Morgunblaðið - 02.06.1979, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 02.06.1979, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979 Björn Emilsson skrifar: í fyrstu spyrnunni reis hann algjörlega upp á afturhjólin, svo sá í iljar Benedikts. (Teikn. greinarhöf.). Blöðrurnar stóðu stg með ágætum, en hetðu eflaust getað betur. áðurnefnds Benedikts fékk það á peruna að aka yfir fótósellu peruna við enda brautarinnar. Varð af því nokkur bið, sem þó var ekki svo mjög leiðinleg, því í stað kvartmíluaksturs fengu áhorfendur kvartmíluhlaup Jóhanns Kristjánssonar, varafor- manns klúbbsins, fram og til baka á brautinni. Virtist hann í góðu formi sem endranær, enda einn duglegasti stjórnarmeðlimur Samkomulag var gert við Bifreiðaeftirlit ríkisins um að það skoðaði alla bílana áður en keppn- in hæfist. Þar fundust nokkur skemmd epli, sem ekki fengu að koma í körfuna. Því urðu Jbílar þeir, sem skráðir voru til keppni, heldur færri en búist hafði verið við. Fyrir vikið varð keppnin ekki eins lítrík og menn höfðu vonað. Auk þess vantaði nokkra orku- mestu bíla okkar á svæðið. Hvað S.L. LAUGARDAG var hér á þessari síðu fjallað um þá þremmenninga Birgi Jónsson, Kristin Kristinsson og Sigurð Jakobsson. Þeir höfðu unnið sér það til frægðar, að sameinast um endurbyggingu Chevrolet Monzu Birgis, til kvart- mílukeppna. Við reynsluakstur bíls- ins létu ýmsir áhorfendur í ljós óánægju með tilþrif hans. Sögðu hann virka lítið og ekki til stórræð- anna. Þeir félagar létu þessi orð sem vind um eyru þjóta, enda fór svo að lokum, að þeir komu, sáu og sigruðu með nýju brautarmeti. Um 6000 áhorfendur urðu vitni að fyrstu keppni klúbbsins í blfðskapar- veðri. Margir skemmtilegir og sprækir bílar voru mættir til leiks, en hefðu mátt vera fleiri. Menn eru greinilega smeykir við að koma með bíla sína, svona í fyrstu bunu. En bunurnar eiga eftir að verða fleiri og þá verður kátt í höllinni. Fleiri keppnir eru framundan hjá klúbbn- um. Kvartmílingar eru ekki seztir í helgan stein, ekki aldeilis. Þeir syngja: „Þú sefur betur Svavar, í vasa okkar kafar. Olían góða hækkar og kvartmílutíminn lækkar“. (Snngið vift lagið „Afl mlnn fár á honum Rauð“.) „ISS, hann virkar ekkert", var það síðasta sem klingdi í eyrum þremenninganna Birgis, Kristins og Sigurðar, er þeir yfirgáfu Kapelluhraun fimmtudagsinn 24. maí eftir æfingaspyrnur á Monzu Birgis. Þeir höfðu þá vakað í tvo sólarhringa við að útbúa trompið. Það breyttist því heldur hljóðið í „issurum" s.I. laugardag þegar ásinn var lagður á borðið. Hér voru engin brögð í tafli, engin merkt spil. Monsan var greinilega bíll dagsins. Hún fór kvartmíluna á 12.07 sekúndum, sem er nýtt brautarmet. Birgir bakari bakaði alla mótherja sína, sumir þeirra fóru jafnvel viðbrenndir frá spyrnunum. Þó voru á svæðinu margir kraftmiklir bílar. Gallinn var bara sá, að fáir þeirra virtust fara spyrnurnar hnökralaust. Sumir ökuþóranna kenndu lélegum skiptingum eða illa stillt- um vélum ófarirnar sínar. Eflaust var nokkuð til í því. Sumir bílarn- ir bókstaflega hóstuðu 400 metrana með viðeigandi við- rekstri og fnyk. Einn bílstjór- anna, hinn margfrægi Benedikt Eyjólfsson, fór brautina eins og hann sæti á