Morgunblaðið - 11.04.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1979
5
„Sjö þúsund fleiri
fengu hitaveitu en
orkuráðherra segir”
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi bréf frá Jóhannesi
Zoéga hitaveitustjóra:
„í Morgunblaðinu s.l. sunnudag,
9. apríl, er haft eftir iðnaðar- og
orkuráðherra á Alþingi að á
árunum 1971 til 1978 hafi 45.910
íbúar landsins fengið hitaveitu,
þar af 29.200 íbúar hjá Hitaveitu
Reykjavíkur.
Þar sem hér hefur augsýnilega
einhversstaðar slæðst inn veruleg
villa, þykir rétt að koma leiðrétt-
ingu á framfæri.
í.árslok 1978 voru 111.145 íbúar
taldir í húsum tengdum Hitaveitu
Reykjavíkur. í árslok 1970 voru
þeir 76.603. Fjölgunin hefur því
numið 34.542 íbúum. Rúmmál
tengdra húsa hjá H.R. hefur á
sama tíma aukist úr 12.038 þús.
rúmmetrum í 21.531 þús. rúm-
metra eða um 9.493 þúsund rúm-
metra.
Ef notuð er tala ráðherra um
olíunotkun, 13 lítrar á hvern rúm-
metra á ári, sem ekki er of há
samkv. nýlega gerðri athugun víða
um land, þá er árlegur olíu-
sparnaður þeirra húsa sem tengd
hafa verið Hitaveitu Reykjavíkur
einni á þessu tímabili, 1971—1978,
um 123,4 milljónir olíulítra á ári.
í ofangreindum tölum er ekki
meðtalin fjölgun íbúa á svæðum
Hitaveitu Mosfellshrepps, sem fær
vatn frá Hitaveitu Reykjavíkur, en
þar mun íbúum hafa fjölgað um
1500 á tímabilinu. Ekki virðist
þeirrar fjölgunar getið í ræðu
ráðherra.
Ef tillit er tekið til þessara
leiðréttinga, hafa nær 7000 fleiri
íbúar landsins fengið hitaveitu á
tímabilinu 1971—1978 en greint er
í frásögn af ræðu orkuráðherra í
ofangreindri Morgunblaðsgrein."
Arlegt kirkjukvöld Bræðra-
félags Dómkirkjunnar
BRÆÐRAFÉLAG Dómkirkjunn-
ar heldur árlegt kirkjukvöld í
Dómkirkjunni í Reykjavík á
morgun, skírdag kl. 8.30 e.h.
Að þessu sinni er efnisskrá
kvöldsins í umsjá félaga úr Frí-
múrarareglunni á Islandi.
Sigurður ísólfsson organisti leikur
lag eftir Þórarin Guðmundsson og
séra Þórir Stephensen flytur
ávarp í upphafi kvöldsins.
Inngangsorð flytur Gunnar J.
Möller hæstaréttarlögmaður en
áður leikur Jónas Dagbjartsson
„Have pity Sweet Eyes“, aríu eftir
Mirha Elman, á fiðlu við undirleik
Sigurðar Isólfssonar organista.
Kristinn Hallson óperusöngvari
syngur aríu eftir Mozart við
undirleik Sigurðar ísólfssonar og
Stefán Bogason læknir flytur er-
indi um trúna. Kristinn Bergþórs-
son syngur „Ég kveiki á kertum
mínum" við undirleik Sigurðar
ísólfssonar og því næst flytur Esra
Pétursson læknir erindi sem
nefnist „Daglegt brauð og brauð
lífsins". ívar Helgason syngur
„Bæn“ eftir Þórarin Guðmundsson
við undirleik Sigurðar Ísólfssonar,
Sigurgeir Guðmundsson fv. skóla-
stjóri flytur erindi „I dymbilviku"
og því næst syngur Sigurður
Björnsson óperusöngvari
„Allsherjar Drottinn“ eftir Cæsar
Frank. Séra Þórir Stephesen dóm-
kirkjuprestur fer með bæn í lokin
og sunginn verður sálmurinn „Son
Guðs ertu með sanni“. Útspil,
„Liðinn er dagur" eftir Pál Isólfs-
son, leikur Sigurður Isólfsson
organisti.
Öllum er heimill aðgangur að
kirkjukvöldi Bræðrafélags
Dómkirkjunnar.
Hvammshreppi gefíð hús
Lóransstöðvarinnar
Litla-Uvammi. 10. aprfl.
Á FUNDI hreppsnefndar
Hvammshrepps síðastliðinn
fimmtudag lagði oddviti
fram gjafarbréf fyrir lórans-
stöðvarhúsinu á Reynisfjalli
undirritað af póst- og síma-
málastjóra, Jóni Skúlasyni,
þar sem hann afhendir fyrir
hönd póst- og símamála-
stjórnar Hvammshreppi hús-
ið án nokkurrar kvaða til
eignar.
Sem kunnugt er hefur hús-
ið staðið ónotað á annað ár
eða síðan starfsemi lóran-
stöðvarinnar var hætt hinn
29. desember 1977. Húsið er
allt á einni hæð, um 360
fermetrar að flatarmáli og
hið vandaðasta að allri gerð.
— Sigþór.
Hundrað og tólf
emir um áramótin
HAFERNIR voru alls 112
talsins hér á landi um síðustu
áramót, samkvæmt upplýsing-
um sem Morgunblaðið hefur
fengið frá Fuglaverndunarfélagi
íslands. Af þessum 112 örnum
voru 67 fullorðnir, 29 ungir
ernir, og 10 ungar komust úr sjö
hreiðrum árið 1978. Óvíst er um
aldur á 6 örnum.
í vetur fannst særður haförn
skammt frá bænum Haga á
Barðaströnd, og drapst hann
þar nokkrum vikum síðar.
þrátt fyrir að hann íengi góða
aðhlynningu. Hafi ernir verið
112 hér á landi um áramótin
eru þeir því væntanlega einum
færri núna.
Ljósm: Emilía.
Árið 1978 gerðu 12 pör tilraun
til þess að verpa, svo að öruggt
megi telja, en varp misfórst í
sumum hreiðrunum af ýmsum
orsökum, enda er haförninn með
viðkvæmustu varpfuglum lands-
ins, og þolir hann illa að verða
fyrir styggð á meðan hann
liggur á og þar til ungarnir eru
um tveggja vikna gamlir. Mest
vanhöld reyndust á stöðum
nálægt æðarvarpi og þangskurði
að sögn stjórnar Fugla-
verndunarfélagsins.
Stjórn Fuglaverndunarfélags
Islands hefur beint þeirri ósk til
landsmanna, „að taka vel á móti
örnum sem fara að nema land,
minnugir þess að fram til 1900
voru um 200 pör af örnum
dreifðir um allt land, en ekki
finnast skýrslur um að á þeim
öldum hafi örninn valdið tjóni.“
simi: 27211
Austurstræti 10