Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 10

Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979 VER#LD Stanley Rader: svissneskir bankareikningar, lúxusílakk og jatnvel gullforði í handraðanum Forskot á sæluna IKaliforníu er fyrirtæki sem heitir „Veraldarkirkjan" og hefur verið starfsrækt í nærfellt hálfa öld. Það hefur verið hlutverk Veraldarkirkjunnar, m.a. að búa menn undir heimsendi. Og nú er hann að koma. Að vísu er smávon fyrir vantrúaða. Það kann sem sé að fara svo að Veraldarkirkjan líði undir lok áður en heimurinn gerir það. Fylkissaksóknarinn í Kaliforníu er búinn að höfða mál, að beiðni óánægðra veraldar- kirkjupresta, á hendur stofnanda kirkjunnar og leiðtoga, Herbert W. Armstrong (sem er reyndar orðinn 86 ára og ætti eiginlega að vera kominn af lögaldri) og helzta aðstoðarmanni hans, Stanley nokkrum Rader, fyrir að fá sér forskot á sæluna ef svo mætti orða það, nefnilega að hafa stungið undan milljónum dollara áriega af kirkjunnar fé „til einkanota“. Er þegar búið að leggja hald á sjóði kirkjunnar og bókhald, en það er eitt ákæruatriðið að Armstrong og þeir félagar hafi eyðilagt mikilvæg bókhaldsgögn. Kæruatriði eru annars mörg og sundurleit. Armstrong og Rader er gefið að sök að hafa dregið sér fé og lagt inn á nafnlausa banka- reikninga í Sviss, komið sér upp gullforða, eytt geysilegum fjár- hæðum í ferðalög og eigið heimilishald og fært ýmsum stór- mennum hér og hvar um heiminn óheyrilega dýrar gjafir en kirkjan fengið að borga brúsann allan. Er það talið til dæmis, að eitt árið tóku kirkjuleiðtogarnir sér 1.7 milljónir dollara í risnu; m.a. borgaði einn 22.750 dollara fyrir hóteldvöl í París. Nú er verið að skoða bókhald kirkjunnar. Það sem eftir er af því, niður í kjölinn. En á meðan eigast kirkjunnar menn við innbyrðis og ekki hávaðalaust. Fyrir stuttu urðu róstur í nýjum samkundusal kirkj- unnar í Pasadena (hann hafði kostað 24 milljónir dollara); þar voru saman komin 2000 manns og fór allt í háaloft og gekk á með pústum og hrundingum, en Armstrong stofnandi og kirkju- leiðtogi rak fjóra uppreisnarmenn, setti þá út af sakramentinu (hann ætti áð hafa vald til þess, hann titlar sig „sendiherra Krists á jörðu“.) Það er um þó nokkuð barizt. Arstekjur kirkjunnar eru taldar 75 milljónir dollara og fasteignir hennar, verðbréf og lausafé metið til 80 milljóna dollara. Fylgi Veraldarkirkjunnar er langmest í Bandaríkjunum. Henni hefur þó tekizt að telja mönnum hughvarf víðar og t.a.m. eru 34 kirkjur á hennar vegum í Bret- landi og safnaðarmeðlimir sagðir 5.200. Að vísu hefur gengið á ýmsu í söfnuðinum þar eins og vestra. T.d. sögðu tveir prestar af sér fyrir fáum árum, treystust ekki lengur til að flytja boðskap Armstrongs sendiherra slíkan sem hann er. í kenningum Veraldarkirkjunnar er það með öðru að á himnum séu menn dregnir í dilka eftir kynþátt- um. Hefur þetta og fleira orðið til þess að fylgi hefur reytzt af Armstrong hin síðustu ár. Samt eru Bretlandseyjar honum kærari en flest lönd önnur, að hans eigin sögn. Hann vitnar gjarna í spádómsorð í Bibklíunni er hann leggur út þannig að Elísabet .drottning sitji á veldisstóli Davíðs konungs og muni Kristur setjast í það hásæti er hann kemur til jarðar á nýjaleik. Armstrong rekur og ættir sínar til „brezkra fornkonunga". En þetta dugir sem sé varla til lengur. Armstrong stofnaði kirkju sína árið 1933, og kallaði hana þá „Útvarpskirkjuna". Var það einn fyrsti söfnuður í Bandaríkjunum til að nota útvarp sér til fram- dráttar. En boðskapurinn sem útvarpað var og hefur verið upp frá því er sá í þremur höfuðgrein- um, að 1) heimsendir sé á næstu grösum og fái þá allir makleg málagjöld nema