Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 12

Morgunblaðið - 11.02.1979, Page 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979 Utnsjón:Séra Jón Dalbú Hróbjartsson Sóra Karl Sinnrbjörnsson Siyurdur Pálsson aUdrottinsdegi 1. sunnudayur í nhiviknaföstu Pistillinn 1. Kor. 9,2Jt-10,5: Vitið þér ekki, að þeir, sem á skeiðvellinum hlaupa, hlaupa að sönnu allir, en einnfœr sigurlaunin? Hlaupið þannig, að þér getið hlotið þau. Guðspjallið Matth. 20,1-16: Jesús sagði: Þannig munu hinir síðustu verða fyrstir og hinir fyrstu síðastir. Sunnudagar níuviknaföstu mynda einskonar brú milli þrettándatímans og föstunnar. Enn hafa þeir yfirbragð gleði og birtu þrettándatímans, en sterkan undirtón föstunnar, þar sem áherzlan er lögð á baráttu Guðs við hið illa. Við sjáum þetta greinilega í textum dagsins, þar sem guðspjallið er dœmisagan um góðvild Guðs, sem ekki fer í manngreinarálit, en pistillinn er aðvörun um, að þótt margir séu kallaðir, þá eru fáir útvaldir, og hvetur til aga og sjálfsafneitunar. Nœsti sunnud. er svo Biblíudagurinn, sem teggur áherzlu á Guðs orð, sem er kraftur Guðs til hjálpræðis. Vikuna 11.—17. febr. Biblíu- Sunnudayur Mánudayur Þriðjudayur 11. febr. Mat.t. 20. 1—16 12. febr. Matt. 20. 17—28 13. febr. Matt. 20. 29—31 lestur Miðvikudayur U.febr. Matt. 21. 1—17 Fimmtudayur Ffístudayur 15. febr. Matt. 21. 23—32. 16. febr. Matt. 21. 33—1+6. Lauyardayur 17. febr. Matt. 22. 1—U Tanzania Lifandikirkjavið miðbaug Við bregðum okkur um stund til Afríku, þar sem sólin kemur upp kl. 6 að morgni og sest tólf tímum síðar allan ársins hring. Landið er Tanzanía, níu sinnum stærra en Island, íbúar 15 millj- ónir. Tæplega 800 þús. eru innan Lútersku kirkjunnar, en rúm 40% tilheyra kristnum söfnuð- I L Frásögn sr. t>orvalds Karls Helgasonar um, 25% eru múhameðstrúar, en þriðjungur landsmanna að- hyllist ýmis konar þjóðtrú. Myndin sýnir Kristsstyttu og er tekin í sjávarþorpi norðarlega í landinu, en á þennan stað var komið með lík Livingstones landkönnuðs, og kristniboða, en vinir hans höfðu borið það 900 km leið. Þetta minnir okkur á að kirkjan í Tanzaníu er ung, enda þótt staða hennar sé þar sterk og gott samband ríkis og kirkju. Júlíus Nyerere, forseti, hefur látiðð þrennt sitja í fyrirrúmi í landinu: 1) að allir landsmenn eigi aðgang að drykkjarvatni, 2) almenna menntun, þar sem þorpsbúar byggja sjálfir skól- ann, og 3) heilbrigðisþjónustan nái til allra. Kirkjan í Tanzaníu hefur frá upphafi verið með i öllu þessi starfi og tekið beinan þátt í því. Kirkjan á m.a. 59 sjúkraskýli, 12 sjúkrahús, auk geðsjúkrahúss sem hún rekur og blindraskóla sem við sjáum mynd frá hér að ofan. Auk þess rekur hún hjúkrunarskóla, tvo læknaskóla, trúboðsstöðvar og prentsmiðju. Allt fram til ársins 1969 sá kirkjan um 75% allra grunnmenntunar í landinu, en þá yfirtók ríkið hana og kirkjan einbeitti sér að sunnudagaskóla- haldi og kirkjuskólum. Það var ógleymanlegt að sjá hlið við hlið stofnanir kirkjunnar, barna- heimili og blindraskóla, um leið og maður kom úr messunni, þar sem við hljótum blessun til þjónustu í þessum heimi. Ganga upp