Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 13.05.1979, Blaðsíða 17
MOKGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ1979 17 Fréttir um aö þingmennirnir okkar standi í ströngu um þessar mundir og dragi ekki af sér, komu viö Gáruhöfund og sendu af stað hugleiöingar. Sagt aö suma daga séu allt aö 60 mál á dagskrá þingsins, enda hugmyndin aö Ijúka störfum fyrir uppstigningardag 24. maí og margt bíöi. Þótt ekki viröist í fljótu bragöi Ijós nauösyn þess aö þingmenn á árskaupi rjúki heim og hætti aö höndla, þegar bíöa verk- efni og þjóöarsómi, þá leynast vafalaust fyrir því haldgóö rök, úr því aö 60 þingmenn úr öllum flokkum eru um það sammála. Þingiö er orðið allbústinn hug- myndabanki. Menn keppast viö aö varpa þar fram hugmyndum sínum. í bland þingsályktunartillögum um aö athuga þetta og láta fara fram könnun á því hvort þetta og hitt sé vænlegt eöa yfirleitt mögulegt. Enda veitir ekki af aö fara aö láta embættismenn og sérfræöinga kanna hvort eitthvert vit var í málunum, sem lofað var fyrir kosningar. Þau er þó alltaf jaar meö komin inn á þing. Og allt i sóman- um. Margir röskir leggja hönd á plóginn. Varla haföi þingið staöiö í mánuö aö þessu sinni, þegar Al- þýöublaöiö færöi þær fregnir aö þingmenn „flokksins" heföu þegar varpaö þar inn 30 málum. Hinn nýlátni franski „faðir Evrópu", eins og Jean Monet var kallaöur, segir í endurminningum sínum aö skipta megi fólki í tvo hópa, þeim sem vilja vera eitthvaö og þeim sem vilja gera eitthvaö. Sjálfur kom hann miklu góöu í verk fyrir Evrópu. Hann miðlaöi af reynslu sinni og sagöi: „Settu þór eitthvert verkefni og starfaöu aö því af þolinmæði og kergju. Aðeins meö því móti geturöu komiö ein- hverju til leiöar." Oftast eiga menn raunar í stjórn- málum um tvær leiðir aö velja til aö koma áhugamálum sínum fram. Finna á málinu framkvæmanlegan flöt og fjármuni, vinna því fylgi, kannski mjaka því í áföngum — og koma því í höfn. Eöa varpa snar- lega fram hugmyndinni, án þess að hafa tryggt henni framgang og lífsmöguleika — og láta fara sem fara vill. Sem sagt aö velja um aö vekja athygli á málinu eöa vinna aö því aö koma því í framkvæmd. Eöa eins og Monet oröaði þaö, að vera eitthvaö eða gera eitthvað. Að vísu fylgir gjarnan sú þver- sögn, aö menn veröa aö sækjast eftir aö vera eitthvað, til aö fá vinnuaöstööu til aö gera eitthvaö. Þegar svo sú vinnuaðstaöa binzt því að vekja athygli og hafa hátt, þá er „freistingin stór, ó-vei", eins og segir í kvæöinu. Hætt við að liggi á aö varpa málinu fram, þótt botninn sé suöur í Borgarfirði. Gallinn viö aðferðina hans Monets — að koma megi einhverju til leiðar með þolinmæöi og kergju — er sá, aö ekki lifa allir eins og hann til níræös og geta séö hugsjónina í framkvæmd. Gott ef þeir eru þá ekki horfnir af vett- vanginum og veröa að láta sér nægja aö gleðjast einir í sálu sinni yfir því sem áunnist hefur — og engan varöar lengur um hver var upphafsmaöur að. Nema ef vinirnir grafa þaö upp í minningargreinina. Slíkt þykir kannski léleg uppskera og þunnur kostur. Stöku menn viröast þó finna í því lífsfyllingu aö hafa komið einhverju til leiðar — þótt fáum sé um þaö kunnugt. Finnst það ekki skipta höfuömáli. Annaö skiptir þó a.m.k. máli. Þegar frómar óskir veröa aö óljósum lögum, sem teygja má sem hrátt skinn, og fara að hafa áhrif á líf fólksins í landinu. — Ófullburöa af því einu aö ekki gafst tími til aö vinna