Morgunblaðið - 10.06.1979, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1979
35
STÝRIMANNADEILD var starí-
rækt á Höfn í Hornafirði síðast-
liðinn vetur og í vor luku þaðan
10 manns á aldrinum 17 ára til
fertugs prófi, sem gefur þeim
réttindi á allt að 120 tonna báta.
Einn þeirra, sem stunduðu þenn-
an skóla í vetur, var Stefán
ólafsson, 31 árs Norðfirðingur
búsetttur á Höfn. Auk þess að
nema við skólann kenndi hann
þar og lauk síðan hæsta prófi
nemendanna og trúlega hæsta
prófi, sem tekið var á þessu stigi í
vetur.
Stefán lauk prófi í félagsfræði
frá Háskóla íslands vorið 1975 og
BA-ritgerð hans á sínum tíma
fjallaði um Alþingi og alþingis-
menn, en það er önnur saga.
Okkur lék forvitni á að vita hvað
hefði orðið til þess að hann settist
á ný á skólabekk og hóf að nema
skipstjórnarfræði.
— Ég hef nú verið á sjó með
skólanum síðan ég var 15 ára
gamall, svo sjómennskan var mér
alls ekkert framandi, segir Stefán
þar sem við spjölluðum saman á
bryggjunni á Höfn í Hornafirði. —
Ég kenndi í vetur íslenzku og
þjóðfélagsfræði við gagnfræða-
skólann hér og íslenzku við stýri-
mannadeildina. Það hentaði mér
ágætlega með kennslunni að læra
sjálfur.
— Þetta var aðeins 1. stigið, sem
við fengum að halda hér á Höfn,
en ef menn vilja læra meira verða
þeir að fara suður til Reykjavíkur.
Þetta námskeið stóð í 7 mánuði og
var fullur skóli þann tíma. Við
vitum ekki hvort slíkt námskeið
verður haldið hér aftur, en eitt
svona námskeið á t.d. þriggja ára
fresti brúar bilið og mettar þörf-
ina á svona stað í nokkur ár.
— Reynslan af þessari deild í
vetur réttlætir það, að námskeið
sem þetta séu haldin úti á landi.
Nemendur og kennarar voru allir
héðan og ég er viss um að a.m.k. 6
af 10 nemendum hefðu aldrei
drifið sig í að læra, nema af því að
námskeiðið var haldið hér á staðn-
um. Sumir fóru skítblankir í þetta,
en höfðu möguleika á að búa ódýrt
heima hjá sér, hægt var að hlaupa
í vinnu, t.d. í róðra um helgar.
Þetta ýtti mjög undir menn, sem
Þetta er gott
hvað með öðru
segir
Stefán Ólafsson
Félagsfræðingur
í skipstjórnar-
deildinni á Höfn
kannski hefðu aldrei lært meira
og mesta lagi verið stýrimenn á
undanþágu, sem er misjafnlega
þokkað eins og gengur.
— Hvað er svo framundan?
Stýrimennskan, kennslan, félags-
fræði eða meira nám?
— Þetta var vond spurning. Ég
veit það eiginlega ekki sjálfur. í
sumar verð ég stýrimaður á
Haukafellinu, en hvað verður
næsta vetur er enn ekki ákveðið.
Það er gott að hvíla sig á kennsl-
unni með því að skreppa á sjóinn
og öfugt. Éigum við ekki að segja
að þetta sé gott hvað með öðru,
sagði Stefán Olafsson að lokum.
HVERS VEGNA
40 hestaffla
•sasmxkZ
-Mfj
URSUS 40 ha. er létt og lipur dráttarvél, sem
hentar sérstaklega vel í öll léttari verk.
URSUS 40 ha.er mjög eyöslugrannur á tímum
ávallt hækkandi olíuverðs. (Eyöir ca. 2 I. á
vinnustund).
URSUS 40 ha kostar aðeins kr. 1.340.000.
URSUS 65 ha kostar aðeins kr. 1.840.000.
Hagstæð greiðslukjör
Verö á húsklæöningu kr. 225.000.-
Verö á moksturstækjum kr. 380.000.-
Verö á jarötætara kr. 292.000.-
Fyrirliggjandi.
Sundaborg 10, símar 86655 og 86680