Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979
35
Zkið suður til Kverkíjalla.
var engu líkara, en að um smit-
sjúkdóm væri að ræða. Nú komu
vegastikurnar áðurnefndu að góð-
um notum en þær voru settar í
gorma stað. Riðu sumir röftum
þessum það sem eftir var ferðar-
innar.
Um fjögurleytið héldum við úr
Lindunum og tókum stefnu vestur
um Krepputunguna norðan Löngu-
hlíðar og komum að Jökulsá, þar
sem farið hafði verið yfir hana
fyrsta dáginn. Snjórinn á ánni
hafði nú blotnað mikið upp, enda
hlýnað í veðri. Yfir komust við þó,
en líklega hefur þetta ekki mátt
tæpara standa.
í Drekagili var tekið bensín en
síðan haldið norður vestan Herðu-
breiðartagla og austur um skarðið
sunnan Herðubreiðar. Héðan að
sjá virtust hraunin í átt til Herðu-
breiðalinda vera snjólaus yfir að
líta en snjólænur leyndust þó í
lautum og náðum við í Þorsteins-
skálá um áttaleytið um kvöldið.
Á föstudagsmorgni 14. apríl var
komin hríð. Lagt var af stað úr
Lindum um ellefuleytið og stefnt
norðan Herðubreiðar. Var hér
seinfarið vegna snjóleysis. Við
rætur Herðubreiðar vestanverðrar
var vitlaust veður, svo að vart sá
út úr augum. Vörðuna við upp-
gönguna fundum við þó, var nú
stefnt með hjálp áttavita áleiðis að
Bræðrafelli og fór veður heldur
batnandi er nær því dró. Komið
var við í gönguskála Ferðafélags
Akureyrar, en síðan haidið í
stefnu á vestanverð Dyngjufjöll.
Veður versnaði nú á ný, hvessti
og hríðaði, og skyggni varð afleitt.
Færið versnaði einnig, snjóinn
skóf ískafla og vildu sleðarnir æði
oft sitja fastir. Stöðugt þurfti að
sveigja fyrir hraunkamba og
reyndist því mjög erfitt að halda
réttri stefnu. Dyngjufjöllum náð-
um við samt, en ekki var það
stysta og beinasta leiðin sem farin
var frá Bræðrafelli.
Er vestur með fjöllunum kom
batnaði veðrið og orðið var frost-
laust. Stefnt var nú norðan Suður-
árbotna, greiðfæra leið og náðum
við Svartárkoti um áttaleytið um
kvöldið og höfðum þá lagt að baki
450 kílómetra á sleðunum þessa
fjóra daga.
Eftir að hafa þegið góðgjörðir í
Koti og spjallað við heimilisfólkið
þar héldum við sem leið liggur til
Akureyrar og var ferð sú tíðinda-
laus.“
Hinn nýi gönguskáli Ferðaíélags Akureyrar við Bræðraíell.
Rennt var í hlað hjá skálanum í Herðubreiðarlindum.
Œhtfeázi 100..
LJÓSRITUnflRUÉLin
pnontaná: uenjulegan pappin
iidön bnéfsef nl
einnig glcenun
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
V/
Sími 20560
DRIFBÚNAÐUR
ER SÉRGREIN OKKAR
Eigum jafnan á lager allar algengustu stærðir og gerðir af drif- og flutningskeðjum
ásamt tilheyrandi tannhjólum, ástengi, niðurfærslugíra, tannhjólasamstæður og
hraðabreyta (variatora). Einnig kílreimar, reimskífur, og handstýrða hraðabreyta
(variatora) fyrir kílreimadrif. E N OL O
(^mílnimeniillaiL
fekking
feynsla
Þjonust
Veitum tæknilega ráðgjöf við val á drifbúnaði.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670