Morgunblaðið - 02.06.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.06.1979, Qupperneq 1
64 SÍÐUR 123. tbl. 66. árg. LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mikill kross hefur verift reistur á Sigurtorgi í Varsjá, en þar mun páfi messa. Trúarleiðtogi Araba ííran hótar að fara Póllandsheimsókn Jóhannesar Páls páfa: HEIÐURSDOKTOR VIÐ MANITOBA-HÁSKÓLA. Ólafur Jóhannes- son forsætisráftherra var í gær sæmdur heiðursdoktorsnafnbót vift háskólann í Manitoba í Kanada, og var myndin tekin vift hátfðlega athöfn af því tilefni. Forsætisráðherra er væntanlegur heim úr Kanadaför sinni á hvítasunnudag. Sfmamynd ap. Teheran, 1. júní. AP. Reuter. ANDLEGUR leiðtogi arabíska minnihlutans í íran sakafti í dag stjórnina í Teheran um að reyna að refsa Aröbum og svipta þá þjóðlegum réttindum sínum. Jafn- framt skutu byltingarverðir á hóp Araba sem æddu um götur aðal- hafnarborgar írans og mótmæltu því aft hafa verið beittir ofbeldi siðustu daga. Trúarleiðtoginn, Sheik Mohamm- ed Taher A1 Shobeir Khaghani, hótaði að fara úr landi ef staða allra þjóðarbrota í íran yrði ekki bætt og sakaði liðsmenn stjórnar- innar um að ofsækja Araba í hafnarborginni Khorrasam shahr og í nágrenni hennar. Hundruð Araba æddu um götur hafnarborgarinnar og hrópuðu: „Hættið að drepa Araba" og „Dauði yfir Madani", sem er landstjórinn í héraðinu Khuzesta og yfirmaður íranska sjóhersins. Arabarnir vildu mótmæla því að stjórnin neitaði aö afhenda lík Araba sem hafa fallið í götubardögum. Arabar segja að þeir séu 200 en stjórnin 23. Liðsauki var sendur á vettvang til að verja mikilvæga staði. Land- gönguliðar og byltingarverðir her- tóku einu brúna yfir Karunána milli hafnarborgarinnar og stærstu olíuhreinsunarstöðvar heimsins í Abadan. Trúarleiðtoginn sagði frétta- mönnum að herþotur og þyrlur hefðu ráðizt á fimm þorp skammt frá -borginni, sem er nálægt landa- mærum íraks. í Bagdad er því neitað að írakskur liðsauki háfi verið sendur að landamærunum. Þrír liðsforingjar voru líflátnir í morgun í Tabriz í norðvesturhluta írans. mannát Estevan, Saskatchewan, Kanada, 1. júní. AP. ANNAR tveggja sem komust lífs af úr flugslysi í Idaho, Brent Dyer, viðurkenndi í dag að hann og mágkona hans hefðu lagt sér til munns hluta jarðneskra leifa föður hennar þegar þau biðu eftir hjálp á snævi þöktu f jalli. Hann sagði að þau hefðu verið „lengi matarlaus, beðið til guðs lengi áður en þau tóku ákvörðun og vitað að þau yrðu að borða hann Muzorewa tek- inn við embætti Salisbury, 1. júní. AP, Reuter. ABEL Muzorewa tók við forsætis- ráðherraembætti f Zimbabwe Rhódesíu í dag. Þar með er mciri- hlutastjórn blökkumanna formlega komin á eftir 88 ára stjórn hvíta minnihlutans f landinu. Ráðherrar Muzorewa sóru embættiseiöa sína í dag. Þjóðfrelsis- hreyfingar hafa lýst því yfir, að þær muni berjast áfram gegn hinni nýju stjórn rétt eins og gegn stjórn Ian Smith, fyrrum forsætisráðherra. Vildi ekki vera farþegi um borð í DC-10 þotum Wa.shinjfton, 1. júní. AP. Reuter. „NEI, NEI. ég vildi ekki vera farþcgi um borð í DC-10 þotu,“ sagði Philip Ilogue. einn af fimm meðlimum rannsóknarncfndar bandarísku flugmálastjórnarinnar við blaðamenn í Washington í dag. Og hann bætti við að mætti hann ráða þá myndi hann kyrrsetja allar DC-10 þotur þar til niðurstöður lægju fyrir um flugslysið í Chicago í sfðustu viku er 273 manns fórust. „Ég á