Morgunblaðið - 15.10.1978, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1978
45
Von á fjörutíu manna
dans- og söngvaflokki
frá Tíbet til íslands
UM 40 manna söng- og dansdokkur írá Tíbet kcmur til landsins 22.
október nk. og mun halda tvær sýningar í Þjóðleikhúsinu en auk þess
koma fram á sýningum á Selíossi og Akranesi. Hér er um að ræða
söngvara. dansara og hljóðfæraleikara úr Tíbeska söng- og
danshópnum. sem bækistöðvar hefur í Lhasa.
Flokkurinn hefur að undanförnu sýnt á Norðurlöndum og vakið þar
mikla athygli. Þetta er í fyrsta sinn sem danshópurinn heldur út fyrir
landamæri Kínverska alþýðulýðveldisins, en hingað til lands kemur
flokkurinn í boði Kínversk-íslenzka
afmæli hinn 20. þessa mánaðar.
Efnisskrá Tíbetanna verður fjöl-
breytt og er sambland af nýrri og
fornri list tíbesku þjóðarinnar.
Sýningarnar í Þjóðleikhúsinu
verða 24. október og 25. október.
í ávarpsorðum frá tíbeska
flokknum er efnisskránni lýst svo
meðal annars:
Meðan á heimsókn til Islands
stendur munum við flytja ykkur
takmarkaða, en innihaldsríka efn-
isskrá. Auk þess sem við munum
flytja ykkur ýmsa dansa frá
hinum fjölmörgu héruðum Tíbets
verður á dagskránni einsöngur,
tvísöngur, flutt verða verk, þar
sem fer saman söngur, dans og
tjáning, auk þess sem leikið verður
á hefðbundin hljóðfæri. Áhorfend-
ur munu fá tækifæri til að njóta
listar hinnar vel þekktu tíbetsku
söngkonu Tsaidantsoma, en hún
mun túlka með sinni áköfu og
menningarfélagsins, sem á 25 ára
lifandi rödd m.a. „Á hinu gullna
fjalli í Peking“ og vinsæl tíbetsk
þjóðlög eins og Longme og Duizie.
Söngkona þessi hefur ferðast um
10 lönd Asíu og Evrópu og er vel
þekkt fyrir söng sinn heima og
erlendis. Cheng Liu-chu, tenor-
söngvari, mun syngja með hinni
fjörmiklu rödd sinni tíbetsk þjóð-
lög eins og Gesangla og „Shigatse,
ættborg mín“. Þá verða m.a.
eftirtaldir dansar sýndir: „Kvöld
að lokinni metuppskeru", „Bongbu
dans“, Shengtu hirðingjadans,
frelsi fagnað o.fl, Hinir athyglis-
verðu dansarar okkar, Bashuang-
ciren og Caizhen ásamt öðrum
ungum listamönnum munu
skemmta áhorfendum með hinni
frábæru leikni sinni og mildum
hreyfingum þjóðdansanna. Form
dansa þessara er lifandi og list-
rænt og innihald þeirra margvís-
legt.
Nýtt hús Pósts og
síma í Bolungarvík
NÝTT pósthús var formlega
tekið í notkun hér í Bolung-
arvík 7. okt. s.l. Húsið er á
tveim hæðum auk tengi-
byggingar við sjálfvirku
símstöðina. Á neðri hæðinni
er afgreiðsla Pósts og síma
en á efri hæðinni er íbúð
fyrir stöðvarstjóra.
Með tilkomu þessa húss
batnar stórlega öll aðstaða
bæði fyrir starfsfólk og
viðskiptavini Pósts og síma,
en þessi þjónusta hefur
verið rekin í þröngu hús-
næði og við allsendis ófull-
nægjandi aðstæður mörg
undanfarin ár.
Hið nýja hús Pósts og
síma er allt hið vandaðasta
og var því skilað af verk-
taka fullbúnu með frágeng-
inni lóð. í anddyri af-
greiðslusalar hefur verið
komið fyrir 160 pósthólfum,
en slíka aðstöðu hafa Bol-
víkingar ekki haft fram að
þessu. Aðalverktaki hússins
var trésmiðjan Þróttur hér í
bæ, en innréttingar í af-
greiðslusal voru í umsjá
trésmiðju Pósts og síma í
Reykjavík. Aðalarkitekt
hússins var Jósep Reynis.
Stöðvarstjóri pósts og
síma hér í Bolungarvík er
Elías H. Guðmundsson.
Sjálfvirka símstöðin hér
hefur nýlega verið stækkuð
úr 300 númerum í 400
númer, en tæp 2 ár eru
síðan hægt var að afgreiða
nýjan síma. Það má geta
þess hér í lokin að nú eru
tæp 70 ár frá því að fyrst
var opnuð símstöð hér í
Bolungarvík.
Gunnar.
rri' ' j
Timamot
Hér eftir nota menn
Meroni húna og læsinsar
Allir hlutir sem við notum
daglega þróast og breytast
í tímans rás. Nú er komið að
tímamótum í sögu hurða-
húna og læsinga.
Meroni tímatalið er hafið.
Hvað veldur tímamótunum?
• Gerð og notkun. Hurðin opnast þegar
stutt er á hnapp ofan á húninum. Það
þarf ekkert að snúa og hægt að opna
með fangið fullt af pinklum.
Læsingakerfið er öruggt og einfalt og
býður marga kosti miðað við þarfir í
stóru sem smáu húsnæði.
• Húnarnir haggast ekki við langvarandi
notkun. Lausir og skröltandi húnar
hverfa úr sögunni.
• Hávaðalaus lokun vegna innbyggðar
hljóðeinangrunar.
• Útlitið mótast af einföldum hring-
• formum. Enn einn vottui"fiím listfengi
ítalskra hönnuða.
• Litaúrvalið er fjölbreytt og m.a. völ á
sérstakri húðun sem þolir vel seltu og
risjótt veður.
• Auðveld og fljótleg ísetning vegna þess
að allt' er þaulhugsað í sambandi við
Meroni húna og læsingar.
• Vandið val þeirra hluta sem eru í dag-
legri notkun og setja svip á umhverfið.
Útsölustaðir:
Casa
Borgartúni 29
Reykjavik
Norðurfell
Akureyri
mm
raeroni
Heildsölubirgðir:
Sigurvík h/f. Sími 20640
Brúnás Kaupfélag Þingeyinga Kaupfélag
Egilsstöðum Húsavík Vopnfirðinga