Morgunblaðið - 02.06.1979, Side 24

Morgunblaðið - 02.06.1979, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979 + Faöir minn ÖNUNDUR STEINDÓRSSON, Hólagötu 4, Neskaupstaö, andaöist 31. maí í Fjóröungssjúkrahúsinu Neskaupstað. F.h. systkina minna Steindór önundarson. + Faöir okkar og tengdafaöir - BJÖRN JÓNSSON, fyrrum bóndi 1 LaugahUó, Svarfaöardal, lést í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri þriöjudaginn 29. maí og verður jarösunginn frá Akureyrarkirkju, þriöjudaginn 5. júní kl. 13.30. Þórunn Björnsdóttir, Anna Björnsdóttir, Hallgrímur Björnsson, Jón Björnsson, Baldur Ingimarsson. + Útför mannsins míns og fööur okkar, PÉTURS J. DANÍELSSONAR fer fram frá Fossvogsklrkju, miövikudaginn 6. júní kl. 10.30. Guörún Pélsdóttir og böm. + Útför eiginkonu minnar HERDÍSAR JÓNSDÓTTUR, Hvassaleiti 24, fer fram frá Fossvogskirkju miðvlkudaglnn 6. júní kl. 1.30 e.h. Bjarni Sigurösson. + Útför móöur okkar HELGU HELGADÓTTUR, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miövlkudaglnn 6. júní kl. 15.00. Jarðsett veröur í kirkjugaröinum viö Suöurgötu. Guöný Magnúsdóttir, Jón E. Magnússon, Valgeröur H. Magnúsdóttir, Guörún Magnúsdóttir. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi ÞÓRÐUR GEORG HJÖRLEIF8SON, skipstjóri, Bergstaóastræti 71, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaglnn 5. júní kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þelr sem vildu mlnnast hins látna, er bent á líknarfélög. Lovfsa Halldóradóttir, Hrafnhildur Þóröardóttir, Lárus Hailbjörnsson, Hjördís Þóróardóttir, Guömundur Karlsson, Andrea Þóröardóttir, ísleifur Bergsteinsson, Hjörleífur Þóröarson, Jensína Magnúsdóttir, Ásdís Þóröardóttir, Valdimar Hrafnsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartkær litli sonur okkar og bróöir, EINAR ANGANTÝSSON, Kleppsvegi 14, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 29. maí s.l. Jaröarförin hefur farlö fram. Hugheilar þakkir öllum sem hafa auösýnt okkur hlýhug, sent okkur kveöjur og veriö okkur hjálpleg. Sérstakar þakkir færum viö læknum og starfsfólki Barnaspítala Hringsins. Megi gæfan fylgja ykkur öllum. Auöur Ásgrímsdóttir, Angantýr Einarsson, Halla Angantýsdóttir, Hlynur Angantýsson, Ásgrfmur Angantýsson. + Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug við andlát og útför ÞÓRUNNAR BJÖRNSDÓTTUR, frá Miöhópi. Sérstakar þakklr skulu færöar læknum og starfsfólki Héraöshælis- ins Blönduósi. Börn, tengdabörn, barnabörn og fósturbörn. Þórður Hjörleifsson skipstjóri—Minning Fæddur 14. september 1904. Dáinn 27. maí 1979. Liing þé Hjúkdómxlelðln verður, lífiö hvergi vægir þér. Þrautir magnaet, þrjóta kraftar. Þungt og sirt hvert sporiö er, honum treystu, hjílpln kemur, hann af raunum sigur ber. Drottinn lieknar, Drottinn vakir daga og nætur yfir þór. Sig. Kr. Pétursson. Þessi ljóðlínur eiga svo sannar- lega við um ástkæra minningu elsku afa okkar. Afi sem kvaldist í um það bil 40 ár eftir slys sem hann varð fyrir. Margar voru þær þjáningar sem hann þurfti að ganga í gegnum, en aldrei minnt- ist hann á það né kvartaði. Afi dró sífellt úr því hversu veikur hann var í raun og veru. Efst í huga hans var ætíð hvort ekki hefði það nú einhver verr en hann sjálfur og liði meiri þjáningar. Margar sögur hefur móðir okkar sagt okkur en þær hafði hún heyrt