Morgunblaðið - 23.01.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.01.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979 21 Jón Oddsson gengur í KR ÍSFIRÐINGURINN Jón Oddsson hefur nú tilkynnt félagaskipti og er genginn í raðir KR-inga í knattspyrnu. Var gengið frá félagaskiptunum síðastliðinn föstudag. Jón Oddsson verður án efa mikill styrkur fyrir lið KR, en hann er mikili markaskorari og sérlega sprettharður leikmaður sem ávallt skapar hættu við mark andstæðingana. Þá hefur Hreiðar Sigtryggsson markvörður einnig gengið í raðir KR. En báðir þessir leikmenn léku með ÍBÍ á síðastliðnu ári. Milli 25—28 manns æfa nú af miklum krafti hjá knattspyrnudeild KR undir stjórn Magnúsar Jónatanssonar. Blaðafulltrúi kvartar undan blaðamönnum SEINT í SUMAR eða í haust voru hlaðamenn boðaðir á fund hjá stjórn HSI og þar var m.a. greint frá því að Jóhann Ingi Gunnarsson hefði verið ráðinn þjálfari landsliðsins í handknatt- leik. A þessum sama fundi var einnig greint frá öðrum störfum. sem Jóhann myndi hafa með höndum og þar á meðal að hann yrði hlaðafulltrúi Handknattleikssambandsins. Sem blaðafulltrúi hefði maður ætlað að hans hlutverk væri að hafa samskipti við fréttamenn og greina þeim frá því helzta sem fréttnæmt væri hjá IISÍ. Jóhann Ingi virðist eitthvað hafa misskilið hlutverk sitt. Hann vill greinilega ráða því hvað fer inn í blöðin og sjálfsagt einnig hvernig það er matreitt. I skýrslu HSI kvartar Jóhann Ingi mjög yfir blaðamönnum. í sambandi við þing Alþjóða handknattleiks- sambandsins segir í skýrslunni að ráðstefnunefndinni hafi þótt áhugi fréttamanna vera í lágmarki. í fjölmiðlum var þó talsverðu plássi eðlilega varið undir frásagnir af ráðstefnunni. Þess má geta að engir erlendir blaðamenn sóttu ráðstefnuna og fylgjast erlendir íþróttafréttamenn þó nákvæmlega með öllu því sem fréttnæmt getur talist fyrir íþróttir í heiminum. I skýrslu landsliðsþjálfarans um ferð landsliðsins til Frakklands í haust segir svo: „Blaðamenn (íslenzkir) reyndust nokkuð þreytandi þ.e.a.s. að hringingar voru allar nætur frá hverju blaði í stað þess að reyna að hafa símtalið eitt.“ Þarna kvartar blaðafulltrúinn undan vinnuálagi og greinilegt að í sambandi við skrif um handknattleik er ýmist ofgert eað ekki nóg og er greinilega erfitt að gera Jóhanni Inga til hæfis. Það er spurning fyrir stjórn HSI hvort ekki sé heppilegra að ráða annan blaðafulltrúa því vissulega getur þetta starf verið þreytandi og í öðru lagi er spurning hvort einhver stjórnarmaður HSI er ekki heppilegri málsvari handknattleiksins. Á einum stað í viðbót er í skýrslunni vikið að þætti fjölmiðla í skrifum um handknattleik. Þar segir fyrst: „Því verður ekki á móti mælt, að einstaka fjölmiðlar hafa ekki farið fögrum orðum um handknattleikinn og gagnrýnin verið óvægin á stundum og í mörgum tilfellum ósanngjörn. Um tíma voru flestir leikir afskaplega lélegir, að þeirra mati, og skrif yfirleitt mjög neikvæð." Síðar segir: „Ein aðalorsök að minnkandi áhorfendafjölda sérhverrar íþróttagreinar, eru einmitt neikvæð skrif fjölmiðla". Að þessum orðum sögðum kemur eftirfarandi: „Hins vegar er ljúft að geta þess, að stjórn sambandsins hefur yfirleitt átt mjög gott samstarf við fjölmiðla og þakkar hinum ýmsu íþróttafréttarit- urum ágætt samstarf fyrr og síðar.