Morgunblaðið - 11.04.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
29
Matthías Bjarnason um gengismuninn:
Sjómenn fái 200
milljónir króna
EITT elzta þingmálið, sem enn
er óafgrcitt, frumvarp til laga
um staðfestingu á bráðabirgða-
lögum frá 5. september sl. um
ráðstafanir vegna breytingar á
gengi íslenzkrar krónu (ráð-
stöfun gengismunar), kom til
annarrar umræðu í síðari deild
(neðri) sl. fimmtudag. Matthfas
Bjarnason fv. sjávarútvegs-
ráðherra, gagnrýndi seinagang
á afgreiðslu þessa máls, og
gerði grein fyrir breytingartil-
lögu, sem hann flytur ásamt 4
öðrum þingmönnum Sjálf-
stæðisflokks.
Breytingartillagan
Efnisatriði breytingartillög-
unnar eru þau, að áður en
kemur til skipta á því fé, sem
kemur á reikning ríksisjóðs
vegna gengismunar, skuli
greiða.
• 1) til lífeyrissjóðs sjómanna
175 m. kr. til að verðbæta
örorku- og lífeyrisgreiðslur og
aðrar tryggingarbætur.
• 2) til orlofshúsa sjómanna-
samtakanna 25 m. kr.
í samræmi við
fyrri afgreiðslur
M.Bj. rakti hliðstæða ráðstöf-
un fyrr á tíð, við ráðstöfun
gengismunar, bæði 1974 og 1975,
og því væri rangt að andæfa
þessari ráðstöfun vegna for-
dæmis 1978. Þá hafi óverulegar
birgðir sjávarafurða verið í
landinu, er gengi var breytt, en
öðru máli gegni nú. Ráðgert hafi
verið að 5800—6000 m. kr. kæmu
í gengismunarsjóð nú, en raunin
hafi orðið 7549 m. kr., eða
1600—1800 m. kr. meira. Það
væri því engin rausn þó 200 m.
kr. yrði varið til sjómanna,
lífeyrissjóðs og orlofshúsa. Núv.
sjávarútvegsráðherra hafi sagt
lífeyrissjóði sterkari nú en 1974.
Það væri rétt, á krónutölu litið,
en rangt, ef mælt væri á mæli-
kvarða verðbólgu og verðþróun-
ar. Þá hafi komið fram hug-
myndir um að þetta fé, sem
sjómönnum væri ætlað, færi til
öryggismala. Þau mál væru þörf
en féllu undir verkhlut útgerðar
og e.t.v. opinberrar lánsfjár-
mögnunar, en ættu ekki að
Matthías Bjarnason
fjármagnast af sjómönnum
sérstaklega.
M.Bj. sagði hvorki sig, sem
sjávarútvegsráðherra, né fyrir-
rennara sinn, Lúðvík Jósepsson,
hafa ráðstafað gengismuni,
nema með samþykki þings eða
ríkisstjórnar, enda væri ekki
rétt, að einn aðili, þó ráðherra
væri, hefði svo umfangsmikla
fjárráðstöfun með hendi.
Friðjón Þórðarson um þróunarstofnun:
Vorum fremur þiggj-
endur en veitendur
Hér fer á eftir þingræða
Friðjóns Þórðarsonar (S), er
hann mælti fyrir könnun á því
hvern veg ísiendingar gætu betur
en nú er komið til aðstoðar við
þróunarlönd, þar sem fæðu-
skortur er landlægur.
Ofíramleiðsla matvara hér
á landi
Till. er þess efnis, að Alþingi
álykti að fela ríkisstj. að kanna til
hlítar, hvort unnt sé að auka
stuðning við þróunarlönd á þann
veg, að íslenska ríkið kaupi bús-
afurðir af framleiðendum, svo sem
mjólkurduft og sendi þangað sem
þörfin er brýnust fyrir matvæli.
íslendingar gerðust aðilar að
sáttmála hinna Sameinuðu þjóða
19. nóv. 1946. Þeir hafa yfirleitt
getið sér gott orð á þeim vettvangi.
Þar hafa þeir haft nánasta
samvinnu við hinar Norðurlanda-
þjóðirnar. Stundum hafa menn velt
því fyrir sér, hvort setja ætti
ákveðin skilyrði um stærð og fólks-
fjölda þeirra þjóðlanda, sem óska
aðildar að Sameinuðu þjóðunum, en
þá hefur verið á það bent, að sumar
smáþjóðir hafi starfað vel í þeim
samtökum. Oftar en einu sinni hefi
ég heyrt tekið svo til orða á þeim
samstarfsvettvangi þjóðanna, að
rödd íslands mætti ekki vanta.
Hvort full meining býr að baki
slíkra yfirlýsinga skal ósagt látið.