hjá afa þegar hann kom þreyttur og lúinn heim af sjónum. Alltaf skyldi hann hafa tíma til þess að opna faðm sinn fyrir börnum sínum og annarra til þess að spjalla við þau um ýmislegt sem hann sjálfur hafði séð og upplifað á ferðum sínum um höf- in. Margir á okkar tímum tala um of langan vinnutíma og að ekki sé nægur tími til þess að vera með börnunum sínum. Þetta er að sumu leyti rétt, en hin hliðin á málinu er sú að sá tími sem fólk dvelur með börnum sínum af lífi og sál skiptir meira máli, ekki það endilega hversu lengi. Þetta skildi afi. Hann lagði alla tíð ríka áherslu á að tengslin innan fjölskyldunnar yrðu sem nánust. Oft minntist hann á þetta og virtist það vera honum alveg sérlega hjartnæmt. Þær stundir sem við áttum með honum fundum við oft hve ríka réttlætiskennd hann bar í brjósti. Allir skyldu njóta sannmælis af vörum hans, einnig lagði hann mikið upp úr því að fólk væri stundvíst og duglegt í vinnu. Alltaf var hann sæll og glaður þegar hann vissi að allir í fjöl- skyldunni væru búnir að fá atvinnu og þeir sem í skóla voru hefðu náð góðum árangri. Sælir þeir, cr sýta og gráta, sorgin beizk þó leggist á. Guð mun hugga, Guð mun láta gróa sár og þorna brá. Vald. Briem. Minning: PÁLL ÞORLEIFS- SON BÓNDIENNI Fæddur 16. október 1903. Dáinn 17. mái 1979. Þegar ég heyrði um lát vinar míns, Páls Þorleifssonar bónda að Enni við Hofsós, kom í huga minn löngu liðinn atburður, sem reynd- ar voru mín fyrstu kynni af þeim hjónum Svanhvíti Jóhannesdótt- ur, móðursystur konu minnar, og Páls, en hjá þeim hafði hún dvalið langtímum saman, á sínum barns- og unglingsárum og litu þau ætíð á hana sem eitt af sínum börnum, og þau vináttubönd sem þá voru bundin hafa aldrei rofnað. Síðla dags í marzmánuði 1955 kom ég ásamt syni mínum 6 ára til Hofsóss, með flóabátnum Drang. Ferðinni var heitið að Enni, en þar var ég búinn að koma honum í fóstur í hálft ár, en þann tíma dvöldumst við hjónin í Noregi. Páll beið á bryggjunni með hest og sleða og þrátt fyrir snjó og byl var bóndinn hress og kátur og var ekið greitt upp að Enni. Á hlaðinu fagnaði Svana okkur innilega og nú var notalegt að setjast inn í bæinn að hlöðnu matborði. Ekki voru húsakynni í Enni þá háreist né íbúrðarmikil, en ég gleymi aldrei móttökum þessara sæmd- arhjóna þetta vetrarkvöld og þeg- ar ég sneri til skips um nóttina, var ég öruggur um að drengurinn var í foreldrahöndum og sex urðu víst sumrin sem Örn dvaldist þar og alltaf var tilhlökkunin jafn mikil að komast í Enni. Páll var fæddur að Hrauni í Unudal 16. október 1903 og 25 ára gamall kaupir hann Enni og hóf þar búskap með konu sinni. Ekki voru efnin mikil og munu það hafa verið erfið ár meðan verið var að greiða jarðarverðið og koma upp bústofninum. Ungur að árum fékk Páll berkla í annan fótinn og BLÓMAKER GARÐÞREP MOSAIK HF. 5~ag~* + Þökkum auösýnda samúö viö fráfall og Jaröarför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa. MARTEINS ÓLAFSSONAR, fré Garöabn f Höfnum. Sérstakar þakklr til lækna og hjúkrunarfólks á Landspítalanum og í Hátúni 10B. Kriatján Gréfar Marteinaaon, Áata Magnúadóttir, Katrfn Marteinadóttir, Jón Óakaraaon, Stafán Bjarnaaon, barnabörn og barnabarnabörn. Mikið fannst honum gaman að setjast niður og ræða við okkur um framtíðina og það hvað við höfðum hugsað okkur að gera. Hvatti hann