Morgunblaðið - 11.04.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
19
Veður
víða
um heim
Akureyri +2 snjóót
Amsterdam 16 skýjaö
AÞena 20 bjart
Barcelona 13 rigning
Berlín 15 sólskin
Brussel 16sólskin
Chicago 3 léttskýjaö
Frankfurt 14 sólskín
Genf 17 sólskin
Helsinki 4 léttskýjaö
Jerúsalem 16 skýjaó
Jóhannesarb. 26 sólskin
Kaupmannah. 5 sólskin
Lissabon 18 rigning
London 14 sólskin
Los Angeles 19 léttskýjaö
Madríd 18 skýjað
Malaga Mallorca 18 léttskýjaó
Miami * 27 skýjaö
Moskva 2 skýjaó
New York 5 léttskýjaó
Ósló 4 skýjaó
París 18 skýjað
Reykjavík Rio De Janeiro 0 léttskýjaó
Rómaborg 17 léttskýjaó
Stokkhólmur 5 sólskin
Tel Aviv 20 skýjað
Tókýó 20 sólskin
Vancouver 11 vantar
Vínarborg 12 sólskin
í stuttu máli
Páfi minnisf
kvöldmáltíðarinnar
Vatikaninu, 10. aprfl. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi mun við
hefðbundna messugjörð í Vati-
kaninu og fimmtudagskvöld þvo
fætur 12 manna sem eru andlega
vangefnir. A hverju ári er það
siður páfa að þvo fætur 12 manna
við messugjörð á skírdag til að
minnast hinztu kvöldmáitíðar-
innar er Kristur þó fætur læri-
sveina sinna. Áður hefur páfi
alltaf þvegið fætur 12 presta eða
annarra kirkjunnar manna, en nú
verða fyrir valinu veikir menn í
fyrsta sinn.
Metsölubók
Margrétar?
Toronto, 10. aprfl, AP.
BÓKSALAR víða í Kanada eru
vongóðir um að sjálfsævisaga
Margrétar Trudeaus, eiginkonu
forsætisráðherra Kanada, verði
metsölubók þar í landi. Bókin
hefur verið í hillum bókaverzl-
ana í tvo daga og hefur hún
runnið út eins og heitar lumm-
ur. í bókinni, sem nefnist Bey-
ond Reason, þykir Margrét lýsa
ýmsum einkamálum sfnum á
mjög opinskáan hátt.
Pundið sækir í
sig veðrið
London, 20. aprfl. Reutcr.
STERLINGSPUNDIÐ brezka
seldist fyrir 2,1047 Bandaríkja-
dali á gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu í dag, og hefur pundið
ekki verið dýrara frá því í sept-
ember 1975. Pundið hefur styrkst
verulega að undanförnu, og er
talið að því valdi einkum þær
vonir sem bundnar eru við að
Ihaldsflokkurinn sigri í komandi
þingkosningum í Bretlandi. Háir
vextir eru einnig taldir koma við
sögu.
Laker kaupir
Airbus
I,ondon 10. aprfl. AP.
FREDDIE Laker undirritaði í
dag samninga um kaup á tíu
farþegaþotum af Airbus-gerð.
Athöfnin fór fram að viðstöddum
fréttamönnum á Savoy-hótelinu í
Lundúnum og veifaði Laker víg-
reifur 250 milljón punda ávísun
fyrir ljósmyndara við athöfnina.
Laker sagði, að Airbusvélarnar
væru beztu vélar sinnar tegundar
sem hægt væri að fá.
45 skólaböm á
Spání drukkna
Zamora, Benavente, Spáni, 10. aprfl. AP—Reuter.
FJÖRUTÍU og fimm skólabörn týndu í dag lífi þegar rúta sem þau voru í
hafnaði út í vatnsmikilli á um 50 kflómetra fyrir norðan bæinn Zamora.
Tíu komust af lifandi úr slysinu.
í síðustu tilkynningum lögreglu segir að 45 skólabörn, fjórir kennarar og
ökumaður rútunnar hafi farist.
Rútan fór út af veginum í beygju og steyptist niður brekku út i vatnsmikla
og straumharða á. Þeir sem komust lífs af náðu að komast út um glugga sem
brotnuðu þegar rútan lenti í ánni. Svo skyndilega sökk bifreiðin hins vegar að
þeir sem fórust áttu sér ekki undankomu auðið.
Börnin voru á skólaferðalagi. Fyrir fjórum mánuðum fórust 30 nemendur
er rúta þeirra rakst á járnbrautarlest. Það slys varð ekki fjarri þeim stað þar
sem slysið í dag varð.
