Morgunblaðið - 02.06.1979, Síða 3

Morgunblaðið - 02.06.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979 3 Birgðageymsla SH í Bretlandi: Möguleikar miklir á Bret- landsmarkaði — segir Ólafur Guðmundsson framkvæmdastjóri SH í London „HUGSANLEGA gœti þróunin orðið sú, að byggð yrði verksmiðja í framhaldi af birgðageymslunni, hliðstætt þvf sem varð hjá Coldwater í Bandarfkjunum á sfnum tfma. En slfk verksmiðja er enn aðeins hugmynd sem engin ákvörðun hefur verið tekin um“, sagði ólafur Guðmundsson, framkvæmdastjóri söluskrifstofu Sölumiöstöðvar hraðfrystihúsanna f Bretlandi, þegar Morgun- blaðið innti hann nánar eftir fyrirhugaðri stóreflingu sölu og markaðskerfis SH f Bretlandi. En tillaga um það efni var samþykkt á aðalfundi S.H. f gær. ölafur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri söluskrifstofu S.II. í London. Ólafur sagði að til skamms tíma hafi verið erfitt um vik varðandi sölu á íslenskum fisk- afurðum á Bretlandsmarkaði vegna þorskastríðsins m.a., en það ástand hafi breyst mjög til batnaðar á síðustu tveimur ár- um. Til dæmis hafi útflutningur SH til Bretlands numið 2.577 smálestum árið 1976, en á síð- asta ári nam útflutningurinn 11.468 smálestum. Bretland er orðinn nærst stærsti markaðurinn fyrir fryst- ar sjávarafurðir S.H. Banda- ríkjamarkaður er stærstur með 56.458 smálestir og í þriðja sæti eru Sovétríkin með 7.067 smá- lestir. Ólafur sagði að verðlag færi hækkandi á fiski í Bretlandi og með sterkari stöðu pundsins miðað við Bandaríkjadollar á siðustu misserum hafi möguleik- inn á sambærilegum eða jafnvel betri markaði fyrir ákveðnar fisktegundir, en Bandaríkja- markaður er, aukist. „Þar á ég við fisktegundir sem Bretar hafa vanist m.a. vegna veiða sinna hér við land og við eigum af þeim sökum greiðan aðgang að, því markaðurinn þekkir okkar vöru“, sagði Ólafur. Varðandi framtíðarmöguleika á breska markaðnum hefur það og þýðingu að Bretar eru aðilar að Efnahagsbandalagi Evrópu og þegar hin svonefnda „bókun 6“ tók gildi sköpuðust möguleik- ar á tollfrjálsum innflutningi til annarra Efnahagsbandalags- ríkja frá Bretlandi á frystum flökum, en megnið af þeirri framleiðslu sem SH kemur til með að selja þar eru einmitt fryst flök að sögn Ólafs. Hann sagði einnig, varðandi framtíðarhorfurnar á Bret- landsmarkaði, að veiðar Breta sjálfra hafi dregist verulega saman að undanförnu, til dæmis hafi þorskveiðar þeirra minnkað um allt að 30% á ári síðstu tvö árin. Á sama tíma hafa þeir misst síldarmið sín í Norðursjó vegna friðunaraðgerða og einnig má nefna veiðitakmarkanir á Skotlandsmiðum. Allar þessar takmörkunar- og friðunarað- gerðir stuðla að auknum mark- aðsmöguleikum fyrir okkur sem einu aðal innflutningslandinu í Bretlandi á frystum fiski," sagði Ólafur. „Það eru fyrst og fremst þessar forsendur sem liggja að baki hugmyndinni um birgða- aðstöðu fyrir S.H. í Bretlandi, því það hefur í för með sér miklu öruggari