Morgunblaðið - 17.06.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979 13
sonar er að vísu stórkostleg og
sýnir Jón í öllu sínu veldi, en
forsendurnar fyrir henni eru
hreinasta hneyksli, vægilega til
orða tekið. Ég hafði samband við
einn af þeim listamönnum, sem
átti málverk á fyrri sýningu í
þessum banka, og spurði hann,
hvort hann hefði fengið þóknun
fyrir lánið á mynd sinni. Hann
kvað nei við. Þarna á í hlut einn
af okkar yngri mönnum, sem
verður að berjast upp á líf og
dauða til að geta stundað mynd-
list. En hinn aðilinn er enginn
annar en Alþýðusamband
Islands, sú stofnun, sem telur
það sitt aðalverkefni að hugsa
um hag láglaunafólks, hvað þá
þeirra, sem ekki ná þeim flokki.
Afmælishátíðir Sjálfstæð-
isflokksins um allt land
í TILEFNI 50 ára afmælis Sjólfstæðisflokksins hofur verið ákveðið að efna til afmælishátíða víðsvegar um
landið. Hér er um að ræða skemmtanir með vönduðu og léttu efni, auk dansleikjahalds. Hátíöir Þessar
veröa haldnar á eftirtöldum stööum.
föstud. 29. júní á Patreksfirði,
laugard. 30. júní í Siglufirði,
föstud. 6. júlí í Siglufirði,
laugard. 7. júlí á Hofsósi,
föstud. 13. júlí á Hellissandi,
laugard. 14. júlí Saurbæ, Dal,
föstud. 20. júlí á Fáskrúðsfirði,
laugard. 21. júli á Egilsstöðum,
föstud. 27. júlí á Ólafsfirði,
laugard. 28. júlí í Skjólbrekku,
föstud. 3. ágúst á Kirkjubæjar-
klaustri,
laugard. 4. ágúst á Hellu.
í september að Stapa og í
Vestmannaeyjum.
Til þess að annast skemmti-
atriði á afmælishátíðum Sjálf-
stæðisflokksins í sumar hafa að
venju verið fengnir þekktir lista-
menn. Leikararnir Þóra Friðriks-
dóttir og Jón Sigurbjörnsson
munu flytja stutta leikþætti í
gamansömum dúr, auk þess sem
Jón tekur auðvitað lagið og Þóra
flytur gamanvísur. Þá mun hin
landskunna eftirherma og leikari
Jörundur Guðmundsson ekki
liggja á liði sínu í grínþáttunum
fremur en venjulega. Hljómsveit-
inni stjórnar svo Ólafur Gaukur
en í henni eru auk hans þau
Svanhildur, Einar Hólm, og Ingvi
Guðjónsson. Hljómsveitin mun að
venju eiga einhvern þátt í
skemmtiatriðunum auk leikar-
anna. Þá kemur fram ungt par frá
Karonsamtökunum sem sýna mun
hátískufatnað frá Karnabæ og
auk þess stíga stuttan diskódans.
Með í förinni verður 'svo Diskótek-
ið Dísa og auðvitað sérstakur
plötusnúður því meðfylgjandi.
Mun það annast hvers konar
tónlist, bæði á skemmtunum og tii
skiptis við hljómsveitina á dans-
leikjum, auk sviðsljósa. Þá verður
á skemmtunum þessum bingó
innifalið í aðganseyri með góðum
vinningum.
Þá munu forystum. Sjálfst.fl.
flytja stutt ávörp á hverjum stað.
Skemmtiatriði eru í þetta sinn
fjölbreyttari og höfða til stærri
hóps en áður hefur verið í svipuð-
um ferðum út um landið á vegum
Sjálfstæðisflokksins.