Nicaragua:
41 hefur fallið í
götubardögum
Managua. Nicaragua, 10. aprfl. AP.
HERMENN reistu í dag virki á
götum úti f bænum Esteli í norður-
hiuta Nicaragua í dag, en þar hafa
bardagar geisað í tvo sólarhringa.
Talið er að 41 hafi týnt lífi í þessum
átökum.
Anastasio Somoza forseti sagði í
dag, að herinn hefði nú bælt átökin
að mestu niður. Talið er að um 300
skæruliðar hafi tekið þátt í átökun-
um við um 100 manna lið hermanna.
Meðal þeirra sem hafa fallið í
átökunum eru óbreyttir bbrgarar,
skæruliðar og hermenn. Margir
óbreyttir hafa flúið borgina vegna
átakanna.
Pol Pot enn í Kambódíu
^ Bangkok, 10. aprfl. Reuter. AP.
ÚTVARPSSTÖÐ Rauðu khmer-
anna skýrði frá því í dag, að Pol
Pot væri enn í Kambódíu og
stjórnaði hann aðgerðum skæru-
liða sem ættu í útistöðum við
innrásarheri Víetnama.
Áður höfðu núverandi ráðamenn
Kambódíu tilkynnt, að Pol Pot
hefði flúið land og farið til Thai-
lands eftir að höfuðstöðvar hans í
Battambang hefðu verið eyðilagð-
ar. Stjórnvöld í Thailandi sögðu að
ekkert væri haft í þeim fréttum að
Pol Pot væri þar niðurkominn.
Skæruliðar hliðhollir Pol Pot
skýrðu frá því í dag, að innrásar-
herirnir hefðu gert harða sókn
gegn skæruliðunum við landa-
mæraborgina Poipet í dag. Notuðu
innrásarherirnir skriðdreka og
stórskotavopn í aðgerðum sínum.
Skæruliðarnir eru nú að hreiðra
um sig í fjalllendi við Poipet.
Þetta gerðist j
1978 — ísralsmenn hörfa frá
hluta Suður-Líbanons.
1975 — Bandarískir sendiráðs-
menn fluttir frá Phnom Penh og
kommúnistar taka borgina.
1972 — Þúsundir farast í jarð-
skjálfta í Suður-íran.
1953 — Fangaskipti í Kóreu.
1951 — Truman forseti leysir
MacArthur hershöfðingja frá
störfum.
1894 — Uganda verður brezkt
verndarríki.
1814 — Napoleon leggur niður
völd og rekinn til Elbu sam-
kvæmt Fontainebleau-samn-
ingnum — Loðvík XVIII verður
konungur.
1805 — Bretar og Rússar
stofna bandalag með St.
Pétursborgarsamningnum.
1689 — Vilhjálmur og Maria
krýnd konungur og drottning
Englands.
1677 — Ósigur Vilhjálms af
Óraníu við Kassel fyrir hertog-
anum af Orleans.
1564 — Stríði Englendinga og
Frakka lýkur með
Troyes-friðinum.
Afmæli. George Canning,
brezkur stjórnmálaleiðtogi
(1770-1827) - Manuel
Quintana, spænskt skáld
(1772-1857) - Ethel Kennedy,
ekkja Roberts Kennedys
(1928—).
Andlát. Sir Gerald Du Maurier,
leikari, 1934.
Innlent. Kóngsbænadagur 1702
— Þingforsetar koma af kon-
ungsfundi 1909 — Hannes
Hafstein í minnihluta í kosning-
um 1911 — „Valtýr" talinn af
með 30 mönnum 1920 — Ríkis-
stjórn falið konungsvald 1940 —
Stórhveli festist í kafhátagirð-
ingu í Seyðisfirði 1948 —
Frumvarp um kjördæmabreyt-
ingu lagt fram 1959 — Ishkov,
sjávarútvegsráðherra Rússa, í
heimsókn 1967 — d. Hallgrímur
Bachman læknir 1834 —
Sæmundur pr." fjörður 1395 —
Bjarni Sívertsen gerður riddari
af Dannebrog 1812.
Orð dag.sins. Heiðarlegur mað-
ur er göfugasta verk guðs —
Alexander Pope, enskt skáld
(1688-1744).
Óskarsverðlaun afhent Í51.sinn:
John
Wayne
þótti
eldhress
og við
góða
heilsu
við at-
höfnina.
Símamynd AP.