og betri stöðu S.H. á markaðnum að geta selt af birgðum í Bretlandi", sagði Ólaf- ur. „Slík birgðaaðstaða yrði þá að vera á stað sem hentaði vel fyrir dreifingar- og markaðs- kerfi okkar þar ytra. Aðallega er um Bretland sjálft að ræða, en góðar samgöngur eru þaðan til Frakklands, Belgíu og Hollands og tilkoma birgðastöðvar í Bret- landi gæti orðið til þess að styðja eða efla markaðsaðstöðu okkar á því svæði einnig“, sagði Ólafur Guðmundsson að lokum. Undirnefndir að störf- um í farmannadeilunni UNDIRNEFNDIR í íar- mannadcilunni voru að störf- um í gær og verða að störfum í dag. Samkvæmt upplýsingum Torfa Hjartarsonar ríkis- sáttasemjara munu sátta- nefndarmenn eitthvað huga að málum um helgina en hann kvað málin lítt hafa skýrzt enn. Farið hefur verið yfir þau uppköst að rammasamning- um, sem komið hafa frá aðil- um um kerfisbreytingu. Þá hafði Morgunblaðið spurnir af því í gær að sátta- nefndin hafi krafizt ákveðinna upplýsinga af vinnuveitendum og afhentu þeir launadæmi og útreikninga í sambandi við deiluna. Sumarleyflsstaöur islendlnga No. 1 — vinsœlaslur í melra en áratugX' Beztu glstlstaöirnir — menntandl kynnlsferðlr — golt — frábærir alþjóölegir matsölustaölr — fjölbreytt skemmtanalíl. Utsýnarþjónusta. Verð Irá kr. 13«.200 ( 2 vikur Brottfarardagar: Júní: 8.. 22.. 29. Júlí: 6.. 13.. 20.. 27. Ágúst: 3., 10., 17., 24.. 31. Sept: 7.. 14., 21. Okt: 5. Töfrar ítalíu eru engu líklr — Ugnano Sabbiadoro — baöstaöurlnn sem upplyllir öll skilyröi leröamannslns um énægjulegt sumarleyti — takiö börnln meö — barnagæzla undlr stjórn (slenzkrar fóstru. Varð Irá kr. 147.400 ( 2 vikur Brotttarardagar: Júní: 17. Júlí: 1., 8.. 15., 22., 29. Ágúst: 5.. 12.. 19.. 26. Sept: 2 . 9. Náttúrufegurö Júgóslavíu er rómuö — aöbúnaöur á gistlstööum Útsýnar Irábær — stór og björt herbergi — mjög góöur matur — íþróttaiökendur linna hér beztu fáanlega aöstööu — hellsuræktarmiö- stöð í Portoroz. Portoroz: Varð trá 189.500 ( 2 vikur mað tæði Brotttarardagar: Júní: 24. Júlí: 1.. 8., 15.. 22.. 29. Ágúst: 5.. 12.. 19., 26. Sept: 2., 9. Porec: Varð frá kr. 210.100 f 3 vikur mað tæði Brottlarardagar: Júní: 24. Júlí: 15. Ágúst: 5.. 26. Hér linnum vlö Vesturlandabúar .Rætur" okkar í frumsögu menningar og lista — heimspeki og lýöræölsskipulagi. — Vouliagmeni — bezti baöstaöur Grikklands í nágrennl Aþenu Slguröur A. Magnússon, aöalfararstjóri Útsýnar í Grlkklandl er fróöastur Islendlnga um sögu og menningu Grikkja. Varð Irá kr. 209.000 ( 2 vikur Brotttarardagar: Júní: 6., 27. Júlí: 18. Ágúst: 8., 29. Sept: 12. Á Costa Brava fáiö þiö mest fyrlr feröasjóölnn — Einn ódýrasti og glaöværasti baöstaöur Spánar — góö baöströnd — beztu gististaöirn- ir — Útsýnarþjónusta. Varð frá kr. 153.200 I 2 vikur Brottfarardagar. Júní: 19. Júlí: 10.. 31. Ágúst: 21. Sept: 4. Austurstræti 17, símar 26611 — 20100. Með Útsýn vandað en ódýrt og öruggt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.