Morgunblaðið - 11.02.1979, Side 30

Morgunblaðið - 11.02.1979, Side 30
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1979 Siííurður Bogi Sævarosson, 8 ára, Selfossi. Kagnheiður Aradóttir, 11 ára, Seltjarnarnesi. Óskar Arason, 5 ára Seltjarnarnesi. Böm, sem gleymast í þróunarlöndunum um heim allan býr um milljarður barna, sem er undir 15 ára aldri. Þau eru á milli 40 og 50% af íbúafjöldanum. Dæmi þau, sem hér verða rakin, komu fram á ársfundi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna fyrir fáeinum árum. Mörg börn deyja ung og fá komast í skóla Ungbarnadauði er algengur í þróunarlöndun- um, en einungis rúmur helmingur þeirra barna, sem lifir af bernskuna, og kemst á skólaaldur, fær tækifæri til þess að setjast á skólabekk. En af þeim, sem komast í skóla og geta hafið nám, er aðeins helmingur, sem lýkur barnaskóla. Vanrækt börn í 13 löndum og 9 land- svæðum Austur-Asíu eru börn fram að skólaskyldu- aldri vanræktustu þegnar þjóðfélagsins. Kíkisstjórnir og yfirvöld hafa sýnt unglingum frá 14 — 15 ára og eldri mun meiri áhuga, enda hafa þeir með ýmiskonar mótmæla- aðgerðum og róstum vakið athygli stjórnvalda á kjörum sínum. Helmingur íbúa þessa heimshluta mun vera undir tvítugu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur reynt að veita vfðtæka heilbrigðis- þjónustu á þessu svæði í ýmsu formi. Erfiðleikar margra barna á Indlandi í sunnanverðri Mið-Asíu, þar sem íbúunum fjölgar árlega um 2,4% eru sérstök vandamál í Indlandi, sem valda miklum erfiðleikum. Þar eru viðáttumikil „hlut- laus svæði“ með milljónum barna sem Barnahjálpinni hefur ekki auðnast að ná sambandi við. Miklar fjar- lægðir og erfiðar samgöngur útiloka þessi börn frá því að njóta góðs af félagslegum framförum og velferðar- áætlunum. Þau hljóta litla eða enga skólamenntun og verða því flest að horfa fram á ævilangt atvinnuleysi. Barnahjálpin hefur út- vegað yfir 1000 vörubíla og jeppa til þess að flytja starfs- menn heilbrigðisþjónustunn- aT á vettvang með nauðsyn- Iegar lyfjabirgðir. Það er því víða pottur brotinn og ekki úr vegi að halda áfram að spyrja, eins og spurt var forðum: IIVER ER NÁUNGI MINN?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.