Morgunblaðið - 11.02.1979, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979
43
ffPó kemur ekkert þeim jafnoft á óvart og
veðrió. Það vetdur þeim sífeíldri undrun...
(Sjá: Bretinn & Veðrið)
FRAKKLAND/UMFERÐARMAL
Asíðustu sex árum hefur
dauðaslysum á vegum í
Frakklandi fækkað um þriðjung,
að því er segir í skýrslu sem
umferðaröryggisráð þar í landi
hefur látið út ganga. Er þetta
þakkað þrem ráðstöfunum, sem sé
því að hámarkshraði á helztu
umferðaræðum var lækkaður, öku-
menn og framsætisfarþegar lög-
skyldaðir til að nota bílbelti og
umferðarlögregla fór að beita
ölvunarprófum í langtum meira
mæli en áður.
Þann skugga ber reyndar á
þessar ágætu fregnir, að þær eru
nú til meðferðar hjá dómstóli:
félag bifreiðaeigenda hefur borið
brigður á þær og sakar umferðar-
öryggisráð um að breiða út lognar
og villandi upplýsingar og hag-
ræða tölfræðilegum niðurstöðum.
Ólíklegt er þó að þessi málaferli
verði til þess að yfirvöld í Frakk-
landi slaki á umferðarlögunum.
Þrátt fyrir það að dauðsföllum í
umferðinni hafi farið fækkandi
eins og fyrr greindi voru þau ein 11
þúsund í fyrra (10 þúsund árið
áður, ’77). Miðað við fólksfjölda er
mönnum tvöfalt meiri lífshætta
búin í umferðinni í Frakklandi en í
Bretlandi. (þó þrisvar sinnum
meiri fyrir sex árum). Mest varð
mannfallið árið 1972. Þá létust
16.600 manns í umferðarslysum í
Frakklandi og hafði þá dauðaslys-
um fjölgað um 5% á ári þó nokkur
undan farin ár. Taldist mönnum
svo til að jafnaðarlega létu 8.2
menn lífið fyrir hverja 100 milljón
Strangari
umferðar-
löggjöf:
færri
banaslys
kílómetra sem eknir væru. Nú eru
þeir 4.7 á hverja 100 milljón km, og
hefur þó umferðin aukizt um 25%
á þeim árum sem síðan eru liðin.
Það er eftirtektarvert, að þær
ráðstafanir sem taldar eru hafa
orðið happadrýgstar í umferðinni
eru ekki tilkomnar að almannaósk
heldur eiga þær rót að rekja til
olíukreppunnar 1973. Þá var há-
marksökuhraði sem sé lækkaður
með lögum og var eftir það 130 km
á hraðbrautum en 90 á flestum
vanalegum þjóðvegum. Það kom
fljótlega í ljós, að dauðaslysum
hafði fækkað mjög. Voru þá völd
Umferðarröyggisráðs aukin að
miklum mun og umferðarlög hert
enn frekar.
Fyrir þremur árum var leitt í
lög að ökumönnum og framsætis-
farþegum skyldi skylt að nota
bílbelti í akstri á öllum hraðbraut-
um og öðrum þjóðvegum. Mjög
strangt er tekið á því ef bregður út
af þessu og t.a.m. var ökumaður,
sem tekinn var bílbeltislaus og
honum gert að greiða sekt en
neitaði, dæmdur í 10 daga fangelsi
og honum stungið inn umsvifa-
laust. í þéttbýli er ekki skylt að
notá bílbelti á daginn, en hins
vegar á ljósatíma. Fyrir hálfu ári
byrjaði lögreglan svo að stöðva
ökumenn af handahófi og leggja
fyrir þá ölvunarpróf; þótti þá
eigendum kaffi- og v.eitingahúsa
og vínframleiðendum nærri sér
gengið og mótmæltu hástöfum en
það kom fyrir ekki. Þótti enda
mörgum að kominn væri tími til
að grípa til einhverra ráða við
ölvun við akstur: áður höfðu að
jafnaði aðeins 3—4% ökumanna
ekið undir áfengisáhrifum svo
varðaði við lög — en sá litli hópur
hafði hins vegar átt sök á meiru en
40% dauðaslysa.
Stóru bílaframleiðendurnir
frönsku, Renault, sem er nú ríkis-
rekinn, og Peugeot, sem er einka-
fyrirtæki (og bætti við sig Citroen
fyrir nokkrum árum) hafa lagzt á
sveifina með yfirvöldum til þess að
auka öryggi í umferðinni, og hefur
framlag þeirra einkum reynzt
þýðingarmikið hvað snertir bíl-
belti. Undanfarin sjö ár hafa þessi
fyrirtæki borið í félagi saman
allar tölur um þá bíla af sömu gerð
og sama aldri sem lent hafa í
slíkum árekstrum. Hafa verið
borin saman fleiri en 2.700 tilvik á
þennan hátt. Af niðurstöðum
samanburðarins virðist að í
árekstrum beint af augum láti lífið
1% ökumanna sem nota bílbelti en
7% hinna sem ekki nota belti.