Athöfnin hefði orðið
lágkúra án Wayne
og Sir Laurence
HoIIywood, 10. marz. AP — Reuter.
ÓSKÁRSVERÐLAUN voru veitt í 51. skipti við hátíðlega athöfn í
kvikmyndaborginni miklu í gærkvöldi. Það er mál manna að
athöfnina hafi að þcssu sinni vantað þá stemmningu glaðværðar sem
einkennt hefur hana undanfarið. Hápunktur athafnarinnar var
afhending sérstakra heiðursverðlauna til leikarans fræga, Sir
Laurence Olivier, svo og þegar John Wayne afhenti verðlaun fyrir
beztu kvikmyndina.
Verðlaun fyrir beztan lcik að þessu sinni fengu þau Jane Fonda og
John Voight fyrir leik sinn í kvikmyndinni Coming Home. Sú mynd
hlaut einnig Óskar fyrir bezta handritið, en viðfangsefnið er tengt
stríðinu í Víetnam.
Kvikmyndin The Deer Hunter
var valin bezta mynd ársins 1978,
en myndin fjallar um örlög þriggja
stáliðnaðarmanna sem kvaddir
voru til þjónustu í Víetnam-strið-
inu. Myndin var tilefnd til níu
Óskars-verðlauna, en hlaut fimm.
Hlaut Christopher Walken verð-
iaun fyrir bezta leik í aukahlut-
verki, Michael Cimino hlaut Óskar
fyrir leikstjórn sína á myndinni,
og ennfremur halut myndin
verðlaun fyrir klippingu og hljóð-
upptöku.
Hópur manna efndi til mót-
mælastöðu fyrir utan tónlistar-
höllina sem Óskarsverðlaunaat-
höfnin fór fram í, vegna myndar-
innar The Deer Hunter. Sögðu
mótmælendur myndina fulla af
kynþáttafordómum og draga upp
ranga mynd af íbúum Víetnams.
Til átaka kom milli lögreglu og
mótmælenda og voru fjölmargir
teknir fastir og ásakaðir m.a. fyrir
tilræði við lögreglumann.
Auk þeirra verðlauna sem að
framan hafa verið nefnd halut
leikkonan Maggie Smith
Óskars-verðlaun sem bezta leik-
kona í aukahlutverki fyrir leik
sinn í „California Suite“. Lagið
Last Dance sem Donna Summer
söng í myndinni Thank God its
Friday, sem senn verður tekin til
sýninga í Stjörnubíói, hlaut
Óskars-verðlaun sem bezta lag í
kvikmynd 1978. Þá var franska
kvikmyndin „Upp með vasaklút-
ana“ valin bezta erlenda myndin.
Alls eru vertt ríflega 20 Óskars-
verðlaun við hverja athöfn fyrir
ýmsa þætti er snerta kvikmynda-
gerð. Athyglisvert þótti að kvik-
myndin Superman hlaut aðeins ein
verðlaun, en það voru sérstök
verðlaun sem veitt voru fyrir
tæknibrellur. Myndin Death on
the Nile sem sýnd var í Regn-
boganum fyrir skemmstu, hlaut
Óskars-verðlaun fyrir búninga.
John Wayne, sem er 71 árs, var
hinn hressasti við verðlaunaat-
höfnina, og var að sjá sem hann
væri talsvert grennri en fyrr.
Þegar Wayne sem hefur átt við
slæmt heilsufar að stríða tók til
við að afhenda verðlaun við at-
höfnina sagði hann: „Þetta er
bezta lyf sem maður getur hugsað
sér.“ Wayne sagði ennfremur að
Óskars-verðlaunin hefðu hafið
göngu sína á sama ári og hann
kom sjálfur til Hollywood, þ.e. árið
1928. „Við erum báðir nokkuð
veðurbarðir, en ætlum að láta að
okkur kveða talsvert lengur,
bætti Wayne við, við mikinn
fögnuð viðstaddra.
Ein stærsta stund verðlaunaat-
hafnarinnar var þegar Sir
Laurence Olivier tók við sérstakri
heiðursviðurkenningu úr hendi
Gary Grant fyrir framlag sitt til
kvikmynda á siðustu áratugum.
Sir Laurence var tilnefndur til
verðlauna að þessu sinni fyrir leik
sinn í myndinni The Boys from
Brazil. Margir samtimamenn Sir
Laurence telja að allur kvik
myndaleikur í dag sé veginn og
metinn út frá leik hans, slíkir séu
leikhæfileikar Sir Laurence.
Jon Voight og Jane Fonda í myndinni Coming Home.