Morgunblaðið - 13.05.1979, Side 13

Morgunblaðið - 13.05.1979, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ1979 13 Tryggd Alþingis við fíiliímdi krónu söm \ió sig Ég þekki engan mann á íslandi, sem ber virðingu fyrir krónunni. Úr því sem komið er treysta menn engum gjaldmiðli sem ber hennar nafn. Ekki út af því að hún minnir okkur á danska konunga, heldur vegna hins að það er ekkert á henni byggjandi. Seðlabanki Islands hefur óskað eftir því við Alþingi, að „nýr gjaldmiðill" verði tekinn upp. Myndir af þessum peningum og seðlum hafa birzt í blöðum. Fljótt á litið virðist mér að eina breyt- ingin frá því sem verið hefur sé sú, að aurarnir verði teknir upp að nýju. Annars minnir þetta mig á það, að Seðlabankinn tók því mjög fjandsamlega fyrir einu eða tveim árum, þegar Lárus Jónsson alþingismaður gerði tillögu um Ásgeir H. Steingrímsson tromp- ettieikari. Þrennir burtfarar- prófstón- leikar ÞRENNIR tónleikar verða haldn- ir í vikunni á vegum Tónlistar- skólans í Reykjavík. Þeir fyrstu eru burtfararprófstónleikar Sal- bjargar Sveinsdóttur sunnudag- inn 13. maí kl. 2.30 í sal Tónlist- arskólans Skipholti 33. Mánudaginn 14. maí kl. 21 held- ur Ásgeir H. Steingrímsson trompetttónleika á Kjarvals- stöðum og er það síðari hluti einleikaraprófs hans frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík. Steinunn B. Ragnarsdóttir leikur með á píanó en auk þess koma fram Birna Bragadóttir, Kolbeinn Bjarnason og Þórunn H. Guðmundsdóttir. Á efnisskránni eru verk eftir Giuseppe Torelli, Eugene Bozza, A.P. Doppler og Paul Hindemith. Fimmtudaginn 17. maí kl. 20.30 heldur Anna Guðný Guðmunds- dóttir burtfararprófstónleika í sal Tónlistarskólans. Aðgangur að öllum tónleikunum er ókeypis og öllum heimill. Fjáröflunardagur Hraunprýði á morgun HINN árlegi fjáröflunardagur SVDK Hraunprýði verður mánu- daginn 14. maí (á morgun). Kaffi- sala verður í Snekkjunni og í húsi félagsins, Hjallahrauni 9 frá kl. 3-10 e.h. Merkjasala verður á götum bæj- arins að venju og eru sölubörn beðin að taka merki í Bæjarbíói kl. 9 f.h. Velunnarar deildarinnar eru vin- samlegast beðnir að gefa kökur og koma þeim á kaffisölustaðina. Þeir vinnuflokkar, er vilja panta kaffi, vinsamlegast geri það fyrir hádegi. Fjáröflunardagur Hraunprýði hefir alla tíð notið mikils velvilja Hafnfirðinga og svo er að vænta að þessu sinni. Um leið og notið er góðra veitinga, styrkja bæjarbúar slysavarnastarfsemina í landi voru. Hraunprýðiskonur færa Hafnfirð- ingum þakkir fyrir þeirra skilning og stuðning á störfum þeirra um árabil. (fréttatilkynning). það á Alþingi, að ein tvö núll yrðu skorin aftan af krónunni. En nú á sem sé að búa til gjáldmiðil, sem við íslendingar treystum. Eyjólfur K. Jónsson hefur ásamt tveim krötum lagt það til í efri deild, aö þessi gjaldmiðill heiti mörk en ekki króna. Vitaskuld var það fellt. Á þessu síðustu og verstu tímum kemur afskaplega fátt frá Alþingi, sem er traustvekjandi. Og tryggð- in við fallandi krónu er eins og við mátti búast. Mér skilst, að meginröksemdin hafi verið sú, að Islendingar kunni ekki lengur að beygja: Hér er mörk, um mörk, frá mörk, til markar eða merkur. Hér eru merkur, um merkur frá mörkum til marka. Þetta á að vera óþjált orð í munni og sýnu óþjálla en króna. Þegar ég spurði Eykon út í þetta gerði hann það sér til gamans að segja, að menn gætu þá leikið sér að því í partýjum að gá að því, hvort menn vissu, hvernig þetta orð væri í eignarfalli. Og í orðaleikjum gæfi gjaldmiðillinn mörk ótæmandi möguleika. Dæmi: Dýr merkurinnar sama sem verð- bólgubraskari. Verðbólgan yrði að markarflj óti, fjármálaráðherrann kallaður Marka-Leyfi og eyði- merkurganga sláttumennska í bönkum. Annars þykir mér alltaf skemmtilegast við íslenzka mörk, að nafnið gefur fyrirheit vegna líkingarinnar við þýzka markið. Halldór Blöndal. Áhugafólk ef nir til mál- verkasýningar ÁHUGAFÓLK um myndlist í Mosfellssveit opnar málverkasýn- ingu í Hlégarði, í kvöld klukkan 20. Verður þar sýndur fjöldi mál- verka eftir 18 málara, sem málað hafa undir leiðsögn Guðmundar Karls og Gunnlaugs Stefáns Gíslasonar. Nokkrar myndanna eru til sölu. Sýningin verður opin daglega fram eftir vikunni frá klukkan 20 til 22. Kalmar Kalmar innrettingar nf. bjöða eitt fjölbreyttasta úrval innréttinga, sem völ er ð. ★ Kalmar einingareldhús em samsett úr stöðluðum einingum, sem eni fáai> legar i 30 mismunandi gerðum og í 15 verðflokk- um. ★ Fagmenn mæla, skipu- leggja og teikna ykkur að kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga af ykkar hálfu. in Kalmar s kalmar innréttingar hf. m iiiwn htimiii * TÁIB H6M5EMN 6ÍW.INÍ SKEIFUNNI8, SIMI82645 blaumboð á íslandi Viö höfum nú hafið inn- fjutning á bílum frá Rúmen- íu. ARO jeppinn sem hefur fariö sigurför um Evrópu, Kanada og Afríku er kominn til landsins. Ein reynslubifreið er í landinu og segir eigandi hennar: „ARO 244 jeppinn hefur reynst mér mjög vel í vetur, ég er búinn að aka honum nálega í eitt ár og er bíllinn mjög þýður, mjög góður í torfærum, skemmtilegur í akstri og sparneytinn og er ég í alla staði mjög ánægður með ARO 244 jeppann". TV-Mini BNS með drifi á öllum hjólum 12—14 manna bensín eða diesel. ARO 242 Pick Up, burðar- magn 800 kg. Skúffa með bogum og tjaldi. ARO 243 er meö langsum sætum að aftan fyrir 3 hvoru- megin og fyrir 2 fram í eða alls fyrir 8 manns. ARO 244 5 manna klæddur að innan; 4ra dyra + afturhurðir, aftara sæti má velta fram. Allar gerðir Sterk grind, 4 hjóla drif, vél 86 h. gírkassi 4ra gíra millikassi hátt og lágt drif. 4.500.000 Verö frá kr. Nokkrum bílum óráðstafað. Leitið upplýsinga. umboðið, sf. Bílasölu Alla Rúts Hyrjarhöfða 2 — sími 81666 Reykjavík Akureyri Páil Halldórsson Skipagötu 1. Sími 22697.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.