Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979 29 Matthías Bjarnason um gengismuninn: Sjómenn fái 200 milljónir króna EITT elzta þingmálið, sem enn er óafgrcitt, frumvarp til laga um staðfestingu á bráðabirgða- lögum frá 5. september sl. um ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenzkrar krónu (ráð- stöfun gengismunar), kom til annarrar umræðu í síðari deild (neðri) sl. fimmtudag. Matthfas Bjarnason fv. sjávarútvegs- ráðherra, gagnrýndi seinagang á afgreiðslu þessa máls, og gerði grein fyrir breytingartil- lögu, sem hann flytur ásamt 4 öðrum þingmönnum Sjálf- stæðisflokks. Breytingartillagan Efnisatriði breytingartillög- unnar eru þau, að áður en kemur til skipta á því fé, sem kemur á reikning ríksisjóðs vegna gengismunar, skuli greiða. • 1) til lífeyrissjóðs sjómanna 175 m. kr. til að verðbæta örorku- og lífeyrisgreiðslur og aðrar tryggingarbætur. • 2) til orlofshúsa sjómanna- samtakanna 25 m. kr. í samræmi við fyrri afgreiðslur M.Bj. rakti hliðstæða ráðstöf- un fyrr á tíð, við ráðstöfun gengismunar, bæði 1974 og 1975, og því væri rangt að andæfa þessari ráðstöfun vegna for- dæmis 1978. Þá hafi óverulegar birgðir sjávarafurða verið í landinu, er gengi var breytt, en öðru máli gegni nú. Ráðgert hafi verið að 5800—6000 m. kr. kæmu í gengismunarsjóð nú, en raunin hafi orðið 7549 m. kr., eða 1600—1800 m. kr. meira. Það væri því engin rausn þó 200 m. kr. yrði varið til sjómanna, lífeyrissjóðs og orlofshúsa. Núv. sjávarútvegsráðherra hafi sagt lífeyrissjóði sterkari nú en 1974. Það væri rétt, á krónutölu litið, en rangt, ef mælt væri á mæli- kvarða verðbólgu og verðþróun- ar. Þá hafi komið fram hug- myndir um að þetta fé, sem sjómönnum væri ætlað, færi til öryggismala. Þau mál væru þörf en féllu undir verkhlut útgerðar og e.t.v. opinberrar lánsfjár- mögnunar, en ættu ekki að Matthías Bjarnason fjármagnast af sjómönnum sérstaklega. M.Bj. sagði hvorki sig, sem sjávarútvegsráðherra, né fyrir- rennara sinn, Lúðvík Jósepsson, hafa ráðstafað gengismuni, nema með samþykki þings eða ríkisstjórnar, enda væri ekki rétt, að einn aðili, þó ráðherra væri, hefði svo umfangsmikla fjárráðstöfun með hendi. Friðjón Þórðarson um þróunarstofnun: Vorum fremur þiggj- endur en veitendur Hér fer á eftir þingræða Friðjóns Þórðarsonar (S), er hann mælti fyrir könnun á því hvern veg ísiendingar gætu betur en nú er komið til aðstoðar við þróunarlönd, þar sem fæðu- skortur er landlægur. Ofíramleiðsla matvara hér á landi Till. er þess efnis, að Alþingi álykti að fela ríkisstj. að kanna til hlítar, hvort unnt sé að auka stuðning við þróunarlönd á þann veg, að íslenska ríkið kaupi bús- afurðir af framleiðendum, svo sem mjólkurduft og sendi þangað sem þörfin er brýnust fyrir matvæli. íslendingar gerðust aðilar að sáttmála hinna Sameinuðu þjóða 19. nóv. 1946. Þeir hafa yfirleitt getið sér gott orð á þeim vettvangi. Þar hafa þeir haft nánasta samvinnu við hinar Norðurlanda- þjóðirnar. Stundum hafa menn velt því fyrir sér, hvort setja ætti ákveðin skilyrði um stærð og fólks- fjölda þeirra þjóðlanda, sem óska aðildar að Sameinuðu þjóðunum, en þá hefur verið á það bent, að sumar smáþjóðir hafi starfað vel í þeim samtökum. Oftar en einu sinni hefi ég heyrt tekið svo til orða á þeim samstarfsvettvangi þjóðanna, að rödd íslands mætti ekki vanta. Hvort full meining býr að baki slíkra yfirlýsinga skal ósagt látið. A hitt ber okkur sjálfum að líta hvort við rækjum þær skyldur, sem þessi alþjóðlega samvinna leggur okkur á herðar með þeim hætti, að