Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ1979 12 Islendingar í atvinnuknattspymu Jóhannes fer frá Celtic en Arnór líklega áfram hjá Lokaren TÓLF íslenzkir knattspyrnumenn leika nú með liðum í 1. og 2. deild erlendis eða nánar tiltekið í 6 löndum. Af þessum 12 knattspyrnumönnum eru 7 atvinnumenn en 5 hálfatvinnumenn. Samningar tveggja atvinnumannanna renna út núna í vor, Jóhannesar Eðvaldssonar, sem leikur með Celtic í Skotlandi og Arnórs Guðjohnsen, sem leikur með Lokaren í Belgiu. Jóhannes er ákveðinn í þvf að hætta hjá Celtic og leita á önnur mið en Arnór mun væntanlega endurnýja samning sinn við Lokaren. Eftirtaldir knattspyrnumenn aldrei sPilað betur en nu 1 vetur- því að hætta hlá liðinu °8 ætla leika með erlendum liðum: Belgía: Ásgeir Sigurvinsson, Standard Liege, Arnór Guðjohn- sen, Lokaren, Karl Þórðarson, La Louviere, Þorsteinn Bjarna- son, La Louviere. Holland: Pétur Pétursson, Feyenoord. Skotland: Jóhannes Eðvaldsson, Celtic. Kanada: Guðgeir Leifsson, Ed- monton Drillers. Svíþjóð: Teitur Þórðarson, Öster, Árni Stefáns- son, Jönköping, Jón Pétursson, Jönköping, Eiríkur Þorsteinsson, Grimsás. Danmörk: Atli Þór Héðinsson, Herfölge. Sjö fyrst nefndu leikmennirn- ir eru atvinnumenn, hinir hálf- atvinnumenn. Hafa áhuga á Jóhannesi — Ég er ákveðinn í því að hætta hjá Celtic í vor, sagði Jóhannes Eðvaldsson, þegar Mbl. sló á þráðinn til hans á laugardagsmorguninn. Ég er bú- inn að vera hérna í 4 ár og vil breyta til. Celtic vill hins vegar ekki sleppa mér, því að ég hef Nokkur lið í Hollandi og Belgíu og eins í Englandi hafa spurst fyrir um mig en Celtic heldur mér í svo háu verði að ekkert hefur orðið úr sölu. Helst vildi ég flytja mig yfir á meginlandið og Skoraði gegn belgíska með málið í hart ef þeir neita mér um sölu. Ég hef unnið til allra helztu verðlauna hér í Skotlandi og vil breyta til. leika þar. Mbl. hefur fregnað að Celtic setji 200 þúsund sterlingspund upp fyrir Jóhannes, eða um 150 miiljónir, en hann er nú 28 ára gamall. Jóhannes hefur verið einn albezti maður Celtic í vetur og nýlega var hann valinn „leik- maður apríl" af viský-firma og fékk gallon af viskýi í verðlaun. Þá kom Jóhannes til greina í kjöri Knattspyrnumanns Skot- lands á dögunum. Celtic á mikla möguleika á því að verða skozk- ur meistari. Liðið leikur til úrslita við Rangers næsta miðvikudag og verður Jóhannes með í þeim leik, en hann hefur átt við meiðsli að stríða undan- farið og ekki leikið með Celtic. — Það væri gaman að kveðja Celtic sem meistari, en ég er ákveðinn í landsliðinu Hinn kornungi knattspyrnu- maður Arnór Guðjohnsen, 17 ára hefur staðið sig mjög vel með belgíska liðinu Lokaren í vetur. Allar líkur eru á því að hann endurnýi samning sinn við félagið, en samningaviðræður hafa staðið yfir. í vikunni lék Lokaren við belgíska landsliðið og vann það 6:4. Þetta var ágóðaleikur fyrir ungan knatt- spyrnumann, sem lamaðist. Með Lokaren léku sem lánsmenn Rob Rensenbrink og Ari Haan og skoraði Arnór eitt mark eftir sendingu frá Haan. Bæði Jóhannes og Arnór leika með íslenzka landsliðinu gegn Sviss 22. maí og þann leik munu einnig leika þeir Ásgeir Sigur- vinsson og Pétur Pétursson. MORGUNBLAÐIÐ spurði Ingólf Ingólfsson, forseta Farmanna- og fiskimannasambands íslands, að þvf í dag, hvort unnt yrði að leysa farmannadeiluna með þeim hugmyndum um 3%, sem verið hafa að gerjast innan ríkisstjórnarinnar. Ingólfur svaraði: „Þessu hefur að sjálfsögðu verið hreyft innan samninganefndar og af öilum viðbrögðum þar þá tei ég að það sé afar ólfklegt, að það nægði til að Ijúka því." En er hugsanlegt, að fresta far- mannadeilunni á einhvern hátt? „Það þori ég auðvitað ekki um að segja á þessu stigi,“ sagði Ingólfur Ingólfsson, „en þegar leitað var eftir frestun á verkfallinu hjá sáttasemj- ara, þá var því eindregið hafnað og ég dreg mjög í efa að breyting hafi orðið á viðhorfum manna til þess.