Morgunblaðið - 15.11.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1978
SILDARVINNSLA I NORÐURSTJORNUNNI I HAFNARFIRÐI:
Niðursuðuverksmiðjan
Norðurstjarnan í Hafnarfirði
hóf vinnslu á sfld í byrjun
september en si'ðan var gert hlé
á vinnslunni. í byrjun síðustu
viku hóf Norðurstjarnan á ný
sfldarvinnsluna.
»Við erum samtals búnir að fá
um 550 tonn,“ sagði forstjóri
Norðurstjörnunnar, Pétur
Pétursson, er blaðamenn heim-
sóttu niðursuðuverksmiðjuna.
»Síldin sem við fáum er
blönduð. Hún er ágæt af netabát-
unum en mjög misjöfn af nóta-
bátunum,“ sagði Pétur.
30—35 manns vinna í niður
suðuverksmiðjunni að sögn
Péturs og er oft unnið lengi
fram eftir og jafnvel á vöktum.
„Síldveiðarnar eiga að vera
búnar 20. nóvember ef búið
verður að fylla kvótann en það
má gera ráð fyrir því að svo verði
ekki fyrir þann tíma. Við þurfum
að vinna úr 1000—1200 tonnum af
síld til að standa við samninga
sem til eru vegna sölu til
Bandaríkjanna. Þegar vinnslu
hráefnis er lokið verður byrjað að
sjóða niður og reykja síldina sem
send verður vestur," sagði Pétur.
Inni í vélasalnum var Estíva
Ottósdóttir að setja síldina í
flökunarvélarnar.
„Mér líkar þessi vinna ágæt-
ega en hún er lítið borguð," sagði
nún. Estíva er húsmóðir en
vinnur á 8 tíma vöktum í
niðursuðuverksmiðjunni.
Sfldin rennur niður í flökunarvélina.
myndir Emilía.
Hafa tekið á móti 550 tonn-
um það sem af er vertíðinni
Hér er verið að setja sfldina í poka áður en hún er fryst.
Starfsstúlkurnar þvo svuntur sínar áður en farið er í mat.
„Ég byrjaði hérna á þriðjudag-
inn en ég hef unnið í síldinni
áður,“ sagði Estíva.
Sigrún Graham byrjaði líka að
vinna í síldinni á þriðjudaginn í
síðustu viku en hún hafði aldrei
áður unnið í síld. Sigrún var eins
og Estíva að setja síldina í
flökunarvélarnar og sagðist
kunna vel við starfið. Ekki vissi
Sigrún neitt um hvort henni
þætti kaupið gott eða ekki.
„Ég er ekki búin að fá borgað
ennþá en ég hugsa að ég vinni hér
þangað til síldin er búin,“ sagði
Sigrún.
„Ég var á síldarbát en kom
síðan hingað er við vorum búnir
að fylla kvótann," sagði Ómar
Dagbjartsson vélgæslumaður.
„Ætli ég fylgi síldinni ekki
eftir alla leið til Bandaríkjanna,"
bætti hann við og hló.
Úr vélasalnum, þar sem síldin
var flökuð, fór hún í frystingu og
býður þess að hafist verði handa
um að sjóða hana niður og reykja
áður en flutningurinn til Banda-
ríkjanna hefst.
Sigurður í. Sigurðsson verk-
stjóri sagði okkur að vel hefði
gengið að fá starfsfólk. Nokkuð
var um skólastráka og einnig
töluvert um húsmæður í Norður-
stjörnunni. Þær höfðu skipt á
milli sín dögunum í uppþhafi,
unnið hálfan daginn hver, en
síðan vaktavinnan var tekin upp
hafa þær yfirleitt unnið fullar
vaktir, að sögn Eiríks Jónssonar
vélgæslumanns.
„Það hefur gengið mjög mis-
jafnlega að vinna síldina. Það fer
eftir stærðinni á síldinni hversu
vel vinnslan gengur," sagði
Sigurður í. Sigurðsson. „Síldin
sem við höfum fengið til vinnslu
er ákaflega misstór,"
Sigurður reiknaði ekki með því
að síldveiðikvótinn yrði fullur er
veiðitíminn yrði úti en hann bjóst
heldur ekki við því að veiðitíminn
yrði framlengdur.
... sfðan er hún sett á pönnur og á þeim bíður sfldin í frysti þangað til
farið verður að vinna úr henni.
Sigrún Graham (t.v.) og Estíva Ottósdóttir (t.h.) við vinnu sína.