Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979 Svíþjóð: Stokkhólmi, 4. apríl, frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. Óhappið í kjarnorkuverinu í Harrisburg, Pennsylvaniu, getur haft mikil áhrif á stefnu Svía í kjarnorkumálum í framtíðinni. Ringhals 2, sem er sænskt kjarnorkuver sömu tegundar og í Harrisburg, hef- ur þegar verið stöðvað. Reglu- leg yfirferð af öryggisástæð- um var áætluð eftir nokkrar vikur en stjórn orkuversins hefur nú flýtt henni og talið er, að það geti dregizt að kjarnorkuframleiðslan hefjist að nýju í Ringhals 2. Fram til þessa hafa 6 kjarn- orkuver verið starfrækt í Sví- þjóð og 2 eru fullbúin til notkunar. Kjarnorkueftirlitið samþykkti fyrir nokkru eftir 12 tíma fundahöld með 8 at- kvæðum gegn 2 að framleiðsl- an gæti hafizt í hinum nýju, þó að ekki sé vitað, hvað gera skal við geislavirkan úrgang framleiðslunnar. Öðru nýju kjarnorkuveranna, Ringhals 3, svipar mjög til þess í Harris- burg og ríkisstjórnin hefur ákveðið að taka það ekki í notkun vegna háværra radda, sem nú hafa magnazt mjög gegn kjarnorku. Stefnubreyting hjá jafnaðarmönnum? Sænsk stefna um kjarnorku hefur að undanförnu fyrst og fremst snúizt um fjölda kjarn: orkuvera framtíðarinnar. í kosningabaráttunni 1976 var Miðflokkurinn eini flokkurinn sem mælti gegn allri kjarn- orkuframleiðslu og hann bætti miklu við fylgi sitt í kosning- unum. í stjórnartíð flokksins var þó 8. kjarnorkuverið full- gert, en deila innan stjórnar- innar um það, hvort hefja ætti framleiðslu í 7. og 8. verinu án þess að úrgangsvandinn væri leystur, sprengdi stjórn borg- arflokkanna í október sl. Áður en óhappið varð í Harrisburg voru íhaldsmenn, frjálslyndir og jafnaðarmenn ásáttir um að 12 kjarnorkuver skyldi Frá kjarnorkuverinu í Harrisburg, Pennsylvaniu. Nýju kjarnorkuveri Svía, Ringhals 3, svipar mjög til þessa kjarnorkuvers. starfrækt í framtíðinni en ekki fleiri. Meðal þeirra sem nú í vik- unni hafa krafizt þess að öll kjarnorkuframleiðsla í land- inu verði stöðvuð hafa verið þó nokkrir jafnaðarmenn. Þing- flokkur jafnaðarmanna mun ræða í vikunni stöðuna í kjarnorkumálum og Olof Palme, formaður flokksins, sagði á þriðjudag að ef áhætt- an við kjarnorkuframleiðslu reynist vera meiri en þeir héldu, yrði að stöðva hana. Rétt að bíða frekari frétta frá Harrisburg Thorbjörn Fálldin, formað- ur Miðflokksins, sagði í ræðu þegar um helgina, að stöðva ætti strax alla framleiðslu í Ringhals 2. Ola Ullsten, for- sætisráðherra, kvað rétt að bíða frekari frétta frá Harris- burg og dóms sérfræðings í kjarnorkumálum áður en nokkrar ákvarðanir yrðu tekn- ar. Hann gagnrýndi Fálldin fyrir að gera svo alvarlegan atburð sem þann í Harrisburg að flokkspólitísku máli svo umsvifalaust. Miðflokkurinn hefur undan- farið safnað undirskriftum þeirra sem krefjast þjóðarat- kvæðagreiðslu um kjarnorku- málin. Olof Johansson, fv. orkumálaráðherra flokksins, sagði á þriðjudag, að flokkur- inn væri tilbúinn að falla frá kröfu um þjóðaratkvæða- greiðslu, ef óhappið í Harris- burg verður til þess, að hinir stjórnmálaflokkarnir breyta stefnu sinni í orkumálum og fleiri kjarnorkuver verði aldr- ei starfrækt í Svíþjóð. Danir láta í sér heyra Eitt sænska kjarnorkuver- anna, Barsebeck, er á vestur- strönd Svíþjóðar í aðeins 20 km fjarlægð frá Kaupmanna- höfn. Þetta hefur vakið óró- leika meðal Dana eftir atburð- ina í