Þegar öll slys voru tekin saman
þótti sýnt að lífshætta í bílaum-
ferð minnkaði um 50—60% ef
bílbelti væru notuð.
Áður voru nefndar tölur viðvíkj-
andi takmörkun hraða á hrað-
brautum og öðrum þjóðvegum. En
þess má geta að auki, sem frönsk
yfirvöld hafa eftir Þjóðverjum
öryggisráðstöfunum sínum til
stuðnings, að það kom á daginn í
tilraun sem fram fór á hraðbraut í
Þýzkalandi er hámarkshraði var
ákveðinn 130 km á klst um skeið
en hámarkinu síðan aflétt að
hættan á alvarlegu slysi jókst um
11% ... - PAUL WEBSTER
Olíukreppan hafði í för með sér lækkun leyfilegs hámarkshraða — og þar
með minnkandi slysatíðni.
embættismanna. Það var því
heppilegt, að verjandi Sabata
mætti ekki; óvíst að það hefði
verið pláss fyrir hann. En hann
hafði reyndar verið sviptur mála-
flutningsréttindum nokkrum dög-
um áður.
Þeir sem rituðu nöfn sín undir
Mannréttindaskrá 77 eiga erfitt
uppdráttar þessa dagana og hafa
átt um nokkurt skeið. Þeir hafa
raunar búið við ónáð yfirvalda allt
frá því að þeir skrifuðu undir. En
undan farið hefur staðið yfir
hálfgerð herferð á hendur þeim.
Sabata var handtekinn 1. októ-
ber í fyrrahaust. Hann hafði verið
á leið á fund. Hann var ekki einn á
ferð, og segja þeir sem með honum
voru að hann hafi verið barinn illa
er hann var tekinn og aftur þegar
kom á lögreglustöðina. Hann var
svo dæmdur fyrir það að hafa
reynt að bera hönd fyrir höfuð sér,
eins og séra Jan Simsa sem fang-
elsaður var í fyrra af því hann
reyndi að koma konu sinni til
hjálpar er lögreglan var að leita
hús þeirra og misþyrmdi henni.
Sabata hafði áður hlotið sex og
hálfs árs fangelsisdóm fyrir
„niðurrifsstarfsemi". Honum var
sleppt úr haldi eftir fimm ár en nú
verður hann trúlega að afplána
afganginn af dómnum.
Eins og áðan sagði stendur nú
yfir nokkurs konar herferð gegn
þeim sem rituðu undir Mannrétt-
indaskrá 77. Fjölmargir þeirra eru
búnir að missa þau störf sem þeir
hlutu menntun til og höfðu unnið
lengi og hafa orðið að taka hvað
sem bauðst til þess að verða ekki
dæmdir fyrir leti og iðjuleysi. Sími
hefur verið tekinn af hundruðum
þeirra, fjölmargir hafa misst bíla
sína.
Þeir sem enn búa að kjarki til
þess að hafa uppi mótmæli eru
undir sífelldu eftirliti öryggislög-
reglunnar. Þeim er fylgt eftir á
götu, íbúðir þeirra fullar með
hlerunartæki, myndir teknar af
öllum gestum og stöðugur vörður
fyrir utan hjá þeim. Oft víkja
öryggislögreglumenn sér að aðvíf-
andi gestum og hóta þeim illu ef
þeir verði ekki á brott. Sumum
hafa undirskriftirnar orði enn
dýrari — þeir hafa verið teknir til
bæna hjá lögreglunni og barðir.
Og sagt er að félagar þessir forðist
að leggja leið sína nálægt bökkum
árinnar sem rennur gegnum Prag
því ekki alls fyrir löngu var ráðizt
á tvo þeirra þar og hótað að
drekkja þeim
- SUE MASTERMAN
og
ANTON KOENE
Petta gerdist llka ...»
Hœgan nú, félagar!
Enginn skyldi »tla að Það pyki ennpó sjáltsagöur hlutur í Kína aö
almúginn beri skoöanir sínar á torg, og Þó síst ef Þ»r eru pólítísks
eðlis. Til dæmis hermir Kyodo fréttastofan japanska aö 32 ára
gömul kona í Peking, sem hefur staðið framarlega í hópi peirra sem
berjast fyrir lýöræðislegri stjórnarháttum, hafi nú verið fangelsuð.
Félagar hennar komu upplýsingum um petta á framfæri á
veggspjöldum sem peir hengdu upp í næstliðinni viku og létu fljóta
með Þá athugasemd af skiljanlegum ástæðum að peir óttuðust
mjög að stjórnvöld v»ru pegar byrjuð aö hefta Þau öfl sem krefjast
aukins lýöræðis.
Efég vœri ríkur...