“ Alþýðuflokksmenn hafa í viðræð- um viðrað hugmyndir um lögbirt- ingu kaupgjalds, framsóknarmenn hafa rætt jafnhliða lögbindingu um frestun verkfalla, en alþýðubanda- lagsmenn hafa algjörlega hafnað lögbindingu kaupgjalds. Morgunblaðið spurði Ingólf, hver væru viðhorf hans til þessara breyti- legu hugmynda og hver væri í raun staða málsins. Ingólfur sagði: „Hún er afskaplega óljós, það er greinilegt að innan ríkisstjórnarinnar er ekki eining um aðgerðir í þessum málum. Það er augljóst að því sem fram hefur komið í fréttum og á því sem haft er eftir einstökum ráðherrum. Gæti meira að segja verið um að ræða ólík og andstæð sjónarmið innan hvers stjórnmálaflokks. Það virðist allt benda til þess. Mitt mat á því er að það eykur ekki tiltrú launþega, og horfi ég þá til minna félaga, á neinum aðgerðum ríkis- stjórnar eða stjórnvalda. Það gerir miklu fremur að draga úr vilja manna til að hlusta á raddir stjórn- valda, þegar þær ganga svona á alla vegu.“ Ingólfur minntist á viðtal við Ólaf Jóhannesson forsætisráðherra í sjónvarpi í gær, þar sem hann hafði sagt að vel sé á veg komið að ríkisstjórnin hafi uppfyllt þann félagsmálapakka, sem lofað hafi verið í stað vísitöluhækkunar frá því í vetur. Ingólfur sagði: „Við, sem erum talsmenn sjómanna, lögðum fram ákveðnar óskir alllöngu fyrir áramöt til forsætisráðherra og hinn 2. janúar lýsti hann því yfir i sjónvarpi og útvarpi, og fleiri ráð- herrar, að þeir myndu verða við öllum okkar óskum, nema einni. Ekki eitt einasta atriði hefur fram komið enn. Því hefur hann annað hvort gleymt því, sem hann sagði, og það er hægt að rifja upp orð fyrir orð — en ekki eitt einasta af því, sem við fórum fram á og lofað var, hefur verið efnt. Eflir það nú ekki trú, hvorki mína né minna félaga, á vilja stjórnarinnar til að efna þau heit, sem hún gaf um samráð. Eigum við því inni, það sem þar var látið á móti.“ I þessum félagsmálapakka sjó- manna voru fyrst og fremst umbæt- ur í öryggismálum. „Það sýnast vera hjá þessum herrum mjög veigalítil mál og enda þótt þeir gefi loforð um umbætur, þá þykir þeim jafnsjálf- sagt að svíkja þau og hafi þeir skömm fyrir,“ sagði Ingólfur Ingólfsson. Elísabet Traustadóttir var sl. föstudagskvöld kjörin ljósmyndafyrir- sæta Útsýnar 1979 á síðasta Útsýnarkvöldinu að þessu sinni sem haldið var að Hótel Sögu. Dómnefnd valdi hana úr hópi 14 stúlkna. Á Útsýnarkvöldinu var einnig tilkynnt um úrslit í ferðagetraun Útsýnar og ýmis skemmtiatriði voru á dagskrá svo sem tízkusýning og söngur Pólýfónkórsins. Eldur í tveimur bílum á Akureyri Akureyri, 12. maí. ÍKVIKNUN varð í tveimur bflum í nótt og í morgun og urðu mjög miklar skemmdir á þeim báðum, áður en eldurinn var slökktur. I öðrum þeirra kviknaði um kl. 2 í Ólíklegtað3% leysi farmannadeiluna Sýna á Akureyri Akureyri. 