til
margar af þessum skotasögum.
Kannski er það eins með
prófessorana." - A.K.
Pelsinn
Kirkjuhvoli
1
FalleQir pelsar, loöskinnshúfur og refaskott meö
haus í miklu úrvali. PelSÍnil,K,rkjuhvoM
AtKi: góðir greiðsluskilmálar. opíö 1-6, e h. sími 20100
** ** laugardaga kl. 10—12