sæmilegt megi teljast. A undanförnum árum hefur nokkrum sinnum verið vikið að þessu atriði, einkum í umr. þeirri, sem spunnist. hefur út af skýrslu utanrrh. til Alþ. einu sinni á ári. Svo sem kunnugt er hafa íslending- ar einnig tekið þátt í störfum ýmissa sérstofnana Sameinuðu þjóðanna, ekki síður sem þiggjend- ur en gefendur. Þannig fékk Island að jafnaði 200 þús. dala framlag árlega frá Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna á árunum 1972—1976, að ég ætla. Fé þetta rann til margþættra verkefna, sem aðkallandi voru á ýmsum sviðum þjóðlífsins, svo sem málmleitar, ferðamála, útflutningsstarfsemi iðnaðarins, lax- og silungsrann- sókna, fiskvinnslu, landbúnaðar- rannsókna o.s.frv. En seinna kom á daginn, að styrkir Þróunarstofnun- ar Sameinuðu þjóðanna voru fyrst og fremst ætlaðir hinum fátækari þróunarlöndum. Ljóst varð, að mjög hallaðist á, því að ásókn okkar í þetta fé vóg miklu þyngra en framlag okkar til fátækra þjóða. Aðstoð íslands við Þróunarlöndin Löggjöf um aðstoð íslands við þróunarlöndin var samþ. á Alþ. 23. mars 1971. Tilgangur þeirrar lög- gjafar er m.a. samkv. 4. tölul. 2. gr. að vinna að því að framlög íslend- inga í þessu skyni, þ.e. til þróunar- landanna, nái sem fyrst því marki, er samþykkt hefur verið á þingi Sameinuðu þjóðanna, að þau nemi 1% af þjóðartekjum. Það munu að vísu vera fá þjóðríki, sem hafa náð settu marki. Árið 1976 var Svíþjóð talin vera hið eina en mörg ríki voru þá komin yfir xk%, m.a. Offram- leidsla matvæla og hungur í heimi Noregur. En Island var mjög aftar- lega í röðinni með aðeins 1 pró mil, 1 af 1000, e.t.v. samkv. reglunni sælla er að gefa en þiggja með neikvæðu forteikni. íslendingar eru aðilar að FAO, matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Sú stofnun hefur sett sér það takmark að útrýma hungri úr heiminum. Það er vitað að á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna haustið 1960 var gerð samþykkt þess efnis, að nýta bæri umframframleiðslu mat- væla í heiminum meðal þróuðu og ríku landanna til að stuðla að framförum á sviði efnahags og félagsmála í fátækum löndum. Það munu víst flestir viðurkenna, að takmarkið um útrýmingu hungurs er enn fjarlægt, en að því verður að Friðjón Þórðarson, alþingis- maður. stefna og þá hlýtur það að skipta meginmáli að finna hagkvæmustu leiðir til þess að koma fæðunni þaðan sem meira en nóg er til af henni þangað sem fæðuskortur eru og fólkið lifir við hungurmörkin. Skortur hérlendis skammt að baki Ekki þarf að fletta spjöldum Islandssögunnar lengi til þess að komast að raun um, að íslensk þjóð hefur haft náin kynni af harðæri og hungri á liðnum öldum. Jafnvel þau héruð landsins, sem hvað best voru sett að þessu leyti, hvað matbjörg snerti, fóru ekki varhluta af kynnum við hungurvofuna. Hinn sögufróði sýslumaður Dalamanna, Þorsteinn Þorsteinsson, skrifar svo m.a.: „Sjaldan varð mannfellir í Dala- sýslu af harðæri og aldrei á Skarðs- strönd eða Fellsströnd, en þangað sóttu uppflosningar og vergangs- menn að hvaðanæva, einkum úr Norðurlandi. Var þá oft þröngt fyrir dyrum á Ströndum. Margt þessara þurfamanna hélt fram um eyjar og til veiðistöðvanna í Bjarneyjum og Oddbjarnarskeri. Sultur svarf oft fast að í suðursýsl- unni og Saurbæ, eihkum eftir fjár- pestir." Nú er öldin önnur of mikið af matvælum framleitt í landinu. Þjóðinni er mikill og alvarlegur vandi á höndum eins og sagt er vegna framleiðslu mjólkur og sauðfjárafurða langt umfram það sem selst á innanlandsmarkaði. Offramleiðsla matvæla er orðin eitt af