Morgunblaðið - 08.12.1978, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1978
63
Franskar tekökur
Vá bolli hveiti,
'h tsk. lyftiduft, 'A tsk. salt,
3 egg, 1 tsk. vanilludropar,
% bolli sykur,
2 tsk. fínt rifinn sítrónubörkur,
% bolli brætt smjörlíki.
Eggin eru þeytt þar til þau eru létt og ljós, vanilludropum bætt í
og síðan sykrinum smám saman, haldið áfram að þeyta lengi og vel.
Þá er sítrónuberkinum bætt í, síðan þurrefnunum smám saman og
að síðustu köldu bræddu smjörlíkinu. Kökurnar eru bakaðar í
smurðum smákökumótum, fylltum að þrem fjórðu, við meðalhita í
12—15 mín. Flórsykri er stráð á kökurnar meðan þær eru heitar.
Falleg leðurbelti
Falleg belti eru til mikillar breiðari belti farin að stinga
prýði á mörgum flíkum. upp kollinum aftur. Breið
Jafnframt þessum örmjóu, belti krefjast mjós mittis,
sem mest hafa verið notuð eins og kunnugt er, og gott
undanfarið, og þá gjarnan að hafa í huga ef velja á nýtt
tvívafin um mittið, eru belti.
Margt er líkt
með skyldum
Maud lícinesen.
MARJUN OG ÞAU HIN
Jón Bjarman íslenskaði
Teikningar gerði Elín Heinesen
Prentsmiðja Björns Jónssonar
Bókaútgáfan Skjaldborg Akur-
eyri 1978
Marjun og þau hin er aðallega
saga tíu ára telpu, sem á heima í
Þórshöfn í Færeyjum. Faðir
hennar er stýrimaður á olíuflutn-
ingaskipi, sem siglir stundum alla
leið til Japan. Móðirin er heima í
Staffalág með börnin þeirra
fjögur. Guðrún sem er enn lítill
angi, Pétur Kristján sem var
foringi hvar sem hann var —
flæktist um bæinn, þvældist um
borð í skipum og bátum. Elín sem
var „á þessum erfiða aldri.“
Og Marjun, sem er útnefnd
köngsdóttir í jólaleikriti því sem
Bókmenntir
eftir JENNU
JENSDÓTTUR
bekkurinn hennar á að sýna í
skólanum. Og er þess vegna
öfunduð af vinkonum sínum.
Marjun verður fyrir því slysi í
upphafi sögunnar að hún viðbeins-
brýtur sig. Þótt langur tími sé til
sýningar á leikritinu veldur það
henn i áhyggjum. Hún er hrædd
um að Hervör vinkona hennar fái
hlutverkið. Undirbúningur leik-
sýningarinnar og allt tilstand hjá
Marjun í því tilefni, skýtur upp
kollinum af og til í sögunni sem
endar svo á sjálfri leiksýningunni
og efnisfrásögn leikritsins.
Innan um eru frásagnir af
daglegu lífi og atburðum, sem eiga
sér stað á sama tíma og sagan
gerist, eða þeir eru rifjaðir upp frá
fortíðinni.
Dag nokkurn týnast Pétur
Kristján og félagar hans. Þeir
hafa farið út á sjó. Bátur, tekinn í
óleyfi finnst þar sem hann marar í
kafi. Lögreglan kemur við sögu og
það er auglýst eftir strákunum í
útvarpinu.
Sagan er raunsönn lýsing á
erfiðleikum og ábyrgð sjómanns-
konunnar, sem ein þarf að ala upp
börnin meðan faðirinn er langtim-
um fjarri heimilinu. I heild lýsir
sagan hversdagslífi færeyskrar
sjómannsfjölskyldu — í Þórshöfn.
Það er gaman fyrir íslensk börn
og unglinga að kynnast því hve
margt er líkt með því lífi og okkar
íslendinga. Þótt telpunafn sé á
sögunni er hún ekkert síður fyrir
drengi en stúlkur. Dóttir höfundar
myndskreytti bókina.
Því miður er prófarkalestur
slæmur, margar prentvillur eru í
bókinni, sem er að öðru leyti
vönduð í útgáfu.
Í7daga(8.-14.des.):
í 2litum.
Sailor-jakkar:
Vatteraðir jakkar:
BANKASTRÆTI 7
& AÐALSTRÆTI4
ÁÐUR
25900T-
22900-
LAUGAVEGI 47,
NÚ
19500.-
17500.-