ekki von á að aðrir meðlimir rannsóknarnefndarinnar séu mér sammála. En ég á að baki 30 ár sem flugmaður," bætti hann við. Rann- sókn slyssins í Chicago er í fullum gangi og ljóst þykir nú að boltinn, sem fannst á flugbrautinni hafi ekki valdið því að hreyfill þotunnar datt af. Hann hafi brotnað vegna gífur- legs álags. Athyglin beinist nú að hreyflunum sjálfum og tengingum við vængi. „Tveir flugvirkjar í Chic- ago voru að rannsaka DC-10 þotu og þeir gátu með handaflinu einu ýtt hreyfli fram og aftur,“ sagði Hogue. DC-10 þota með 224 farþega inn- anborðs á leið frá New York til Amsterdam snéri við vegna þess að hre.vfill á vinstri væng þotunnar, drap á sér. Vélin snéri við til Kennedyflugvallar og lenti heilu og höldnu, með tvo hreyfla í gangi. Þotan var ekki talin í bráðri hættu. Caledonian flugfélagið brezka gagnrýndi mjög „ýmsa aðila“ sem gefið hafa út ábyrgðarlausar yfirlýs- ingar, sem hafa ekki veriö á rökum reistar. Eélagið gagnrýndi mjög þá ákvörðun bandarískra flugmála.vfir- valda að ætla að kyrrsetja allar A-300 Airbus þoturnar evrópsku. Síðan var sú ákvörðun dregin til baka. „Við berum fullt traust til DC-10 þotna okkar,“ sagði í yfirlýs- ingu Caledonian flugfélagsins. Niðurstöður rannsókna á flugslys- um sýna að DC-10 þotur eru meö öruggustu þotum. Miðað við 100.000 flugtíma þá hafa færri farist með DC-10 þotum en til að mynda Júmbó þotum og Boeing 707, og DC-8 þotum. Milljónir fagna páfavið komuna Varsjá. 1. júní. AP BÚIST er við að milljónir Pólvcrja muni fagna Jóhannesi Páli 2. þegar hann kemur til Varsjár á morgun (í dag). Yíirvöld hafa gífurlegan viðbúnað í Varsjá til að taka á móti þeim mikla mannfjölda, sem nú streymir til Varsjár víða að úr Póllandi til að fagna páfa. Jóhannes Páll 2. er pólskur, áður erkibiskup í Kraká. Nú eru sjö mánuðir síðan hann yfirgaf Pólland og var kjörinn páfi í Róm. Búist er við að 2 milljónir manna muni fagna páfa í Varsjá á fyrsta degi heim- sóknar hans en alls verður hann níu daga í opinberri heimsókn í Póllandi. Hann mun messa á Sigurtorginu í Varsjá. Áætlað er, að um milljón manns muni hlýða á messu hans þar. Pólsk yfirvöld hafa gífurlegan viðbúnað. Þau hafa hvatt til að ferðamenn á leið til Varsjár ferðist með lestum og langferðabifreiðum. Geysistórum bifreiðastæðum hefur verið komið upp i útjaðri Varsjár til að koma í veg fyrir algjört öngþveiti í borginni vegna fjölda bifreiða. Þá hefur vakið athygli að öll áfengis- sala í Varsjá er bönnuð á morgun. Hin opinbera fréttastofa ríkisins tengdi heimsókn páfa við 35 ára afmæli alþýðulýðveldisins. „Heim- sókn páfa hefur sérstaka þýðingu. Hann kemur til heimalands síns á 35 ára afmæli lýðveldisins. Og innan skamms eru 40 ár síðan herir Hitlers réðust inn í Póliand," segir í tilkynn- ingu fréttastofunnar. Jóhannes Páll 2. mun aka í gegnum Varsjá í opnum bíl. Hann mun síðan halda til Belvedare hallar í Varsjá og þar mun Edward Gierek, formaður pólska kommúnistaflokks- ins taka á móti honum. I heimaborg páfa, Kraká, ræddi fréttamaður AP við Halinu Kwiatkowska, leikkonu en páfi er sagður hafa staðið í ástarsambandi við hana þegar hann var námsmaður. „Við hittumst í menntaskóla. Þá var ég b.vrjuð á leiklistarnámi og hann var atkvæða- mikill í leikfélagi skólans. Þetta varði stutt. Innrás nazista batt endi á það,“ sagði Ilelina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.