Morgunblaðið - 02.06.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
UM IIÁLFFIMMLEYTIÐ á
fimmtudaKÍnn fannst 6 ára
stúlka meðvitundarlaus á gang-
braut við Sigtún, rétt vestan
Gullteigs. Stúlkan var tafarlaust
fiutt á slysadeild Borjíarspítal-
ans. þar sem hún komst fljótlega
til meðvitundar.
Stúlkan hafði þá sögu að segja
að hún hafi verið á leið norður yfir
Sigtúnið á hjóli og er hún var að
koma að gangstéttinni hafi borið
að sendiferðabíl, sem ók á hjólið.
Kastaðist stúlkan af hjólinu og
•skall með höfuðið á gangstéttar-
brúnina og rotaðist.
Stúlkan fullyrðir að sendiferða-
bifreiðin hafi verið hvít að lit og
að öllum líkindum af Volks-
wagen-gerð. Hins vegar var bif-
reiðin á bak og burt þegar stúlkan
fannst og er ökumaðurinn beðinn
að gefa sig fram við lögregluna
strax, svo og vitni ef einhver hafa
verið.
Talið er að stúlkan jafni sig
fljótlega af meiðslum þeim er hún
hlaut.
AÐALFUNDUR Siilumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna samþykkti í
ga'r að athugað verði með bygg-
ingu eða leigu frystigeymslu
fyrir S.II. í Englandi. Fyrir
fundinum iá tillaga þess efnis að
stjórn S.II. yrði veitt heimild til
þess að ráðast í þær framkvæmd-
ir sem hagkvæmastar reyndust
til að efla samkeppnisaðstöðu
S.II. á Bretlandsmarkaði.
Þá var á aðalfundinum sam-
þykkt tillaga þess efnis að stjórn
S.H. beiti sér fyrir gerð fimm ára
áætlunar um framtíðarþróun fisk-
iðnaðarins með sérstakri áherslu
á aukningu atvinnumöguleika í
DC-10 þotan undir
strangasta eftirliti
„DC-10 ÞOTA Flugleiða er skráð
í Bandaríkjunum. þar sem hún er
keypt með kaupleigusamningi,
og heyrir því undir bandarisku
flugmálastjórnina.
Við erum því
undir ströngustu reglum hvað
varðar eftirlit og öryggi, og það
viljum við út af fyrir sig vera,“
sagði Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugleiða í samtali við
Mbl. í gær.
Þotan kom til Keflavíkur klukk-
an 13 í gær og hafði þá seinkað um
6 tíma vegna skoðunar í New
York, sem m.a. snerist um hreyfil-
festingar. Ekkert athugavert
fannst við skoðunina. Vegna
seinkunar þotunnar var fengin
flugvél frá Air Bahama til að
flytja farþega frá Luxemburg til
Keflavíkur í gær til að DC-10
þotan gæti haldið vestur um haf á
réttum áætlunartíma.
þessari atvinnugrein á grundvelli
aukins fiskafla í framtíðinni.
Einnig var á aðalfundinum sam-
þykkt að auka útbreiðslu starf-
semi S.H. og kannað verði með
stofnun fjárfestingafélags.
I stjórn Sölumiðstöðvarinnar
voru kosnir þeir Gunnar Guðjóns-
son, Reykjavík, Ágúst Flygenring,
Hafnarfirði, Guðfinnur Einars-
son, Bolungarvík, Einar Sigur-
jónsson, Vestmannaeyjum, Gísli
Konráðsson, Akureyri, Ásgrímur
Pálsson, Stokkseyri, Ólafur B.
Ólafsson, Sandgerði, Olafur
Gunnarsson, Neskaupstað og
Rögnvaldur Ólafsson, Hellissandi.
Sumarhátíð að
Kjarvalsstöðum
Landssamtökin Líí og
Land efna til sumarhátíðar
að Kjarvalsstöðum dagana 9.
og 10. júní n.k. í Kjarvalssal
verður ráðstefna um félags-
líf og skipulagsmál Reykja-
víkur, í hliðarsal verður
samfelld sýning á stuttum
kvikmyndum og teiknimynd-
um fyrir börn en á Miklatúni
verður útimarkaður og fjöl-
breytt útihátíð, ef veður leyf-
ir.
Húsavík:
Fyrsti rigning-
ardagurinn
Húsavík 1. júní.
MENN eru að verða vongóðir
um að hinum miklu vorharð-
indum hér um slóðir sé nú að
linna.
Síðasta mánudag brá til
betri tíðar og hefur svo haldist
áfram þessa viku og í dag,
sjöundu viku sumars, er fyrsti
rigningardagurinn á Húsavík á
þessu sumri. Er það frekar
fátítt, því úrfelli hefur verið
mikið, þ.e. snjókoma. Bændur
eru byrjaðir að setja út sauðfé
en aðeins til þess að viðra það,
því enn er alveg gróðurlaust og
gripir eru allir á fullri gjöf.
Kartöflugarðar eru flestir
undir fönn og í húsagörðum má
víða sjá töluverða snjóskafla.
En þetta bjargast allt ef bat-
inn er nú kominn fyrir alvöru.
— Fréttaritari
Bílsljóra ákaft
leitað:______
Óká 6 ára
stiílku og
slakk af
Ljósm. Mbl. Kristján.