krókóttan stíg í 30° hita upp í „Ölpum" Tanzaníu á ieið til messu, framhjá mark- aðstorgum, yfir trébrú í miðju þorpinu. Rauður jarðvegur und- ir fótum, en á sitt hvora hliðina voru þeldökkir lágvaxnir þorps- búar, sem fyrir 100 árum höfðu ekki heyrt fagnaðarerindið um Hann tók sig upp Dadi Gaston Pierre, Kamerun Fæddur 1930 í Sassa Mbersi. Gekk í prestaskólann í Meiganga 1961—1966. Kennari við Biblíuskólann í Meng 1966—1972. Fram- haldsnám við prestaskólann í Ndounge 1972—1974. Kennari við prestaskólann í Meiganga. Varaforseti Evangelísk-lúthersku kirkjunnar í Kamerun. Og hann tók sig upp og fór til föður síns. En er hann var enn langt í burtu sá faðir hans hann og kenndi í brjósti um hann, hljóp og féll um háls honum og kyssti hann. (Lúk. 15,20) Hann tók sig upp og fór til föður síns. í þessari stuttu setningu birtist viska týnda sonarins. Með ákvörðun sinni um að snúa aftur heim til föðurhúsanna sneri hann baki við sínu fyrra lífi. Honum var um megn að halda áfram á sömu braut, hann varð að snúa aftur. Þennan möguleika hefur allt hið fallna og uppreisnargjarna mannkyn. Ég var einnig á meðal þeirra sem voru á flótta undan Guði til þess að geta lifað frjálsu og hamingjuríku lífi. En eftir að hafa lifað slíku lífi árum saman er reynsla mín sú að engin hamingja er til og ekkert raunverulegt líf nema það eitt sem okkur er af Guði gefið gefið í Jesú Kristi. Leiðin aftur til Guðs, fyrir Jesúm Krist er aldrei of löng. Það er Jesús Kristur sjálfur, sem er vegurinn: „Ég er vegurinn, sánnleikur- inn og lífið. Enginn kemur til föðursins nema fyrir mig.“ Þegar Jeremía sá, að Israelsmenn stefndu í ógæfu hrópaði hann: „Snúið yður aftur til Drottins, og þér munuð frelsaðir verða." En við getum ekki snúið aftur til Guðs án aðstoðar. Hjörtu okkar eru dauð, eyru okkar dauf og augun blind. Ef okkur á að takast að snúa aftur, verður andi Guðs að komast að okkur. Það er Guðs andi, sem sannfærir um synd. Stattu upp og snúðu aftur til Guðs, föður þíns. Hann tekur við þér, án tillits til hver fjöldi synda þinna er. Messað við einfaldar aðstæður Jesú frá Nazaret. Nú var einsog þetta elskulega fólk, sem veifaði trjágreinum og söng sálma, gerði þá sögu ljóslifandi, því það minnti á fagnandi lýðinn við innreiðina í Jerúsalem, og gleð- ina í samfélaginu við Krist. Margar síður í Gamla testa- mentinu lukust upp. Svona er það þá að lofa Guð með söng og lúðurhljómi, með bumbum og gleðidansi. „Allt sem andardrátt hefur, lofi Drottin". Við sjáum mynd af lúðrasveit í broddi fylkingar á leið til messunar. Ótrúlegt, ólýsanlegt. Hér var grænn gróður til að undirstrika að samfélagið er við lifandi Guð og það líf sem hann gefur í Kristi hefur skotið rótum í þessu hitabeltislandi og borið mikinn ávöxt. Því hvernig er unnt að segja annað, þegar maður er staddur á þeim akri, sem sáð var í fyrir nokkrum áratugum og sér árangurinn ljóslifandi. Þetta hafði allt þau áhrif á mann að það jók á gleðina að halda göngunni áfram upp fjallshlíðina og til- hlökkunina að fá að taka þátt í messu í söfnuði Krists á mið- baug.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.