höfuðvandamálum í þjóðar- búskapnum. Á meðan svo vindur fram hér á landi halda milljónir manna áfram að svelta í fátækum löndum. Eitt af þrem megin- verkefnum Háskóla Sameinuðu þjóðanna, sem nú hefur starfað í tvö ár eða svo, er matvælaskortur- inn í heiminum og mannfjölgunar- vandamál og þarf varla að minna á, að árið 1979, hið nýbyrjaða ár, er ár barnsins. Að útrýma hungri úr heimi Á Alþ. í fyrra ræddi þáv. hæstv. utanrrh. nokkuð um Þróunarstofn- un Sameinuðu þjóðanna í skýrslu sinni og sagði þá m.a.: „Enginn vafi leikur á, að Island á betur heima í hópi veitenda en þiggjenda þeirrar stofnunar, þótt alltaf megi finna hér í þessu fram- tíðarlandi þörf verkefni til að fjármagna." — Það má vel vera, að í þessum efnum sé við mikla fram- kvæmdaörðugleika að etja, en mér sýnist rík ástæða vera til þess að láta nú kanna þessi efni öll til þrautar. Fjarlægðir eru miklar og flutningskostnaður hár. Ég minnist þess úr gagnfræðaskóla fyrir 4 áratugum eða svo, að einn kennar- inn sagði m.a., að vísindamenn dreymdi um að gera allar fjar- lægðir að engu í framtíðinni. Vissulega hafa slíkir draumar kom- ið fram nú þegar að verulegu leyti miðað við það, sem þá var. Og enn styttast leiðir til stórra muna og hvers konar úrræði aukast í tækni- legum efnum svo að segja dag frá degi. Ef hinar efnaðri þjóðir ætla sér að ná því marki að útrýma hungri úr heiminum, verða leiðir að finnast til eins og ég nefndi áðan til þess að senda matvæli þangað sem þörfin er brýnust. Vitaskuld kostar það mikla peninga og einbeittan og samstilltan vilja, en viljinn er líka mikils virði. Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þessa till. nú, en mælast til þess við hæstv. forseta, þegar umr. verður frestað, að till. verði vísað til hv. allshn. Umr. (atkvgr.) frestað. Ogleyman- legt föstu- dagskvöld Stjömubíó hefur hafið sýning- ar á bandarísku myndinni „Thank God It's Friday“ (Guði sé lof, það er föstudagur). Myndin er frá Columbia-fyrirtækinu og lýsir atburðum föstudagskvölds f líflegu diskóteki. Leikstjóri er Robert Klane, framleiðandi er Rob Cohen, kvikmyndahandritið er eftir Barry Armyan Bernstein en Jamers Crabe stjórnaði kvik- myndatökunni. Hljómsveitin The Commodores sér að mestu leyti um tónlistina í myndinni. Með helstu hlutverkin í mynd- inni fara Jeff Goldblum, Andrea Donna Summcr að skemmta gest- um diskóteksins. Howard, Valerie Landsburg, Terry Nunn, Chick Vennera, Donna Summer og Mark Loniw. Á aðaldansstaðinn í plássinu streymir fólk á föstudagskvöldi. Allir eru í ævintýraleit, eða að minnsta kosti ástarleikjaleit, en árangurinn er misjafn. Atburðir kvöldsins hafa misjafnar afleið- ingar en fyrir flesta verður þetta ógleymanlegt föstudagskvöld. Kennarafélag Ölduselsskóla mótmælir fyrirhugaðri f jölgun í bekkjardefldum MORGUNBLAÐINU hefur borist opið bréf Kennarafélags Olduselsskóla til menntamálaráð- herra. Bréfið er svohljóðandi: Kennarafélagsfundur í Öldu- selsskóla í Reykjavík, haldinn 28.3. 1979, mótmælir harðlega fyrirætl- unum stjórnvalda um fjölgun í bekkjardeildum, frá því sem nú er. Sparnaðarráðstafanir ríkis og borgaryfirvalda að undanförnu hafa haft í för með sér, að í nýrri hverfum Reykjavíkur, t.d. Selja- hverfi, búa skólar við bæði hús- næðis- og tækjaskort og fjöldi nemenda í bekkjum fer jafnvel yfir 30. Með enn frekari sparnaði og fjölgun nemenda í bekkjardeildum myndi starfsaðstaða bæði kennara og nemenda versna að mun og enn fleiri skólar en nú búa við óviðun- andi ástand.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.