“ - áij/ — GG/ — þr/ — SS • Vnlsmcnn með sína átta landslidsmenn rétt náðu að merja tvet'gja marka sitfur á móti Fylki í 1. deild um helgina. A mvndinni er Fylkismaðurinn Einar Ágústsson búinn að snúa á varnarrisa Vals. þá naína Þorbirni Jensson og Guðmundsson. í kvöld leika Valsmenn við FH-inga og má búast við hörkuviðureign. FH-Valur íkvöld í kvöld kl. 21.30 íer fram í Laugardalshöllinni stórleikur í handknattleik. Efstu liðin í 1. deild Valur og FH mætast. Er leikur þessi afar þýðingamikill fyrir liðin, og verður eflaust hart barist og ekkert gefið eftir á fjölum Laugardalshallarinnar í kvöld ... FH-ingar mejía ekki tapa leiknum ætli þeir sér að vera með í baráttunni um Islandsmeistaratitilinn. Valsmönnum hefur oftast nær gengið frekar illa á móti FH, en fróðlegt verður að sjá útkomuna í kvöld, hjá öllum þeim landsliðsmönnum sem Valur teflir fram ... Birgir og Guðgeir áverðlaunapallinn TVEIR íslenskir lyftinga- menn tóku þátt í hinu svokallaða Kastrup Tornby Cup, sem eins og sjá má af nafninu. fór fram í Dan- mörku. Guðgeir Jónsson keppti í léttþungavigt og Birgir Borgþórsson í milli- þungavigt. I báðum þessum ílokkum voru keppendur 12. bað verður að segjast eins og er, að frammistaða þeirra félaga var sérlega góð, Guðgeir var í 3. sæti f sfnum flokki og Birgir í 2. sæti í sínum flokki. Guðgeir lyfti samtals 295 kg, 135 kg í snörun og 160 kg í jafnhöttun. Þeir einu sem skutu Guðgeiri aftur fyrir sig voru Rússarnir Vardnian og Tosian, heimsfrægir kappar. Birgir Borgþórsson gerði enn betur, varð í 2. sæti í sínum flokki. Hann lyfti samtals 310 kg, snaraði 135 kg og jafnhattaði 175 kg. Er það jafngott og hans besti árangur til þessa. Birgir var aðeins 2,5 kg á eftir Norð- manninum Arne Hagelund, sem varð fyrstur. Englend- ingur nokkur, að nafni Michel Keelan, varð í þriðja sæti. — Sg — o — o — o — ÍR vann Möllersbikarinn Sveit ÍR sigraði á hinu árlega Möllersmóti í skíðum sem fram fór í Hamragili um helgina. Þetta var 14. Möllersníótið í röð og 4 sveitir kepptu. auk ÍR, Ármann, KR og Víkingur. Á brautinni voru 45 hlið og fallhæðin var 150 metrar. 6 keppendur voru ræstir út fyrir hverja sveit, en aðeins tími þeirra 4 bestu var látinn gilda. Sem fyrr segir, vann sveit ÍR, hlaut samanlagða tímann 358,8 sekúndur. Sigursveitna skipuðu eftirfarandi skíða kappar: Hafþór Júlíusson, Hjörtur Hjartarson, Gunnar B. Ólafsson og Guðmundur Guðlaugsson. Ármann hafnaði í öðru sæti að þessu sinni, en félagið vann í fyrra og vann þá gamla bikarinn til eignar. Eruófarirnar frá því í i ! I l § ! I Danmörku þegar gleymdar? \ ÁRSSKÝRSLA IISÍ, sem lögð var fram á IlSÍ þinginu um helgina er vissulega efnismikil og kennir þar margra grasa. Eigi að síður fer þó ekki hjá því að undirritaður sakni þaöan ýmissa hluta. sem sannarlega hefðu átt heima þar. Til að mynda er aðeins farið mjög lauslega yfir frammistöðu íslenzka landsliðins á HM í Danmörku síðastliðinn vetur. Engu er líkara en forystumenn handknattleiksmála ætli sér með öllu að gleyma óförunum í Danmörku — og hafi jafnvel þegar tekizt að gleyma þessu stærsta verkefni IISÍ á síðasta starfstímabili. Áður en IIM-keppninni lauk var byrjað ræða málin niður í kjölinn og reyna síðan að draga lærdóm af mistökunum. Slík skýrsla hefur enn ekki séð dagsins ljós og sér varla úr þessu og kemur þar efllaust margt til. Persónulegir hagir manna hafa breyzt, en þó að Birgir Björnsson þáverandi formaður landsliðsnefndar sé fluttur norður