Morgunblaðið - 02.06.1979, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ1979
ííslandsmótinu verða
leiknir 1050 \e\kir
NU EU knötturinn farinn að rúlia um land allt. cins og .sagt cr á
knattspyrnumáli. scm aú sjálfsiÍKðu þýðir að landsmótin cru hafin. Að
vísu cr nokkuð síðan. að knattspyrnumenn hófu að leika hin ýmsu
vormót. eins Rcykjavíkurmótið. litlu bikarkcppnina og íleiri mót. En
fslandsmótið hófst 11. maí ok það mun vcrða lcikið í því stanslaust allt
þar til um miðjan scptcmbcr.
l)cj;ar daKurinn í dax. lausardaRurinn 2. júní. er að kvcldi kominn
hafa vcrið lciknir 12 lcikir í 1. dcild. 20 lcikir hjá konum. 15 leikir í 2.
flokki. 27 lcikir í 3. flokki. 5. lcikir í 4. flokki. 3 lcikir í 5 flokki, 14
lcikir í bikarkeppni KSÍ. auk 2ja landslcikja.
Mcr tclst því til. að búið sá að lcika í 3510 mín. í dcildunum þrcm ok
í um 2000 mín. í öðrum flokkum. cða alls í liðlcga 5500 mín cða tæpar
02 klst.
Ég veit að fyrir marga eru þessar
tölur ekki nein skemmtilesning, en
þær og margar fleiri komu í huga
minn, þegar ég var aö fletta Mótabók
KSÍ á dögunum og satt aö segja
geröi ég mér ekki Ijóst í fyrstu hversu
mikiö „fyrirtæki" ef svo má aö orði
komast, íslandsmótiö er oröiö. Það
er liðin sú ntíö, aö t.d. íslandsmótinu
í mfl var hespað af á tveim til þrem
vikum.
Mér hetur talist svo til, aö þeir
leikir sem Mótanefnd KSI skipulegg-
ur og sér beint og óbeint um
framkvæmd á, séu í ár um 1050 og
fara þeir fram vítt og breitt um
landiö. Þeir mótanefndarmenn, Árni
Þ. Þorgrímsson og Bergþór Jónsson,
hafa því vissulega ekki setið auöum
höndum í vetur viö niöurrööun leikj-
anna og vert er aö hafa það í huga,
aö þeir vinna þessi störf án nokkurr-
ar greiöslu.
Það eru um 60 félög, knattspyrnu-
ráð og bandalög, sem senda flokka
til keppni í landsmótum í ár. Alls eru
leikirnir í 1. og 2. deild 180 talsins, en
í 3. deild sem leikin er í riölum eftir
landssvæöum eru leikirnir 193 og er
þaö lang umsvifamesta mótiö. Konur
leika 20 leiki, en í yngri flokkunum
eru leikirnir um 600. Þá eru leikir í
bikarkeppnunum þremur alls um 60.
Auk þess leikum við a.m.k. 6 lands-
leiki auk nokkurra landsleikja
drengja og unglinga.
Eftir þessa upptalningu sjá menn
hversu gífurlega mikið fyrirtæki
landsmótin eru oröin. Ég veit ekki
hve háar fjárhæðir hin ýmsu félög
greiða í feröakostnaö vegna leikj-
anna, enda mun þ.að nokkuö mis-
jafnt. Þó veit ég um eitt félag, sem
telur sig þurfa aö greiða um 8 millj.
króna í ár. Margir greiöa að vísu
minna, en ég gæti trúað aö þessi eini
kostnaðarliöur hjá félögum í lands-
mótum í ár, sé ekki undir 200
milljónum króna.
Feröakostnaöurinn er ekki nema
hluti þess kostnaðar, sem félögin
þurfa aö standa straum af vegna
starfsemi sinnar, þannig aö ég reyni
ekki að geta mér til um heildarkostn-
aöinn. Þó má reikna meö aö velta hjá
t.d. einu félagi í 1. deild, sem
jafnframt tekur þátt í Evrópukeppni,
veröi ekki undir 50 milljónum króna í
ár.
Verulegs hluta þess fjár, sem félög
hafa handa á milli til starfseml sinnar,
er aflað meö „sníkjum" ef nota má
það orð, því að óverulegur hluti þess
fæst af seldum aögangseyri aö
leikjum eða með opinberum styrkj-
um. Aö vísu er þetta nokkuð misjafnt
eftir félögum og stööum.
Það er vitað, að knattspyrnumenn
okkar leggja mikiö á sig vegna
æfinga og kappleikja, án þess aö
hljóta neinar peningagreiðslur fyrir,
enda munum viö vera einu 100%
áhugamennirnir a.m.k. í evrópskri
knattspryunu í dag. En eins og sést á
því sem ég hef hér að framan
lauslega vikiö aö, þá eru stjórnendur
þessara félaga ekki síöur áhuga-
menn og gleymist oft að geta þeirra
þegar þessi mál eru rædd. Ekkert lið
nær góðum árangri nema hafa aö
baki sér trausta og fórnfúsa foryst-
umenn.