Hópur óánægöra hluthafa í Ford
bifvélaverksmiöjunum hefur höföað
mál á hendur stjórnarformanninum,
Henry Ford II og nokkrum meöstjórn-
endum hans og krafið pá um 50
milljón dollara skaðabætur fyrir
margskonar bruöl með eigur fyrir-
tækisins. Stefnendur bera Ford meðal
annars peim sökum, að hann hafi fyrir
tveimur árum látið Ford-smiðjurnar
borga brúsann Þegar móöir hans
bauð 32 fylkisstjórum til veislu á heimili sínu í Detroit pegar
ráðstefna fylkisstjóra var haldin par í borg. Sá höfðingsskapur
kostaði að sögn stefnenda litla 300,000 dollara. Þá finnst Þeim alveg
nóg um íburðinn í hinum nýju „skrifstofum“ stjórnarformannsins og
tína Þar til atriði eins og 2,7 milljón dollara hringstigabákn, sem
tengir einkaborðsal hans við „íbúð sem hann hefur til umráða til
síödegishvíldar sinnar“. Ford er líka víttur fyrir „gufubaöstofu“
Þarna í byggingunni sem kostar fyrirtækið 250.000 dollara á ári, item
leikfimisal til eínkanota með fastráðnum nuddara; og reksturs-
kostnaður borösalarins sem fyrr er nefndur fullyröa hinir hneyksl-
uðu hluthafar að nemi ekki minna en 200 dollurum á gest pr. máltíö.
Þá er stjórnarformaðurinn talinn misnota bíla- og flugvélaflota
fyrirtækisins að ekki sé meira sagt. í stefnunni er vikið aö Því
hvernig Þotur séu notaöar í ótrúlegasta snatt fyrir vini og
vandamenn bílakóngsins, svosem eins og hina gestrisnu móöur
hans sem víli ekki fyrir sér að kveðja til Þotu Þegar hún Þurfi að
koma hundunum sínum bæjarleið. Loks er tilfært dálítið hrikalegt
dæmi ef satt er um kaup á einum sígarettupakka, sem eftir öllum
sólarmerkjum að dæma kostaöi Ford-smiöjurnar sem svarar
tæpum tveimur milljónum íslenskra krónal Stefnendur standa
semsagt á Því fastar en fótunum að á einum af flugferðum sínum
hafi Henry Ford skipað flugstjóranum að lenda flugvélinni svo fljótt
sem auðið yrði, svo aö hægt yrði að kaupa ákveönasígarettutegund
handa einum af gestunum um borð, meö pví að tegund Þessi var
ekki til Þarna uppi í háloftunum. Og sá greiðinn, segja stefnendur
nú, kostaði Ford-fyrirtækið 6.000 dali.
/ einkaþotu í steininn
Tveir stórtækir svindlarar, sem ætluöu að hafa nær níu milljónir
dala af kúbönskum stjórnvöldum, sitja nú bakvið lás og slá í
Havana. Kúbanskur lögreglumaður hafði upp á Þeim á Jamaica,
beindi að Þeim byssu sinni og neyddi Þá til að fljúga einkaÞotunni,
sem Þeir höfðu til umráða, beinustu leiö til Kúbu. Talsmaður
alríkislögreglunnar bandarísku upplýsir í pessu sambandi að
tvímenningarnir hafi átt hlutdeild í samsæri sem miðaði að pví að
selja Kúbustjórn 3.000 tonn af kaffi sem síðan stóð alls ekki til að
afhenda.
Sitt lítið afhverju
Tyrknesk stjórnvöld hafa bannað innflutning á hljómplötum með
sígildri tónlist, og er Það rétt eitt örÞrifaráöið í baráttu Tyrkjans við
óhagstæðan viðskiptajöfnuö. Meðal annarrar bannvöru: píanó,
gítarar, veggspjöld og „príhjóluð
ökutæki“__Eigendur Burgerbrau
bjórkjallarans í MUnchen, par sem
Hitler (myndin) efndi til fyrstu tilraun-
ar sinnar til Þess að fremja valdarán,
hafa ákveöið að jafna bygginguna við
jörðu og reisa í staðinn stórhýsi Þarna
á svæðinu með íbúðum, verslunum og
kaffistofum ... Volkswagensmiðjurn-
ar Þýsku ráögera að reisa verksmiðju í
Egyptalandi sem á að geta skilað allt
að 20.000 „bjöllum“ á markaðinn á ári.. Samkvæmt opinberum
tölum var fjöldi barnsfæöinga í Kína í fyrra sá minnsti í átta ár og
fæddust Þá átta milljónir færri barna en áriö 1971. Bandarísk
stofnun sem einkum fæst viö mannfjöldarannsóknir, áætlaði í apríl í
fyrra að íbúatalan í Kína næmi 930 milljónum... Leiðtogar
grísk-kaÞólsku kirkjunnar í AÞenu hafa hafnaö tilraunum stjórn-
valda til Þess aö veita Þeim hjónum lögskilnað sem skilin hafa verið
að borði og sæng í aö minnsta kosti sex ár. Klerkar Þarna
viðurkenna Því aöeins skilnað aö báðir aðilar hafi veitt samÞykki sitt
og annar eða báðir helst orðið sannir að hordómi...