Morgunblaðið - 15.06.1979, Side 10
42
MnwfiTTOBLADIÐ. FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ1979
Þaö komast allir
hringveginn í bíl
frá okkur.
Bílasala Eggerts,
Borgartúni 24, sími 28255.
Myndafolk
Nýkomið mikið úrval af aðdrattariinsum t.d.
Zeiss 180 mm f 2.8 og 300 mm f 4.0
Sigma 300 mm f 5.6 og 500 mm f 8.0
Canon 200 mm f 4.0 og 300 mm f 5.6
— Góð greiðslukjör —
Versliö hja
fagmanninum
Opið laugardag
kl. 10—12
LJOSMYNDAVÖRUVERSLUN
LAUGAVEGI 178 105 REYKJAVIK SIMI 85811
Husqvarna
MÓTORKNÚNAR
GARÐSLÁTTUVÉLAR
&
Mótorinn er
Amerískur.
f BRIGGS » STWATTON J
(Fjórgengis vél)
Viðurkenndasti smá
mótor í heimi.
Notar hreint bensín,
smurolían sér. Það
auðveldar
gangsetningu auk þess
er „start niður gírað"
Tvennskonar hnífabúnaöur
SLÆR ÚT Á KANTA
Útsölustaöir víða um land
\mnai Sfys^duúm h.f.
Upphaf
frjálsra íþrótta á
íslandi
Meðal þeirra var einn þátttakandi
í frjálsum íþróttum (100 m.
spretthlaupi). Var þar það -mjög
að vonum, að hann stæðist ekki
samkeppnina við hina þaulæfðu
keppinauta sína, eins og raun bar
vitni. — En meðfram vegna
þessarar þátttöku íslenzkra
(reykvískra) íþróttamanna í
Olympíuleikunum fórst fyrir að
halda íþróttamót í Reykjavík
þetta ár, því sumir þessara manna
— a.m.k. Sigurjón Pétursson og
Jón Halldórsson — fóru héðan að
heiman um veturinn eða vorið og
komu ekki heim fyrr en síðla
sumars. Hefur varla þótt gerlegt
að halda hér leikmót í fjarveru
þeirra — því fátt var hér þá æfðra
manna, eins og að líkindum lætur
— og hinsvegar of snemmt eða
seint að halda mót fyrir burtför
eða eftir heimkomu þeirra. Það
skal að vísu játað, að það er
tilgáta mín, að ástæðan til þess að
leikmót var ekki háð hér 1912 hafi
verið þessi. En mér finnst hún
mjög sennileg, því að í flokki
Olympíufaranna voru a.m.k. fjórir
ágætir frjálsíþróttamenn, og
engan mátti vanta, er frjáls-
íþróttamót átti að halda, ef þátt-
taka átti að heita sómasamleg, Og
auðvitað varð sízt komizt af án
beztu mannanna.
Árið 1913 — það mikla vætu-
sumar — hélt íþróttafélag
Reykjavíkur leikmót 2. og 3. ágúst.
Fór það vel fram og tókst ágæt-
lega. Á því móti komu fram tvær
nýjungar í frjálsíþróttum, er ekki
höfðu þekkzt hér áður: Aftur-
færsla spjótsins í atrennunni, og
snúningur í kringlukasti Báðar
þessar nýjungar stöfuðu frá þekk-
ingu, er fengizt hafði við þátttöku
íslendinga á Olympíuleikunum
árið áður. Voru það þeir Magnús
Tómasson (Kjaran) og Sigurjón
Pétursson, er fluttu þessar
nýjungar hingað, hvor í sinni
íþróttagrein. — Afrek þátttak-
enda á mótinu voru þessi:
100 m: 1. Kristinn Pétursson
13,0 sek. 2. Guðm. Kr. Guðmunds-
son 13,4, 3. Jón Halldórsson og Jón
Þorsteinsson 14,0.
