Morgunblaðið - 04.05.1979, Síða 31

Morgunblaðið - 04.05.1979, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1979 31 Fara fyrstu leikirnir frai n á mölim ni? Astand grasvalla aldrei jafn slæmt og nú — VELLIRNIR í Laugardalnum komu þokkalega undan snjó, en kuldakastið að undanförnu gerir það að verkum að varla verður hægt að leika knattspyrnu á grasi í maímánuði hér í Reykja- vík, sagði Baldur Jónsson vallar- stjóri er Mbl. ræddi við hann í gær um ástand knattspyrnuvall- anna í Reykjavík. — Þetta er alveg voðalegt ástand, hélt Baldur áfram. Þetta hefur ekki gerst í þau 20 ár sem Laugardalsvöllurinn hefur verið í notkun. Við urðum að fresta vormóti ÍR vegna þess að sandur- inn í stökkgryfjunum var hálf- frosinn og útilokað er að vera að kasta áhöldum á grassvörðinn í þessu ásigkomulagi. Rubtan- brautin kemur vel frá vetrinum. þannig að hún er tilbúinn til notkunar. — Við megum vera lánsamir ef okkur tekst að leika landsleikinn við Vestur-Þjóðverja 26. maí á Laugardalsvellinum, sagði Baldur. — Enn einu sinni verður það gamli góði Melavöllurinn sem verður að leika á fyrstu leikina. Hann er í mjög góðu ásigkomulagi og ekkert til fyrirstöðu með að hefja íslandsmótið þar, sagði Baldur. Fyrstu leikirnir í íslandsmótinu eiga að fara fram 11. og 12. maí, og allt útlit er fyrir að allan maímán- uð verði leikið á möl. Á Akureyri er ástandið mjög slæmt, hefur reyndar aldrei verið verra, og mikil hlýindi verða að koma áður en grasvöllurinn þar fer að taka við sér. Jónas Traustason vallarstjóri hins fullkomna grasvallar í Kópa- vogi sagði að leikið yrði á gras- vellinum þar 11. maí, þá leika UBK og Selfoss í 2. deild. — Við hófum að kynda völlinn fyrir páska. Það er að segja að við hleyptum heitu vatni í pípurnar undir vellinum og vorum við búnir að ná öllu frosti úr vellinum um páskaleytið. Nú í þessu kuldahreti höfum við hlífðarteppi á vellinum, og það verndar hann vel fyrir kuldanum, jafnframt því sem hit- ínn er stöðugt á. Þannig á ekkert að vera að vanbúnaði þegar Is- landsmótið hefst, sagði Jónas að lokum. - þr. KA vann BIKARKEPPNI Knattspyrnu ráðs Akureyrar er nýlega lokið. Úrslit urðu þau að KA bar sigur úr býtum, vann Þór 4:2 og Magna frá Grenivík 7:1 en í keppni um 2. sætið vann Magni Þór óvænt 2:0. Ársþing HSÍ ÁRSÞING Ilandknattleikssam- bands íslands verður haidið í Reykjavfk dagana 8. og 9. júní 1979. Fundarstaður verður aug- lýstur síðar. HSÍ. Áhugamenn(I) sigruöu ÍTALIR unnu stórsigur á Grikkjum f undankeppni Ólympíukeppninnar í knatt- spyrnu. Ítalía vann 4—0, eftir að staðan f hálfleik hafði verið 2-0. Pietro Fanna skoraði fyrst á 6. mfnútu og Bruno Giordanno bætti öðru við á 21. mfnútu. Salvatore Bagni skoraði sfðan á 83. mfnútu og Giordanno sitt annað mark mfnútu sfðar. Eitt- hvað virðist vera að gefa sig áhugamannareglan varðandi ólympfuleikana, en aliir eru markaskorarar ftalska liðsins kunnir ieikmenn með 1. deildar liðum á ítalfu og eru það sann- ariega engir áhugamenn f fþrdttinni. Tap hjá Feyenoord Portúgalska knattspyrnu- landsliðið lék f fyrrakvöld sinn annan leik á skömmum tfma gegn hollenska félaginu Feye- noord. Síðast var leikið í Rotter dam, en nú f Lissabon. Fyrri leiknum lauk með 1—0 sigri Portúgaia og sömu tölurn ar lltu dagsins ljós í síðari leiknum í fyrrakvöld. Portúgal- irnir eru með þessu að búa sig undir komandi landsleik gegn Norðmönnum 9. maí næstkom- andi. Alves skoraði eina mark leiksins úr vitaspyrnu á 57 mínútu. Thelma Björnsdóttir og Ágúst Ásgeirsson með verðlaun sín iyrir Eyrarbakkahlaupið. Thelma og Ágúst fyrst í Eyrar- bakkahlaupinu Ágúst Ásgeirsson ÍR og Thelma Björnsdóttir UBK sigruðu í flokkum karla og kvenna í Eyrarbakkahlaupinu sem háð var á Eyrarbakka fyrsta dag maf-mánaðar. Fór hlaupið fram við lítt ákjósanlegar aðstæður, hávaðarok og lágt hitasig. Keppendur létu þó aðstæður lítt á sig íá, enda hefð að hlaupið fari fram þennan dag. Athygli vakti Birgitta Guðjónsdóttir, ung stúlka frá Eyrarbakka. en hún fylgdi Thelmu lengi vel eftir og var ekki svo ýkja langt á eftir í mark þegar haft er í huga að Thelma hefur verið yfirburðamanneskja