Morgunblaðið - 08.12.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978
47
Ljósin kynna lög afsamnefndri
hljómplötu sinni og árita sídan
eintök afplötunni aö tónleikun-
um loknum i verzlun okkar,
sem er i MiÖbænum, Austur-
stræti 22, viÖ UtimarkaÖinn.
Allir í Miðbæinn í dag.
HLJOMDEILD
Uyi) KARNABÆR
r Laugavegi 66. s. 28155, Glæsibæ. s. 81915, Austurstræti 22, s. 28155.
Ummargt
að spjalla
15 viðtalsþættir eftir Valgeir Sigurðsson
BÓKFELLStJTGÁFAN hcfur gef-
ið út víðtalsbókina Um margt að
spjalla eftir Valgeir Sigurðsson
blaðamann og skiptist bókin, sem
er 189 bls. að stærð, í eftirfarandi
kafla, Á skáldabekk, Á góðri
stund og Á förnum vegi.
Þeir sem talað er við eru: Einar
Kristjánsson, Hannes Pétursson,
Indriði G. Þorsteinsson, Kristján
frá Djúpalæk, Rósberg G. Snædal,
Broddi Jóhannesson, Eysteinn
Jónsson, Guðrún Ásmundsdóttir,
Jakob Benediktsson, Sigurður Kr.
Árnason, Anna Sigurðardóttir,
Auður Eiríksdóttir, Auður Jónas-
dóttir, Stefán Jóhannsson og
Þorkell Bjarnason.
Höfundur bókarinnar, Valgeir
Sigurðsson, ritar formála og segir
þar, að greinarnar í bókinni séu
„Fangarnir
í Klettavík”
— ný bók eftir
E.W. Hildick
„FANGARNIR í KLETTAVÍK“
nefnist bók sem er nýlega komin
út hjá bókaútgáfunni Iðunni og
er hún eftir Edmund Wallace
Hildick. en þýðinguna gerði
Andrés Kristjánsson.
Karólína og Ríkarður bróðir
hennar eru stödd í litlu fiski-
mannaþorpi, Klettavík, sem hefur
verið breytt í frístundabæ, þangað
sem fólk sækir sér afþreyingu og
hvíld, og þar á Karólína að
dveljast sér til heilsubótar. En
margt fer öðru vísi en ætlað er.
Karólína og bróðir hennar berast
inn í straum undarlegra atvika og
atburðarásar, sem að lokum leiðir
til óvæntrar ráðningar leyndar-
dómsins í Klettavík.
Hildick er breskur höfundur,
sem hefur hlotið margvíslega
viðurkenningu fyrir bækur sínar
handa börnum og unglingum.
sýnishorn viðtala, sem hann hefur
skrifað í Tímanna á liðnum árum
og ennfremur: „En fólkið, sem
blaðamaður leiðir fram fyrir
lesendur sína, er vitanlega aldrei
nema einn þáttur málsins. Eftir er
hlutur höfundarins. Tekst honum
að gæða lífi orð, sem sögð eru á
hraðfleygri stund, og jafnvel undir
þeim kringumstæðum, aðbáðir,
blaðamaður og viðmælandi hans,
hafa orðið að ganga til verksins
lítt eða ekki undirbúnir, eins og oft
hendir í þeim hraða og spennu,
önn og erli, sem jafnan fylgir
blaðamennsku? Þetta er meginatr-
iði. Á því, hvernig svarið við
þessari spurningu verður, veltur í
raun og veru allt. Fátt er auðveld-
ara en að skrifa einhvern veginn
blaðaviðtal. Það er vitanlega hægt
að birta setningar viðmælandans
gorhráar og óslípaðar, en sá sem
það gerir, er slakur blaðamaður,
— og enginn rithöfundur.
En það er líka til önnur aðferð
við þetta verk: Sá sem viðtalið
skrifar getur gert sér far um að
skilja viðhorf og tilfinningalíf
mannsins, sem hann ræðir við,
íklæðzt persónu hans á meðan
hann skrifar viðtaljð — ef svo má
að orði komast — og koma þannig
til skila ekki einungis máli hans og
orðafari heldur einnig, og ekki
síður hugblænum, tilfinningalíf-
inu, sjálfri verðandinni á bakvið
orðin. Það er þetta, sem skilur á
milli feigs og ófeigs, og þegar
svona er að unnið, er miklu
vandameira og erfiðara að skrifa
viðtal, svo að það verði gott, en að
skrifa grein frá eigin brjósti, þar
sem ekki þarf að hugsa um annað
en að koma sínum eigin stíl,
orðfæri og skoðunum til lesenda
sinna. Hitt er svo allt annað mál,
hvort mér hefur tekizt að skrifa
viðtöl eins og ég tel æskilegast að
þau séu úr garði gerð...“
Um viðtölin segir m.a. svo á
bókarkápu: „Hér eru rithöfundar
látnir ríða á vaðið. Fyrsti hluti
bókarinnar er helgaður þeim. Þar
næst koma fimm greinar um
tómstundavinnu manna og loks
greinar um ýmis efni, s.s. náttúru-
skoðun og náttúruvernd, ferðalög
og útilegur, hrossarækt og hesta-
mennsku, o. m. fl.“
/-----------------
Ljósin
x bœnnm
Já i miöbænum í dag
kl 2.30
„Martröð
undanhaldsins,,
ÚT ER komin hjá Ægisútgáfunni
bókin Martröð undanhaldsins eftir
Sven Hazel. Er þetta tíunda bók
höfundarins, sem út kemur á
íslenzku, en nokkrar bókanna hafa
verið gefnar út oftar en einu sinni.
Martröð undanhaldsins nefnist á
frummálinu „Kommando Reichs-
fuhrer Himmler". Bókin er 240
blaðsíður að lengd, þýðandi Óli
Hermanns. Bókin er sett og
prentuð hjá Prentrún, en bundin
hjá Nýja bókbandinu.
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Úrvalstæki, búið öllum þeim tækninýjungum
sem góð litsjónvörp þurfa að hafa, svo sem línulampa,
viðgerðareiningum og fleiru.
Tækið sem sameinar myndgæði og fallegt útlit.
Varahluta- og viðgerðarþjónusta á staðnum. Hagstætt verð.