Morgunblaðið - 11.04.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
Þorlákshöfn:
Langbezta vertíð
sem komið hefur
horlákshöfn, 10. apríl.
MIKILL OG GÓÐUR afli hefur borist á land hér á þessari
vertíð, enda gæftir með eindæmum góðar, en nú hefur á
allra síðustu dögum dregið mikið úr aflamagni. Svo sem
kunnugt er verða öll net bátanna tekin upp í dag og ekki
lögð aftur fyrr en eftir páska og h? tt er við að timinn sem
eftir er af vertíðinni verði ódrjúgu • til veiða og einhverjir
láti e.t.v. hér við sitja.
Tuttugu og þrír bátar hafa verið
gerðir út héðan í vetur og nú í
marzlok er afli þeirra sem hér
segir: Bátaafli 10.935 tonn, meðal-
afli á löndun eru 10 tonn 968 kíló
eða tæp 11 tonn. Þetta er í 997
róðrum. Togaraafli er 1.160 tonn
og meðalafli í löndun eru 105 tonn
455 kg i 11 sjóferðum. Til saman-
burðar 1978 var bolfiskur á land
kominn í marzlok 5.642 tonn og
meðalafli báta í löndun þá 8 tonn
og 481 kg í 581 róðri. Meðallöndun
togara var þá 55 tonn í 13
sjóferðum. Árið 1977 var bolfiskur
í marzlok orðinn 8.633 tonn og
meðallöndun báta var 7 tonn og
357 kg í 1.807 róðrum og meðal-
Iöndun togara þá var 90 tonn 834
kg í 7 veiðiferðum. Árið 1976 var
Borgarráð:
Dagheimila-
og leikskóla-
gjöld hækka
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu frá félagsmálaráði um að
sækja um leyfi til að hækka gjöld
á dagvistunarstofnunum. Það er
menntamálaráðuneytið sem gefur
slíkt leyfi, og venjan sú að það er
lagt fyrir verðlagsnefnd.
Nú er gjald fyrir hvert barn á
dagheimili 26 þúsund krónur á
mánuði, og er sótt um leyfi til að
hækka það gjald í 28 þúsund
krónur, eða um 7,6%. Gjald fyrir
hvert barn á leikskóla er nú 14
þúsund krónur á mánuði, og er
farið fram á hækkun í 16 þúsund
krónur á mánuði.
Að sögn Bergs Felixsonar hjá
Félagsmálastofnun eru það eink-
um launahækkanir 1. mars um
5,9% og nýir kjarasamningar við
Sókn sem þýddu Iaunahækkun um
7 til 12% sem eru ástæða þessara
hækkunafbeiðna.
bolfiskur í marzlok 6.288 tonn
meðalafli á bát, þá voru 12 tonn og
199 kg í 711 róðrum. Árið 1975 var
bolfiskur í marzlok orðinn 6.529
tonn og meðalafli í róðri 8 tonn 349
kg í 782 róðrum.
Aflahæstu bátarnir hér nú í
marzlok eru Jón á Hofi með 864
tonn, í 32 róðrum, Höfrungur III
með 847 tonn í 31 róðri, Friðrik
Sigurðsson með 792 tonn í 32
róðrum, Jóhann Gíslason með 786
tonn í 31 róðri, Ögmundur með 701
tonn í 28 róðrum og Gissur með
700 tonn í 57 róðrum. Af ofan-
greindu má sjá að þessi vertíð nú
er sú langbezta sem komið hefur
hér.
Togarinn Jón Vídalín kom inn í
gær, mánudag, með 150—160 tonn
úr 10 daga veiðiferð. Uppistaða
aflans var karfi.
Ragnheiður.
2Pev0imIiItiðií'
UÓOmS Í'TSÝ. XARFERÐIR
SJÁHAKSÍDU
Útsýnarblað
fylgir í dag
MEÐ Morgu íblaðinu í dag er
dreift 16 sífna auglýsingablaði
frá Ferðas'. rifstofunni Utsýn.
Þetta er fjórða árið í röð, sem
slíku blaði er dreift til áskrif-
enda Morgunblaðsins.