þeir sem flýti sér að ganga í Veraldarkirkjuna, 2) að Bretar (og þá Bandaríkjamenn af engilsaxneskum ættum) séu hinir einu, sönnu Israelsmenn, afkom- endur hinna tíu týndu ættkvísla sem Assýríumenn (sem nú eru Þjóðverjar) hafi herleitt norður í Evrópu og 3) að allir sannir ísraelsmenn verði skilyrðislaust Lyflækníngar| Það er alvarlegt vandamál í vanþróuðum ríkjum, að þar hafa menn víða ekki efni á þeim lyfjum sem þyrfti; sjúk- dómar gera hvergi meiri usla en í þessum ríkjum, jafnframt er efna- hagur hvergi jafnbágborinn en lyf verður að kaupa frá iðnríkjum og þar eru þau víðast fokdýr jafnvel á mælikvarða heimamanna. Nú er það svo um mörg lyf að mikla kunnáttu og flókinn tækja- búnað þarf til framleiðslu þeirra og skortir þetta hvort tveggja í velflestum þróunarlöndum. En hitt er líka vitað, að til eru ýmis mikilvæg lyf sem vinna má með tiltölulega litlum kostnaði og fyrirhöfn úr ýmiss konar jurtum. Og nú hefur Alþjóða-heilbrigðis- stofnunin efnt til áætlunar um það að taka sama lyfjaskrá fyrir þróunarlöndin, þ.e. skrá um örugg grasalyf, sem hvort tveggja eru Heilsubótin í gróðurríkinu ódýr og fyrirhafnarlítil í vinnslu, og jurtirnar í þau algengar. Margir sérfræðingar eru á einu máli um það, að ýmis lyf megi vinna úr jurtum með tiltölulega litlum búnaði og tilkostnaði og það er reyndar gert í nokkrum mæli. T.d. er slíkum grasalyfjum beitt við vægum háþrýstingi og ákveðn- um tegundum sykursýki. Þess má geta að lokum að fyrrnefnda áætlun Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar um víðtæka leit að lyfjagrösum ber upp á sama tíma og vestrænir lyfjaframleið- endur eru að efna til sams konar leitar — einmitt í því skyni að draga úr kostnaði, og fara þegar um þessar mundir fram víðtækar tilraunir um jurtalyf í Sviss, Vesturþýzkalandi, Bretlandi, Frakklandi, Japan og Banda- ríkjunum. - THOMAS LAND Almáttugur, ensú mæda... Það er ekki einleikið um Breta hve óviðbúnir þeir eru; það er alltaf verið að koma þeim að óvör- um. írar hafa komið þeim að óvörum á svo sem kynslóðar fresti ailt frá því á 11. öld. Stríð koma þeim á óvart, ókyrrð á vinnumarkaðnum, það kom þeim á óvart þegar g()ðir landsmenn bentu á það að sumir landsmenn væru fátækari en aðrir, og enn kom það þeim á óvart þegar þeir uppgötvuðu að göturæsin sem þeir höfðu lagt á öldinni sem leið stóðust ekki lengur kröf- ur tímans. Þó kemur ekkert þeim jafnoft á óvart og veðr- ið. Það veldur þeim sifelldri undrun. Þetta er svolítið einkenni- legt vegna þess m.a. að Bret- ar eiga sér langa og rika veðursamræðuhefð og veður er þeim hugstæðara en flest- um öðrum þjóðum eða öllum. Sums staðar tfðkast það er kunningjar hittast á förnum vegi að þeir óski hvor öðrum guðsblessunar, annars staðar þess að úlfaldar hvors um sig megi margfaldast og uppfylla jörðina o.s.frv. í Bretlandi kasta menn veðurlýsingum hver á annan: „Skítaveður; finnst þér það ekki?“ eða „Meiri blessuð bliðan í dag“, þótt það sé nú sjaldnar. Og þessi siður er að sínu leyti einkennilegur vegna þess að veðrið í Bretlandi er ósköp skaplegt allajafna, sjaldan vitlaust veður og sjaldan sér- staklega gott. En nú undanfarnar vikur hefur snjóað dálítið, hálka myndazt á vegum, jafnvel orðið ófært sums staðar norður í landi, rafkerfi bíla gert verkfall og frosið í mið- stöðvarleiðslum húsa. Þetta kom Bretum að sjálfsögðu mjög á óvart. Að vísu endur- taka veðurguðirnir þennan hrekk á u.