A hitt ber okkur sjálfum að líta
hvort við rækjum þær skyldur, sem
þessi alþjóðlega samvinna leggur
okkur á herðar með þeim hætti, að
sæmilegt megi teljast.
A undanförnum árum hefur
nokkrum sinnum verið vikið að
þessu atriði, einkum í umr. þeirri,
sem spunnist. hefur út af skýrslu
utanrrh. til Alþ. einu sinni á ári.
Svo sem kunnugt er hafa íslending-
ar einnig tekið þátt í störfum
ýmissa sérstofnana Sameinuðu
þjóðanna, ekki síður sem þiggjend-
ur en gefendur. Þannig fékk Island
að jafnaði 200 þús. dala framlag
árlega frá Þróunarstofnun
Sameinuðu þjóðanna á árunum
1972—1976, að ég ætla. Fé þetta
rann til margþættra verkefna, sem
aðkallandi voru á ýmsum sviðum
þjóðlífsins, svo sem málmleitar,
ferðamála, útflutningsstarfsemi
iðnaðarins, lax- og silungsrann-
sókna, fiskvinnslu, landbúnaðar-
rannsókna o.s.frv. En seinna kom á
daginn, að styrkir Þróunarstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna voru fyrst
og fremst ætlaðir hinum fátækari
þróunarlöndum. Ljóst varð, að
mjög hallaðist á, því að ásókn
okkar í þetta fé vóg miklu þyngra
en framlag okkar til fátækra þjóða.
Aðstoð íslands
við Þróunarlöndin
Löggjöf um aðstoð íslands við
þróunarlöndin var samþ. á Alþ. 23.
mars 1971. Tilgangur þeirrar lög-
gjafar er m.a. samkv. 4. tölul. 2. gr.
að vinna að því að framlög íslend-
inga í þessu skyni, þ.e. til þróunar-
landanna, nái sem fyrst því marki,
er samþykkt hefur verið á þingi
Sameinuðu þjóðanna, að þau nemi
1% af þjóðartekjum. Það munu að
vísu vera fá þjóðríki, sem hafa náð
settu marki. Árið 1976 var Svíþjóð
talin vera hið eina en mörg ríki
voru þá komin yfir xk%, m.a.
Offram-
leidsla
matvæla
og hungur
í heimi
Noregur. En Island var mjög aftar-
lega í röðinni með aðeins 1 pró mil,
1 af 1000, e.t.v. samkv. reglunni
sælla er að gefa en þiggja með
neikvæðu forteikni.
íslendingar eru aðilar að FAO,
matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna. Sú stofnun
hefur sett sér það takmark að
útrýma hungri úr heiminum. Það
er vitað að á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna haustið 1960
var gerð samþykkt þess efnis, að
nýta bæri umframframleiðslu mat-
væla í heiminum meðal þróuðu og
ríku landanna til að stuðla að
framförum á sviði efnahags og
félagsmála í fátækum löndum. Það
munu víst flestir viðurkenna, að
takmarkið um útrýmingu hungurs
er enn fjarlægt, en að því verður að
Friðjón Þórðarson, alþingis-
maður.
stefna og þá hlýtur það að skipta
meginmáli að finna hagkvæmustu
leiðir til þess að koma fæðunni
þaðan sem meira en nóg er til af
henni þangað sem fæðuskortur eru
og fólkið lifir við hungurmörkin.
Skortur hérlendis
skammt að baki
Ekki þarf að fletta spjöldum
Islandssögunnar lengi til þess að
komast að raun um, að íslensk þjóð
hefur haft náin kynni af harðæri og
hungri á liðnum öldum. Jafnvel þau
héruð landsins, sem hvað best voru
sett að þessu leyti, hvað matbjörg
snerti, fóru ekki varhluta af
kynnum við hungurvofuna. Hinn
sögufróði sýslumaður Dalamanna,
Þorsteinn Þorsteinsson, skrifar svo
m.a.:
„Sjaldan varð mannfellir í Dala-
sýslu af harðæri og aldrei á Skarðs-
strönd eða Fellsströnd, en þangað
sóttu uppflosningar og vergangs-
menn að hvaðanæva, einkum úr
Norðurlandi. Var þá oft þröngt
fyrir dyrum á Ströndum. Margt
þessara þurfamanna hélt fram um
eyjar og til veiðistöðvanna í
Bjarneyjum og Oddbjarnarskeri.
Sultur svarf oft fast að í suðursýsl-
unni og Saurbæ, eihkum eftir fjár-
pestir."
Nú er öldin önnur of mikið af
matvælum framleitt í landinu.
Þjóðinni er mikill og alvarlegur
vandi á höndum eins og sagt er
vegna framleiðslu mjólkur og
sauðfjárafurða langt umfram það
sem selst á innanlandsmarkaði.
