Morgunblaðið - 10.06.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ1979
37
Vandað sjómanna-
blað Norðfirðinga
Tæknilegar upplýs-
ingar fyrir byggjendur
MIKIL gróska heíur verið í útgáfustarfsemi Rannsókna-
stofnunar byggingariðnaðarins að undanförnu. Stór þátt-
ur í starfseminni er útgáfa tæknilegra upplýsinga í
sérritum og lausblöðum, svonefndum Rb-blöðum, sem
safnað er saman í þar til gerðar möppur. Áskrifendur eru
800 að tölu.
SJÓMANNADAGSRÁÐ Nes-
kaupstaðar hefur sent frá sér
vandað Sjómannadagsblað, en
það er aflaskipstjórinn Magni
Kristjánsson, sem haft hefur veg
Fjölbreytt
efni í S jó-
mannadags-
blaðiVest-
mannaeyja
SJÓMANNADAGSBLAÐ
Vestmannaeyja er komið út,
en í blaðinu er f jöldi greina og
frásagna um sjómenn og at-
burði tengda sjónum. Blaðið
er á annað hundrað blaðsíður
að stærð og er mjög vandað til
þess. Ritstjóri Sjómannadags-
blaðs Vestmannaeyja er
Sigurgeir Jónsson, en blaðið
er gefið út af Sjómannadags-
ráði Vestmannaeyja.
Meðal efnis í blaðinu má
nefna lagið Sjómenn íslands,
þætti úr Norðursjó, grein um
Forsfðan á Sjómannadags-
blaði Vestmannaeyja.
Matsstöðina við Skildingaveg,
grein eftir Eyjólf Gíslason frá
Bessastöðum og önnur grein
um hann. Þá er grein um
Lúðrasveit Vestmannaeyja, um
það þegar Surtsey reis úr sæ og
um furðulega björgun, auk
viðtala við sjómenn, minn-
ingarorða um marga látna
sjómenn frá s.l. ári og margs
fleira.
Higgins
með
grafík-
list
SÝNING á verkum bandaríska
listamannsins Dick Higgins
hefst sunnudaginn 10. júní kl. 4
í Gallerí Suðurgötu 7, og mun
listamaðurinn lesa úr verkum
sínum við opnunina.
Higgins er fæddur í Englandi
1938 og fór til framhaldsnáms í
Bandaríkjunum. Hann hefur lagt
stund á margar listgreinar m.a.
tónlist, ritlist, kvikmyndalist og
myndlist.
Eftir Higgins hafa komið út
yfir 30 bækur og einnig hefur
hann gert bækur í samvinnu við
fjölda listamanna t.d. Dieter Rot,
Robert Fillou, George Brecht.
Michel Gibbs og Endre Tot. I
Gallerí Suðurgötu 7 mun hann
sýna grafík-seríu sem nefnist
7,7.73, en þessi sería var nýlega á
sýningu í New York. Sýningin
verður opin frá 4—10 virka daga,
en frá 2—10 um helgar. Sýning-
unni lýkur 24. júní.
og vanda af útgáfu þessa blaðs.
Með honum í ritnefnd voru þeir
Guðjón Marteinsson og Ragnar
Sigurðsson. Blaðið verður selt á
Norðfirði, en í Reykjavík verður
það til sölu f Blaðsölunni f
Austurstræti 18. Blað Norðfirð-
inganna er hátt f 100 sfður að
stærð og er efnið mjög fjölbreytt.
Tvær myndir Karls Hjelm frá
Norðfirði prýða forsfðu blaðsins.
í tilefni þess að hálf öld er liðin
frá því að Neskaupstaður fékk
kaupstaðarréttindi eru árinu 1929
gerð sérstök skil í blaðinu.
Efni blaðsins er ekki einskorðað
við Norðfjörð, heldur alla Aust-
firði og í formála kemur fram, að
stefnt sé að því að svo verði í
auknum mæli í framtíðinni. í
blaðinu eru viðtöl, greinar, skýrsl-
ur og mikið af myndum nýjum og
gömlum.
Um þessar mundir er stofnunin
að senda frá sér sex verkefni í
Rb-blaðamöppuna: 1) ísetning ein-
angrunarglers 2) efnaþol glers,
meðferð þess og geymsla á bygg-
ingarstað 3) skjólveggir 4) alkalí-
kísilefnabreytingar í steinsteypu,
kröfur til fylliefna 5) Einangrun-
arefni, gerðir og eiginleikar 6)
rýmisþörf bílastæða. Eru þar með
komin 30 verkefni í Rb-möppuna
og 10 verkefni eru í vinnslu! í
landj þar sem tíðkast að fólk búi
mjög um sig, byggi og gangi frá
lóðum sjálft, er hægt að sækja
ómetanlegan fróðleik og upplýs-
ingar í þessi leiðbeiningarit.
KAUPMANNAHÖFN
GLASGOW
51.000
HELSINKI
94.300
FÆREYJAR ~7Q 0/1/1
38.000 /J ÖUU
DUBLIN
5Z300
LUXEMBORG
78.300
LONDON
63.100
STOKKHOLMUR
84.000
GAUTABORG
72.900
OSLÓ
67.300
BERGEN
67.300
Vissir þú um
þetta verð ?
Ofangreind dæmi sýna fargjöld
(fram og til baka) hvers
einstaklings í fjögurra manna
fjölskyldu, sem nýtur
fjölskylduafsláttar frá almennum
sérfargjöldum.
Almenn sérfargjöld eru 6-30 daga
fargjöld sem gilda allt áriö til
nær 60 staöa í Evrópu -
en fari fjölskyldan saman til
Noröurlanda - Luxemborgar eöa
Bretlands fæst fjölskylduafsláttur
til viöbótar-og þá lítur dæmiö út
eins og sýnt er hér aö ofan.
Þar eru aöeins sýndir nokkrir
möguleikar af fjölmörgum - en
viljir þú vita um flugfargjöld
til fleiri staöa og alla afsláttarmögu-
leika sem bjóöast þá er bara aö
hringja í síma 25100, heimsækja
næsta umboösmann eöa söluskrif-
stofu okkar í Reykjavíkí Lækjar-
götu og aö Hótel Esju.
FLUGLEIDIR