Morgunblaðið - 13.05.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1979
19
Lið Akurnesinga með landsliði Japans 23 ára og yngri. Leik liðanna
lauk með sigri IA 2—1, og þótti ÍA-liðið þá sýna þá bestu knattspyrnu
sem Skagamenn hafa sýnt í mörg ár. í baksýn má sjá risastórt skilti
keppninnar.
Úrslitaleikurinn var afar grófur
af hálfu Burma, og í eitt skipti
þurfti lögreglan að hafa afskipti af
leiknum og stilla til friðar. Þeir
spörkuðu menn niður í bókstaflegri
merkingu án þess að nokkuð væri
dæmt. Og nú eiga Kristinn, Árni og
Sveinbjörn allir við meiðsli að
stríða.
En ferðin í heild var hreint
ævintýri.
Matthias Hallgrímsson, sá
reyndi kappi, sagði að mótherjar
þeirra hefðu verið sterkir. — Öll
liðin höfðu yfir að ráða mikilli
leikni og knatttækni en skorti hins
vegar leikskipulag. Þar vorum við
þeim snjallari og það fleytti okkur
áfram ásamt mikilli samheldni og
baráttuvilja. Þetta var mikil ævin-
týraferð sem seint gleymist þó
erfið hafi verið, sagði Matti.
Burmaliðið, og að auki sleppt
marki sem var algerlega löglega
skorað.
— Við getum samt sem áður
verið ánægðir með útkomuna.
Strákarnir stóðu sig með af-
brigðum vel jafnt utan vallar sem
innan. Og miðað við þær ólíku
aðstæður sem við lékum við og
þennan mikla hita, þá var útkoman
framar öllum vonum.
Jóhannes Guðjónsson fyrirliði
hafði þetta um ferðina að segja: —
Þetta var góð keppnisferð, en
geysilega erfið. Við leikum samtals
í 570 mínútur á 12 dögum, og þess á
milli voru æfingar. Úrslitaleikur-
inn stóð yfir í 120 mínútur í 35
stiga hita, lái okkur hver sem.vill
að af okkur skyldi dregið í lokin.
Þá voru ferðalögin mjög erfið, og
sat ferðin í okkur í fyrsta leik
okkar, sem var sá erfiðasti meðan
menn voru óvanir með öllu lofts-
laginu.
Fyrirliðar liðanna taka við verðlaunum sínum. Lengst til vinstri er
Jóhannes Guðjónsson fyrirliði ÍA, sem hlaut önnur verðlaun. þá
fyrirliði sigurvegaranna frá Burma og loks fyrirliði Tyrkja.
Bjarni Sigurðsson hinn nýi markvörður Skagamanna stóð sig mjög
vel í ferðinni. Hér sést hann bægja hættunni frá í leik á móti Japan.
FLUCLEIÐIR
Beint til
Baltimore/ Washington
Með tilkomu áætlunarflugs
til Baltimore/Washingtonflugvallar
víkkar enn leiðanet okkar.
50 mínútna akstur til Washington og
20 mínútna akstur til Baltimore.
Stöðugar bílferðir eru til og frá
flugvellinum, svo biðin er engin.
Frá BWI eru framhaldsflug um öll
Bandaríkin og víða um heim.
BWI (Baltimore Washington
International Airport) er nýlegur
alþjóðlegur flugvöllur milli stór-
borganna Baltimore og Washington. Fjölgun áætlunarstaða er liður í
BWI flugvöllur þjónar báðum víðtækari og betri þjónustu við lands-
borgunum í senn. Þaðan er aðeins menn.
EINN FJÖLMARGRA STAÐA
ÍÁÆTLUNARFLUGI OKKAR.