800 m.: 1, Sigurjón Pétursson
2:15,5, 2. Magnús Tómasson
(Kjaran) 2:19,0, 3. Einar G. Waage
2:22,0,
1500 m: 1. Magnús Tómasson
4:52,8, 2. Sigurjón Pétursson
4:55,0, 3. Helgi Tómasson (læknir
og Skátahöfðingi; þá unglingur)
5:06,0.
10.000 m.: 1. Guðmundur
Jónsson 38:19,0 2. Tómas
Guðmundsson 45:00,0, 45:00,0, 3.
Magnús Tómasson (Kjaran).
4x100 m. boðhlaup: 1. II.
flokkur Skáta 61,0, 2. I. flokkur
Skáta 62,6.
Spjótkast: 1. Magnús Tómasson
33.62, 2. Karl Rydén 28.00, 3.
Sigurjón Sigurðsson 26.30.
Kringlukast: 1. Sigurjón
Pétursson 30.88, 2. Ólafur Sveins-
son 23.93, 3. Egill Guttormsson
23.29.
Kúluvarp: 1. Sigurjón
Pétursson 9.53, 2. Guðmundur Kr.
Guðmundsson 9.37, 3. Niljóhníus
Ólafsson 8.47.
Stangarstökk: Benedikt G.
Waage, Olafur Sveinsson og
Tryggvi Magnússon, allir jafnir á
2.66.
Drengjahlaup (60 m.) undir 12
ára aldri: 1. Magnús Stefánsson
10,0, 2. Guðmundur Guðmundsson
10,2, 3. L. Östlund 10,4. — Aðrar
greinar frjálsíþrótta voru ekki á
þessu móti.
Árið 1914 hélt U.M.F.Í. annað
landsmót sitt (17,—24) júní). Fór
það vel fram og við mikla þátt-
töku. Mun það hafa verið í fyrsta
sinn á því móti, að utanbæjar-
menn fóru með sigur af hólmi í
keppni við reykvíska frjálsíþrótta-
menn. Auk frjálsra íþrótta var
keppt í glímu, knattspyrnu, leik-
fimi, sundi o.fl. íþróttum á þessu
móti, eins og á landsmótinu 1911.
— Afrek keppenda í frjálsum
íþróttun fara hér á eftir:
100 m.: 1. Guðmundur Kr.
Guðmundsson 12,5, 2. Vilhelm
Stefánsson 12,6. — Gunnar Hall-
dórsson hafði unnið sér rétt til
úrslita í undanrás, en meiddist í
hástökki og gat ekki keppt í
úrslitunum.
200 m.: Guðm. Kr. Guðmunds-
son 26,1, 2. Guniiar Halldórsson
26,4, 3. Vilhelm Stefánsson 26,4.
Sjá síðu 17
Plötuspilarinn sem plöturnar kunna vel að meta — minnkað plötuslit — tónarmur sem
allsstaðar hefur vakiö athygli — listrænt útlit — gott verð og hagstæð greiðslukjör.
Vegna mikillar eftirspurnar er rétt að geta pess að framleiðslu-upplagið er
takmarkað.
Útsölustaöir um landiö:
Akranes: Lárus Ingibergsson, Skólabraut 8, sími: 2154.
Akureyri: Vöruhús KEA — Hafnarstræti 91—95, sími: 21400.
Eskifjöröur: RAFVIRKINN, Strandgötu 34, síml: 6165.
isafjöröur Verslun Kjartans R. Guömundssonar, Hafnarstræti 1, simi: 3507.
Keflavík: RADÍÓNAUST — Hafnargötu 25, síml: 3787.
Vestmannaeyjar: Halldór Axelsson Rafeindav. Kirkjuvegi 67, sími: 1757.
Útsölusfaðir í Reykjavík:
STERÍÓ — verslun með hágæöa hljómvörur — gegnt skattstofunni viö
Tryggvagötu. Sími: 19630.
Framleitt á íslandi meö leyfi Transcriptors Ireland Ltd.
Framleitt:
Rafrás hf.
söluskrifstofa
aö Ármúla 5, Reykjavík.
Opin 1—5 e.h. Sími: 82980.