Morgunblaðið - 02.06.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
29
Á annað þúsund svör bárust í
spurningakeppni Varðbergs
ÚRSLIT í spurningakeppni sem
Varðberg, íélag ungra áhuga-
manna um vestræna samvinnu,
gekkst fyrir í dagblöðum nýlega,
voru kunngerð s.l. miðvikudag.
Voru spurningarnar tengdar
þátttöku íslands í Atlantshafs-
bandalaginu. í boði voru tvenn
peningaverðlaun, en auk þeirra
tíu bókaverðlaun.
I hófi, sem haldið var að Hótel
Loftleiðum, kynnti Alfreð Þor-
steinsson, formaður Varðbergs,
úrslit í keppninni, en þátttaka í
henni var góð og bárust hátt á
annað þúsund úrlausnir. Dregið
var úr réttum lausnum og hlaut
Dóra G. Jónsdóttir, gullsmiður, 1.
verðlaun, sem voru 150 þúsund
krónur. Önnur verðlaun hlaut
Guðmundur Rúnar Ólafsson, há-
skólanemi, en þau námu 100 þús-
und krónum.
Þá hlutu eftirtaldir aðilar bóka-
verðlaun: Þórdís Kristinsdóttir,
Hafnarfirði, Ragnar Hauksson,
Reykjavík, Óli S. Pétursson, Hofs-
ósi, Vilhjálmur Guðbjörnsson,
Kópavogi, Vilhelmía Hauksdóttir,
Reykjavík, María Ingvarsson,
Reykjavík, Guðlaugur Leósson,
Kópavogi, Diðrik Jóhannsson,
Borgarnesi, Birgir Ólafsson, Vest-
mannaeyjum og Lárus Baldurs-
son, Reykjavík.
Alfreð Þorsteinsson íormaður Varðbergs, afhendir Dóru G. Jónsdótt-
ur 1. verðlaun í spurningakeppni félagsins.
Þessi mynd er frá verðlaunaafhendingunni á Loftleiðahóteli. M.a.
sjást á myndinni verðlaunahafarnir Dóra G. Jónsdóttir og Guðmund-
ur Rúnar Ólafsson er sitja við hlið formanns, Aifreðs Þorsteinssonar.
Einnig sjást nokkrir stjórnarmenn Varðbergs, þ. á m. Róbert T.
Árnason, Björn Hermannsson og Björn Björnsson. Þá sjást og gestir í
hófinu, Mik Magnússon blaðafulltrúi og Hermann Bridde bakara-
meistari, auk starfsfólks upplýsingaskrifstofu Atlantshafsbandalags-
ins á íslandi.
Vestmannaeyjar:
Skólaslit Stýrimannaskólans
STÝRIMANNASKÓLANUM í
Vestmannaeyjum var slitið fyrir
nokkru. Flutti skólastjórinn,
Friðrik Ásmundsson, skólaslita-
ræðu og afhenti nemendum próf-
skírteini og verðlaun.
Guðjón Guðjónsson frá Vopna-
firði var hæstur á fyrsta stigi með
meðaleinkunn 9,44, annar Sigurður
Sveinn Másson Reykjavík með
meðaleinkunn 7,88 og þriðji Birgir
Þór Sverrisson Vestmannaeyjum
með 7,81. Hæstur í öðru stigi verða
Róbert Guðfinnssson Siglufirði með
meðaleinkunn 9,07, annar Magnús
Kristinn Sigurðsson Vestmanna-
eyjum með 7,88.
Róbert Guðfinnsson fékk í verð-
laun veggskjöld frá Sigurði
Einarssyni útgerðarmanni og
verður honum veitt svonefnt
Verðandaúr frá Skipstjóra- og
stýrimannafélaginu Verðandi á
sjómannadaginn. Magnús Kristinn
Sigurðssón fékk verðlaun úr Verð-
launasjóði Ástu og Friðfinns
Finnssonar frá Oddgeirshólum.
Hannes Tómasson skipstjóri frá
Höfn færði skólanum að gjöf oktant
og Kristján Laxfoss morslampa,
Tryggingamiðstöðin gaf skólanum
siglinga- og fiskileitartæki, sem
voru um borð í skuttogaranum
Breka, fyrir brunann. Báta-
ábyrgðarfélagið Vestmannaeyja gaf
kr. 200 þúsund í Styrktarsjóð
nemenda.
Kúpangskaiiistaður G!
Sýning á Miðbæjarskipulagi
aö Hamraborg 1 veröur framlengd til fimmtu-
dags 7. júní (lokaö hvítasunnudag).
Framhald borgarafundar um Miöbæjarskipu-
lagið veröur í Víghólaskóla þriöjudag 5. júní
kl. 20.30.
Bæjarstjóri.
Viö erum fluttir
frá Nýbýiavegi 2 aö
Skemmuvegi 6
Söluaöili fyrir
Tifesfonc
• Alhliða hjólbarðaÞjónusta.
• Hjólbarðasala. Nýir og sólaðir hjólbarðar.
• Jafnvægisstilling.
• Öll Þjónusta ínnanhúss.
Hjólbarðaviðgerð
Kópavogs
Skemmuvegi 6, sími 75135.
Veislumatur
skemmtiatriöi
Verið velkomin
Þaö er ódýrt aö boröa hjá okkur
Við bjóðum stórsteikur sem smárétti
Allt aföllu i mat og drykk.
MuniÖ ókeypis sérrétt fyrir
börn 10 ára og yngri.
The Bulgarian Brothers“ skemmta matargestum
'.sjubergs sem her segir: í dag frá kl. 6—9, á morgun
vítasunnudag frá kl. 12—2 og 6—9.
Hvítasunnudag frá kl. 12—2 og 6—9.