Morgunblaðið - 23.01.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979 33
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Feröaútvörp
verö frá kr. 7650, kassettutæki
með og án útvarps á góöu veröi,
úrval af töskum og hylkjum tyrir
kassettur og átta rása spólur,
TDK, Ampex og Mifa kassettur,
Recoton segulbandsspólur, 5“
og 7“, bílaútvörp, verð frá kr.
16.950, loftnetsstengur og bíla-
hátalarar, hljómplötur, músík-
kassettur og átta rása spólur,
gott úrval. Mikiö á gömlu verði.
Póstsendum. F. Björnsson
radíóverzlun Bergþórugötu 2,
sími 23889.
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnaö.
Verölistinn, Laugarnesvegi 82.
S. 31330.
Skattframtöl
Tek aö mér skattframtöl fyrir
einstaklinga.
Haukur Bjarnason hdl,,
Bankastræti 6, símar 26675 og
30973.
Skattaframtöl
og reikningsuppgjör.
Fyrirgreiösluskrifstofan, Vestur-
götu 17, sími 16223 Þorleifur
Guömundsson heimas. 12469.
Skattframtöl
| Tökum aö okkur skattaframtöl
og uppgjör fyrir einstaklinga og
fyrirtæki.
Jón Magnússon hdl.,
Siguröur Sigurjónsson hdl.,
Garöastræti 16, sími 29411.
Skattframtöl
Uppgjör og skýrslugeröir.
Sigfinnur Sigurösson hagfr.,
Grettisgötu 94, s. 17938.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþýö. dómt. Hafnar-
stræti 11, sími 14824. Freyju-
götu 37, sími 12105.
Brotamálmur
er fluttur aö Ármúla, sími 37033.
Kaupi allan brotamálm lang-
hæsta verði. Staögreiðsla.
Arin og náttúru-
grjóthleðsla
Magnús Aöalsteinn, sími 84736.
IOOF Rb. I =1281238% — 9.I
IOOF 8 =1601248% SO.
□ Edda 59791237—1
Keflavík
Þorrablót Kvenfélags Keflavíkur
veröur haldiö laugardaginn 27.
janúar kl. 19.30 í samkomuhús-
inu i Garöi. Miöasala i Tjarnar-
lundi miövikudag oq fimmtudaq
frá kl. 2—5. Nefndin.
Nýtt líf
Sérstök samkoma í kvöld kl.
20.30 í Hamraborg 11. Trúboði
Donald Coyne frá Bandaríkjun-
um talar og biöur fyrir sjúkum.
Allir hjartanlega velkomnir.
K.F.U.K. A.D.
Fundur í kvöld kl. 8.30 að
Amtmannsstíg 2 B. Kristilegt
félag heilbrigöisstétta sér um
fundinn. Kaffi. Allar konur vel-
komnar.
Hjálpræðisherinn
í kvöld kl. 20.00 hermannasam-
koma í salnum.
Fíladelfía
Almennur biblíulestur í kvöld kl.
20:30. Ræöumaöur Einar J.
Gíslason.
RÓSARKROSSREGLAN
V ATLANTIS PRÖNAÖS
2313331830
Fram — Skíðadeild
Þorramót í 10 og 15 km
skíöagöngu veröur haldið laug-
ardaginn 27. janúar kl. 14 í
Bláfjöllum.
Þátttaka tilkynnist til Páls Guö-
björnssonar, sími 31239 til
fimmtudagskvölds. Svigæfingar
veröa framvegis á laugardögum
og sunnudögum kl. 14—17 og
fimmtudaga kl. 18—21. Stjórnin.
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
tilboö — útb !OÖ j tifkynningar 1
J ** i
Tilboð oskast
í m/b Kóp SH 132, þar sem hann stendur í
Slippstööinni á Akureyri ásamt fylgihlutum
sem í honum eru og í vörslu Slippstöövar-
innar.
Tilboö skulu hafa borist Bátatryggingu
Breiöafjaröar Stykkishólmi fyrir 1. febrúar
n.k. ____________
Útboð
Byggingarnefnd íbúöa fyrir aldraöa a
Blönduósi óskar eftir tilboöum í smíöi og
uppsetningu innréttinga o.fl.
Útboösgagna má vitja hjá sýslumanninum á
Blönduósi og á Arkitektastofunni s.f.
Síöumúla 23 frá og meö miðvikudeginum
24. janúar e.h. gegn 20 þús. kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboö veröa opnuö hjá sýslumanninum á
Blönduósi fimmtudaginn 15. febrúar kl. 11
f.h.
Fáksfélagar
Járningarnámskeiö, verklegt og bóklegt,
verður haldiö dagana 26., 27. og 28. janúar.
Leiöbeinandi Siguröur Sæmundsson.
Skrásetningar á skrifstofu Fáks.
Ath. Fyrirhugaöar eru ískappreiöar, 150 m.
skeið 17. febrúar, ef veöur leyfir.
íbróttadeildin.
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir desember-
mánuö 1978, hafi ekki veriö greiddur í
síöasta lagi 25. þ.m.
Viöurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaöan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru oröin 20%, en síöan eru
viöurlögin 3% til viöbótar fyrir hvern
byrjaöan mánuö, taliö frá og meö 16. degi
næsta mánaöar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
19. janúar 1979.
m | w | wm _•% jl.
A leio i skola gœhd að
Minning:
Helgi Finnsson
frá Geirólfsstöðum
6. janúar lést í Reykjavík Helgi
Finnsson frá Geirólfsstöðum í
Skriðdal. Hann var fæddur á
Geirólfsstöðum 25. apríl 1887 og
var því á 92. aldursári, er hann
elst. Foreldrar hans voru merkis-
hjónin Finnur Björnsson og Berg-
þóra Helgadóttir, er bjuggu allan
sinn búskap á Geirólfsstöðum, en
þar var Bergþóra fædd og uppalin.
