Morgunblaðið - 17.06.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1979
17
031
indum hefur þó engan tekið sárar til þess hve landsmenn
‘voru aumir og ósjálfbjarga í verzlunarmálunum, en Ar
lögmann Od/sson. Yar »revft stöku s.nnum á
4smönnurn væri
hans dögum og_a<
leyft aði
Gísli Mal
i bréfi till
til að vi
sem verzlJ
gaumur
sig smám
svo á. sei
ræða. Að
og eigi dró
um viðreisn]
aldar, en hitj
fram á neinj
leggia það til,
leyfð frjáls ver/ /%/>-6i4
aðrir af heí
kompir á
v&ri það fy^
íam haláb
biskup Viy
og sýslur/
ingum
sumir
s£gla
Gottrúp l _
afdráttarlaust, ____^
einokun arverzlunin sé sk
fiAn. sé landinu hágfeidust að ---------—/» - -T~TTn
áft ýmsu leyti, þvf enginn mum óneyddur haldá
sjálfum
var t. d.
íendur Jón
nokkrum
01, þegar
Segja. þeir
rþvi fram, að
n skoðuni að
jafnvel nauð-
„Enginn olíuforstjóranna hefði
treyst sér til að útvega olíu á
lægra verði en við kaupum af
Sovétmönnum."
Þetta er merkileg yfirlýsing
ráðherrans með tilliti til þess, sem
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson,
stjórnarformaður Skeljungs h/f
og fyrrverandi forstjóri félagsins,
segir í breiðsíðusamtali við Þjóð-
viljann fimmtudaginn 14. júní sl.,
en þar kemst stjórnarformaðurinn
m.a. svo að orði, eftir að hann er
búinn að tala um „100% lygi“
Morgunblaðsins: „Aðspurður,
hvort möguleikar væru að kaupa
olíu á hagstæðara verði en nú er
gert svaraði Hallgrímur því til, að
ákaflega erfitt væri að segja til
um það núna. Olían væri keypt á
heimsmarkaðsverði, sem miðað
væri við Rotterdammarkaðinn og
Rússar fylgdu þessu verði eins og
aðrir. Hallgrímur taldi þó helztu
möguleika á að kaupa olíu á
Cúracao-verðinu, en kvaðst ekki
geta fullyrt, hvort sá markaður
væri hagstæðari nú, en þó væri
það ekki ólíklegt.
Hallgrímur vildi gjarnan, að
það kæmi fram, að Islendingar
væru bundnir viðskiptasamning-
um við Sovétmenn. Við seldum
þeim fisk og keyptum olíu í stað-
inn. Hann vildi því ekki útiloka, að
ef til vill væri hægt að fá hag-
stæðara verð, ef félögin keyptu
beint frá sínum umbjóðendum,
þ.e. frá Shell eða BP.“ (Leturbr.
Mbl.).
Svo mörg eru þau orð.
Gunnar Guðjónsson stjórnar-
maður í olíuverzlun Islands segir í
öðru breiðsíðusamtalinu við Þjóð-
viljann m.a.: „Þetta eru búin að
vera hrein geðveikisskrif í ákveðn-
um fjölmiðlum um olíukaup okkar
íslendinga", og leynir sér ekki að
ummæli þessi, eins og sumt annað
sem í þessum samtölum stendur,
er þeim Þjóðviljamönnum og al-
þýðubandalagsráðherranum þókn-
anlegra en flest annað, sem birzt
hefur í fjölmiðlum undanfarnar
vikur. Notum við tækifærið og
óskum báðum aðilum til hamingju
með hina nýju breiðfylkingu
sumra íslenzkra olíuseljenda,
rússneskra arðránsmanna og
íslenzkra hörmangara í Alþýðu-
bandalaginu. Það var kominn tími
til að ný breiðfylking yrði mynduð
á Islandi, og vonandi fer þessi
eining andans ekki fram hjá
nokkrum manni, enda þótt við-
skiptaráðherra og stjórnarfor-
mann Skeljungs greini þó nokkuð
á um olíumálin, eins og bent er á
hér að framan. En hvernig væri að
þessir menn hættu að beina spjót-
um sínum að Morgunblaðinu, en
beindu þeim þangað, sem rétt
væri, þ.e. að rússneskum olíuselj-
endum okkar? Ríkiskapital-
istunum; marxistunum. Það
gæti verið íhugunarefni í dag, á 35
ára afmæli íslenzka lýðveldisins.