Gorum sanniíjarnar
kröfur
Þegar við hér norður viö „Dumbs-
haf“ eins og Baldur vallarvörður segir
oft, erum aö berjast við að leika
knattspyrnu á grjóthöröum malar-
völlum í noröanbáli á höröu vori og
þykjumst góðir ef við getum stolist
inná einhvern túnskika í nokkrar
mínútur til aö undirbúa landslið
okkar undir stórátök í Evrópukepnni
landsliöa, æfa andstæöingar okkar á
iðgrænum knattspyrnuvöllum viö
bestu aöstæður. Auk þessa þurfa
þeir ekki annað aö gera en aö leika
knattspyrnu og hafa aö launum
fjárhæöir, sem við kunnum vart að
nefna. Svo þegar til leiksins kemur er
aö sjálfsögðu ætlast til þess aö sama
af okkar „áhugamönnum" og and-
stæðingum okkar. Þaö er gert oft á
tíðum góðlátlegt grín aö okkur þegar
viö bíðum lægri hlut og þá gripiö til
lélegra brandara, eins og að lúöra-
sveitin hafi átt besta leikinn, eöa
annað í þeim dúr. Þegar svo nokkr-
um forráðamönnum eöa stjórnar-
mönnum, sem leggja oft á tíðum nótt
viö dag til aö halda fyrirtækinu
gangandi, er sýnd sú umbun aö fá aö
fara í tveggja til þriggja daga ferö
meö liöinu, titlaöir því tignarheiti
„fararstjóri" eiga þeir á hættu að
vera kallaðir jólasveinar einn og átta,
eöa annað, eftir því hve mönnum
dettur í hug, aö þeir séu margir
hverju sinni.
Sannleikurinn er sá, aö viö getum
og eigum að vera stoltir af okkar
knattspyrnumönnum og viö eigum
ekki aö sjá ofsjónum yfir því aö
umbuna nokkrum forystumönnum
fyrir gott starf, svo fremi að þess sé
nokkur kostur. Við leíkum knatt-
spyrnu viö þær aðstæöur, að okkur
er ekki trúaö þegar viö erum, að
skýra þeim frá, er ekki þekkja til.
Þrátt fyrir þaö höfum við náö góöum
og stundum frábærum árangri í
viðureignum okkar viö stórþjóöir,
sem hafa þær aöstæöur, sem okkur
dreymir ekki um að eignast í náinni
framtíð. Öll gagnrýni er aö sjálfsögöu
nauðsynleg og engin biöst undan
henni, en hún veröur aö vera heiðar-
leg og byggjast á sanngirni og
sannleika. Knattspyrnuforystumenn
munu aö sjálfsögöu vinna að því af
alefli að bæta alla aöstööu fyrir
knattspyrnuíþróttina og þar hefur
miöað verulega í rétta átt á undan-
förnum árum. Hins vegar getum við
aldrei skapaö þær aðstæöur, því
miður, sem aörar þjóöir hafa upp á
aö bjóöa, af ástæðum sem öllum eru
kunnar og óþarfi er aö eyöa að
mörgum orðum.
Landsleikurinn gegn Sviss er
næsti stórviðburöur á knattspyrnu-
sviðinu hjá okkur, en liðin mætast í
síöari leiknum í 4. riðli EM laugardag-
inn 9. júní, eftir viku. Margir bíöa
þessa leiks meö eftirvæntingu, því aö
þar ætti aö geta orðiö um jafna og
spennandi viðureign aö ræða. Von-
andi getum við stillt upp okkar
sterkasta liöi og meö góöri aðstoð
þúsunda áhorfenda, tryggra stuön-
ingsmanna knattspyrnunnar ætti von
okkar um annan sigur okkar í
Evrópukeppni landsliða aö rætast.
Vonum að sú ósk rætist.
Helgi
Daníelsson
A EFTIR
B0LTANUM
GRUNDIG
20"4632
Loekkun kr.91.500.
Áðurkr.589.200.
Núúkr.497.700.
Vildarkjör Nesco
% Lltborgun: Mánaðargr.:
20% kr. 100.000 2 X kr. 199.000
30% kr. 149.000 3 X kr. 116.000
40% kr. 199.000 4 X kr. 75.000
50% kr. 249.000 5 X kr. 50.000
60% kr. 298.000 Frjálst innan árs
100% kr. 473.000 (5% staðgr.afsl.)
VEXTIR OG KOSTNAÐUR EKKIINNIFAUIÐ.
• Línumyndlampi. („Black-stripe inline“).
• Einingaverk.
• AFCog AGC (sjá 4613).
• Kalt kerfi. (Aukin ending).
• Framvísandi hátalari. (Betri hljómburður).
• Tónstillir fyrir bassa og diskant.
• Þráðlaus fjarstýring. (Innrauður geisli).
• Sjálfvirk miðstilling. Tölva sem stíllir liti,
birtu og hljóð eins og best verður á kosið,
strax við gangsetnjngu.
• Tölvubúinn, sjálfvirkur stöðvaveljari
með minni.
• Valhnotukassi eða silfur og svart.
Stærð 57 X 42 X 45 cm.
0PNA 0LLUM MOGULEIKA.
GILDA FYRIR ALLAR NESCO VÖRUR AÐVERÐMÆTI
YFIR KR.100.000.