þau almennilega í flýtinum viö að drífa þau í gegn og eyrna- marka. Víöa má finna í löggjöf okkar illa frágengnar frómar óskir. Sumar eru svo sem meinlausar. Aörar hafa býsna mikil áhrif á líf okkar. Ætli ekki finnist dæmi í heilbrigðis- löggjöf, grunnskólalögum, skatta- lögum, svo aö ekki sé nefnt fram- haldsskólafrumvarpið margnefnda, þar sem nær allar lagagreinar enda á því aö þetta skuli ákveðiö í reglugerö síðar. Eöa eins og Siguröur Líndal prófessor oröaöi þetta nýlega á ráöstefnu: „Það leiöir af því eöli laganna aö vera valdboö, aö almennt orðaöar yfir- lýsingar, oft teygjanlegar og óljós- ar, eru ekki til þess fallnar að fella í lög. Þaö er hlutverk lýöskrumarans — í vtötækustu merkingu þess orðs — aö bera þær að eyrum manna, en ekki löggjafans. Lög- gjafinn og lýöskrumarinn hafa sjaldan átt samleið." Hlutverk lög- gjafans kvaö hann vera aö ákvaröa skilmerkilega leiöir aö markmiöi, og aö lögin væru þá fyrst fallin til aö stýra háttsemi manna, þegar slíkt heföi tekist. Aö láta sér nægja að lögfesta frómar óskir ýtti bara undir geðþóttaákvaröanir. Hratt vaxandi áhrif laga og reglu- geröa á líf allra einstaklinga, fyrir- tækja og félagastarfsemi hafa í för með sér aö miklu máli skiptir hvernig til er stofnaö. í kjölfariö fylgir aö sjálfsögðu að framtaks- samir reyna aö hafa þar sín áhrif. Þá verða til svokallaöir þrýstihópar eöa þrýstimenn, er enskumælandi þjóöir nefna „lobbýista". Úti í heimi tútna þeir víöa út um þessar mundir, eins og púkinn á bitanum. I Bandaríkjunum hefur „lobbýistum" vaxið mjög ásmegin síöasta áriö, síðan valdahlutföll þings og forseta breyttust. Bitinn þeirra er í nám- unda yið þingið í Washington. Þetta er stétt manna, sem fyrir borgarana gætir hagsmuna um- bjóöenda sinna, samtaka af ýmsu tagi, fyrirtækja og stéttarfélaga. Taka jafnvel aö sér verkefni fyrir einstaklinga. Þeir bera ýmsa titla, sérlegir ráögjafar, sérfræöingar um þjóðmál, Washingtonfulltrúar o.s.frv. Hlutverk þeirra er aö vera varöhundar, sem fylgjast með störfum þingsins og hvaö þar er í uppsiglingu, senda út aðvörun til sinna umbjóðenda og kunna skil á því hvaða þingmenn eöa nefnda- menn þurfi aö hafa áhrif á og vinna. Ef þeir beita sér sjálfir í persónu- legum viðtölum, hafa þeir ákveðnar siöareglur, svo sem aö láta þing- mann aldrei standa sig aö röngum upplýsingum. Stórir hagsmunahóp- ar hafa margir komiö sér fyrir með slíkt starfslið, tölvur og spjaldskrár í nánd viö þingið, tiltæk þegar hætta er á ferðum og senda snar- lega út aövörun til félagasamtaka og hópa úti um landiö. Mótmæla- bréfum og samþykktum hópa tekur að rigna yfir viökomandi þingmenn. Og skv. upplýsingum úr blaöinu Time hafa þingmenn reynst mjög veikir fyrir mótmælum og miklum bréfaskriftum úr kjördæmi sínu. Einkum ef viökomandi hagsmuna- samtök hafa látiö fylgja þangaö greinargerð eða útreikninga um aö það sé þeim staö sérlega óhag- stætt. Ósjálfrátt fer þá gjarnan aö halla á almannaheill í öllu landinu. Nú reynist oft „manninum mínum" í Washington léttara aö fá oröalagi breytt eöa viöbótargrein komið inn í lögin. Þannig getur hann á svip- stundu unniö fyrir kaupinu sínu og 10 ára tilkostnaði þegar boð og bönn stjórnvalda eru farin aö hafa svo mikil áhrif á hag manna. Aö sjálfsögöu eru afskipti þeirra, sem lögin eiga eftir að hitta, ekki af hinu illa einu. Enda hafa kjörnir fulltrúar hag af því að heyra hljóöið í umbjóðendum