En á sama tíma og sú skoðun er
sett fram hér í Reykjavíkurbréfi,
er einnig ástæða til að benda á, að
það hefur áður komið fyrir, að
íslenzkir ráðamenn hafi ekki haft
trú á því, að Islendingar gætu haft
hagstæðari verzlun en þá, sem
einokunarkaupmenn og hörmang-
arar fyrri tíma höfðu upp á að
bjóða. Það skulum við ekki síður
íhuga i dag. Vaninn er lítilli þjóð
jafn hættulegur og andvaraleysið,
ef ekki hættulegri. Auðvitað eig-
um við að leita nýrra leiða til að
draga úr arðráni olíuseljenda
okkar. Þegar Cúracao-verðmið-
unin var okkur óhagstæð, höfðum
við djörfung til að reyna nýjar
leiðir og láta vanabindandi við-
skipti lönd og leið. Morgunblaðið
gerir sér grein fyrir því, að breyt-
ing á olíukaupum okkar verður
ekki gerð með einu pennastriki, en
í stað þess að úthúða blaðinu, ættu
þeir, sem ábyrgð bera á olíukaup-
um og fisksölu til Sovétríkjanna
að snúa bökum saman og reyna að
dreifa áhættunni, sem getur orðið
litiíli þjóð og sjálfstæði hennar
hættulegra en flest annað, þegar
fram líða stundir.
Lítil þjóð má aldrei verða svefn-
gengill vanans. Hún verður að
vera vel á verði og krefjast þess af
forystumönnum sínum, að þeir
leiti ávallt nýrra ráða til að
tryggja efnahagslegt sjálfstæði
hennar, eins vel og unnt er. Það
var ekki vegna neinnar andstöðu
við íslenzku þjóðina og óskir
hennar, sem ýmsir forráðamenn
treystu sér ekki til að gera tillögur
um breytta verzlunarhætti fyrr á
tímum, heldur vegna þess að þeir
voru vananum ofurseldir, þorðu
ekki að grípa á neinu kýli og trúðu
ekki á, að svo lítil þjóð sem
íslendingar gæti leitað nýrra
leiða og sigrazt á hrikalegum
vanda. I framhaldi af þessu
skulum við minnast þess, sem Jón
J. Aðils segir í riti sínu,
Einokunarverzlun Dana á íslandi
1602—1787, og hafa það til hlið-
sjónar því, sem nú er að gerast hér
á landi. Tilvitnun í hið merka rit
Jóns J. Aðils er orðin nauðsynleg
hugvekja, eins og málum er háttað
á Islandi, og full ástæða til að
minna á hana á 35 ára afmælis-
degi íslenzka lýðveldisins. Hann
segir m.a.:
„Það er og auðsætt af
kæruskjölum Þórðar sýslumanns
Mjólkurfræðingadeilan:
Gerðardómur
fullskipaður
GERÐARDÓMUR um kjör
mjólkurfræðinga er nú fullskip-
aður og mun hann halda sinn
fyrsta fund n.k. þriðjudag.
Björn Ingvarsson yfirborgar-
dómari skipaði eftirtalda þrjá
menn í dóminn: Bjarna K. Bjarna-
son, borgardómara, sem er for-
maður, Sigríði Vilhjálmsdóttur,
þjóðfélagsfræðing, og dr. Grím
Þór Valdimarsson, gerlafræðing.
Mjólkurfræðingar tilnefndu tvo
menn, Héðin Þorsteinsson mjólk-
urfræðing á Akureyri og Þórarinn
Sigmarsson mjólkurfræðing,
Glóru, Hraungerðishreppi. Vinnu-
veitendasamband íslands til-
nefndi Þorstein Pálsson fram-
kvæmdastjóra og Vinnumálasam-
band samvinnufélaga tilnefndi
Skúla Pálmason hrl.
Slippstöðin flýtir sum-
arleyfum starfsmanna
„VIÐ höfum orðið fyrir alls konar truflunum og það er
fyrirsjáanlegt að þótt farmannaverkíallið leysist í dag eða á
morgun, fáum við ekki ýmsa hluti sem okkur vantar fyrr en eftir
nokkurn tíma. Af þessum ástæðum höfum við óskað eftir því við
starfsfólk okkar að það flýti sumarleyfum sínum,“ sagði Gunnar
Ragnars, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri í
samtali við Mbl.
Gunnar sagði að hjá Slipp-
stöðinni væri hefð að sumarleyfi
byrjuðu um 20. júlí en nú ætti að
loka fyrirtækinu frá 8. til 20. júlí
og óskað væri eftir því við
starfsfólkið að það byrjaði í
sumarleyfi 1. júlí en það væri
ekki skylda fyrr en 8. júlí.
Gunnar sagði að sú óvissa, sem
nú ríkti bæði vegna aflatak-
markana hjá flotanum og far-
mannaverkfallsins hefði raskað
áætlunum fyrirtækisins. Þannig
vantaði ýmsa hluti til smíða t.d.
timbur í innréttingar og vara-
hluti í skip, sem átt hefði að
skipta um en Slippstöðin á næg-
ar birgðir af smíðajárni. „Við
ætlum að nota sumarleyfistím-
ann til að endurskipuleggja
starfsemina og draga að okkur
efni,“ sagði Gunnar.
Henrikssonar frá 1647, að hann
hefur haft ímugust á einokunar-
verzluninni og sárnað athæfi
kaupmanna, þó að hann hreyfi
eigi neinum breytingum á
verzlunartilhöguninni. Að líkind-
um hefur þó engan tekið sárar til
þess, hve iandsmenn voru aumir
og ósjálfbjarga í verzlunarmálun-
um, en Arna lögmann Oddsson.