Finnur var frá Flugustöðum í
Álftafirði. Auk Helga áttu þau
hjón tvær dætur. Guðrún Helga,
rithöfundur, fluttist til Vestur-
heims upp úr aldmótum. Maður
hennar var Gísli Jónsson ritstjóri.
Eru börn þeirra öll búsett vestra.
Systir Helga, Margrét átti heima á
Geirólfsstöðum og lést þar. Helgi
átti heima á Geirólfsstöðum, allt
þar til hann bregður búi árið 1949,
er hann selur jörð sína og flyst til
Reykjavíkur. Þar stundaði hann
ýmis störf, á meðan heilsa leyfði.
Á Geirólfsstöðum stundaði
Helgi öll algeng sveitarstörf þeirra
tíma. Hann vann einnig töluvert
við smíðar, enda hagur vel á tré og
járn. Sá, sem þessar línur ritar, á
góðar minningar frá veru í smiðju
með honum, er smíðaðar voru
skeifur og fleira til þarfa heimil-
isins. Þótti ungum drengjum það
eftirsóknarvert að fá að reyna sig í
smiðjunni. Þótt sennilega hafi
flest mistekist, veitti verkið
ánægju.
Helgi kvæntist árið 1923 Jónínu
Benediktsdóttur frá Þorvaldsstöð-
um í Skriðdal. Jónína var vel
menntuð kona og frjálslynd í
hugsun. Hún hafði stundað nám í
Kvennaskólanum á Blönduósi, í
Kennaraskólanum og í Askov í
Danmörku. Áður en þau Helga
gengu í hjónaband, hafði hún
stundað kennslu í allmörg ár á
ýmsum stöðum hér austanlands.
Þau Helgi og Jónína eignuðust
þrjú börn. Þau eru Valborg,
kennari í Reykjavík, Þórir Finnur,
húsasmíðameistari í Kópavogi og
Guðrún Benedikta, húsfrú í
Reykjavík. Eins og fyrr sagði,
bregða þau hjón búi á Geirólfs-
stöðum árið 1949 og flytjast til
Reykjavíkur. Þar lést Jónína 1964.
Eftir það dvaldi Helgi í skjóli
barna sinna.
Þau Geirólfsstaðahjón, Helgi og
Jónína, tóku mikinn þátt í ýmsum
félagsmálum sveitar sinnar.
Fræðslu- og félagsmál voru Jónínu
einkar hugleikin. Minnist sá, sem
þessar línur ritar, að mörg góð
bók, sem forvitnileg þótti, kom á
heimilið til lestrar. Efni hennar
var svo rætt og metin. Þá má og
geta þess að þegar sími var fyrst
lagður í Skriðdal, var hann lagður
í Geirólfsstaði. Fylgdu honum
ýmis störf, sendiferðir um sveit-
ina, og á vetrum oft erfiðar
viðgerðarferðir yfir hálsinn til
Hallormsstaðar. Ymsar minningar
eru tengdar þeim ferðum.
Sá, sem þessar línur ritar, kom
ungur að árum á heimili þeirra
Helga og Jónínu á Geirólfsstöðum
og dvaldi þar að mestu fram um 17
ára aldur. Oneitanlega koma nú
fram í hugann margar minningar
bundnar heimili þeirra, bústörfum
þar og ekki síður leik með þeim
systkinum, börnum þeirra.
Nú þegar Helgi Finnsson er
allur, minnist ég mætra hjóna með
virðingu og þökk.
Jón S. Einarsson.
SVAR MITT ruR
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg heyrði prest segja. að þó að við ættum ekki nema
tíu mínútur eftir ólifaðar. mundurn við samt geta
iðrazt og að Guð mundi frelsa okkur. Haldið þér að
þetta sé rétt?
Biblían hvetur menn ekki til að fresta iðrun sinni
fram á dauðastund. Hún segir: „í dag er hjálpræðis-
dagur!“ „Nú er mjög hagkvæm tíð!“
Þetta merkir ekki, að Guð muni ekki, í kærleika
sínum og náð, heyra bænir deyjandi manns. En það
minnir okkur á, að við eigum ekki að draga að ganga
frá svo mikilvægum málum, þangað til „tíu mínútum"
fyrir dauðann.
Ef til vill hafið þér séð marga menn deyja. Rétt
fyrir dauðann eru þeir ófærir, andlega og líkamlega
um að taka mikilvægar ákvarðanir. Þegar líkaminn er
þjakaður af hita og kvölum, hafa menn hvorki löngun
eða getu til að fjalla um mikilvægustu mál lífsins eins
og afturhvarft til Drottins.
Enginn ætti að fresta því fram á dauðastund að
semja erfðaskrá. Enn síður ættu menn að draga að
biðja Guð um frið og sátt, þangað til maðurinn með
ljáinn kemur.
Og hvaða ástæðu höfum við yfirleitt til að bíða?
Biblían kennir, að trú á Krist sé ekki aðeins trygging,
sem komi okkur að haldi í dauðanum, heldur sé það í
henni fólgið, sem við getum lifað á. Við þörfnumst
frelsunar frá vandamálum lífsins og ekki aðeins þeim
vanda að eiga að koma fram fyrir Guð í eilífðinni.
Þegar við erum tilbúin að lifa, erum við tilbúin að
deyja. Þá getum við tekið undir með Páli postula:
„Lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur.“