Frá aðalfundi Flugleiða:
Sáttafundur verslunarmanna og vinnuveitenda í gær var að öllum likindum sá síðasti sem Torfi
Hjartarson stjórnar, en hann mun láta af störfum á sunnudaginn. í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi
sagði Torfi þó, að hann vildi ekki slá því föstu að hann hefði setið sinn sfðasta sáttafund, aldrei væri að vita
hvað kæmi upp. Torfi hefur verið sáttasemjari ríkisins frá því árið 1945. Hér takast þeir í hendur að fundi
loknum, Torfi og Magnús L. Sveinsson. Ljósm: Ól. K. Magn.
Samkomulag í verslunarmannadeilunni:
Líklega síðastí sáttafund-
ur Torfa Hjartarsonar
SAMNINGUR tókust í gær í vinnudeilu verzlunarmanna og vinnuveit-
anda á fundi hjá sáttasemjara ríkisins, Torfa Hjartasyni, en þetta var
að öllum líkindum síðasti sáttafundur sem hann stýrir. Sáttasemjari
lagði fram sáttatillögu á fundinum í
Felur hún i sér að launaliðum
gerðardóms.
Aður hafði náðst samkomulag
um breytingu á flokkaskipuninni
og skýringum á einstökum starfs-
heitum. Samningurinn gildir frá
10. apríl til 1. desember í ár, en er
uppsegjanlegur með eins mánaðar
fyrirvara ef stéttarfélög innan
Á.S.Í. segja almennt upp
samningum á þessu tímabili.
gær, sem báðir aðilar samþykktu.
samningsins verður vísað til
hafa fengið viðurkennd fyrir hlið-
stæð störf.
Morgunblaðið leitaði í gærkvöldi
til Magnúsar L. Sveinssonar
framkvæmdastjóra Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur og
spurði hann álits á samkomulag-
inu. Magnús sagði: „Ég er eftir
atvikum ánægður með það sem
þegar hefur verið samið um, en
geri mér grein fyrir því að nokkur
óvissá er um þann hluta sem fer
fyrir gerðardóm. Ég tel, að með
þeim samningum sem þegar hafa
náðst um breytingar á flokkaskip-
uninni hafi verulegur árangur
náðst, og ég treysti því að dómur-
inn muni í meginatriðum staðfesta
þá eðlilegu kröfu verslunarfólks að
það fái með samningum hliðstæð
laun og opinberir starfsmenn hafa
fengið fyrir sambærileg störf“.
Gert er ráð fyrir að gerðar-
dómurinn verði skipaður þremur
dómurum tilnefndum af yfir-
borgardómaranum í Reykjavík,
tveimur tilnefndum af hálfu laun-
þega og tveimur tilnefndum af
vinnuveitendum, sjö alls. Dómur-
inn á að hafa lokið störfum fyrir
15. maí næstkomandi.
Kröfur launþega hvað laun
áhrærir hafa verið þær, að þeir fái
viðurkennt í kjarasamningum
sambærileg laun og opinberir
starfsmenn og bankastarfsmenn
Séra Sigurjón Þ.
Árnason látinn
SÉRA Sigurjón Árnason lést í
gær á Borgarspítalanum í
Reykjavík 82ja ára að aldri.
Hann var fæddur á Sauðárkróki
þann 3. marz árið 1897, sonur
þeirra hjóna Árna prófasts í
Görðum Björnssonar og Líneyjar
Sigurjónsdóttur.
Séra Sigurjón varð stúdent árið
1917, og lauk cand. theol. prófi frá
Háskóla íslands árið 1921, en var
síðan við framhaldsnám í trúar-
heimspeki í Kaupmannahöfn vet-
urinn 1921 til 1922, og kynnti sér
jafnframt safnaðarstarfsemi.
Rekstmra&oman verenaði
um 1.496 m.kr. frá 1977
— Hæpið að halda áfram N-Atlantshafsflugi
AFKOMA félagsins er í reynd afar slæm á árinu 1978 þar sem
raunverulega er um rekstrartap að ræða að upphæð 3.005 milljónir
króna. sagði Sigurður Helgason á aðalfundi Flugleiða. Sagði hann að
þessi tala fengist með því að draga frá endanlegri niðurstöðu
rekstrarreikningsins iiðina tjónabætur og söluhagnað eigna og kvað
hann ljóst af þessu, að íélagið hlyti að standa á krossgötum. því
rekstrartap af þessari stærðargráðu væri óþekkt fyrirbæri í sögu
félagsins.