Var því enn hreyft stöku sinnum á
hans dögum og að hans forlagi, að
landsmönnum væri leyft að eiga
kaup við erlendar þjóðir í lífs-
nauðsyn, og Gísli Magnússon á
Hlíðarenda (Vísi-Gísli) fór fram á
það í bréfi til stjórnarinnar nál.
1650, að íslendingar fengi leyfi
til að verzla við aðrar þjóðir með
þær afurðir landsins, sem
verzlunarfélagið vildi eigi nýta.
Þessu var þó enginn gaumur gef-
inn, og fóru landsmenn upp frá
því að sætta sig smám saman við
einokunina eða öllu heldur að líta
svo á, sem eigi gæti verið um aðra
verzlunartilhögun að ræða. Að
vísu sáu menn glögt þau missmíði,
sem á voru, og eigi dró Páll
Vídalín lögm. dul á anmarkana í
riti sínu um viðreisn íslands (Deo,
Regi, Patriæ) frá lokum 17. aldar,
en hitt lét hann sér þó eigi koma
til hugar, að fara fram á neina
stefnubreytingu í verzlunar-
málunum eða leggja það til, að
einokunin væri afnumin og ís-
lendingum leyfð frjáls verzlun
við aðrar þjóðir. Bæði hann og
sumir aðrir af helztu mönnum
landsins voru meira að segja
komnir á skoðun Dana um það,
að íslendingum sjálfum væri það
fyrir beztu að einokunin héldist.
Þessu er t.d. fram haldið í bænar-
skrá þeirri, sem þeir frændur Jón
biskup Vídalín og Páll lögmaður
ásamt prestum nokkrum og sýslu-
mönnum rituðu konungi af alþingi
1701, þegar Gottrúp lögm. fór utan
í erindum landsmanna. Segja þeir
afdráttarlaust, að enda þótt marg-
ir haldi því fram, að einokunar-
verzlunin sé skaðleg, þá sé það sín
skoðun, að hún sé landinu hag-
feldust að svo stöddu og jafnvel
nauðsynleg að ýmsu leyti, því
enginn mundi óneyddur halda
uppi siglingum til landsins þegar
illa ári, og eins megi búast við því,
að allir þyrpist á fiskihafnirnar
þegar vel aflist en líti eigi við
hinum, ef verzlunin sé gefin frjáls.
Er þá svo komið, að Islendingar
voru sjálfir farnir að trúa þessari
fjarstæðu og veitti mjög erfitt að
útrýma henni aftur, eins og síðar
mun ljóst verða. í bréfum þeim,
sem íslenzkir embættismenn
skrifuðu Raben stiftamtmanni
1720, er að sönnu kvartað um
anmarka á verzluninni og beiðst
lagfæringar á þeim, en enginn
þeirra hreyfir neinum tillögum í
þá átt, að slakað sé á verzlunar-
böndunum eða öðrum þjóðum
leyft að sigla hingað. Landfógeti
segir jafnvel afdráttarlaust, að
verzlunin sé eigi betur komin í
annara höndum en Dana, því
væri öðrum þjóðum leyfð verzlun
á íslandi, þá mundi það verða
landinu til niðurdreps og
bölvunar. Sömu skoðunar var
Oddur lögm. Sigurðsson í svari
sínu 17. des. 1722 við tillögunni um
að flytja íslenzku verzlunina til
Björgynjar. »Ég get ekki séð«,
segir hann, »að íslendingar væru
betur settir með aðra verzlunartil-
högun en þá, að hún sé rekin frá
Kaupmannahöfn eða Danmörku,
því svo framarlega sem verzlunin
kæmist í hendur Þjóðverja eða
Hollendinga, þá fengi íslendingar
enn verri útreið, eins og dæmin
sanna frá dögum Hansaverzlunar-
innar, og fengi Norðmenn hana,
þá eru engin líkindi til, að þeir
mundu láta sér farast betur við
íslendinga en við landa sína á
Hálogalandi og Finnmörk fyrir
nokkrum árurn." (Leturbr. Mbl.)
Það er margt líkt með
einokunarverzluninni og afstöð-
unni til hennar og Rússlandsvið-
skiptunum nú um stundir. Það fer
að verða augljóst, hvar brennidep-
ill sjálfstæðisbaráttunnar er.
Megi augu ráðamanna opnast,
áður en hörmangarar ná kverka-
taki á Islendingum enn einu sinni;
áður en þeir leggja aftur undir sig
íslenzk fiskimið — á olíutunnum.
Við höfum annað að gera við
stopula fiskistofnana. .
P.S. En meðal annarra orða: Er
það lífsspursmál, að engir tali um
orku — og olíumál í ríkisfjölmiðl-
um aðrir en ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins? Er það fyrirskipun
„að ofan" — eða hvað?