Morgunblaðið - 15.10.1978, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.10.1978, Qupperneq 8
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978 A. Umsjón: Séra Jón Dalbú Hróbjartsson 1 Séra Karl Signrbjðrnsson L_ Siguröur Pdlsson DROTTINSDEGI Höfnun hj é Llpræðisins 20. sunnud. eftir trinitatis. Pistill: Ef. 5, U—20: Vakna þú sem sefur og rís upp frá dauðum, og þá mun Kristur lýsa þér. Guðspjall: Matt. 22, 1—IV Margir eru kallaðir, enfáir útvaldir. Vínberjaklasinn táknar blóð Jesú og friðþægingardauða hans á krossi. Iljónahanrfiö í hrcnnirfc|)li I\ BÖRNIN Við fyrstu sýn ætti ekki að valda miklum heilabrotum að skrifa um börnin í hjónabandinu. En ein- hvern veginn hefur það orðið svo, að einmitt þessi kafli hefur valdið mér áh.vfífíjum. Án efa lefjííst þetta þannif; í mifi vejína þess að afstaða mín er orðin fíamaldafis miðað við það sem fjerist 0« fjenfíur. Sjálfur er éf; faðir 7 barna of< hef unifienfíist kunningja með svipaða fjölskyldustærð, svo þetta út af f.vrir sig sýnir að ég stend fyrir utan alfara leið í þessum efnum. Húsmóðir, sem gengur með 5., 6. svo ég tali ekki um 7. eða 8. barnið, finnur eflaust að það er ekki erfiðast að ganga með barnið eða fæða það heldur að mæta gagn- rýninni í þjóðfélaginu. Á s.l. 25 árum hefur mikil breyting átt sér stað hvað þetta snertir. Á hverju heimili er áætlun um barneignir sjálfsagður hlutur. Það liggur í loftinu að fyrstu árin ætti maður að vera barnlaus en eiga svo hámark 2 börn og hafa lokið því fyrir 30 ára aldurinn. En hvort sem maður á eitt barn eða tíu, hvort sem maður fylgir tæknilegri áætlanagerð í barn- eignum eða ekki þá eru ýmsir hlutir sem eru mikilvægir í afstöðunni til barnanna. Það er grundvallarmunur á fátækum og ríkum þjóðum. Heilsufræðilegt ástand vanþróuðu þjóðanna hefur vissulega sínar afleiðingar. Maður getur samt ekki setið og reiknað út hvernig allt verður árið 2000, en við verðum að gera okkur ljóst að afstaða okkar til vandamálanna í dag er mjög ákvarðandi fyrir ástandið eins og það verður árið 2000. Hvað sem öllu öðru líður, þá erum við sammála um að barnið tilheyrir hjónabandinu. Mér er ljóst að mörg hjónabönd hafa mætt þeim erfiðleikum að geta ekki átt barn, sem vissulega leiðir af sér önnur viðkvæm vandamál, en þau verða ekki rædd hér. Það er mjög eðlilegt fyrir ungt fólk, sem stofnar heimili, að þau þrái þá stund að sjá lífið kvikna. Allt í einu víkkar sjóndeildar- hringurinn, þau sjá að samfélag þeirra leiðir af sér þá staðreynd að lífið heldur áfram. Það væri ærið verkefni að skrifa um samband væntanlegra foreldra fyrir og eftir fæðingu f.vrsta barns, en í þeim efnum hefur þróunin orðið jákvæðari með árunum. Það var t.d. stórt framfaraspor, þegar faðirinn fékk að vera viðstaddur fæðinguna. Hann fær núna að sjá barnið sitt koma í heiminn, heyra fyrsta gráturinn og eiga þessa stórkostlegu stund með konunni sinni. Foreldrar sem ekki hafa reynt þetta hafa farið mikils á mis, því þetta tengir þau kannski betur sarnan en margt annað. Annað sem mér finnst athyglis- vert að sjá er hve margir ungir foreldra'r taka bæði þátt í því að annast litlu börnin, skipta á þeim, gefa þeim að borða o.s.frv. Einmitt þetta leiðir til þess að það verður auðveldara að komast yfir erfið- leika fyrstu áranna. Ef samvinnan í barnauppeldinu byrjar strax meðan barnið er í vöggu, verður einnig eðlilegt að svo verði áfram. Mér er í fersku minni atvik sem gerðist í Ameríku. Ég var gestur á heimili þekktra vísindamanna, hjónin voru bæði læknar. Tvö börn voru á heimilinu eins árs og þriggja ára. Mér varð fljótt ljóst að þau voru mjög í þörf fyrir að vera sinnt. Ég þurfti að bíða eftir heimilisföðurnum dágóða stund, en það þýddi 2—3 tíma leikur við börnin sem upptók mig svo að ég gle.vmdi stað og st.und. — Þegar pabbinn var kominn heim og við settumst inn í