Rekstrartekjur fyrirtækisins að
frádregnum rekstrargjöldum, sem
er allur rekstrarkostnaður fyrir-
tækisins að meðtöldum afskriftum
en áður en tekið er tillit til
fjármagnskostnaðar og gjalda og
tekna af óreglulegri starfsemi,
reyndist vera tap að upphæð 706
milljónir króna og hefur rekstrar-
afkoman versnað um 1.496 m.kr.
frá árinu 1977 og kom einnig fram
í máli Sigurðar, að gengistap
félagsins hefði fjórfaldazt, var 415
m.kr. 1977 en 1.624 m.kr. 1978.
Aískriftir námu 1978 alls 649
m.kr. en höfðu numið 630 m.kr.
árið áður. Heildareignir félagsins
námu 20.207 m.kr. og skuldir
15.281 m.kr. og eigið fé því 4.926
m.kr.
Hlutfall launakostnaðar Flug-
leiða af rekstrargjöldum var
22,2% og hefur farið síhækkandi,
var 16.6% árið 1975. Yfir tímabilið
1976—1978 hefur launahækkun á
Islandi verið að meðaltali 25.1%
reiknuð í Bandaríkjadölum og hjá
bandarískum samkeppnisfélögum
eru launahækkanir um 10% að því
er kom fra í máli Sigurðar. Einnig
kom fram í máli hans, að ný stefna
Bandaríkjastjórnar í fargjalda-
málum hefði komið illa við þróun á
Norður-Atlantshafsflugleiðinni,
en rekstur Flugleiða væri við-
kvæmari fyrir sveiflum á Atlants-
hafinu en flestra annarra félaga á
þeirri leið þar sem þau hefðu að
bakhjarli veigamiklar flugleiðir.
Sagði Sigurður að tapið á þeirri
leið hefði numið 2,3 milljörðum kr.
sl. ár. Um þennan þátt sagði Örn
Ó. Johnson, að hann væri orðinn
svo þungbær og afdrifaríkur, að
ljóst væri að hæpið yrði að halda
áfram þeim þýðingarmikla þætti í
svo ríkum mæli sem hingað til,
nema til kæmu jákvæðar breyting-
ar á ytri aðstæðum, sem þó sæjust
engin merki um.
Um innanlandsflugið sögðu þeir
Sigurður Helgason og Örn Ó.
Johnson, að opinberir aðilar leyfðu
ekki eðlilegar hækkanir á far-
gjöldum og hlyti því þróun innan-
landsflugsins að stöðvast eða það
að dragast saman. Nú lægi fyrir á
næstu árum að endurnýja þær 5
Fokker-vélar sem væru orðnar
13—18 ára gamlar, en^ekki væri þó
ákveðið hvenær það yrði eða hvað
kæmi í staðinn. Myndi t.d. kaup-
verð 5 nýrta Fokkervéla verða
kringum 7 milljarðar króna.
Heildarfarþegafj öldi varð 3,2%
meiri árið 1978 en 1977 og batnaði
sætanýting úr 73,3% í 76,1%. Bezt
hleðslunýting varð á Norður-At-
lantshafsleiðinni, 81%, en þar
fjölgaði farþegum um.14,7%, í
Evrópufluginu fjölgaði þeim um
6,3% og í innanlandsflugi um
3,4%.
Hann var um tíma aðstoðarprest-
uc hjá föður sínum í Görðum og
síðar sóknarprestur i Vestmanna-
eyjum. Prestur í Hallgrímspresta-
kalli í Reykjavík varð hann árið
1945.
Séra Sigurjón gengdi ýmsum
trúnaðarstörfum auk preststarfa
sinna, var t.d um tíma formaður
barnaverndarnvi..uar Vestmanna-
eyja, í stjórn Kristniboðssam-
bandsins og í stjórn Prestafélags
íslands 1954 til 1955. Þá liggja
einnig eftir séra Sigurjón fjöldi
greina og ritsmíúa.