sínum. Upplýs- ingaflæöi til löggjafans er nauösyn í lýðræöisríki. En þaö flæöi veröur helst aö vera frá öllu samfélaginu, ekki bara einstöku dugnaöarfork- um, um hag sinn. Lýsingin hér aö ofan, sem ég hefi frá blaðamönnum Time, er úr þeirri sveit. En hvaö um ísland? Er ekki svolítiö fariö aö örla á „fagmönnum", sem fara á milli funda meö tilbúnar samþykktir á réttum augnablikum? Beita skipu- lega þrýstingi með pinlegum viðtöl- um viö alla, sem aö ákveönu máli koma, eða gegn um aðra. Höfum a.m.k. auga meö þróuninni í fram- tíöinni. Líklega á sá, sem aö er sótt stundum svolítið erfitt, eins og lungnabólgusjúklingurinn, sem hann ísleifur Gíslason á Sauöár- króki kvað um: Sóttu tveir um sálina sjúklingsins meö takiö. Fjandinn þreif í fæturna en „faöirinn" hélt um bakiö. Og alls óvíst aö hann sleppi eins vel og lungnabólgusjúklingurinn. Leikurinn þannig lengi stóö litlar gáfust náöir. Hvorugum sýndist sálin góö — svo þeir slepptu báðir. Tímann sl. miðvikudag segir Tómas Árnason, fjármálaráð- herra, um ástæður þess að BSRB felldi samkomulag stjórnar BSRB og ríkisstjórnarinnar: „Ég held þó að höfuðástæðan sé sú, að í borgarstjórn Reykjavíkur var það knúið fram, að lyfta þakinu á hærri laun, sem sett var á með efnahagsráðstöfunum fyrrver- andi ríkisstjórnar frá því í febrú- ar- og maímánuði 1978. Vísitölu- þakið snerti sárafáa launþega innan ASÍ, hins vegar náði það til fjölmargra opinberra starfs- manna og ýmissa hálaunahópa, svo sem flugmanna. Þegar ljóst var orðið, að vísitöluþakinu yrði aflétt alveg hjá starfsmönnum Reykjavíkurborgar frá 1. janúar 1979 höfðaði Bandalag háskóla- manna mál gegn ríkinu og krafð- ist þess, að vísitöluþakinu yrði einnig aflétt af ríkisstarfsmönn- um. Og eins og kunnugt er varð niðurstaða Kjaradóms sú að lyfta launaþakinu hjá Bandalagi há- skólamanna frá og með 1. janúar 1979. Þegar svo var komið var ekki um annað að ræða en að þeir starfsmenn ríkisins innan BSRB, sem voru undir launaþakinu fengju því aflétt og sú varð einnig raunin á með bankastarfsmenn. Það mætti orða það svo, að síðasta sperran í vísitöluþakinu hafi fallið í byrjun apríl sl., þegar flugmenn sömdu um afnám vísi- töluþaksins og hæstu flugstjórar fengu við það upp í 270 þúsund króna launahækkun á mánuði." Allt er þetta satt og rétt hjá fjármálaráðherra þótt hann að vísu láti undir höfuð leggjast að geta þess að samkomulag það, sem flugmenn og Flugleiðir gerðu var í samræmi við síðasta sátta- tilboð sáttanefndar þeirrar, sem ríkisstjórnin setti á fót í flug- mannadeilunni. Utilokað er, að sáttatilboð það hafi verið lagt fram án samráðs við félagsmála- ráðherra og samgönguráðherra og er því ljóst, að ríkisstjórnin sjálf og alveg sérstaklega Al- þýðufiokkur og Alþýðubandalag eru ábyrgir fyrir samningunum, sem gerðir voru við flugmenn. Þeir samningar eru í samræmi við hugmyndir ríkisstjórnarinnar sjálfrar og hún getur því ekki skotið sér undan ábyrgð á þeim. Laga- setning um kaup og kjör Ríkisstjórnin stendur nú frammi fyrir miklum vanda í launamálum og allt bendir til að hún muni finna þá lausn eina að setja nýja löggjöf um kaup og kjör í landinu. Hugmyndir eru uppi um það í stjórnarherbúðum að setja nýtt vísitöluþak á með lögum, ákveða 3% grunnkaups- hækkun yfir línuna, setja á verð- stöðvun o.sv.frv. Væntanlega mun samkomulag takast milli stjórnarflokkanna um slíka lög- gjöf. Það verða þá fjórðu lögin, sem núverandi ríkisstjórn