KONSTRUKTIIVISEN TAITEEN KANSAINVÁLINEN TYÖRYHMÁ
INTERNATIONELLA ARBETSGRUPPEN FÖR KONSTRUKTIV KONST
INTERNATIONAL WORKGROUP FOR CONSTRUCTIVE ART
INTERNATIONALER ARBEITSKREIS FÚR KONSTRUKTIVE GESTALTUNG
CENTRE INTERNATIONAL D’ÉTUDES D’ART CONSTRUCTIF
MAXIMAL- -MINIMAL
Englanti Lowe Steele Hollanti Hilgemann de Keijzer Islanti Ágústsson Italia Morandini Zilocchi
Puola
Winiarski
Ranska
Breval
Ruotsi
Ridell
Saksan Liittotasavalta
de Poortere
Schrader
Suomi Tanska
Kopteff
Kujasalo • Schwalbe
AMOS-ANDERSON HELSINKI 19.5-11.6-78
KEMIN TAIDEMUSEO 1.7-5.8 • 78
TAMPEREEN TAIDEMUSEO 16.8-3.9 • 78
Hámark
—lágmark
í sal Félags íslenzkra Mynd-
listarmanna við Laugarnesveg
stendur um þessar mundir yfir
sýning, sem nefna mætti leik
einfaldleikans og hreinleikans á
móti stærri formaheildum. Allt
er þetta nákvæmlega skipulagt,
mönnum sagt fyrir verkum í þá
veru að þetta eigi að vera þannig
og hinseigin, stærðarhlutföll eru
ákveðin fyrirfram og verkin
mega þannig ekki vera stærri en
þetta og hitt. Þannig verkar
þetta á hlutlausan áhorfanda
sem miðstýring myndlistar.
Nákvæm formfræði og mynd-
rænt meinlæti svo sem best
getur verið, hér er hlátur fjarri
og menn taka ofan hver fyrir
öðrum með mikilli andakt. Bein
lína á móti annarri beinni línu
svo að helst minnir á kennslu í
formfræði í listaskólum, en á
hærra stigi. Hér sér maður verk
sem á allan hátt eru nákvæm-
lega skipulgöð og minnir það
helst á þá áráttu húsameistara,
að skipuleggja allt fyrir hinn
saklausa borgara, húsin eiga að
vera þannig og hinsegin, —
svefnborgir eru hannaðar af
miklum móð en einhvernvegin
líður veslings fólkinu illa. Það
vantar eitthvað opinskátt,
segjum t.d. þann hlut i líkama
hvers manns sem hjarta nefnist,
æðaslátt og lifandi tilfinningar.
Að burthreinsa allt þetta og
hanna í stað þess hrein og klár
form hefur vissulega tilgang í
sjálfu sér og getur verið hreinn
unaður að skoða, — einfaldleik-
ans leik, vel fram borinn og af
mikilli umhyggju settur á stall.
En í þjóðfélagi, sem byggist á
tölvuvísindum og nafnnúmerum
hlýtur þetta að teljast vafasamt
fyrirtæki því að allur kraftur
myndlistarmanna ætti frekar að
beinast að því að opna augu
manna fyrir lífinu allt um kring,
— þessu merkilega lífi þar sem
gerfiþarfir eru ræktaðar af ofur-
kappi með tilstuðlan alls konar
skrumpésafræðinga, sálfræð-
inga og félagsfræðinga, sem
leggja áherslu á það að búa til
„þarfir" og „vandamál", sem
menn höfðu ekki hugmynd um
áður. í gamla daga lærðu menn
að lesa án þess að -það væri
skipulagt og tók það skamman
tíma, — í dag tekur það mörg ár
með tilstuðlan skólarannsókna,
skipulagið uppgötvaðist en til-
finningin gleymdist.
— Það er þannig engin furða
þótt fátt fólk komi á þessa
Myndiist
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
sýningu og ég skil ekki hvers
vegna þessi sýning er sett upp
hér í Reykjavík í sal þangað sem
fáir rata. Hún hefði átt að vera
sett upp í salarkynnum Lista-
safns Islands, og vera þar uppi á
sama tíma og skólar eru í gagn-
inu þannig að hægt hefði verið
að kynna hana betur. En að setja
hana upp í júnímánuði í sal FÍM
hefur engan tilgang og er það
furðulegt að slík sýning skuli
vera styrkt með miklum pening-
um úr samnorrænum sjóði með
þeim árangri að enginn kemur
til að upplifa og uppgötva þessar
einföldu staðreyndir.
Ég persónulega hafði mikla
ánægju af innliti og skoðun
sýningarinnar og hefði viljað
kynna hana meir og betur en
hún stendur aðeins yfir í 8 daga
og í ljósi þess eru mér mikil
takmörk sett.
Ég skil ekki þessa fram-
kvæmd, en þrátt fyrir það þakka
ég með virktum fyrir mig.