Harrisburg. Samtök kjarnorkuandstæðinga, vinstri sinnaðri flokkarnir í danska þinginu og Ekstrabladet hafa hafið harða baráttu gegn kjarnorku, sem þó er ekki framleidd í Danmörku. Ekstrabladet hefur krafizt þess, að Barsebeck verði lagt niður og birti með mynd af beinagrind litlu hafmeyjunnar (höfuðkúpu og efri hluta beinagrindar, en síðan fiski- bein og sporður) undir fyrir- sögninni: „Stoppið dauðann frá Barsebeck". Á þriðjudag ræddi danska stjórnin kjarnorkuframleiðsl- una í Svíþjóð, en hefur ekki mótmælt henni formlega. Anker Jörgensen, forsætisráð- herra, sagði eftir fundinn að skoðanir dönsku stjórnarinnar skiptu minna máli en Svíanna sjálfra og benti á, að Barse- beck væri ekki ýkja fjarri Malmö, þriðju stærstu borg Svíþjóðar. Kjamorkan á erfiðara uppdrátt- ar eftir óhappið í Harrisburg Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sví- þjóð um kjamorku næsta vor Stokkhólmi, 5. aprfl 1979 frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. Jafnaðarmannaflokkurinn srieri í dag við blaðinu í orku- málum. Olof Palme, formaður flokksins, tilkynnti á blaðamannafundi, að flokkur- inn væri nú hlynntur þjóðar- atkvæðagreiðslu næsta vor um kjarnorku og hann teldi ekki rétt að gangsetja tvö nýfull- gerð kjarnorkuver, sem enn hafa ekki verið tekin í notkun. Hingað til hafa jafnaðarmenn eins og íhaldsmenn og frjáls- lyndir verið andvígir kröfu Miðflokksins og kommúnista um þjóðaratkvæðagreiðslu um kjarnorkuna. Stefnubreyting Jafnaðarmannaflokksins er í beinu framhaldi af óhappinu í kjarnorkuverinu í Harrisburg, Pennsylvaníu, sem hefur vakið mikirin ugg og umtal hér manna á meðal sem í öðrum löndum. Fram til þessa hafa jafnaðarmenn verið hlynntir kjarnorku og rökstutt stefnu sína með því, að orkukreppa og atvinnuleysi væri yfirvof- andi, ef framleiðslan legðist af. Nú vilja þeir að nefnd verði sett á laggirnar til að athuga enn betur en áður hefur verið gert, hvort öryggi við kjarn- orkuframleiðslu er fullnægj- andi og síðan eigi þjóðin að dæma í atkvæðagreiðslu um, hvort kjarnorka skuli fram- leidd hér áfram. Palme sagði í dag, að rétt væri að halda áfram skipulagningu nýrra vera, ef niðurstaðan yrði sú að framleiðslan sé nógu örugg til að henni verði haldið áfram. Ola Ullsten forsætis- ráðherra tilkynnti einnig í dag að ríkisstjórnin væri nú hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta ári. Ullsten var einnig á því, að sérstök nefnd skyldi kanna öryggi við kjarnorku- framleiðsluna. Formaður Miðflokksins, Thorbjörn Fálldin, fagnaði í dag nýrri stefnu jafnaðarmanna og frjálslyndra, en hann sagðist vera ósammála Palme um að rétt væri að halda áfram undirbúningi nýrra kjarn- orkuvera. Auk Miðflokksins lagði Vinstri flokkurinn, kommúnistar, fram tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í þing- inu fyrir nokkru, svo að Lars Werner form. flokksins hafði ekkert á móti stefnubreytingu jafnaðarmanna. Formaður íhaldsflokksins, Gösta Bohman, sem telur kjarnorku- framleiðslu í Svíþjóð nauðsyn- lega fyrir atvinnulíf landsins, sagði að flokkur hans mundi nú að sjálfsögðu samþykkja þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta ári eins og hinir flokkarnir. Hann gagnrýndi snögga stefnubreytingu Jafnaðarmannaflokksins og sagði hana eiga rætur sínar rekja til óróleika flokksins vegna yfirvofandi kosninga í haust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.