golfkúlu. Hann réð ekki við hestana í vagni sínum, slíkur fídonsandi var í iðrum bílsins. í fyrstu spyrnunni reis hann algjörlega upp á afturhjólin og var nærri farinn yfirum, svo sá í iljar Benedikts. Undirritaður hefur aldrei orðið vitni að öðru eins „weel-stand-i“ (afsakaðu orðbragðið). Hvaða stóðhestur sem er væri vel sæmdur að öðru eins prjóni. Enda varð Eyjólfur að orði eftir himnaförina: „Það er eins gott að ég sleppti ekki kúpl- ingunni á 5000 snúningum, þá hengi ég nú í öryggisbeltinu á hvolfi eins og kanarífugl í búri“. Mönnum til glöggvunar lyfti Benedikt vinstri fæti við 4000 snúningana og er því enn hér á meðal vor og án vængja. Stolt kvart-Gaflara, hin vinsæla Volvo-kryppa mætti til leiks, bálreið að vanda. Það mátti sjá á áhorfendum, er kryppan skreið upp á brautarendann, að hér færi skrímsli nokkuð, sem éta mundi andstæðinga sína. Kryppan var jú vön að sigra í gamla daga. Það fór þvi kliður um aðdáendur hennar, en henni var ekið að jólatrénu. Ljósin tendruð- ust og tyggigúmmídekkin klístruðust við malbikið í átökun- um, en allt kom fyrir ekki. Um miðja brautina hægði bílinn á sér. Viftureimin hafði fokið af og auk þess var kúplingin ekki með sjálfri sér. Kvartmíluhátíðin á laugardag- inn var fór í alla staði vel fram, þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðug- leika. Svo sem þá, að ótemja klúbbsins. Tíma hans á brautinni fengum við ekki uppgefinn, til þess var hann of uppgefinn. Mikil áherzla var lögð á öryggi keppenda á keppnisdegi. olli því, skal ósagt látið, en gaman væri að sjá þá á næstu keppni klúbbsins. Þeir sem sigruðu í keppninni voru: Anna María Pétursdóttir, á BMW 2002 í Standard-flokki. Hún mun vera fyrsta konan, sem vinn- ur til verðlauna í íslenzkum kvartmíluakstri. Við strákarnir óskuðum henni til hamingju og gætum okkar framvegis. í öðrum flokki, Modified-Standard, sigraði Einar Egilsson á Chevrolet Camaro Super Sport 390 CID. í þriðja flokki sigraði Birgir Jónsson á Chevy Monzu. Hann keppti í Street-Altered-flokki og ók k-míluna á 12.07 sekúndum, sem er nýtt brautarmet. Til gamans má geta þess, að vélin í bíl Birgis var minnsta 8-strokka vélin í keppninni, en blönd- ungarnir tveir, ásamt ýmsum leynibrögðum, gerðu gæfumun- inn. I mótorhjólaflokki sigraði Hilmar Harðarson á Kawazaki 1000 KZ hjóli. Monza Birgis Jónssonar fór kvartmflnna á 12,07 sekúndum, sem er nýtt brautarmet. Finnbjörn situr hér undir stýri í stoltl kvart-Gaflara, tilbúinn til „burn-out“ Kryppan stóð sig ekki sem skyldi, en lyfti oft framhjólunum. Formaður Bifreiðaklúbbs Akureyrar mœtti til leiks i einum fallegasta bflnum. Af myndinni að dæma mætti halda að hann hafi komið með Austf jarðaþokuna í skottinu. Benedikt Eyjólfsson t.h. réð ekkl við hestana í vagni sfnum og íékk því ekki eins góðan brautartfma og búizt var við. Bfll hans er útbúinn með 455 Pontiac-vél. Til gamans mé geta þess, að þegar þessi bfll kom til landsins fyrir um 10 árum síðan, var í honum 6 strokka Buick-vél með overdriveútbúnaði. Hann mun hafa verið einn af fyrstu 6 strokka jeppunum. Eigandi bílsins á þeim tíma var Helgi Sveinbjörnsson og gekk bíllinn undir nafninu Skuggi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.