Morgunblaðið - 02.06.1979, Side 25

Morgunblaðið - 02.06.1979, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979 25 Annað garða- og fréttabréf frá Bretlandi „Okkar maður" í Bretlandi, Steinunn Ólafsdóttir, hefur aft- ur sent okkur svolítinn frétta- pistil, góða hvítasunnuhugvekju: Slæmt er að heyra hvað vorið hefur verið kalt hjá ykkur en vonandi fer nú að hlýna snar- lega. Fyrir skömmu síðan fórum við í fimm daga ferð til Sommerset, Dorset, Dewon og Cornwall. Og margt fagurt bar fyrir augu, og ýmis áhugaverður gróður er þarna suðurfrá, t.d. villtar alpa- rósir. Meðfram vegaköntum voru blómstrandi prímúlur (Primula vulgaris), í skógunum bláklukkulaukur og hvítar og bláar anemónur og þegar á suðurströndina kom mátti sjá pálma hingað og þangað í bæj- unum, að vísu höfðu þeir sums- staðar látið á sjá eftir þennan harða vetur. Allsstaðar er plant- að hvítþyrni meðfram vegum sumstaðar var hann svo hár að ekkert var hægt að sjá út úr bílnum og vorum við ekki alltof hrifin af því. En þarna suðurfrá eru mildir vetur og sjaldan frost, en rigninga- og vindasamt og er þetta gert til skjóls (lærdóms: ríkt fyrir íslenska bændur!) í New Forest vaxa villtar gladiól- ur og sitthvað fleira fallegt innan um ilex, burkna og eikitré. Undanfarna daga hefur verið mikill hiti 23—28 stig. Allur gróður hefur þotið upp og nú blómstra kirsiberjatrén (Prunus) af ýmsum stærðum og gerðum, sum eru japönsk. Einnig paradísareplin (Malus) og fleira og fleira sem of langt yrði upp að telja. Hin eiginlegu eplatré eru með hvítum eða bleikum blómum, hestakastaníutré blómstra rauðu eða hvítum, og svo eru sírenurnar komnar með sín il- mandi hvítu eða fjólubláu blóm, og ekki má gleyma rauð- og hvítþyrni sem eru ákaflega blómfögur tré. Magnolíutréð er með gríðarstór hvít eða bleikleit blóm og stjörnumagnolían (Magn. stellata) með hvít stjörnublóm undrafögur. Flest- allar trjátegundir — og þær eru margar — eru orðnar allaufgað- ar m.a. hjartarhornstréð (Rhus typina) skrítið og skemmtilegt tré. Spirea arguta stendur nú alhvít af blómum eins og snjór hafi fallið á hana. Norðmenn kalla hana Snerivebusk með réttu. Ymsar klifurjurtir eru orðnar fallegar t.d. klifurberg- sóley (Clematis montana) sem er bleikblómstrandi. Þá eru enn ótaldar allar blómjurtirnar sem útsprungnar eru en þess má geta að steinhæðir eru nú þaktar með uppáhaldsblómum þeirra breta: hraunbúa, álfakraga, bergnál og garðaljóma í ýmsum litum. Því miður stendur þessi há-blóma- tími stutt, einkum þegar heitt er og nú þegar eru byrjuð að falla blómin af ávaxtatrjánum. í lengri tíma hef ég horft hér á garðyrkjudagskrá í B.B.C. sem heitir Gardeners World og er afar góður. Þá eru heimsóttir garðar, talað við garðyrkjufólk og sýnikennsla í ýmiskonar ræktun. Hvernig getur staðið á því að íslenska sjónvarpið skuli ekki vera komið með slíka þætti fyrir löngu? Þetta er afar vin- sælt efni og hefur gengið í mörg ár. Gott verður að koma heim í júnílok og upplifg vorið heima á íslandi og hvergi er blómailmurinn jafn sterkur og þar. Með bestu kveðjum og óskum um að nú fari sól og hlýindi að verma ykkur og gróðurinn heima. CUmbridge 18.5.79 S.ÓI Ragnar Lár sýn- ir á Sauðárkróki Ragnar Lár sýnir í Safnahúsinu á Sauðárkróki um hvítasunnuhelgina. Á sýningunni eru vatnslita- og akrylmyndir. Sýningin verður opin daglega frá kl. 15—22 dagana 2.-4. júní. V < .. - .. .. V IJilKUV . Ki.ll: \ Lf-JKUR ::r stak; f \ IIJKURLR | y VINNA BÁHNSINS ^ KA V.__J Leikfanga- sýning FÓSTRUFÉLAG íslands efnir til sýningar á leikföngum fyrir börn á aldrinum 0—7 ára og verður sýningin opnuð í Haga- skóia mánudaginn 4. júnf n.k. en hún er haldin f tilefni barna- ársins. Fjórtán aðilar hafa lánað leikföng til sýningarinnar. Leikfangasýningin verður opin almenningi til sunnudags- kvöldsins 10. júní, frá kl. 15—22. Síðar er fyrirhugað að fara með sýninguna til Akureyrar og Egilsstaða. Aðgangur að sýning- unni er ókeypis en efnt verður til leikfangahappdrættis á sýning- unni í Reykjavík. Málverkasýning Kjarvalsstödum 26.mai-17júni Opið alla daga kl.2-10 EFÞAÐERFRÉTT- 9) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU 10 ástædur fýrir kaupum á PHILCO Viðurkennt ullarþvotlakerfi. 7. Stór þvottabelgur, sem tekur 5 kg. og stórar dvr er auðvelda hleóslu. 8. Fjöldi kerfa, sem henta þörfum og þoli alls þvottar. 9. Fullkomin viðgerðarþjónusta er vkkar hagur. < 10. Verðið er mun lægra en á sambærileg- um vélum. Tekur inn heitt og kalt vatn, sem þýðir tíma og rafmagnsspamað. 2. Vinduhraði sem cr allt að 850 snún/- ntin, flvtir þurrkun ótrúlega. 3. 4 hitastig (32/45/60/90°C), sem henta öllum þvotti. 4. Spamaðarstilling fyrir vatn og raf- magn. 5. 3 mismunandi hraðar i þvotti og tveir i vindu, tryggja rétta meðferð þvottar- PHILCO og fallegur llls‘ þvottur fara saman. heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 - SÆTÚN 8 — 15655

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.