á Akureyri. þá eru póstsamgöngur á milli Reykjavíkur og Akureyrar enn í ágætislagi. Tveir landsliðsnefndarinannanna búa í Reykjavík og þeir hefðu getað sett saman skýrslu um IIM-keppnina. Stjórn HSÍ virðist ekki hafa fylgt eftir þeim fyrirheitum sem gefin voru um nákvæma skýrslugerð og ráðstefnuhald um heimsmeistarakeppnina og er það miður. Handknattleiksunnendur hafa ekki í annan tíma stutt eins dyggilega við bakið á HSÍ og fyrir undirbúninginn til HM. Tugurn saman flykktust þeir til Danmerkur til að sjá landslið sitt í keppni og vonbrigði voru mikil. Vegna þessa fólks, þó ekki væri vegna annars, er nauðsyn- legt að reynt sé að finna skýringar á mistökunum. Maður skyldi ætla að þau séu til að læra af þeim. í skýrslu HSÍ er eytt miklu plássi undir aðrar ferðir lands- liðsins og er stór spurning hvort ýmis smáatriði, sem nákvæm- lega eru tíunduð, eiga nokkurt erindi í arsskýrslu HSÍ. í sambandi við vökvatap lands- liðsmanna í leik er greint frá þvi vandamáli, sem upp kom í Frakklandsferðinni í haust, að þá hafi ekki verið tekin með i ferðina nægilega mörg pappa- glös. Greint er frá því að matur hafi verið mikill og góður í ferðinni, en þó hafi tveir aðilar fengið vægar meltingartruflan- ir. Fram kemur að farið var með bolta í fyrnefnda ferð, en í skýrslunni kemur fram að slíkt sé ekki nægjanlegt, í svona ferð þurfi að vera a.m.k. 8 boltar. í skýrslunni segir ennfremur að þetta vandamál hafi verið leyst með góðri aðstoð Kínverja, sem lánuðu íslendingunum bolta á eina æfingu. Áfram mætti halda að telja upp atriði sem þessi úr skýrslu- gerð Jóhanns Inga, sem birtist í ársskýrslu HSÍ. Ekki skulu þessi atriði vanmetin, en spurningin hvort þau eiga erindi ársskýrsluna og það er sannfær- ing undirritaðs að allar aðrar keppnisferðir landsliðsins hefðu átt að fá þær 29 línur, sem fara undir það að greina frá Dan- merkurferðinni. HM-þátttakan hefði síðan átt að fá eins og 16—17 síður, en sá síðufjöldi fer í að greina frá landsleikjum eftir heimsmeistarakeppnina í Danmörku. Lítum aðeins á þær niður- stöður, sem þó koma fram um heimsmeistarakeppnina í Dan- mörku: 1) Árangur íslenzka liðsins olli öllum íslendingum von- brigðum. 2) í skýrslunni er talið eðli- legt að leitað sé orsaka þess, að það mikla starf sem unnið var, skilaði ekki þeim árangri, sem að var stefnt og hvernig standa skuli að áframhaldandi árangri íslenzka landsliðsins. í skýrsl- unni finnast ekki þessar orsakir, sem leita átti að, nema þær séu eftirfarandi, en á næstu atriðum er sérstaklega vakin athygli í skýrslunni. 3) Þar segir að íhuga verði hve mikil áhrif það hafi haft fyrir liðið að Geir Hallsteinsson og Björgvin Björgvinsson gátu ekki farið með landsliðinu til Y-Þýzkalands, Póllands og Svíþjóðar nokkru fyrir HM, en þessir leikmenn hafi verið lykil- menn í öllu spili liösins í HM. 4) Vakin er athygli á því að Ólafur Einarsson meiddist í leik í Noregi á leið til Danmerkur. Sömuleiðis á því að Jón H. Karlsson átti við bakmeiðsli að stríða á HM. 5) Loks segir að það hljóti einnig að hafa haft áhrif hversu Janus Cerwinsky, sem stjórnaði liðinu í HM, hafi lítið getað tekið þátt í æfingum og undir- búningi liðsins. Þar með eru upptalin þau atriði sem nefnd eru í ársskýrsl- unni og fleiri eru ekki nefnd, né nánar greint frá því sem fór úrskeiðis í sambandi við HM.-áij !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.