12.5. LJÓSMYNDASÝNING Sam- taka fréttaljósmyndara var opnuð í Möðruvallakjallara (M.A.) í gærkvöldi og verður opin til miðvikudagskvölds 16 maí í dag og á morgun kl 13—22, en eftir helgina kl 20—22. Það var Félag áhuga ljósmyndara í Menntaskólan um á Akureyri sem útvegaði sýninguna hingað til Akureyr- ar og gengst fyrir því að hún er haldin hér. Sýningin var afar vel sótt meðan hún var í Reykjavík og vakti mikla at- hygli. — Sv.P. nótt á torginu framan við Nýja bíó, en í hinum kviknaði um kl. 10 í morgun norðarlega í Norðurgötu. Þá var vönduðum Range Rover bíl stolið kl. 6 í morgun og hann fannst um þremur stundum seinna í malarnámum í Glerárdal tiltölulega lítið skemmdur. Eigandinn var að fara til vinnu um miðjan morgun og hafði hund með sér en þegar þeir voru komnir upp í bílinn stökk hundurinn út aftur og eigandinn varð að elta hann bak við hús. Á meðan sá sá hinn fingralangi sér leik á borði og ók af stað og var brátt úr augsýn. Hann hefur ekki fundizt enn. Sv.P. Lögreglan eltir ölvaðan ökumann LÖGREGLAN í Árbæ eltist í gær- morgun við ölvaðan og réttindalaus- an ökumann. Barst eltingaleikurinn frá Árbæjarhverfinu upp í Mosfells- sveit og síðan til Reykjavíkur aftur og var ökumaðurinn gómaður við Skeiðarvog. Höfðu þá fleiri lögreglu- bílar skorizt í leikinn, en hraðinn var allt upp í 140 km. Nýtt símanúmer afgreiðslunnar NÆSTKOMANDI mánudag, 14. maí, breytist símanúmer afgreiðslu Morgunblaðsins. Verður það ekki 10100 eins og verið hefur heldur 83033 og eru því kaupendur blaðsins í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn- arfirði beðnir að snúa sér í síma 83033 þurfi þeir að ná sambandi við afgreiðslu Mbl. Um 600 búningar í Paradísarheimt: 99 Vantar gamlan fatnað” UNDIRBÚNINGUR fyrir kvikmyndun Paradísarheimtar er nú hafinn af fullum krafti og m.a. er unnið á stóru verkstæði og upptökusal í Ármúlanum. Ulla-Britt Söderlund frá Danmörku sér um búningana í kvikmyndinni og við hittum hana í gær í Ármúlanum á verkstæði Paradísarheimtar til þess að forvitnast um þá hlið málsims. Ulla-Britt er víða kunn vegna búningagerðar sinnar, m.a. sá hún um þá hlið málsins í Vesturförunum, Rauðu skikkjunni, Sulti Hamsuns og síðasta verkefni hennar áður en hún kom hingað var Showboat-söngleikurinn. Ulla-Britt sagðist reikna með að alls yrðu notaðir um 600 búningar í kvikmyndun Para- dísarheimtar og þar af væru um 200 búningar í kvikmyndun atriðisins á Þingvallahátíðinni 1874 þegar Steinar í Steinahlíð- um gefur Kristjáni konungi hest sinn. Ulla-Britt kvaðst vera búin að afla sér viðamikilla heimilda um klæði fólks á íslandi á þessum tíma og reyndar víðar því Para- dísarheimt verður einnig kvik- mynduð í Kiel og í Utah í Banda- ríkjunum. Ulla-Britt kvaðst myndu reyna eins og mögulegt væri að fá annað hvort keyptan eða leigðan gamlan fatnað sem fólk ætti ef til vill í fórum sínum. „Ég veit að margir eiga sitthvað í sínum fórum sem þeir telja ef til vill ekki mikilsvert, en við getum Ulla-Britt Söderlund. Ljósm. Mbl. Kristjin. notað smæstu hluti og bezt er að hafa þá notaða, því þá náum við beztum svip. Við getum notað hvað sem er úr klæðum fólks frá því fyrir og eftir aldamót og margt í klæðaburði íslendinga ber svo augíjósan stíl íslenzkan að þetta geta verið föt frá nokkuð löngu tímabili. Ég vona að fólk gefi okkur kost á að sjá fatnað sem það vill ef til vill selja eða leigja okkur og síminn hjá okkur er 31560. Einnig fáum við búninga hjá Leikfélagi Reykja- víkur, Þjóðleikhúsinu og Sjón- varpinu en allir þessir aðilar hafa sýnt mikla lipurð." Ulla-Britt er á stöðugum þeys- ingi milli heimshorna vegna starfs síns og nefndi sem dæmi hve andstæðurnar væru miklar að eitt sinn var hún að vinna í búningagerð í gömlu fangelsi í Stokkhólmi, sem leigt var fyrir ákveðna kvikmynd, en þár sem hún sat þarna í vinnuskála sínum hringdi síminn, Hollywood vildi fá sinn skammt af hæfileikum hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.