Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1979 13 INGI HRAFN HAUKSSON, sem margir munu kannast við fyrir athafnasemi á sviði skúlp- túr- og „relieflistar", hefur opn- að sýningu á 23 nýstárlegum relief-myndum á vinnustofu sinni sem hann nefnir Stúdíó nr. 5. Er þá höfðað til þess, að þetta er vinnustídíó hans og er staðsett að Skólastraeti nr. 5. Er undirritaður reit síðast um sýn- ingu frá hans hendi fann hann helst að myndunum, að þær væru ekki gerðar úr nægilega varanlegu efni. Ekki þarf ég að endurtaka þær aðfinnslur hér, því að Ingi vinnur nú í einu Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON sterkasta efni sem þekkist við gerð myndlistarverka eða Epoxy Kvarts. Ingi hefur mjög einfaldað myndstíl sinn frá því að hann sýndi síðast og gengur nú út frá ákveðnu þema, sem hefur yfir sér súrrealistískt yfirbragð. Form hlykkjast á ýmsa vegu um myndflötinn en hafa yfir sér ákveðinn skyldleika í hrynjandi. Einhvers staðar í hinu upp- hleypta formi staðsetur hann jafnan eggjalaga einingu, sem getur orsakað ýmsar vangavelt- ur hjá áhorfandanum. Þetta er líkast auga sem starir, en getur um leið táknað kviku mynd- heildarinnar hjarta hennar og hreyfiás eða jafnvel jóðið í verund formsins. Gerandinn málar formin með olíulit en þekur svo með glæru „polyester," með því nær hann áferð sem virkar glansandi og næsta óraunhæf, hefði .ég t.d. viljað sjá fleiri tegundir áferðar sem hefði aukið á fjölbreytnina og blæbrigðaríkdóminn. Eins og er virkar sýningin full einhæf við fyrstu skoðun og getur það bæði talist styrkur hennar og galli eftir því frá hvaða sjónar- horni er litið á málið. Hinn slétta bakgrunn tónar Ingi á þá veru að hann reynir að ná fram áferð vefnaðar en þá vandast málið því að voðin er að jafnaði mött og vinnur því hin gljáandi áferð á móti þeirri viðleitni. I heild sannfæra vinnubrögð Inga Hrafns meira en áður sakir .traustleika verkanna þótt það atriði sé víðs fjarri að skipta meginmáli í listinni. Hin gljá- andi áferð sem er það helsta er ég finn að í myndgerð hans, ásamt einhæfum og dálítið vafa- sömum litaskala, kann að mild- ast með árunum eins og víst er, að öll áferð myndlistarverka breytist með árunum, en mis- jafnlega mikið þó. Það er mikill þokki yfir húsnæðinu og minnir um margt á „Loftið" á Skólavörðustígnum, en er stærra og gefur meiri möguleika, — ekki er þó mein- ingin, að þetta verði sýningar- húsnæði til frambúðar, heldur býður Ingi Hrafn gestum og gangandi að líta inn á vinnu- stofu sína næstu tvær vikur. Framtakið er lofsvert og ber að þakka, og eins og ég hef margoft bent á þá hafa vinnu- stofusýningar yfir sér visst and- rúm, sem ekki er að finna í venjulegum sýningarsölum. Er óhætt að mæla með innliti til Inga Hrafns og ekki sakar, að húsnæðið er staðsett í hjarta borgarinnar bakvið hina frægu húsaröð Bernhöftstorfu. Frá sýningu Inga Hrafns í Stúdíói nr. 5. Sýning í Stúdíói nr. 5 Flutt kirkju- tónlist frá 5. og 9. öld LAUGARDAGINN 14. aprfl kl. 17.00 heldur franski tónlistar- maðurinn Jean Belliard tónleika í Bústaðakirkju á vegum Alliance Francaise. Jean Belliard stofnaði L’en- samble Guillaume de Machaut de Paris ásamt þeim Bernard Huneau, Guy Robert og Julien Skowron. Þeir félagar hafa allir langa reynslu í flutningi eldri tónlistar sem söngvarar og hljóð- færaleikarar. Ensemble Guillaume de Machaut hefur sérstaklega fengist við flutning kirkjulegrar og ver- aldlegrar miðaldatónlistar og leggja þeir í flutningi sínum áherslu á samruna texta og tón- listar. Hópurinn hefur þegar gefið út nokkrar breiðskífur og haldið fjölda tónleika í Evrópu og Ame- ríku. Jean Belliárd mun flytja kirkju- tónlist tengda páskum frá 5. og 9. öld með söng (alt rödd) og undir- leik á miðaldalútu. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Franski tónlistarmaðurinn Jean Belliard. Tófuskinnid á annan í páskum BALLETTINN Tófuskinnið var frumfluttur í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkru. Bailettinn samdi Marjo Kuusela sérstaklega fyrir íslenska dansflokkinn en verkið er byggt á smásögu eftir Guðmund G. Ilagalín. Sendiherra Sviss á íslandi látinn TILKYNNING hefur borist frá svissneska utanríkisráðuneytinu þess efnis, að Hans-Conrad Cram- er, sendiherra Sviss á íslandi, hafi látis 2. þessa mánaðar. Frá Utanríkisráðuneytinu. Ekki var unnt að hafa nema tvær sýningar á Tófuskinninu á dögunum vegna annarra sýninga leikhússins en nú hefur verið ákveðið að hafa sýningu á annan í páskum kl. 16. Á undan leikdansin- um mun Baldvin Halldórsson leik- ari flytja útdrátt úr sögu Hagalíns. Með stærstu hlutverk í Tófuskinn- inu fara Ásdís Magnúsdóttir sem dansar tófuna, Örn Guðmundsson sem fer með hlutverk bóndans og Helga Bernhard sem dansar bónda- konuna. Nanna Ólafsdóttir var danshöfundi og stjórnanda til aðstoðar á æfingum og hefur stjórnað æfingum á Tófuskinninu eftir brottför höfundar. elkomin í örumarkaóinn © Vörumarkaðuripn hf. Armúla 1a

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.