Morgunblaðið - 23.01.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1979
31
Loðnuaflinn orðinn
rúm 80 þús. tonn
GÓÐ loðnuveiði var um helgina
og er heildaraflinn á loðnuvertíð-
inni orðinn rúmlega 80 þúsund
tonn. Bátarnir hafa veitt loðnuna
á landgrunnskantinum útaf
Langanesi. Þróarrými er að
fyllast á Austfjörðunum en nóg
rými er í Siglufirði.
Á sunnudaginn tilkynntu 27
bátar afla. samtals 16.200 tonn og
frá miðna'tti í fyrrinótt til
klukkan 22 í gærkvöldi tilkynntu
12 bátar afla. samtals 7.450 tonn.
Eftirtaldir bátar tilkynntu afla
um helgina:
Sunnudagur: Kap II 520, Jón
Finnsson 600, Albert 530, Pétur
Jónsson 550, Súlan 780, Freyja 180,
Skarðsvík 620, Guðmundur 900,
Hákon 780, Keflvíkingur 500,
Helga II 500, Magnús 520, Rauðsey
540, Bergur II 470, Harpa 600,
Breki 710, Náttfari 470, Jón
Kjartansson 1120, Faxi 300, Vík-
ingur 1050, Seley 400, Sæbjörg 500,
ísleifur 430, Hrafn 630, Loftur
Baldvinsson 750, Hilmir 530, Gísli
Árni 630.
Mánudagur til klukkan 22:
Ljósfari 370, Ársæll 430, Grindvík-
ingur 900, Fífill 600, Óskar Hall-
dórsson 400, Víkurberg 270, Örn
560, Gígja 600, Árni Sigurður 880,
Pétur Jónsson 590, Sigurður 1350,
Sæberg 500.
Heildaraflinn á laugardaginn
var 7040 tonn hjá 12 bátum. Til
viðbótar þeim 10 bátum, sem skýrt
var frá í Mbl. á sunnudag til-
kynntu Gullberg 580 tonn og
Stapavík 500 tonna afla.
Tómas Árnason fjármálaráðherra:
„Hlynntur því að
stytta skólanámið”
„ÉG ER hlyntur því yfir höfuð
að stytta skólanámið. en hef
ekki viljað að svo komnu máli
gera tillögur um það hvernig
það ætti að gerast.“ sagði
Tómas Árnason fjármálaráð-
herra í samtali við Morgun-
hlaðið í gær.
„Ein ástæðan fyrir þessu
sjónarmiði,“ sagði Tómas, „er sú
að fuilorðinsfræðslan hefur auk-
izt mjög og sífræðslan svokall-
aða eða framhaldsmenntun. Eg
vona að umræður hefjist um
þetta mál og þróist í þá átt að
skólanámið styttist, ég held að
námið sé orðið of langt þótt
vissar greinar þurfi ef til vill að
halda sínu.“
Siglufjörður:
Uppí 12tonníholi
Siglufirði. 22. jan.
TOGARARNIR eru að fiska vel
núna alveg frá Horni og austur
fyrir Langanes, eða frá 3—12 tonn
í hali af góðum fiski. Þá var Gísli
Árni að landa 650 tonnum hér í
dag og Sigurður er væntanlegur í
kvöld með 1350 tonn.
Stálvíkin landaði 95 tonnum af
bolfiski og Sævík er að fara áleiðis
til Englands með línufisk, full-
fermi, um 65—70 tonn. m ;
Gefa andvirði sígarettupakka
til björgunarsveitarinnar
Húsavík. 22. jan.
IIÉR verður reyklaus dagur á
morgun eins og annars staðar.
Björgunarsveitin Garðar, sem
skipulagt hefur hina miklu leit að
bátunum sem saknað er og
mönnunum fjórum hefur komið
fyrir söfnunarkössum á nokkrum
stöðum hér í bænum með áskorun
til fólks um að það gefi andvirði
eins sígarettupakka til sveitar-
innar. Munu eflaust margir verða
við þessari hón.
— Fréttaritari.
Viðgerð á Scotice í dag?
Viðgerðarskip er væntanlegt til slóðum þar sem strengurinn er
viðgerða á slitstað á Scotice í dag, slitinn, nokkra tugi mílna frá
en veður er nú sæmilegt á þeim Færeyjum.
Bræðslufisksveiðam-
ar ekki tómstundagaman
MAGNI Kristjánsson skipstjóri á
Neskaupstað hafði samband við
Mbl. í gær vegna fréttar í
sunnudagshlaðinu um hugsanleg
kaup á skipi til veiða á bræðslu-
fiski. Sagði Magni hugmyndina
þá að vegna reynslu hans af
kolmunnavciðum yrði hann með
Sleppt úr gæzlu
MANNINUM, sem hnepptur var í
gæzluvarðhald í Vestmannaeyjum
í síðustu viku vegna fíkniefnamáls,
var sleppt í gær. Eftir því sem
Mbl. hefur fregnað var þetta mál
smátt í sniðum.
skipið fyrsta kastið, en síðan
tækju aðrir við og yrðu skipverj-
ar fastráðnir, en ekki yrði um að
ræða tómstundagaman manna
eins og skilja mætti af niðurlagi
fréttarinnar í sunnudagsblaðinu.
Sagði Magni að menn biðu
spenntir ákvörðunar ríkisstjórnar-
innar um það, hvort kaupin yrðu
leyfð eða ekki, en þá ákvörðun á að
taka í vikunni.
Þá sagði Magni að hópurinn,
sem að kaupunum vill standa, væri
ekki skipaður skipstjórnarmönn-
um eingöngu, heldur væru
almennir sjómenn einnig með.
Fyrsti stórleikur
Baltic-keppnina
verður í Laugardalshöllinni í kvöld kl.
21.30.
_ — _ Þar mætast —
Valur og F.H.
tvö af sterkustu liöum 1. deildar í ár.
Valsmenn og F.H.-ingar, mætum öll í Höllina og styðjum okkar menn.
Valur F.H.
Við stórt
eða smátt
má treysta
Toyota vörulyftara
Toyota vörulyftarar hafa náð almennum
vinsældum fyrir styrkleika — góðan
frágang og lítinn viðhaldskostnað.
Toyota býður fjölbreytt úrval
vörulyftara allt frá
700 kg.- 30 tonna lyftigetu.
Toyota vörulyftara er hægt að fá
drifna fyrir rafmagni, - gasi, -
bensíni, - eða diesel.
Hvar sem auka á afköst og nýtingu á
vinnu- og lagerplássi, er þörf á
Toyota lyftara.
Toyota er stærsti framleiðandi
vörulyftara í Japan — notið yður
reynslu þeirra og hugkvæmni.
•TOYOTA
NÝBÝLAVEGI 10 - KÓPAVOGI - SÍMI 44144
Betri gæði
og fljótari þjónusta
- það er einkenni
TOYOTA
TOYOTA
LYFTARAR