Morgunblaðið - 15.10.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.10.1978, Blaðsíða 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGL'R 15. OKTÓBER 1978 r f Barna- og fjölskyldusíðan Þórir S. Guðhcr«sson Rúna (iisladóttir Afmælis- dagurÁma Árni átti afmæli. Hann varð átta ára. Mörgum var boðið í afmælið og hann fékk margar afmælisgjafir. Þegar leið á daginn varð hann þreyttur. Hann lagðist á gólfið, setti mjúkan bangsann undir höfuðið og skoðaði allt dótið, sem hann hafði fengið. Þarna voru trédýrin og fíllinn, apinn og gíraffinn og... Rétt í því, sem Árni sofnaði, sá hann undarlega sjón. Dýrin komu öll gangandi í halarófu og báru hvert sína gjöf. Apinn gaf honum banana og fíllinn blómvönd. Giraffinn gaf honum ávexti, en músin ost — og hundurinn kom með stórt kjötstykki handa honum! Næstur á eftir hundinum kom skógarbjörn með hunangskrukku og síðan hæna með fullan kassa af eggjum... Þegar dýrin höfðu afhent honum allar gjafirnar, byrjaði gleðskapur mikill. Árni gaf öllum gosdrykki og síðan fóru allir að dansa af fullum krafti. Allt gekk vel í fyrstu og dýrin virtust skemmta sér konunglega. Þau dönsuðu af hjartans gleði, þangað til fíllinn datt niður úr gólfinu! Apinn sveiflaði sér í gluggatjöldunum og gíraffinn hékk í ljósakrónunni. Skógarbjörninn klifraði upp í gluggann og hundurinn þaut upp á borðið. Aumingja Árni vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Hann var alveg viss um, að fólkið í húsinu yrði fokreitt, og ætlaði því að fara að skamma dýrin ærlega. En rétt í þann mund vaknaði hann og skildi undir eins, að þetta hafði verið draumur! Framhaldssagan A hættuslód- um í Afríku Eftir mörg og hættuleg ævintýri, tókst Living- stone loks að komast til lítillar hafnarborgar, sem tilheyrði Portúgölum — þar sem Sambesí-fljótið rennur út í Indlandshaf. Brezka herskipið Mauriti- us v?r þá statt á þessum slóðum, og dvaldist Liv- ingstone um borð um mánaðartíma til þess að ná sér eftir malaríu og orðu og Lundúnaborg gerði hann að heiðurs- borgara sínum. Svo mikill var mann- fjöldinn stundum, að hann mátti hafa sig allan við að komast undan. Að áliti Livingstones var nauðsynlegt að rann- saka landsvæðin kringum Sambesi-fljótið miklu nánar. Þegar frétt þessi sem sagt bundinn endir á þessa erfiðleika. „Hvaða óskir hafið þér helstar í huga, herra Livingstone?“ spurði Clarendon lávarður, utan- ríkisráðherra. Livingstone bað um að fá sjö sérþjálfaða menn, sem hver um sig gæti tekið að sér verkefni á ferðalögunum. Ríkisstjórnin ákvað að önnur veikindi, sem höfðu herjað á hann í þessari hættulegu ferð. Skömmu síðar fór hann heimleiðis til Englands eftir sextán ára fjarvistir frá föðurlandi sínu. Á þessum árum hafði Livingston ferðast gegn- um myrkustu skóga Afr- íku, lengra en nokkur annar hvítur maður, og farið þvert yfir þessa stóru heimsálfu frá ann- arri ströndinni til hinnar. Hann hafði unnið mikið afreksverk, sem hann var hylltur fyrir, er hann kom heim til Englands á ný. Konunglega landfræði- félagið sæmdi hann gull- barst síðan til fólksins, heyrðust brátt háværar raddir um að ríkisstjórn- inni bæri að styrkja Liv- ingstone til frekari rann- sókna á þessu sviði. Ekki leið heldur á löngu, þangað til Living- stone fékk boð frá utan- ríkisráðherra landsins. Hann var beðinn um að koma til viðtals. Þetta var þýðingarmik- ill dagur í lífi Living- stones. Áður fyrr hafði hann ekki haft nærri því nógu góð verkfæri, áhöld og útbúnað í ferðum sín- um, og olli þetta honum oft miklum vandræðum og erfiðleikum. En nú var lokum að greiða 5000 pund í ferðakostnað, og útnefndi síðan Living- stone sjálfan sem ræðis- mann í Quilimane, og átti hann að fá 500 pund í arslaun. Livingstone ákvað því að taka boði ríkisstjórnar- innar og hætti því sem starfsmaður Lundúna- kristniboðsfélagsins. Hann var nú betur útbú- inn til rannsókna og land- könnunar en nokkru sinni fyrr og ákvað að helga sig því verkefni á næstunni, þó að hann væri jafn- framt ákveðinn í að boða fagnaðarerindið hvar sem hann kæmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.