Morgunblaðið - 23.01.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979
5
Ferðafélag Islands
efnir til göngudags
Ferðaáætlunin komin út
FERÐAFÉLAG íslands
hefur gefið út ferðaáætlun
sína fyrir árið 1979 og eru
auglýstar í henni 220 ferð-
ir, dag-, helgar eða sumar-
leyfisferðir svo og kvöld-
ferðir.
í áætluninni er
einnig að finna ferðaáætl-
anir deilda innan F.í.
Hinn 10. júní n.k. efnir félagið
tii „göngudags" og verður þá
gengið 15—20 km leið í hópgöngu.
Verður gengið á jafnlendi og er
það með það fyrir augum að sem
flestir geti tekið þátt í henni.
Slíkir göngudagar eru fastir liðir
meðal göngufólks á Norðurlöndun-
um en það er í fvrsta sinn sem efnt
er til hans hérlendis.
Önnur nýjung í starfi félagsins
er útilega í Marardal helgina
23.-24. júní. Er sú ferð hugsuð
sem æfing fyrir þá sem ætla að
ferðast fótgangandi með allan
útbúnað. Geta þátttakendur próf-
að útbúnað sinn og æft sig í að
bera farangur, en í frétt frá
Ferðafélaginu er minnt á nauðsyn
þess að ferðamenn afli sér þess
konar reynslu áður en lagt er upp í
langar gönguferðir.
Þá má nefna nýjung í sumar-
leyfisferðum félagsins en það eru
gönguferðir milli Landmanna-
Hólmavík:
Skotferð Strandamanna
yfir Steingrímsfjarðarheiði
Iiiingubrúin á Syðri-Em.struá var sett upp 30. september sl. en með
henni opnaðist greiðfær gönguleið milli Landmannalauga
Þórsmerkur.
og
Ilólmavík, 22. jan.
UM LANGT skeið hefur það verið
áhugamál Strandamanna að fá
vegasamband við ísafjarðardjúp
um Steingrímsfjarðarheiði. Eins
og er hafa Strandamenn ekkert
samband við aðra Vestfirði mest-
an hluta ársins ef frá er skilinn
nyrsti hreppur sýslunnar. Arnes-
hreppur, en þangað koma strand-
ferðaskipin þegar eitthvað er að
flytja þangað. Þetta sambands-
leysi Strandamanna vestur á firði
er á margan hátt bagalegt, þvi að
á ísafirði er byggð upp þjónustu-
miðstöð alls kjördæmisins og
þangað ná Strandamenn ekki
mestan hluta ársins nema með
því að fara fyrst til Reykjavíkur.
Nú fyrir skömmu fóru nokkrir
menn á jeppa frá Kirkjubóli í
Langadal um Steingrímsfjarðar-
heiði til Ilólmavíkur og voru þeir
ekki nema rúma tvo tima á
leiðinni. Ófærð var engin á
þessari leið og sést af því hversu
snjóléttur fyrirhugaður vegur
myndi vera milli byggðarlag-
anna. Telja kunnugir að hann
myndi verða fær flesta vetur, en
þetta er talið vera tiltölulega
auðvelt verk.
í haust var stofnaður félags-
skapur Inndjúpsmanna til þess að
reisa og reka sláturhús á Nauteyri.
Það hlýtur að vera dýr fram-
kvæmd ef hún á að svara kröfu
tímans, auk þess þarf töluvert
starfsfólk við slíkt fyrirtæki. Væri
það nú ekki heppilegri lausn fyrir
þjóðfélagið að flýtt yrði vegagerð-
inni yfir Steingrímsfjarðarheiði
svo Inndjúpsmenn gætu flutt
sláturfé sitt til Hólmavíkur þar
sem er I. flokks sláturhús engan
veginn fullnýtt. Líkt og Aust-
Patreksfjörður:
Fyrrverandi fjármála-
ráðherra skemmti
þorrablótsgestum
Patreksfirði, 22. jan.
ÞORRABLÓT var haldið s.l. laugardag á vcgum Kvenfélagsins
Sifjar. Var það í fyrsta skipti haldið í hinum nýja sal
félagsheimilisins. Hátt á 4. hundrað manns sóttu blótið og varð
að leggja á borð fyrir nokkurn hóp fólks í anddyri hússins þar
sem rúm þraut í nýja salnum. Blótið fór hið bezta fram og
skcmmtu sér allir vel. Það bar til tíðinda að konur fengu
fyrrverandi fjármálaráðherra, Matthías Á. Mathiesen, til að
troða upp og spilaði hann á flygil hússins nokkur lög, þ. á m.
eftir sjálfan sig, með mesta glæsibrag.
- Páll.
Akranesi 22. jan.
TOGARINN óskar Magnússon
AK 177 kom til hafnar í morgun
með um 140 lestir af afla til
vinnslu í frystihúsi Þórðar
Óskarssonar h.f. Fimm bátar eru
nú gerðir héðan út á línuveiðar.
Afli þcirra hcfur vcrið frá 4—6
lestir í veiðiferð að undanförnu.
Atvinna hefur verið mikil hér á
Akranesi að undanförnu og
atvinnuhorfur gv<ðar á meðan
hugur manna hneigist til sjávar
útvegs og loðna og þorskur líða
ekki undir lok, þ.e.a.s. verða ekki
ofveidd.
Loðnuveiðiskipin héðan frá
Akranesi hafa landað afla sínum
á Austfjörðum að undanförnu og
hafa þau aflað vel.
— Júlíus.
ReyðaríirÖi, 22. jan.
ÞEGAR fullorðna fólkið var að
skemmta sér á þorrablótinu datt
cinum 13 ára dreng í hug að bjóða
vinum sínum í ökuferð um bæinn.
Tók hann bíl föður síns trausta-
taki, sem er Ford Bronco árgerð
1978 en ekki varð ökuferðin löng
því drengirnir lentu út í
snjóruðning og veltu bflnum.
Strákarnir sluppu með skrekk-
inn en bfllinn er dálitið dældaður.
— Gréta.
ur-Barðstrendingar eru að gera í
auknum mæli. Vissulega er það
umhugsunarvert.
— Séra Andrés
lauga og Þórsmerkur. Á sl. sumri
var sett upp göngubrú á Syðri-
Emstruá og var þar með síðustu
hindrun rutt úr vegi þessarar
gönguleiðar. Áætlað er að setja
niður nýtt sæluhús á leiðinni, í
námunda við Hvanngil, en við það
verður hæfileg dagleið milli sælu-
húsanna á leiðinni sem auðveldar
göngufólki og þarf það t.d. því ekki
að bera með sér tjöld.
Að öðru leyti er ferðaáætlunin
með svipuðu sniði og undanfarin
ár m.a. Hornstrandaferðir, fastar
helgarferöir í Þórsmörk og Land-
mannalaugar og Kjalveg. Fjall
ársins verður að þessu sinni Esja
og eru ráðgerðar 10—15 ferðir á
hana.
Alls voru farnar 236 ferðir sl. ár
hjá F.í. með 6.803 farþega eða 29
að meðaltali.
Upp í 6 tonn á línima
Ungir drcngir í ökuferð
Viö
bjööum
afslátt
af vörum
verslana okkar
til mánaðarmöta
Einstakt tækifæri til aö fá
nýjar vörur á hagstæöu
veröi.
Laugavegi 20. Stmi fré akipliborði 28155.
sími 28155
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Lauqaveo 66 Gl«esibci‘ Simi 28165