Morgunblaðið - 15.11.1978, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1978
sem maður
er byggt á
bakgrunni,
ars er það
ekki satt“
segir Magnea Matthíasdóttir, sem nýlega sendi frá sér sína fyrstu
skáldsögu.
munurinn er bara sá, að lista-
mönnum leyfist svo margt sem
öðrum leyfist ekki, og því gera
þeir ýmsa þá hluti sem aðra
langar til að gera en þora ekki.“
„Hvort ég sé skrýtin? — Eg
hef alltaf verið skrýtin! Það
kemur fram á marga vegu, en ég
get þó varla sagt að ég hafi
notfært mér þá sérstöðu, sem
við vorum að tala um að
listamenn hafi.“'
Magnea segist vera innfæddur
Reykvíkingur, og hafi alltaf búið
þar, nema hvað hún var í þrjú ár
úti í Danmörku, og svo einn
vetur á Grundarfirði. Hún er
stúdent, og stundaði nám í
sálarfræði í tvö ár.
„Það er í tísku að segja að
Reykjavík sé leiðinleg borg,“
segir Magnea. „Ég held að
borgin sé hins vegar alveg eins
og fólk vill hafa hana, enda
ræður fólkið mestu um það
hvernig borgarlífið verður. Ég
er ekki að segja að borgin sé
neitt stórkostleg, en hún' er
varla verri en gengur og gerist,
þó hún sé að vísu dálítið grá.
Kaupmannahöfn hefur upp á
margt að bjóða, en gallinn er
bara sá, að hún gleypir mann.
Það sama gæti farið að gerast
hér, en Reykjavík er einhvern
veginn miklu opnari. Mér finnst
Amsterdam hins vegar vera
mjög „sjarmerandi“ borg, en
þangað hef ég að vísu aðeins
komið sem túristi. — Það er
annars skrýtið, að ég fæ stund-
um „heimþrá" til Kaupmanna-
hafnar, þó það sé kjánalegt.
Mér fannst hins vegar ekkert
sjarmerandi við Grundarfjörð,
það er afskapiega ömurlegur
staður. Ég skil ekki hvað fólk
sér við þessi litlu sjávarpláss."
Sem fyrr segir sendi Magnea
nýlega frá sér sína fyrstu
skáldsögu, og nefnist hún „Hæg-
ara pælt en kýlt“. Áður hafði
hún svo gefið út ljóðabókina
„Kopar", sem kom út um jólin
1976.
Magnea segist ekki hafa mikið
af öðrum ungum rithöíundum
að segja, en segir þó að sjálfsagt
hafi þeir samband sín á milli.
Megi i því sambandi til dæmis
minna á Lystræningjann, og svo
framtak þeirra er fóru um
landið og kölluðu sig „Lista-
skáldin vondu". „Ég þekki þetta
fólk aðeins svona sem kunn-
ingjarabb á götu.“
Magnea býr ásamt vinkonu
sinni, og börnum þeirra, en þær
eiga tvö hvor. Er hjónaband bar
á góma sagðist Magnea hins
vegar hafa fengið nóg af slíku,
alla vega fvrst um sinn!
- AII
Til viðbótar
framanskráðri
fjárþörf kr. 421.291.000
að frádregnum
sparnaði
við niðurskurð kr. 141.000.000
eða alls kr. 280.291.000
koma aukin útgjöld vegna
launahækkana og fleira, sem
annarsvegar leiða af samþykkt
bæjarstjórnar Kópavogs frá 7. júlí
1977 um að setja kjarasamninga í
gildi í áföngum og hinsvegar af
bráðabirgðalögum ríkisstjórnar-
innar frá því í sept. sl.
Má því reikna með, að viðbótar-
fjárþörf bæjarsjóðs á þessu ári sé
á milli 300 og 330 milljónir króna.
Til þess að brúa þetta bil hefur
verið leitað eftir lánum og hefur
nú tekist, fyrir tilstuðlan ríkis-
stjórnarinnar og milligöngu Seðla-
bankans og Búnaðarbanka íslands,
sem er viðskiptabanki Kópavogs-
kaupstaðar, að útvega lán að
upphæð kr. 200 milljónir. Lán
þetta er til tveggja og hálfs árs og
gengistryggt.
Enn vantar því á annað hundrað
milljóna króna til þess að greiðslu-
jöfnuður náist á árinu 1978. Þar
sem ekki er líkle§t að kostur verði
á meira lánsfé á þessu ári verður
að jafna greiðslustöðuna með
viðeigandi ráðstöfunum á fjár-
hagsáætlun næsta árs.
Stereo Hi-Fi
®SANYO
SAMSTÆÐUR
Verð
frá kr.
GXT4513 —
DCW 4800 —
GXT 4580 —
Góð ódýr samstæða — 4 bylgjur FM stereo.
Fullkomið kassettutæki 2 hátalarar 2 mikrafónar
Mjög vönduð samstæða 2x22 R.M.S. wött —
4 bylgjur FM stereo, belti-drifinn,
plötuspilari sjálfvirkur.
Samstæða hinna vandlátu. Búin öllum helstu
nýjungum, 2x25 R.M.S. wött
(80 músikwött).
185.130
unriaí Sfyzeiióóon h.f.
Suðurlandsbraut 16, sími 35200