okkur ætíð áfram og skýrði fyrir okkur ýmislegt sem betur mætti fara. Minnisstæðastar eru okkur þær stundir sem við sátum með honum úti í garði í glaðasólskini næstum öll barnabörnin, við hlupum upp í fangið á honum og hann kyssti okkur á kinnina, klappaði létt á öxlina og hló með. Sorglegt er til þess að hugsa að hann fengi ekki notið sólpallsins sem nýlolið var við að smíða, einungis fyrir hann. Stuttu fyrir andlát sitt sagði hann: „Á morgun kem ég heim til að sitja á nýja sólpallinum." Trú okkar er sú að hann sitji þar löngum stundum á sólríkum dög- um og brosi til okkar þótt horfinn sé sjónum. Margir mættu taka afa sér til fyrirmyndar og hafa í huga per- sónuleika hans og drengskap í garð allra sem hann umgekkst, unga sem aldna. Fá orð eigum við yfir þá gleði og ánægju sem það hefur veitt okkur að hafa fengið tækifæri til þess að alast upp og njóta samvista við þennan trausta og dásamlega mann. Ætið munum við minnast hans með ást og hlýhug. Megi hann hvíla í friði og blessuð sé ætíð minning hans. Við vottum elsku ömmu okkar Lovísu dýpstu og innilegustu sam- úð. Hún getur ávallt verið minnug þess að sá sem deyr er ekki dáinn að eilífu, minningin lifir í hjörtum okkar sem þekktum afa Þórð. Guð styrki ömmu og ástvini. Megi verndarhendi hans vera yfir þeim öllum. Þórunn Lovísa ísleifsdóttir Guðrún ísleifsdóttir Gunnar örn ísleifsson. dvaldist um tíma á sjúkrahúsi hér syðra og fékk bata en fóturinn varð aldrei samur og háði það honum mjög, sérstaklega hin síð- ari ár. En ekki var gefist upp. Uppúr fátæktinni var risið, þó hægt færi, og varð Enni í höndum Páls og Svönu að myndarjörð vel hýstri og með sléttuð tún. Börnin urðu fimm, allt dugnað- ar- og sómafólk, en þau heita Hugljúf, Jóhannes, Þráinn, Ingi Þormar og Auðbjörg, öll gift og flutt að heiman, nema Hugljúf sem býr á hluta af jörðinni ásamt manni sínum. Páll var kominn á miðjan aldur er ég sá hann fyrst. Hann var hávaxinn maður, samsvaraði sér vel, dökkur á brún og brá og kvikur í hreyfingum. Dulur var hann, en kunni vel að gleðjast með kunningjum, hafði yndi af tónlist og spilaði á hljóðfæri, átti gamalt orgel og settist oft við það og lék fyrir heimilisfólkið. Hann var mikill dýravinur og var unun á að horfa hve natinn hann var við skepnur sínar og á það reyndar við um alla fjölskylduna, þessi vænt- umþykja náði langt út fyrir búst- ofninn. í bæjarlæknum við Enni urðu krakkarnir eitt sinn vör við silungslontu, hann var ekki veidd- ur, nei þau gáfu honum nafn, Snorri var hann kallaður. Snorri kom undan bakkanum þegar kall- að var á hann og borðaði mat úr lófa þeirra um leið og þau klóruðu honum og tóku hann í lófa sinn. Oft naut ég ásamt fjölskyldu minni greiðasemi Páls og gest- risni, sem ég nú þakka með þessum fátæklegum orðum, og oft stóðum við í túninu heima hjá honum og nutum • einhverrar þeirrar fegurstu sjónar sem ég hef augum litið, en það er Skagafjörð- urinn, með eyjunum frægu baðað- ur í miðnætursólinni. í sumar verður Páll ekki með, en hans mun verða minnst og á slíkum stundum þarf ekki orð, þá talar náttúran sitt töframál, mál sem hann skildi svo vel. Við hjónin og börn okkar send- um Svönu og öllu hennar fólki samúðarkveðjur og þakkir fyrir einlæga vináttu frá fyrstu kynn- um. Jóhann Indriðason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.