i víðavangshlaupunum í vetur. Eyrarbakkahlaupið hófst á bátabryggjunni á Eyrarbakka og eftir á hlaupinn hafði verið hringur um bæinn, en m.a. var farið fram hjá Litla Hrauni, lauk hlaupinu við kirkju Eyrbekkinga. Ekki er ósennilegt að Eyrarbakkahlaupið sé eina frjálsfþróttakeppnin á landinu sem hefst á fiskiskipabryggju, og bendir það til þess að óvíða séu tengsl fþrótta og brauðstritsins nánari. Úrslitin í hlaupinu urðu annars: Karlar: mín. 1. Ágúst Ágeirsson, ÍR 13.39 2. Steindór Tryggvason, KA 14.34 3. Þórarinn Sveinsson, HSK 15.40 4. Ingvar Garðarsson, HSK 15.50 5. Sigurjón Andrésson, ÍR 16.25 Konur: mín. 1. Th'elma Björnsdóttir.UBK 9.05 2. Birgitta Guðjónsdóttir, HSK 9.25 3. Agnes Sigurðard., HSK 10.52 Piltar: mfn. 1. Ari Thorarensen, HSK 9.24 2. Brynjar Birgisson, HSK 9.28 3. Ævar Österby, HSK 10.09 • Þessi mynd Sigurgeirs Jónassonar í Vestmannaeyjum er úr íyrri leik Þórs og IIK. Einn Þórara svíiur inn í vítateig IIK og skorar. Það dugði ekki til og Þór tapaði 15—18. HK - Þór í kvöld IIK OG ÞÓR úr Vestmannaeyjum leika síðari leik sinn um lausa sætið í 1. deild að Varmá í Mosfellssveit í kvöld og hefst leikurinn klukkan 20.00. Fyrri leik liðanna. sem fram fór í Eyjum fyrir fáum dögum. lauk með sigri IIK. 18—15. Kópavogsliðið á því alla möguleika á að trvggja sér sætið örugglega ef rétt er á spilunum haldið. Allt getur þó að sjálfsögðu gerzt. Sýnikennsla Frakkanna FRAKKAR unnu algeran yfirburðasigur á Bandarfkjamönnum í vináttulandsleik í knattspyrnu sem fram fór vestra í fyrrakvöld. Skoruðu Frakkar 6 mörk gegn engu. staðan var 4—0 í hálfleik og var sigurinn síst of stór miðað við gang leiksins. Frakkar settu 5 varamenn inn á f sfðari hálfleik og tóku þá Iffinu frekar með ró. St. Etienne-leikmaðurinn Bernard Lacombe var á skotskónum í fyrri hálfleik. skoraði þá þrjú af 4 mörkum liðsins. Fjórða markið var sjálfsmark Don Droege. Loic Amisse bætti 5. markinu við á 60. mínútu og Didier Six rak smiðshiiggið á ágætt dagsverk með því að skora fallegasta mark leiksins á 72. mfnútu. Aukaleikur UMFA og Stjörnunnar Við vorum allir sammála um að eðlilegt væri að Stjarnan og Afturelding lékju annan leik. sagði IlSÍ-maðurinn ólafur Aðalsteinn Jónsson í spjalli við Mbl. í gær, er hann var inntur eftir útkomu fundar IISÍ um hvað gera skyldi í máli UMFA og Stjörnunnar. Scm kunnugt er varð Stjarnan í næstneðsta sæti. 2. deildar og Afturelding varð næstefst í 3. deild. Þá voru leiknir tveir aukaleikir. Stjarnan vann á sfnum heimavelli 25 — 23, en sfðari leikinn vann UMFA 15 — 13. Þar sem markatala var jöfn. álitu Mosfellingarnir að þeir hefðu sigrað á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Af sömu ástæðu. þ.e. að markatalan var jöfn. töldu Stjörnumrnn að leika yrði þriðja lcikinn og HSÍ reyndist því sammála. Þriðji leikur liðanna fer fram f Laugardalshöllinni á morgun og hefst hann klukkan 14.00. — Kg. Afrekaskrá UIA merkileg heimild UNGMENNA- og Iþróttasamband Austurlands hefur sent frá sér í riti einu afrekaskrá í frjálsíþróttum. handbolta. glímu. fótbolta. körfubolta. sundi og skfðum. Auk afrekaskránna eru í ritinu greinar um afreksfólk sambandsins. um sögu sundíþróttarinnar sem keppnisíþróttar á Austurlandi. metaskrár. mótaskrár. meistaraskrár. o.s.frv. Ritið. sem er merkilegt heimildarit. vann Guðmundur Gíslason nemandi við íþróttaskólann að Laugarvatni, en Stefán Þorleifsson sá um gagnasöfnun í sambandi við sundið og Hafsteinn Danfelsson skólabróðir Guðmundar myndskreytti frjálsíþrótta- og sundskrána. Ilermann Níelsson formaður UÍA fylgir afrekaskránni úr hlaði með nokkrum orðum. Þar segir hann m.a.: „Afrekaskrá sú sem nú lítur dagsins Ijós ber merki ákveðinnar þróunar sem átt hcfur sér stað innan ungmenna- og íþróttasambands Austurlands síðustu árin í áttina að því hlutverki sem UÍA var ætlað í öndverðu og stendur enn. Austfirðingar hafa löngum átt keppnisfólk í fremstu röð í ýmsum íþróttagreinum og er þessu riti ætlað að gefa gleggri mynd af því hverjir hafa skarað framúr í íþróttum hverju sinni." — ágás. W

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.