þ.b. 12 ára fresti. En ævinlega verða Bretar jafnhissa. í alvöru talað þætti mér gaman að vita hvenær Bret- um ætlar að verða það ljóst, að til eru ýmis ráð við snjó og ís og hafa lengi verið notuð með góðum árangri í sið- Sankti Bernards hundurinn „Marcus“ leggur leitarmanni lið, sem kannar hvort nokkur sé í einum hinna fjölmörgu bíla sem gáfust upp í snjókomunni í janúar síðastliðinum. Þessi sat fastur í grennd við Exeter í suð-vestur Englandi. menntuðum löndum. Ár eftir ár verða þúsundir Breta furðu lostnar þegar vatns- leiðslurnar heima hjá þeim springa í frosthörkum. Það eru fáein ár frá því það var sett í byggingareglugerðir að vatnsleiðslur skyldu einangr- aðar. Ilins vegar nær reglu- gerðin ekki aftur f timann og þeir sem búa í eldri húsum munu halda áfram að verða hissa yfir sprungnum vatns- leiðslum á reglulegum fresti þar til yfir lýkur. Það stendur gamalt og fall- egt timburhús hérna utan í götunni þar sem ég bý. í vetur snjóaði inn um gafl- glugga uppi og loftið fylltist. Húsráðendur urðu furðu lostnir. Og þeir voru að sýna gestum þetta furðulega fyrir- bæri, og gestirnir ekki síður hissa, allt þar til fór að hlýna og skaflinn á loftinu kom niður í stofuna. Húsráðendur könnuðust við rigningu og þoldu því loftlekann eins og hverja vætutíð meðan hann stóð. Það höfðu þeir þó lært af reynslunni að yfirleitt styttir upp fyrr eða síðar. Það kom mér satt á segja á óvart. _ PATRICK O'DONOVAN að halda lögmálið, halda hvíldar- daginn heilagan, neyta ekki ann- arrar fæðu en leyfð er í ritning- unni og þar fram eftir götunum, einkum og sér í lagi megi þeir ekki láta undir höfuð leggjast að gjalda kirkjunni tíund ... Kirjan hefur nefnilega tekjur sínar mestan part af tíundinni. Þannig víkur því við að Veraldar- kirkjan er orðin einhver bezt stæð kirkjustofnun í Bandaríkjunum enda þótt virkir félagar séu ekki nema tæp 100 þúsund. Óbreyttir greiða reglulega 10% brúttótekna sinna í kirkjusjóð en sumir auðug- ir menn allt að 30%. Ýmsir nafn- kenndir menn eru í söfnuðinum, t.d. Bobby Fischer; það er vitað að Fischer hefur gefið allt að 100 þúsund dollara í kirkjusjóð og hann er enn á vegum kirkjunnar enda þótt honum og Armstrong leiðtoga og sendiherra hafi lent saman þó nokkrum sinaum á undanförnum árum. En að tíund frátalinni hafði Veraldarkirkjan m.a. talsverðar tekjur af útvarps- og sjónvarpspredikunum; þeir þættir voru að sögn kirkjunnar manna fluttir í einum 500 stöðvum um heim allan og áheyrendur 130 milljónir. Það er heldur dökkt útlitið hjá Veraldarkirkjunni um þessar mundir. Stanley Rader er þó hinn brattasti og segir hana mun rétta við von bráðar. Asakanirnar á hendur sér og Armstrong um fjárdrátt séu „brjálæðislegar", enginn fótur fyrir þeim. Aðal- verjandi kirkjunnar upplýsti það aftur á móti fyrir rétti nýlega að hún væri komin að gjaldþroti, m.a. vegna þess að safnaðarmenn væru tregir að gjalda tíund eftir að hneysklið kom upp. Veraldarkirkjan er búin að , stefna yfirvöldum í Bandaríkjun- um fyrir stjórnarskrárbrot, þ.e. að hafa sett skorður við trúfrelsi, en heldur þykir ólíklegt að mark verði tekið á því. Yfirleitt virðast öll sund lokuð kirkjunni: um dag- inn voru sendar út í pósti 60 þúsund áskoranir um fjárframlög til bjargar fyrirtækinu — en yfir- völd gerðu alla betlibréfasúpuna upptæka. - WILLIAM SCOBIE. HNEFARÉTTURI Enn er Þjarm að að tékkn- eskum and ófsmönnum Þeir eru viðkvæmir í tékkn- esku öryggislögreglunni: á dögunum var Jaroslav Sabata, einn þeirra sem undirrituðu þann fræga lista Mannréttindaskrá 77, dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir þá sök að „móðga" öryggis- lögreglumann ... Þegar kom að réttarhöldunum yfir Sabata voru mættir út fyrir dómssalnum fréttamenn, vinir og kunningjar ákærða og aðrir komn- ir fyrir forvitni sakir eða samúðar — en öllum vísað frá nema syni ákærða og dóttur. Réttarsalurinn var svo lítill að sögn viðkomandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.