stofu, klifruðu börnin upp um mig allan og pabbinn horfði á. Þá kom athuga- semd frá móðurinni: „Kannski sérðu nú hvað rétt samband við börnin þýðir og hvað börnin þrá samband við föður sinn“. Ég heyri enn veikt játandi svar þessa heimilisföður. „Barnið er ekki leirklumpur sem á að mótast í ákveðið form, heldur jurt sem á að fá að vaxa í samræmi við eiginleika sína“ — þannig hefur frægur barnalæknir komist að orði. Eitt af því erfiðasta í barnauppeldinu er hve börnin eru ólík. Öft liggur því nærri að gert sé upp á milli barnanna. Hjón verða oft ósam- mála um afstöðuna til barnanna. Ef til vill er það erfiðast fyrir þann sem á í vandræðum með sjálfan sig og finnur sömu veik- leikana hjá barninu sínu. Öll heimili sjá fljótt hvernig börnin finna þetta og mæta foreldrunum eftir því. Jafnvel mjög ung börn vita að „nei“ sagt á ákveðinn hátt af föðurnum er sagt vegna þess að hann veit að móðirin er á annari skoðun. Stærsta reglan í uppeldinu er því sú að börnin fái ekki mismun- andi svör og ráðleggingar heldur að þar ríki eining og hlutirnir séu á hreinu frá báðum foreldrunum. Persónulega hef ég þá sannfær- ingu sð spurningin sé ekki um strangleika eða frelsi í heilbrigðu uppeldi, heldur um sanngirni, kærleika, hlýju og athvarf. Barni getur liðið mjög vel í ströngu uppeldi þar sem foreldrarnir eru sjálfum sér samkvæmir og sýna íilýju og hreinskilni. Barnið velur öryggið fram yfir frelsið og það vill ákveðnar reglur. Ástæða er því enn til að undirstrika nauðsyn þess að foreldrar séu sammála um reglur en vísi ekki hvort á annað eða gefi mismunandi svör. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru, enda efnið óendanlega stórt. Ég vil því aðeins segja þetta að lokum. Barnið tilheyrir hjóna- bandinu, það undirstrika ég enn. Einn af hornsteinum heilbrigðs hjónabands er að aðilar hjóna- bandsins séu sammála um að vilja eiga barn. Ennfremur að hjón séu sammála um afstöðu til tíðarand- ans og hvernig standa skuli að uppbyggingu fjölskyldunnar. Það verður að vera samviskuspurning hverju sinni, hvort lífsgæðakapp- hlaupið á að vera mælikvarði á fjölda barna eða ekki. Slík afstaða verður að vera tekin í eindrægni og kærleika. Frh. Orktrflnd Trúin fær næringu sína og vaxtarmátt frá Biblíunni. Þess vegna er kristnum manni lífsnauðsyn að lesa Biblíuna. Að lesa hana ekki er að velja sér sess í andlegri forsælu. Að lesa Biblíuna er að baða sig í ljósi Guðs, lifa í kærleika Guðs og gleðjast yfir auðævum hans. Biblían er ekki ein heldur margar bækur, 39 bækur í Gamlatestamentinu og 27 í Nýja- testamentinu. Elstu ritin eru meir en 3000 ára, en þau yngstu frá því um 100 e. Kr. Hægt er að benda á eina 40 mismunandi höfunda þessa mikla ritsafns. Þeir eru ólíkir innbyrðis og tjá sig á mismunandi vegu. Biblían svarar ekki öllum spurningum um lífið og veröldina. Hún er ekkert uppsláttarrit um náttúrufræði eða sögu. Hún inniheldur ýmislegt þessháttar, oft litað hugmyndum og heimsmynd horfinna tíma og menningarskeiða. Allt það er þó aðeins ramminn. Við eigum ekki að einblína á rammann, því að inn í rammanum er myndin. Og í henni á Guð erindi við þig. Guð talar til okkar í Biblíunni. Honum liggur nokkuð á hjarta, sem hann vill segja þér. Hann vill hjálpa þér að sjá tilgang þessa lífs, er hann heur skapað og gefið þér til að lifa og njóta. Hann segir okkur hvernig hann vill bjarga okkur frá öllu illu, og leiða þetta mannkyn út úr þjáningum til gleði og sælu.^ Vilja sinn birtir Guð á tvenns konar máta: í lögmálinu — þar sem hann segir hvers hann væntir af okkur— að elska; lögmálið í hnotskurn er tvíþætta kærleiksboðorðið. Lúk. 10,27. í fagnaðarerindinu — gleðifréttunum, segir hann okkur hvað hann gefur okkur — kærleika sinn: Guð elskar þig. Fagnaðarerind- ið í hnotskurn er litla biblían: Jóh, 3.16.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.