SKIP Greenpeace samtakanna, Rainbow Warrior, kom á ytri höfnina í Reykjavík í gær. Talsmenn samtakanna segjast nú betur til þess
búnir en í fyrra að trufla hvalveiðar íslendinga hér í sumar. Á myndinni má sjá hraðbát um borð í Rainbow Warrior, sem nota á til þess að
sigla fyrir framan hvalbátana og trufla veiðar þeirra.
Aðalfundur S.H.:
Koma sér upp frysti-
geymslum í Englandi
Trillu
bjargað
til hafnar
VÉLARBILUN varð í trillu út
af Kjalarnesi í gærkvöldi.
Bátsmenn kveiktu þegar á
handblysi sem sást strax frá
landi.
Slysavarnafélagi íslands
var gert viðvart og hafði það
samband við Flugturninn í
Reykjavík, sem beindi flugvél-
um á æfingaflugi yfir staðinn.
Kveiktu bátsverjar þá á öðru
handblysi og fannst báturinn
strax. Björgunarbáturinn
Gísli J. Johnsen fór síðan út
og dró bátinn til hafnar.
„Þannig á að bregðast við,“
sagði Hannes Hafstein fram-
kvæmdastjóri Slysavarnarfé-
lags íslands í samtali við Mbl. í
gærkvöldi. „Þegar handblysin
eru notuð rétt, berst hjálpin
fljótt, því þau eru bezta
merkjagjöfin."
Grófu niður á
skíðalyftuna
Siglufirði, 1. júní.
HÉR hefur verið gott veður
undanfarna daga og hefur snjó
að mestu tekið upp í bænum en
til fjalla eru enn stórir skaflar.
í gær fór flokkur manna upp
að Hól til þess að grafa niður á
skíðalyftuna sem þar er, en
hún hefur verið á kafi í snjó í
lengri tíma. Sumir staurarnir
eru allt að fjórir metrar á hæð
og geta menn því séð hve
snjórinn er mikill þarna.
- m.j.
Langkaldasti maí í hálfa öld:
Hitastig undir frostmarki
allan mánuðinn fyrir norðan
ÞESSI maímánuður var óvenju kaldur um land allt og sá
langkaldasti síðan mælingar hófust hér á landi fyrir u.þ.b. 100
árum. Munurinn á þessum mafmánuði og þeim kaldasta hingað
til er milli 1 og 2 gráður á þeim stöðum, sem reiknaðir hafa verið
út núna, samkvæmt þeim upplýsingum, sem Þórir Sigurðsson,
deildarstjóri á Veðurstofunni veitti Mbl.
Meðalhitinn í Reykjavík var
núna 2,3 gráður og er það rúm-
lega 4,5 gráðum kaldara en í
meðalári. Kaldasti máimánuður
til þessa var 1888 en þá var
meðalhitinn 3,3 gráður og 1914
og 1949 fylgja svo á eftir, en í
þeim báðum var hitinn 3,6 gráð-
í Stykkishólmi hófust mæling-
ar 1845 og köldustu maímánuðir
hingað til voru 1866 og 1906, en
þá var meðalhitinn 1,4 gráður.
Núna mældist hitinn í maí 0,9
gráður er það rúmri 4,5 gráðu
kaldari en venjulega.
Á Akureyri var hitinn mínus
0,3 gráður, á Raufarhöfn var
hitastigið mínus 1,9 gráður og á
Teigarhorni við Berufjörð var
hitastigið í maí mínus 0,5 gráða
og er þetta 6—6,5 gráðum kald-
ara en í meðalári.
Kaldasti maímánuður á Akur-
eyri var 1906 en þá var meðalhit-
inn 1,5 gráða eða tæpum 2
gráðum hlýrra en í ár. Á Raufar-
höfn og Teigarhorni voru maí-
mánuðirnir 1888 og 1892 kald-
astir en þá var um mínus 1 gráða
á Raufarhöfn og plús 1,7 gráða á
Tei^arhorni.
A Höfn í Hornafirði var með-
alhitinn núna 1,5 gráða og er það
4.7 gráðum kaldara en venjulega.
Vorið í heild, þ.e. apríl og maí,
er með þeim köldustu sem komið
hafa. í Reykjavík var vorið 1949
þó kaldara, þá var meðalhitinn
1.8 gráður en 2,2 gráður núna.
Urkoman í Reykjavík mældist 10
millimetrar, sem er fjórðungur
meðalúrkomu en á Akureyri
mældust 23 millimetrar, sem er
52% umfram meðallag. í
Reykjavík mældust sólskins-
stundir 277 eða 92 stundum
umfram meðallag og á Akureyri
192 stundir, sem er 20 stundum
meira en í meðal maímánuði.
Tvö skip
seldu íHull
TVÖ ÍSLENZK fiskiskip seldu
afla í Bretlandi í gærmorgun.
Ýmir HF seldi 102,3 tonn í
Fleetwood fyrir 26,4 milljónir
króna, meðalverð 258 krónur, og
Ársæll Sigurðsson HF seldi 67
tonn í Hull fyrir 24,5 milljónir
króna, meðalverð 366 krónur.
Söluaukning
HEILDARSALA Iceland Seafood
Corporation árið 1978 varð 72 2
milljónir dollara á móti 61,7 mill’j.
dollara árið 1977 og hefur því
veltan aukist um 17%. Fyrstu
fjóra mánuði ársins 1979 var salan
27,2 millj. dollara samanborið við
21,4 millj. dollara á sama tíma
árið 1978 og er það aukning um
27%.