Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1979 37 Ekki ætlunin að efna til ófriðar löngum verið: „Heilbrigð sál í hraustum líkama." Samleið með áfenginu á þar engan rétt á sér. Forsætisráðherra hvatti til her-. ferðar gegn áfengisneyzlunni í skrifum sínum um síðustu áramót. Það væri verðugt verkefni fyrir íþróttafélög að hafa forgöngu í þeirri herferð og hið þarfasta framlag á barnaári. Er ekki kominn tími til að láta af því að líta á áfengið sem einhverja heilaga kú? „Áfengið gerir ekkert nema illt“sagði Tolstoy á sínum tíma. Hver treyst- ir sér til að hrekja sannleiksgildi þeirra orða? Hafnarfirði, 7.4. 1979 Árni Gunnlaugsson. • Skólalíf Þegar ég í dag las ágæta og vel skrifaða grein í Morgunblaðinu eftir sveitunga minn og æskusyst- ur Rögnu Aðalsteinsdóttur bónda í Laugabóli í Ögursveit þá kom í hug minn samverkandi atvik á skólaárum mínum við Bændaskól- ann að Hvanneyri. Þetta atvik var svona: Við þrír nemendur, allir vest- firðingar ættaðir frá ísafjarðar- sýslu, Kjartan Halldórsson frá Bæjum, Hjalti Sigurjónsson frá Kálfavík og ég undirritaður* bjuggum saman á herbergi nr. 21. Það skal tekið fram að nemendur máttu ekki loka að sér um nætur. Þetta herbergi var lengra á aðra hlið svo að staðsetning rúma var þannig: Kjartan er fremst, næst dyrum, þá mitt rúm og þvert fyrir var rúm Hjalta. Svo kemur gamanið. Fjórir bekkjarbræður ættaðir að austan og norðan gera það að leik að rjúka inn á okkur um miðja nótt og hvolfa rúmunum svo við áttum að verða undir öllu saman af skiljanlegum ástæðum. Varð Kjartan undir öllu saman í tvö skipti en ég svaf aldrei fast og stökk þvert fyrir gafl í rúm Hjalta og þá voru piltarnir allir á burt. Þetta gekk svona í heilan mánuð að við Kjartan gátum ekki hand- samað piltana þar til ég gerðist það fílfdjarfur, því að mér var hefnd í huga. Við Kjartan finnum gott ráð. Hann tekur smápinna, slær hausinn af og neglir þá þétt upp undir fremri rúmstokk hjá okkur báðum. Nóttin kom og að venju kunnu piltarnir sömu handtökin en nú söng í sárum því að mátulega mikið stóð niður úr pinnunum hjá Kjartani. Hann varð ekki undir öllu saman núna, handsamaði tvo og lék þá illa en án meiðsla. Ég náði einum og hélt honum án átaka að mestu. Svo kom sprengj- an. Einn kennari stóð óvænt yfir okkur og sagði stopp og boðaði skólastjóradóm strax morgunin eftir. Það var gott að eiga fjögurra stunda svefn eftir. Tíu mínútum yfir 8 hljómar flautan hjá skóla- stjóra. „Ræs Kjartan, Drottins- dómur dynur,“ sagði ég. Ég klæddi mig betur en vanalega. Skólastjóri býður okkur öllum góðan dag. Ég var með þeim seinustu að mæta í þetta sinn. Ég gekk fasmikill og snúðugt að sæti mínu. Þá ávarpar skólastjórinn mig og segir: „Benedikt minn, ég sé að þú ert vel hraustur og heldur öllu þínu.“ Ég samþykkti það en lét hann vita að austfirskt ónæði ætti sér stað á herbergi okkar nr. 21. Hann sagð- ist vera búinn að kanna þetta mál. Svo hélt hann þrumandi ræðu yfir okkur og gaf okkur harða skipun um að halda skólareglurnar og góða umgengni og hegðun í skólan- um. Ég vil geta þess að við Kjartan tókum I. ágætiseinkunn við fullnaðarpróf í hegðun og líka ástundun og stundvísi. Svo vil ég snúa mér aftur að þessari ágætu grein eftir Rögnu um barna- og unglingaskólann í Reykjavesi. Mistökin í skólamál- um eru svo óskapleg og jafnvel vítaverð að úrbóta er þörf. Mér verður hugsað til vinar míns, stórbóndans