Offramleiðsla matvæla er orðin eitt
af höfuðvandamálum í þjóðar-
búskapnum. Á meðan svo vindur
fram hér á landi halda milljónir
manna áfram að svelta í fátækum
löndum. Eitt af þrem megin-
verkefnum Háskóla Sameinuðu
þjóðanna, sem nú hefur starfað í
tvö ár eða svo, er matvælaskortur-
inn í heiminum og mannfjölgunar-
vandamál og þarf varla að minna á,
að árið 1979, hið nýbyrjaða ár, er ár
barnsins.
Að útrýma
hungri úr heimi
Á Alþ. í fyrra ræddi þáv. hæstv.
utanrrh. nokkuð um Þróunarstofn-
un Sameinuðu þjóðanna í skýrslu
sinni og sagði þá m.a.:
„Enginn vafi leikur á, að Island á
betur heima í hópi veitenda en
þiggjenda þeirrar stofnunar, þótt
alltaf megi finna hér í þessu fram-
tíðarlandi þörf verkefni til að
fjármagna." — Það má vel vera, að
í þessum efnum sé við mikla fram-
kvæmdaörðugleika að etja, en mér
sýnist rík ástæða vera til þess að
láta nú kanna þessi efni öll til
þrautar. Fjarlægðir eru miklar og
flutningskostnaður hár. Ég minnist
þess úr gagnfræðaskóla fyrir 4
áratugum eða svo, að einn kennar-
inn sagði m.a., að vísindamenn
dreymdi um að gera allar fjar-
lægðir að engu í framtíðinni.
Vissulega hafa slíkir draumar kom-
ið fram nú þegar að verulegu leyti
miðað við það, sem þá var. Og enn
styttast leiðir til stórra muna og
hvers konar úrræði aukast í tækni-
legum efnum svo að segja dag frá
degi.
Ef hinar efnaðri þjóðir ætla sér
að ná því marki að útrýma hungri
úr heiminum, verða leiðir að
finnast til eins og ég nefndi áðan til
þess að senda matvæli þangað sem
þörfin er brýnust. Vitaskuld kostar
það mikla peninga og einbeittan og
samstilltan vilja, en viljinn er líka
mikils virði.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð
um þessa till. nú, en mælast til þess
við hæstv. forseta, þegar umr.
verður frestað, að till. verði vísað
til hv. allshn.
Umr. (atkvgr.) frestað.
Ogleyman-
legt föstu-
dagskvöld
Stjömubíó hefur hafið sýning-
ar á bandarísku myndinni
„Thank God It's Friday“ (Guði sé
lof, það er föstudagur). Myndin
er frá Columbia-fyrirtækinu og
lýsir atburðum föstudagskvölds f
líflegu diskóteki. Leikstjóri er
Robert Klane, framleiðandi er
Rob Cohen, kvikmyndahandritið
er eftir Barry Armyan Bernstein
en Jamers Crabe stjórnaði kvik-
myndatökunni. Hljómsveitin The
Commodores sér að mestu leyti
um tónlistina í myndinni.
Með helstu hlutverkin í mynd-
inni fara Jeff Goldblum, Andrea
Donna Summcr að skemmta gest-
um diskóteksins.
Howard, Valerie Landsburg, Terry
Nunn, Chick Vennera, Donna
Summer og Mark Loniw.
Á aðaldansstaðinn í plássinu
streymir fólk á föstudagskvöldi.
Allir eru í ævintýraleit, eða að
minnsta kosti ástarleikjaleit, en
árangurinn er misjafn. Atburðir
kvöldsins hafa misjafnar afleið-
ingar en fyrir flesta verður þetta
ógleymanlegt föstudagskvöld.
Kennarafélag
Ölduselsskóla
mótmælir
fyrirhugaðri
f jölgun í
bekkjardefldum
MORGUNBLAÐINU hefur borist
opið bréf Kennarafélags
Olduselsskóla til menntamálaráð-
herra. Bréfið er svohljóðandi:
Kennarafélagsfundur í Öldu-
selsskóla í Reykjavík, haldinn 28.3.
1979, mótmælir harðlega fyrirætl-
unum stjórnvalda um fjölgun í
bekkjardeildum, frá því sem nú er.
Sparnaðarráðstafanir ríkis og
borgaryfirvalda að undanförnu
hafa haft í för með sér, að í nýrri
hverfum Reykjavíkur, t.d. Selja-
hverfi, búa skólar við bæði hús-
næðis- og tækjaskort og fjöldi
nemenda í bekkjum fer jafnvel
yfir 30.
Með enn frekari sparnaði og
fjölgun nemenda í bekkjardeildum
myndi starfsaðstaða bæði kennara
og nemenda versna að mun og enn
fleiri skólar en nú búa við óviðun-
andi ástand.