setur á 8 mánuðum um kaup og kjör í landinu. Að meðaltali hefur hún því sett lög annan hvern mánuð til þess að ákveða hver kjör launþega skuli vera. Sumir segja, að þessi ríkis- stjórn sé búin að vera og að hún hljóti að fara frá á næstu vikum. Aðrir segja sem svo: Hún á að sitja. Hún á að halda áfram að glíma við sinn eigin draug. Hún á að halda áfram að rótast í launamálum landsmanna með lagasetningu vegna þess að ein- ungis með því að fólk sannfær- ist endanlega um það að vinstri stjórnir duga ekki, geta ekki stjórnað og grípa alltaf til marg- fallt harðneskjulegri ráðstafana gagnvart launþegum en þær rík- isstjórnir, sem Sjálfstæðisflokkur- inn á aðild að, er von til þess að jarðvegur skapist fyrir skynsam- legum stjórnarháttum í þessu landi, Að þeim púnkti er ekki komið enn í lífi þessarar ríkis- stjórnar. Þess vegna er það nauð- synlegur þáttur í því að hreinsa andrúmsloftið í samfélagi okkar að vinstri stjórnin fái enn um sinn að glíma við sinn eigin draug. Vera má, að einhverjir í hópi atvinnurekenda telji að önnur leið sé ekki fær en sú að leysa launamálin nú með lagasetningu. Það er afstaða, sem byggist á afar skammsýnum sjónarmiðum. Jafnvel þótt núverandi öngþveiti í launamálum verði leyst með lagasetningu, mun sú lausn ekki duga nema skamma stund. Raun- ar veit enginn -hvort hún muni leysa nokkurn vanda. Sigla far- menn úr höfn með 3% grunn- kaupshækkun? Fljúga flugmenn ef launahækkunin verður af þeim tekin eins og nú er boðað? Þetta kemur allt í ljós. En þeir menn hafa ekkert lært, sem láta sér til hugar koma, að lagasetning nú mun leysa einhvern vanda. Það verður einungis frestun á lausn vandans. Auðvitað er alveg ljóst, að það er engin forsenda fyrir grunnkaupshækkunum í þessu landi. Um það þarf ekki að deila. En fengin reynsla ætti að hafa sýnt atvinnurekendum fram á að löggjöf ríkisstjórnar dugar skammt til að sannfæra launþega um það, að ekki sé grundvöllur fyrir launahækkunum. Frjálsir samningar Afskipti ríkisstjórna af launa- málum hafa gefizt illa. Það á jafnt við um svokallaðar hægri stjórnir, sem vinstri stjórnir. Það er alveg sarrra hvað núverandi ríkisstjórn setur mikið af lögum til þess að leysa vanda í launa- málum. Hann verður bara ennþá meiri. Ut úr þeirri sjálfheldu, sem þjóðin er komin í vegna óðaverðbólgu og öngþveitis í kjaramálum verður ekki komizt nema með gerbreyttri efnahags- stefnu frá þeirri pólitík, sem hér hefur verið rekin meira og minna allan þennan áratug. Þau öfl, sem eru til staðar á vinnumarkaðnum verða að fá að takast á um kaup og kjör í frjálsum samningum. Kosti það verkföll og verkbönn verður svo að vera. Það er einungis hluti af því uppgjöri, sem hlýtur að fara fram um kaup og kjör og stefn- una í efnahagsmálum í heild sinni. Einhver kann að segja að fengin reynsla sýni að frjálsir kjarasamningar dugi ekki heldur og vísa til samninganna 1977 í þeim efnum. Það er út af fyrir sig rétt að það voru vondir samning- ar. En hinn valkosturinn, afskipti ríkisstjórna af launamálum er ekki betri. Það hefur reynslan líka sýnt okkur. Þess vegna er enginn annar kostur fyrir hendi í dag en sá að frjálsir kjarasamningar leysi af- skipti ríkisstjórna af hólmi í launamálum. Þá kemur í ljós, hvort forráðamenn verkalýðs- samtaka og vinnuveitenda hafa eitthvað lært. Þá kemur í ljós, hvort við kunnum fótum okkar forráð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.