á Laugabóli, Sigurðar Þórðarsonar, og nú sé ég að stórt skarð er fyrir skildi. Sigurður var mesti áhrifamaður í stjórn Reykjanesskóla og mistök slík sem Ragna minntist á hefðu ekki átt sér stað ef hans hefði notið við. Mistök sem þessi að láta óhæfa og óþroskaða unglinga kenna í skóla sem hefur það að markmiði að fegra og þroska huga, sál og líferni æskufólksins. Ég höfða þessu ástandi ekki til sálfræðinga, heldur til kirkju- valdsins og kennarastéttarinnar í heild. Reisið við brákaðan reyr en brjótið hann ekki í sundur. Sál- fræðingar eru aumkunarverð stétt manna eins og þeir eru núna á liðandi tíma og þetta sá enginn betur en Sigurður á Laugabóli. Brottrekstur úr skóla eins og Ragna getur um, er andlegur sjúkdómur hjá ráðandi mönnum skólans. Svo er það handleggs- brotni drengurinn. Mistökin með hann sýna best að læknaþjónustan er orðin öfugsnúin. í þessu tilfelli átti að senda lækni flugleiðis í Reykjanes og hann síðan að fljúga til Isafjarðar með drenginn, allt annað var óhæfa. Það kostar átök í anda að lagfæra spillt mannlíf. Benedikt Guðmundsson • Leiðrétting Kona sú, sem veitti í Velvak- anda á þriðjudag, ráð við of- drykkju, benti á villu í ráðlegging- um hennar. Upphaf síðustu málsgreinar átti að vera: Eitt kíló af hunangi hafði gert þennan mann, sem var í drykkjudái klukkan sjö að kvöldi að allsgáðum manni á sólarhring. HÖGNI HREKKVÍSI Heyrðu Stjáni — er ekki einhver að urra? SIG&A V/ÖGA £ Á/LVERAW Stykkishólmi. 9. aprfl. í sambandi við frétt af dansleik í Stykkishólmi, sem ég birti í föstudagsblaði Mbl. sl. hefur fréttaritari Morgunblaðsins í Ólafsvík vakið athygli mína á því að fréttin kæmi þannig út að skilja mætti að einungis aðkomu- menn úr Ólafsvík og Grundarfirði kæmu ekki vel fram á dansleikj- um og settu miður góðan svip á dansleikjahald hér um slóðir. En sú var ekki meining þessarar fréttar, né að efna til ófriðar milli staða þótt þessi nöfn væru bundin við þetta skipti. í þessu sambandi skal á það bent að því miður á þetta við um öll kauptúnin hér á Snæfellsnesinu, og sveitirnar ekki undanteknar, enda eykst stöðugt vandi þeirra sem að skemmtunar- haldi standa við að halda dans- leikjunum í góðu lagi, þótt undan- tekningar séu til sem betur fer. Hrýs mönnum hugur við er slíkt fer enn í aukana og er leitt til þess að vita hversu á seinni árum hefur aukizt ölvun á dansleikjum og er það áhyggjuefni allra hugsandi manna. Það skal tekið fram að fréttin var birt og samin með það í huga að fá fólk til að hugsa rækilega um þessa hluti og - irneinast um heilbrigt og eðlileg: -ikemmtana- hald svo að hvork; þurfi að óttast slys né skemmdir á húsbúnaði eða félagsheimilum. Væri gaman að geta komið í veg fyrir slíkt. Fréttaritari. Leiðrétting I frétt frá blaðamannafundi Ferðamálaráðs læddist inn sá misskilningur, að næsta Alþjóð- lega ferðamálasýningin yrði hald- in í Rússlandi. Það rétta er, að sýningin verður haldin í Þýzka- landi. Einnig má geta þess, að á mynd- inni með Ludvig Hjálmtýssyni ferðamálastjóra eru aðilar frá þeim ferðaskrifstofum, er þátt tóku í sýningunni í marz s.l., þ.e. Ferðaskrifstofu ríkisins, Ferða- skrifstofunni Atlantic og Úrval, en þar að auki tóku Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar og Sam- vinnuferðir þátt í sýningunni. / j Opiö /i í hádeginu Lækjarveri, Laugalæk 2, si'm/ 3 50 20 EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.